Morgunblaðið - 21.02.1967, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1S67,
- KENNEDY
Framhald af bls. 1.
að því að þetta var sami maður
inn og sá, sem handtekinn var
fyrir morðið á Kennedy. f fylgd
með honum voru tveir menn,
sem virtust vera annað hvort frá
Kúbu eða Mexíkó. Og næsta dag
hringdi annar þessara manna til
hennar og sagði að Oswald hafi
áður verið í landgönguliði banda
riska flotans og skarað fram úr
I skotfimi. Hafi maðurinn það
eftir Oswald að í rauninni hefði
átt að myrða Kennedy forseta eft
ir hina misheppnuðu innrásartil
raun flóttamanna við Svínaflóa á
Kúbu árið 1961.
Frú Odio sikýrði Warren nefnd
inni frá því að þremenningarnir
hefðu sagzt koma frá New Orle-
ans. Nefndin dró framburð henn
ar í efa, og fól alríkislögreglunni,
FBI, að rannsaka málið. Áður en
rannsókn FBI lauk fór Warren-
skýrslan í prentun, og var þá
ekíki gert meira í málinu, segir
Wheeler.
Gremja vegna Svínaflóa.
Einn af aðstoðarmönnum Garri
sons ríkissaksóknara við rann-
sóknina er Bernardo Torres, 32
ára flóttamaður frá Kúbu. Hann
hefur áður starfað hjá banda-
rísku leyniþjónustunni, og að-
stoðaði m.a. við að gæta Kenne-
dys í Miami fjórum dögum fyrir
morðið. Torres er enn búsettur
í Miami ásamt fjölda annara
flóttamanna og sagði við frétta-
menn á sunnudag að rannsókn
Garrisons ætti eftir að velta
stoðunum undan skýrslum Warr-
ennefndarinnar og FBI u-m morð
ið.
Þegar Kennedy heimsótti
Miami var Torres einn þeirra tíu
flóttamanna frá Kúbu, sem leyni
þjónustan fékk til liðs við sig
til að gæta forsetans. Var það
aðalhlutverk þeirra að hafa eftir
lit með öðrum flóttamönnum,
sem þóttu grunsamlegir. Segir
Torres að leyniþjónustan hafi þá
óttazt að tilraun yrði gerð til
að ráða Kennedy af dögum, því
mikil gremja var meðal margra
flóttamanna vegna viðbrögða
forsetans þegar innrásartilraunin
var gerð við Svínaflóa.
Torres segir að Garrison hefði
ráðið sig til að rannsaka fortíð
nokkurra kúbanskra flótta-
manna, sem sagt var að hefðu
verið með Oswald skömmu fyrir
morðið. Hafði Torres séð Ijós-
myndir af Oswald, sem teknar
voru í New Orleans fyrir morðið,
og var hann þar í fylgd með
nokkrum Kúbubúum. Ekki
kvaðst Torres hafa þekkt þessa
menn.
í sambandi við rannsókn Garri
sons hefur Torres ferðast oft
milli Miami og New Orleans.
Kvaðst hann vinna að rannsókn
inni í þágu alþjóðar, kauplaust,
en Garrison endurgreiddi honum
útlagðan kostnað. Hann neitaði
að svara því hvort Oswald hefði
komið til Miami til viðræðna við
flóttamenn þar. Ekki vildi hann
heldur ræða þá staðhæfingu að
sumir flóttamannanna, sem voru
æfir út í Kennedy fyrir að hafa
ekki skorizt í leikinn þegar inn-
rásartilraunin var gerð, hafi rætt
um það að ráða forsetann af dög
um. Torres tók sjálfur þátt í inn-
rásinni. ,
Fjórir eða fimm menn.
Dave Lewis, sem sagt er að sé
vitni í þessu máli Garrisons,
starfar við strætisvagnamiðstöð í
New Orleans. Sagði hann frétta-
mörmum í dag að fjórir eða fimm
menn væru viðriðnir samsærið,
MarfineCarol lálin
FYRIR viku lézt í Monte
Carlo franska kvikmyndaleik
konan Martine Carol, 46 ára
gömul. Banamein hennar var
hjartabilun. Leikkonan var
nýkomin til Monte Carlo að
vera við frumsýningu á nýrri
ítalskri mynd, „Arrivederci
Baby“ en sótti ekki frumsýn-
inguna vegna lasleika og lézt
um nóttina.
