Morgunblaðið - 21.02.1967, Blaðsíða 23
MORGUHBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1967.
23
Minning:
Minning:
Klemens Samúeisson
bóndi og kennari
MTÐVIKUDAGINK 15. febrúar
gl. lézt á heimili sínu Gröf í Mið
dala'hreppi í Dalasýslu, Klemens
Samúelsson, bóndi og barna-
kennari, faeddur 27. ágúst 1879.
Hann ólst upp með foreldrum
sínum Samúel Jósúarsyni í Bæ
og Gróu Klemensdóttur frá
Gröf, ásamt 7 systkinum við
erfiða lífsafkomu eins og þá var
tíðast, einkum þar sem bövn
voru mörg og mikils þurfti með
til lífsbjargar, jafnvel þó ailt
væri sparað til hins ítrasta. Níu
ára gamall varð Klemens að
fara að heiman til þess að vinna
fyrir sinu daglega brauði, sem
smali á kvíaám yfir sumartím-
ann, mun svo hafa verið í nokk-
nr ár. Á unglingsárum var hann
ársmaður i 6 ár á sama bæ, og
þótti trúverðugur og góður verk
maður.
Um aldamótin var stofnaður
alþýðuskóli í Búðardal. I>á greip
Klemens tækifærið og fór í þann
skóla til náms og menningar, því
bæði var hann vel greindur og
hafði löngun til menntunar; hef-
ir því eflaust notað sér vel þá
fræðslu er veitt var, og taldi
hann sig hafa fengið þar þá
fræðslu er varð honum ómetan-
leg á lífsleiðinni, enda sá eini
skólalærdómur er hann naut 1:1
nndirbúnings kennarastarfinu er
hann byrjaði veturinn 1904—05
1 Skógarstrandarihreppi, og héit
því starfi áfram til 1949 á ýms-
um stöðum meðal annars nokk-
ur ár í Barðastrandarsýslu.
Nokkur ár féllu þó úr á þsssum
tíma vegna búskaparanna, og
starfsemi í opinberum máium í
sveit hans er hann var kjörinn
tíl, Meðal annars var Klemens
lengi formaður sóknarnefndar,
1 hreppsnefnd, skattanefnd, o.fl.
trúnaðarstörfum. Allsstaðar vel
látinn, samvinnufús gætin og
glöggur. Hann þótti ágætur
barnafræðari, og lagði álúð í
starfið ekki síður við þau börn
er áttu erfiðast með að læra.
>ess má og geta, að þegar ung-
mennafélag var stofnað í hreppn
tim heima, gerðist Klemens strax
félagi í því, og ef mig minnir
rétt, var hann í því til dauöa-
dags, seinustu árin líklega he:ð-
ursfélagi. Hann var áVallt ungur
í anda og vildi fylgjast með í
tækni og framfarffmálum hvrrs
tíma, gestrisihn með ágætum,
enda þjóðvegur um bæjarhlaðið
eftir að fólksflutningar hófust
með föstum áætlunarferðum til
Vestfjarða, og muna margir veg
farendur minnast þess að hafa
fengið góðgerðir í Gröf, jafnvel
á nótt sem degi. Hann var glað-
ur á góðri stund meðal vina og
kunningja og gat haft frá mörgu
að segja, sögufróður og minnug-
ur vel á fyrri alda bókmenntir
bæði í ljóðum og lesmáli.
Klemens byrjaði búskap á fæð
ingarstaðnum Bæ, árið 1907, eft
ir lát föður sins. Bjó þar fyrstu
árin með móður sinni, kvæntist
þar eftirlifandi konu sinni
Sesselju Daðadóttur, Daníelsson
ar frá Setbergi og Maríu Andrés
dóttur, er lézt háöldruð í Stykk
isthólmi, eins og getið var um
bæði í dagblöðum og útvarpi, en
Maria var systir hinna lands-
kunnu skáldkvenna Ólínu og
Herdísar. Sesselja er hugljúf
ágætiskona er annaðist um heim
ilið með sívakandi umhyggju,
ásamt bræðrum Klemensar alla
þá vetur er maður hennar var
að heiman við kennslustörfin.
