Morgunblaðið - 26.02.1967, Síða 3

Morgunblaðið - 26.02.1967, Síða 3
MOftGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1967. 3 Jón Auhuns dómprófastur: í höll landstjórans f Laterankirfcjunni í Rómaborg eru marmaratröppur háar. Þaer nefnast „Sancta scala“, hin helgu þrep. Arfsögnin segir þessar háu tröppur komnar úr höll Pílatus- ar, og „hin helgu þrep“ nefnast þaer vegna þess að Jesús á að hafa gengið þaer. Trúaðir menn ganga ekki þess- ar tröppur, þeir skríða þaer á hnjám, nema öðru hvoru staðar ©g lesa, unz komið er á efsta þrep. Trúað kaþólskt fólk ber mikla lotningu fyrir þessum „helgu þrepum" og trúir því, að þessi mikli marmarastigi hafi verið i höllinni, þar sem Jesú var leidd- ur á fund Pílatusar til yfir- heyrslu. Við skulum láta Sancta scala í Róm eiga sig, en nema staðar í huganum þar sem Jesús var leiddur á fund Pílatusar. Fyrir neðan marmaraþrepin háu standa prelátar Gyðinga. Trúarhátíð þeirra er í nánd, páska'hátiðin, og þeir mega ekki saurgast af því að ganga inn í heiðins manns hús. Vopnaðir verðir eru við hverj- ar dyr. Við göngum fram hjá þeim upp marmaraþrepin mörgu og komum inn í allmikinn sal. Þar situr drembilegur maður í viðhafnarsæti. Hann er naumast vaknaður, og honum þykir kær- an á hendur þessa fjötraða fanga ekki svo merkileg, að það taki því að vakna upp til hennar svo árla dags. Þessi maður er Pílatus. Fyrir neðan pallskörina stend- ur fangi í fjötrum. Þetta er mað- ur í fegursta blóma manndóms- áranna. Hann var ekki vakinn of snemma, eins og Pílatus. Hann hefir enga næturhvíld fengið, engan blund. Hann horfir hljóð- ur á bundnar hendur sínar, en engin geðshræring er sjáanleg á honum. Þessi dæmalausa ró- semi hefir fylgt honum frá því, er hann stóð upp frá bæninni í Getsemane snemma þessarar ægilegu nætur. Það er eins og orð og ásjóna engilsins, sem vitjaði hans þar, hafi fylgt hon- um, unz harmleiknum á Golgata var lokið. Pílatus virðist hafa misskilið málið og haldið að hér væri um venjulegan uppreisnarmann eða pólitískan ævintýramann að ræða. Það var nóg af þeim í Gyðingalandi bæði þá og fyrr. Hann spyr fangann háðslega: „Ert þú þá konungur Gyðinga“? Ungi bandinginn lætur sem hann heyri ekki spott Pílatusar. Augnaráð hans verður fjarrænt eins og það leiti órafjarlægra markmiða, og hann svarar: „Mitt ríki er ekki af þessum heimi“. Nú stekkur Pílatusi bros. Slíkt konungsríki þótti honum ekki merkilegt og konungstign slík næsta brosleg. Kristur hafði sagt, að guðs- ríkið væri hið innra í mönnun- um. Þar átti konungsstóll hans að standa. Það var engi'n von til þess að Pílatus gæti skilið það, að mannshjartað ætti að rúma háleitustu konungshugsjónina, eins og þessi umkomulausi fangi hélt blákalt fram. Fyrir hásæti keisarans í . Róm hefði þessi bandingi ekki gefið einn kopar- pening, en Pílatus hefði gefið fyr ir það sæti öll auðæfi heima, ef hann hefði átt þeirra völ. Þó vill fjötraði maðurinn vera konungur. En hvar? Að