Martine Carol var ein kunn
asta kvikmyndaleikkona
Frakka og fegurðardís á ár-
unum eftir heimsstyrjöldina
síðari og var oft í gamni köll-
uð „bezt fáklædda kona
Frakklands". Hún hóf leik-
feril sinn á sviði eftir nám
við École des Beaux Arts í
París en sneri sér fljótlega
að kvikmyndaleik og hlaut
af mikla frægð og vinsældir.
Meðal kunnustu kvikmynda
sem hún lék í um dagana má
nefna myndirnar „Caroline
Chérie“, „Adorables Créatur-
us“, „Nathalie", „La fran-
caise et l’amour" og „Don
Juan de la Cote d’Azur".
og byggju sumir þeirra enn 1
New Orleans. Gefið er í skyn að
Lewis hafi haft vitneskju um
samsærið, en hann kvaðst hafa
fengið ströng fyrirmæli um að
segja ekki of mikið. ,Ég skýri
ekki frá nöfnum mannanna fyrr
en ég fæ heimild Garrisons ríkis
saksóknara til þess, en full-ljóst
er að um samsæri var að ræða og
að fleiri en Oswald áttu þátt í
morðinu", sagði hann. Aðspurður
Martine Carol var fjórgift,
síðast brezkum kaupsýslu-
manni, Mike Eland, sem var
með henni í ferðinni til Monte
Carlo og kom að henni lát-
inni fyrstur manna. Fyrri eig
inmenn Martine voru Stephen
Crane, Christian Jacques og
André Rouveix.
Martine Carol hafði mjög
fengið að kenna á algengum
fylgikvilla skjótrar frægðar,
taugaveiklun og m.a. tvisvar
reynt að fremja sjálfsmorð.
Hún dró sig í hlé frá kvik-
myndaleik fyrir nokkrum ár-
um, dvaldist síðan lang-
dvölum á Suðurhafseyjum,
þar sem hún giftist þriðja
manni sínum, en skildi fljót-
lega við hann, kom aftur
heim og hugðist hefjast
handa á nýjan leik en fara
sér hægt. Hún giftist Mike El-
and í júní sL og var ekki að
því er síðast fréttist tekin til
við kvikmyndaleik í alvöru
og sögðu sumir hana á báð-
um áttum um hvort hún ætti
að láta verða af þvL
hversvegna hann hefði e!kki
skýrt FBI frá samsærinu, svaraði
hann því til að enginn hefði
spurt sig.
Lögfræðingurinn Mar!k Lane,
sem sjálfur hefur skrifað bók til
að mótmæla niðurstöðum Warren
nefndarinnar, sagði á fundi með
fréttamönnum í Róm í dag, að
ný rannsókn í New Orleans gæti
leitt til þess að samsærið, sem
Garrison segir að gert hafi verið
BRÆÐUENIR KAMPAKÁTU —-X— —X — TEIKNARI: JÖRGEN MOGENSEN
$ T 1
Tiffany var farin til klefa síns. Sím-
fam vakti mig.
Loftskeytamaður hér, herra. Ég hef
dulmálsskeyti fyrir þig merkt: ,JVfjög
áríffandi.*
Gjöriff svo vel og sendiff þaff niffur.
Ég settist niffur viff aff þýffa skeytiff
og þaff fór um mig hrollur.