Árið 1915 fluttu þau hjónin að
Gröf er Klemens hafði þá keypt.
>ar hafa þau búið síðan. I>eim
hjónum varð ekki barna auðið,
en tóku sér fósturdóttir nýfædda
er þau ólu upp. Einnig ólu þau
upp tvö systkinabörn hans. Tvö
hin seinustu árin hefir sonur
fósturdóttur þeirra tekið við
jörð og búi er þau aflhentu hon-
um, og verið i skjóli hans þar
síðan. Nokkur hin seinustu ár
var Klemens nær alblindur og
farinn að heilsu. Hefir Sesselja
þá verið hans ástríka og um-
hyggjusama hjúkrunarkona til
hinztu stundar.
Klemens hafði aldrei stórt bú,
en lét fóðra vel allan búfénað,
og reyndi að kynbæta hann og
fékk því hinn ágætasta arð af
búfénu einkum sauðfé, gat því
bætt jörð sína að mörgu leyti,
ræktað og ræst fram til stækk-
unar túni, girt það vel, og að
nokkru leyti bithaga líka, byggt
við og endurbætt gamalt íbúðar
hús og endurbyggt öll penings-
hús, vera þó efnalega vel stæður
að lokum, frá því að hafa alist
upp í sárustu fátækt. Það segir
til um að mikið var í hann
spunnið.
Að síðustu vil ég minnast þess
að við Klemens vorum nágrann-
ar um 40 ára skeið, og deildum
aldrei um búfjárhaga eða neitt
annað viðkomandi nágrenninu
og fór þó fénaðurinn oft yfir
mörkin. Hann var hinn ágætasti
granni sem hægt er að fá, hjálp-
fús og velviljaður. Ég þakka
þeim hjónum margra ára vin-
áttu mér og mínum auðsýnda.
Óska Sesselju og öllum aðstand-
endum blessunar um ókomin ár,
og mínum látna vini góðrar
heimkomu í nýjum bústað eilífð
arinnar.
Jón Sumarliðason,
frá Breiðabólstað.
Kvenstúdenlafélag íslands
Fundur f kvenstúdentafélagi íslands verður haldinn
í Þjóðleikhúskjallaranum miðvikudaginn 22. febrú-
ar kl. 8,30.
Fundarefni:
Staða konunnar í nútímaþjóðfélagi.
Svava Jakobsdóttir B. A.
Ingimar M. Björnsson
KVEÐJA FRÁ ÁST'TNUM
Nú er brugðið birtu
burt er vinur farinn.
Geymir margar myndir
minninganna arin.
Eins og leiftur logi
lífið framhjá streymir.
Þó að dagur dvíni
Drottinn engum gleymir.
Þegar sorgin sára
svellur innst í barmi.
Þá er trúartraustið
tryggt, að létta harmi.
Margt er þér að þakka,
það ei tálkað getum.
Þó til æfienda —
elskum þig og metum.
Vinur: Guð þig geymL
Góður faðir varstu,
fórn og fyrirhyggju
fram til gjafa barstu.
Sár var sjúkdómsþrautin
sem þú líða máttir.
Þrek í reynslu og raunum
ríkan mæli áttir.
Kveðjustund er komin
hvílurúmi yfir.
Er það örugg vissa
andinn glaður lifir.
Vertu sæll að sinni,
sigri fagna eigum.