konungshöll kýs hann mannlega sál, að hásæti kýs hann sér mannlegt hjarta. Slíka konungshugsjón gat auð- UR VERINU EFTIR EINAR SIGURÐSSON VEÐRH) var sæmilegt síðustu viku, þar til hann brældi á norð austan á föstudaginn. Netaibátar enu nú flestir búnir að leggja, en þeir, sem eftir eru, gera það næstu daga. Aflabrögð hafa verið heldur treg, þó hefur verið ljós í því hjá einstaka bát. Má þar nefna Ásþór, Ásgeir og Húna, sem kom ust upp í milli 26 og 35 lestir í tveimur lögnum. Ásþór er hæstur af netabátun- um með rúmar 100 lestir. Enginn rær nú lengur með línu. Margir loðnutoátar hafa komið til Reykjavíkur, og var stöðug löndun alla vikuna 800—100 lest ir á dag. 5400 lestum hefur verið land- eð af loðnu. Engin löndun var I vikunni og lítið um togarakomur. Afli var góður við Grænland, en upp á síðkastið hefur verið þar mjög slæm tíð og skipin ekki getað verið að. Á heimamiðum hefur fisk helzt verið að fá á Selvogstoankaruum. Þar hafa togararnir fengið ufsa og ýsu. Þessir togarar seldu afla sinn erlendis í síðustu viku: Lest. Kr. Kg. Mal 290 3.324.349 11/47 Þorm. goði 169 1.656.585 9/80 Jón Þorl 134 926.324 6/94 Kaldtoakur Keflavík. 133 1.367.885 10/21 Róið var flesta daga vikunnar. Afli hjá línubátum var frekar tregur en þó heldur skárri síðari hluta vikunnar, 5-7 lestir algeng- ast. Afli hjá netatoátum, sem eru á heimamiðum, hefur verið 6-8 lestir og komizt upp í 12 lestir. Síðari hluta vikunnar lönduðu 3 netabátar sem höfðu verið í Breiðubugtinni, 37-41 lest af fiski 'hver og var það úr tveimur lögnum. 3720 lestum hefur verið land- að af loðnu, og er Örn RE. 1 með mestan afla, um 1000 lestir, auk um 300 lesta, sem hann landaði annars staðar. Er þessi afli úr 5 róðrum. Akranes. Róið var 5 daga vikunnar. Afli var frekar rýr hjá línubátum, algengast 5-6 lestir. Ennþá er sáratregt hjá neta- bátunum. Hafa þeir verið að koma með 4-6 lestir og komizt upp í 10 lestir. Enn er ekki far- inn að berast að neinn fiskur úr Breiðubugtinni. 2560 lestum hefur verið land- að af loðnu. » Sandgerði. Róið var 4 daga vikunnar. Afli var heldur lítill á línuna framan af vikunni, en á fimmtudaginn var sæmilegur afli, 8-9 lestir og komst upp í 12% lest. Þetta er bezti afladagurinn á vertíðinni fram að þessu. Netabátarnir eru ekki farnir að fiska neitt að ráði. Flestir eru með 4-5 lestir í róðri og hafa komizt upp í 8 lestir. 2270 lestium hefur verið land- að af loðnu. Vestmannaeyjar. Sæmilegur afli hefur verið hjá þeim bátum, sem róa með línu, og á fimmtudaginn almennt um 9 lestir á bát komist upp í rúmar 11 lestir Netaveiði er ekki byrjuð, að heitið geti, aðeins 4 bátar eru búnir að leggja. Hafa þeir feng- ið 4-12 lestir í umvitjun. Er afl- inn eingöngu ufsi. Sjómenn telja nú meiri fiski- von en áður, ef einhvern tíma gaeti á sjó, en tíðin hefur verið með eindæmum stirð, þannig voru nærri hálfsmánaðar frátök í einu. Sérstaklega þykir mönn- um línuafli vera betri niú en þeir eiga að venjast, en