KVIKSJÁ -X
X~ FRÖÐLEIKSMOLAR
mrnnwwwMí'úi
i
gjjig
ip
Örlög Ieikaranna
Enska leikkonan, frú Carg-
fl, fór áriff 1782 til Indlands,
þar sem hún lék viff mikinn
fögnuff áhorfenda, og fór síff-
mn heim með 1500 pund. Á
heimleiðinni strandaffi skipið
i Kyrrahafinu, en henni varff
1 bjargað ásamt litlu barni, sem
hún hélt í fangi sínu. Hinn
mikli leikari Samuel Foot
varff fyrir því óláni eitt sinn
er hann var á veiffum meff
hertoganum af York, aff falla
af hestbaki og fótbrotna. —
Hann varff að gangast inn á
að fóturinn yrði siðar tckinn
af honum. Hertoginn gaf hon
um á þeirri forsendu leyfi til
aff reka Haymarket-leikhúsiff,
þar sem hann hélt áfram að
leika með tréfót, viff mikla
aðdáun almennings, það sem
eftir var ævinnar. Sarah
Bernhard, hin franska heims-
kunna leikkona, varð einnig
fyrir því óláni árið 1915 aff
fótbrotna og missa annan fót-
inn. En einnig hún hélt þrátt
fyrir það áfram að leika,
meira að segja á ferðalagi í
Ameríku 1917 og í Englandi
1922. Þar lék hún 77 ára göm-
ul ungan mann. Hún lézt árið
eftir.
Martine Carol
til að myrða Kennedy, verðl aj
gjörlega afhjúpað. „Rannsóknin,
sem Garrison hefur hafið, er
mjög mikilsverð, og getur ledtt
til stórmerfcra afhjúpana“, sagði
Lane. Telur hann að Warren-
nefndin hafi I skýrslu sinnl
minnzt á ýmsar þær uppl., sem
fram koma í rannsókn Garrisons.
Ríkislögreglunni hafi verið kunn
ugt um þær, en ekkert gert 1 mál
inu. Kvaðst Lane vona að Garri-
son stjórnaði sjálfur framhallds-
rannsókn málsins, en léti ekkl
bandarísk yfirvöld taka við. Það
eina sem yfirvöldin gætu nú væri
að flækjast fyrir Garrison.
Afhendir ekki stjórninnl málið.
Fullyrðingar Garrisons um
samsæri hafi verið tefcnar trúan-
lega víða erlendis, en í Banda-
rífcjunum er yfirleitt lagður trún
aður á skýrslu Warren-nefndar-
innar um að Oswald hafi verið
einn að verki. Segir W. C. Crider,
fréttaritari AP í New Orleans, að
Garrison hafi frá því hann tófc
við embætti fyrir rúmum fjórum
árum, átt í mifclum deilum m.a.
við lögregluna, borgarstjórann
I New Orleans, þing Louisiana-
rikis, og jafnvel átta dómara við
safcadóminn í New Orleans. Var
deilum hans við dómarana vis-
að til hæstaréttar BandarSkjanna
í Washington, þar sem Garrison
vann málið. Bendir Crider á að
Garrison hafi öðlast mikla frægð
heima fyrir með baráttu sinni,
en aldrei gefizt tækifæri til af-
skipta af stærri málum, sem
varða þjóðina alla. Nú geri hann
sér hinsvegar vonir um að úr þvl
rætist. Aðrar heimildir I New
Orleans telja einnig að vafasamt
sé að treysrta Garrison, þvi hann
hafi mestan hug á að auglýsa
sjálfan sig.
Hvað sem því líður, þá hefur
Garrison lítið látið á sér bera frá
þvi á laugardag, og er erfitt að
fá frekari upplýsingar frá hon-
um. Taísmenn hans segja þó að
framhaldsrannsókn sé nú hraðað
eftir því sem unnt er. Gerald R.
Ford, þingmaður republikana-
flofcksins, sem sæti átti í Warr-
en-nefndinni, fór þess á leit við
Garrison að hann afhenti dóms-
málaráðherra landsins upplýs-
ingar sínar til þess að Johnson
forseti gæti kynnt sér þær. Þessu
hafnaði Garrison í dag, og lét
það fylgja að það væri hann sjálf
ur, sem stjórnaði rannsókninnl,
en hvorki forsetinn né dómsmála
ráðherrann. „Við erum að af-
hjúpa samsærl, sem gert var i
New Orleans, og þeir (í Wash-
ington) hafa ekkert með málið
að gera. Ef þeir vilja veita mér
aðstoð, þigg ég hana með þöfck-
um, en ég ætla ekki að gefa nein
um sfcýrslu um málið", sagði
Garrison. Bætti hann því við að
ef aðilar í Washington yrðu
dregnir inn í málið, yrði það til
þess eins að seinka rannsókninnL