Öll í eilífðinni
aftur hittast megum.
bezti afi, enda elskaður af þeim
öllum. Eiginmaður og faðir var
hann með afbpigðum, góður og
umhyggjusamur. Þau hjónin
eignuðust tvö börn, dreng og
stúlku, og urðu þau fyrir þeirri
miklu sorg að missa son sinn
ellefu ára gamlan, og veit ég að
Ingimar beið þess aldrei bætur,
þó hann flíkaði því ekki, enda
karlmenni mikið. Dóttirin Jó-
hanna Þórunn naut allrar hans
ástúðar og umhyggju. Hún stund
ar nú nám í Kennaraskóla ís-
lands, og hafa þær mæðgur misst
mikið, það skarð verður aldrei
fyllt og bið ég þann sem öllu
ræður að styðja þær og styrkja
í þeirra miklu sorg. Guði er ekk-
ert ómáttugt. Ingi minn (eins og
við kölluðum hann) þegar ég
sezt niður og ætla að skrifa
kveðjuorð frá mér og fjölskyldu
minni, sem erum búin að búa í
sama húsa í hart nær tuttugu
og fimm ár, þá veit ég ekki á
hverju á að byrja, það er svo
margt að þakka, því aldrei bar
skugga á sambúðina. Þú varst
alltaf sami góði drengurinn, en
sérstakar þakkir vil ég þó færa
þér fyrir þá miklu velvild og
umhyggju sem þú barst til dótt-
ur okkar. Þú varst alltaf sem
stóri bróðir, Guð blessi þig fyr-
ir það. Við söknum þín öll mik-
ið og biðium þér allrar Guðs
blessunar í nýjum húsakynnum.
Ég veit og trúi að þú fáir góða
heimkomu.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðar-hnoss þú hljóta
skalt.
Sigríður Hannesdóttir.
f DAG verður til moldar bor-
inn Ingimar Magnús Björnsson,
vélvirki, Meðalholti 9. Hann and
aðist í sjúkrahúsi Hvítabandsins
14. þ. m.
Ingimar var fæddur í Reykja-
vík 5. júlí 1904, foreldrar hans
voru hjónin Margrét Vigfúsdótt-
ir og Björn Jóhannsson verka-
maður. Inigmar ólst upp í stór-
um systkinahópi. Á þeim árum
var erfitt að framfleyta stórri
fjölskyldu, það var lítil vinna og
þeim mun minna kaupið, en
Björn var einn af þeim fáu í þá
daga sem skildu tilgang verka-
lýðsbaráttunnar og hélt því til
dauðadags. Það kom því fljótt í
hlut elztu sonanna að fara að
vinna þegar kraftar leyfðu, og
veit ég að Ingimar "hefur ekki
látið sitt eftir liggja, enda mat
hann foreldra sína mikils og
þeirra lífsbaráttu, enda var hann
með foreldrum sínum allt til árs-
ins 1937 er hann gekk að eiga
eftirlifandi konu sína, Mariu
Hannesdóttur, sem þá var ekkja
með tvö börn, 13 og 14 ára, sem
eru Herdís handavinnukennari í
Kópavogi og Hannes félagsfræð-
ingur. Og er óhætt að segja að
beim reyndist hann sem bezti
faðir, enda mundu þau ekki
föður sinn, því hann dó frá þeim
tveggja og þriggia ára. Og börn-
um þeirra reyndist hann sem
Innflutningsfyrirtæki
óskar eftir að ráða duglega stúlku hálfan daginn.
Ensku og vélritunarkunnátta nauðsynleg. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir 17, þ.m. merkt: „8595“.
, Vil kaupa
vel tryggð fasteignaveðbréf til skamms tíma.
Tilboð er greini vexti, veð og lánstíma sendist
blaðinu merkt: „Verðbréf — 8661“.
Kópavogur
Aðalfundur byggingasamvinnufélags Kópavogs,
verður haldinn í Félagsheimilinu miðvikudaginn
1. marz n.k. kl. 20,30.
Dagskró: Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Leyndardómur ánægjulegra nýrra og mildari reykinga
Krystaltært munnstykki
H54 filter^v
Orvals milt vindlatóbak ^
■VMJTIER
PERFECTO
FiLTER VINDLAR
PAKKI MEO FIMM KR. 35.50
STJÓRNIN.