línuiútgerð hafði nærri lagzt niður. Loðnuveiðin. Athyglin beinist nú að loðn- unni. Þetta er svo stórt í snið- um eins og á síldveiðunum, eitt, tvö, þrjú hundruð lestir hjá bát. Mikil loðna væri komin á land, ef tíðin hefði verið skapleg frá því „Kristján Valgeir" fékk fyrstu loðnuna 8. febr. En þá kom 10 daga ógæftakafli með svo hörðum veðrum, að ekki var viðlit að stunda neinar veiðar nema á togurum. Þó að verðið sé talið lágt — skiptir það miklu máli, að loðn- unni er yfirleitt landað daglega og oftast fullfermi. 250 lestir af loðnu, sem er algengur farmur, er álíka að verðmæti og 25 lestir af netafiski. Minni álögur á sjávarútveginn. Þegar þrengir að hjá sjávar- útveginum, fara menn að velta því fyrir sér, 'hvaða álögum megi létta af honum, sem hlaðið hefur verið á hann linnulaust undan- farna áratugi. Eitt af slíkum viðbrögðum birtiist í frumvarpi þeirra Björns Pálssonar og Jóns Skaftasonar um breytingu á lögum um launa skatt. Þar er lagt til, að 1% launaskattur á útgerð 150 lesta fiskiskipa og minni svo og fiskvinnslustöðvar verði felldux niður. Flutningsmenn benda enn- fremur á, að ríkisvaldið geti án beinna fjárframlaga bæitt hag útvegsins og fiskvinnslunnar með þvi að lækka vexti, afnema launa skatt, fella niður síðustu 1% orlofshækkun, hætta að inn- 'heimta aðstöðugjöld af tap- rekstri, hætta greiðslum til atvinnuleysistryggingarsjóðs, lækka viðgerðarkostnað og fella niður tolla af nauðsynjum sjáv- arútvegsins. 100%. Þegar menn heyrðu um söl- una hjá togaranum Maí í vik- unni, ætluðu þeir vart að trúa sínum eigin eyrum. Salan var um 2 milljónum króna hærri en algengt er og um 1 miUjón hærri en hæstu sölur fram að þessu. „Mikið hlýtur útgerðin að græða, sjálfsagt einar 2 milljón- ir króna", sögðu menn og bæbtu við, „og svo er verið að tala um að selja slíkt skip“. En hvað skyldi nú útgerðin hafa átt eftir, þegar hver hafði fengið sitt? Sá reikningur lítur út eitthvað á þessa leið: Sala ...............kr. 3.300.000 -e 25 % löndunark. og tolilur erlendis .. — 825.000 Netto kr. 2.476.000 Kaup skipsh. br. 1.100.000 Fæði — 05.000 Líf- eyrissj — 05.000 Launask. sj.sjgj. I og tr. 40.000 kr. 1.270.000 *y\FSTOFfl „ Spánn Ítalía Júgóslavía FERÐASKRIFSTOFA RlKISIWS 16 daga flugferð á hina vinalegu baðströnd Miðjarðarhafsins, Costa Brava frá kr. 10.750.— 16 daga flugferð til Ítalíu um Kaup mannahöfn. Vika í Rómaborg og sólarvika í Sorrento við Napólíflóann frá kr. 11.950.— 16 daga flugferð á Júgóslavnesku Rivierunni við hlýtt og tært Adría- hafið frá kr. 12.670.— Gistingar, 3 máltíðir á dag og flugvallask. innif. Viðkoma í Kaup- mannahöfn, London eða Glosgow á heimleið, ef óskað er. Pantið tímanlega! — Sætafjöldinn er takmarkaður! LÆKJARGÖTU 3, REYKJAVÍK, SÍMI 11540 vitað enginn skilið þeirra manna, sem stóðu umhverfis Krist og Pílatus þennan morgun. En hefir nokkur skilið hana síðar? Hverjir? Þeir sem mestan arf hafa þegið þeirrar auðlegðar, sem Kristur lét heiminuim eftir. Þeir sem mest hafa endurspeglað af hon- um í dagfari sínu og dýpst sam- félag við hann hafa átt. Þótt enn hafi aldrei verið tll kristið þjóðfélag á jörðu, hafa kristnir einstaklingar verið tfl. Sumir þeirra voru sem borg á fjalli, sem gat ekki dulizt. Aðrir leyndust með verðmæti sín, sinn dýra fjársjóð, og lifðu í kyrrþei heilögu lífi. 1 hjarta þessara einstaklinga stóð konungsstóll Krists. En þess- ir hafa verið fáir og eru fáir. Það liggja ekki allar leiðir ta hans, þótt við nafn hans séu kenndar. Það er auðvelt að skríða á hnjánum upp „hin helgu þrep“ í Rómaborg. Hitt er erfiðara, að sækja á brattan, neðan frá breyskum manni Krists. og upp ta Olía — 200.000 Véiðarfæri — 150.000 Viðhald — 100.000 Útflutiningsgj. — 140.000 ís — 60.000 Aðstöðugj. — 26.000 Ýmislegt — 26.000 Vextir af kaupv. ca. 50 millj. miðað við 20 mill. kr. ársafla — 415.000 kr. 2.385.000 Afgangs til útgerðarinnar — 90.000 Kr. 2.475.000 Hér er ekki meðtalinn neinn kostnaður í landi, svo sem mannahald við umsjón og fram- kvæmdarstj., skrifstofukostn o.fl. Hér er ekki tekið tillit til ríkis- styrksins, um 2% millj. króna né fyrningar. Öllu er skipt upp 190%, og svo halda menn, að hægt sé að öllu óbreybtu, að gera út togara fra fslandi. Barlómur — Bjartsýni. Nú fara kosningar í hönd, og þá eru stjórnmálamennirnir bjartsýnir. Háttvirtir kjósendúr vilja ekki, að fjandinn sé málað- ur á vegginn, og það er ósköp skiljanlegt. Þeir eiga margir allt sitt undir velgengni at- vinnulífsins og þjóðartoúsins 1 heild. Þeir þurfa að hafa stöðuga, vel borgaða atvinnu, þeir standa ef til vill í stórræðum, svo sem hústoyggingnu og mega ekki við neinum skakkaföllum af völdum samdráttar og kreppu. Og auðvitað hlýtur hver ríkis- stjórn, því oftast eru það þær, sem móta stefnuna, að miða að því að auka almenna velmegum. Það verður bezt gert með því að stuðla að velgengni atvinnuveg- anna, auka framleiðsluna og fram leiðnina eins og nú er sagt Svo koma útgerðarmenn og frystihúsamenn og segja sánar farir ekki sléttar. Margir segja þá vera með barlóm, þegar þeir kvarba undan, að útgerðin beri sig ekki, freðfiskurinn falli 1 verði, tilkostnaðurinn vaxi og þeir séu í hinum verstu krögg- um. Hvað á almenningur að hugsa, þegar hann hlustar á hinn bjart- sýna stjórnmálamann, sem sér alla vegi færa, og svo framleið- andann, sem ekki sér fram úr daglegum erfiðleikum. Fólk vrll mega trúa því, sem óskhyggjan segir, en rekur sig óþyrmilega á staðreyndirnar, eins og stundum vill verða í lífinu. Allt getur ver ið tvíeggjað. Bjartsýni, sem ekki er raunhæf, getur verið varbuga verð. Hún ýtir undir kröfur og aukna verðbólgu, sem er stjórn- málamönnunum öllu öðru erfið- ara viðfangs. Almenningur verð- ur því að taka fullyrðingar um áframhaldandi góðæri og svo atftur spádóma um kreppu eins og maður, sem fær fisk á disk- inn sinn. Hann borðar fiskinn, en skilur beinin eftir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.