Morgunblaðið - 26.02.1967, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.02.1967, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1967. BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 Daggjöld kr. 300,00 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM BILA LEIGA MIAGNÚSAR SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190 eftir lokun slmi 40381 siM11-44-44 ímfíBiR Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31160. LITLA bíloleigon Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensín innifalið í leigugjaldi. Sími 14970 BÍLALEIGAIM VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir iokun 34936 og 36217. f7==*BfiAir/trAM RAUOARÁRSTIG 31 SfMI 22022 BÍLALEIGAN EKILL sl. Kópavogi. Sími 40145 V'ÞR0STUR% Ökukennslo Upplýsingar í síma 14996 Bezt að auglýsa í Morgunblainu ^ Börnin — umferðin Eftirfarandi bréf hefur borizt: „í tilefni bréfs, sem birt var í dálki yðar, miðvikudaginn 15. febr. sl., þar sem gagnrýnd var spurningarkeppni skóla- barna, viljum við biðja yður að birta eftirfarandi: Þriðjudaginn 7. febr. sl., fór fram miðhluti spurninga- keppni skólabarna um um- ferðarmál, þar sem börn úr 12 ára bekkjardeildum barnaskól- anna í Reykjavík kepptu. Er þetta í annað skipti, sem keppn in fer fram, en í fyrra sigraði skólalið Laugarnesskólans. Með góðum fyrirvara, var skólastjórum eða öðrum for- ráðamönnum skólanna tilkynnt um, að í miðhluta skyldu mæta, þau fimm börn frá hverjum skóla, ásamt tveim til vara, sem bezt höfðu staðið sig í skriflegu prófi innan skól ans. Þá var sömu aðiium skýrt frá, hvað það væri, sem áherzla yrði lögð á, að börnin kynntu sér fyrir keppnina og væri það m.a. umferðarlög, lögreglusamþykkt, Umferðar- bókin, ásamt öðrum þeim fræðsluritum og gögnum, sem lögreglan og Umferðarnefnd hafa dreift til skólabarna nú í vetur. Fyrst og fremst var leitazt við að miða spurningarnar við þann aldursflokk, sem þátt tók í keppninni, en að sjálfsögðu má lengi um það deila, hvaða spurningar eigi að velja og hverjum að sleppa. Spurning- arnar voru 20 talsins og sumar í mörgum liðum þar af voru fjórar úr „Vegastafróf- inu“, en það er kver, sem gefið var út skömmu fyrir áramót. Megin tilgangur kversins var, að festa í huga barnsins í formi mynda og ljóðlína nokk- ur heilræði, sem miklu máli skiptir að það muni vel, enda verður að mega telja það sjálf- sagt og eðlilegt, að börnin kynni sér þau gögn, sem lög- reglan og fræðsluyfirvöldin af henda þeim. Þar sem í umræddu bréfi mun vera átt við Laugarnes- skólann, skal það skýrt tekið fram að þó svo s kólaliðið hefði svarað öllum spurningun- um fjórum úr Vegastafrófinu réttum, hefði það ekki nægt skólanum til þess að komast í úrslit. Spumingarkeppnin sé ekki höfð keppninnnar vegna, held- ur fyrst og fremst til þess að vekja almennan áhuga meðal skólabarna um umferðarmál, en það er nú einu sinni svo, að ekki geta allir sigrað. Virðingarfyllst, Ásmundur Matthíasson Pétur Sveinbj arnarson." ★ Passíusálmarnir Suðurnesjamaður skrif- ar: „Kæri Velvakandi! Ég kann illa við þessa löngu þögn, sem kemur strax, þegar búið er að lesa Passíusálmana og þá ekki að heyra tilheyrandi lag á eftir. Ég meina ekki þessi ókunnu lög frá fyrri öldum, því þau þekki ég ekkert, enda sakna ég þeirra ekkL Sigvaldi Kaldalóns samdi lag við „1 Betlehem er barn oss fætt“. Það lag er fallegt og hátíðlegt, sem vænta mátti frá þim höf- undi. Það var gefið út sérprent að svd að hefur sennilega heyrzt víða. Samt hefur mað- ur hvergi heyrt það á jólum. Það kann að vera að það hafi verið einhvers staðar haft fyr ir stólvers. En það getur auð- vitað aldréi komið í staðinn fyrir okkar gamla kæra lag. Síðan ég var ungur, hefur alltaf verið í mínum huga ákveðið lag við hvern sálm í Passíu- sálmunum. Þar geta engin önn ur lög hæft jafnvel; enda hef ég fengið að heyra flest þeirra á undanförnum árum í Ríkis- útvarpinu, þegar Passíusálm- arnir hafa verið lesnir. Ég vona, að á flestum heimilum sé kyrrlát helgistund meðan Passíusálmurinn er lesinn og það ætti ekki að draga úr hátíðleik þeirrar stundar, að spila viðkomandi lag eftir lest urinn, og auðvitað helzt, að sungið væri líka. Viltu nú gjöra svo vel, Vel- vakandi minn, að koma þeirri ósk minni á framfæri við for- ráðamenn Ríkisútvarpsins, að við fáum nú að heyra það, sem ég hef minnzt á það sem eftir er af föstunni. Og að svo verði framvegis í sambandi við lest- ur Passíusálma. Ég vonast eft- ir að þessari málaleitun verði sinnt. Með fyrirfram þökk. Suðurnesj amaður." ★ Bréf frá ungum mönnum „Kæri Velvakandi! Viltu gjöra svo vel og birta eftirfarandi bréf frá okkur undirrituðum, í von um að Barnaverndarnefnd Reykjavík- ur taki þessar línur til vin- samlegrar athugunar. Okkur bréfritara langar til að minnast með fáum orðum á framkvæmdir ykkar í kvik- myndahúsum upp á síðkastið. Vð lögðum leð okkar í ónefnt kvikmyndahús síðastliðinn laugardag. Er við höfðum keypt okkur aðgöngumiða og við hugðumst halda inn, vorum víð, ökkur til mikillar undrunar, stöðvað- ir í dyrunum af tveim lög- régluþjónum og spurðir um ald ur. Þar sem við höfðum ekki alveg náð tilskyldum aldri, var okkur vísað út. Þarna kom einnig bekkjarfélagi okkar, sem er aðeins tveimur mán- uðum eldri en við, en hefur náð tilsettum aldri. Þessi mála lok voru okkur ekki að skapi, og okkur langar til þess að spyrja: Hvað eiga unglingar á okk- ar aldri að gera um helgar, þeg ar varla er hægt að komast 1 kvikmyndahús, að minnsta kosti ekki til þess að sjá þær myndir, sem eitthvrt púður er í? Og hvað um danshúsin? Við leggjum til, að Barna- verndarnefnd Reykjavíkur taki þessi mál til athugunar á nýjan leik og afgreiði þau með því að heimilia unglingum, sem náð hafa 14 áira aldri að sækja hvaða kvikmyndahús, sem þeir kjósa sjálfir, og enn- fremur leggjum við til, að ald- urstakmark danshúsa vrði mið að við 15 ára aldur. Verði Barnaverndarnefnd við þessum óskum okkar, hættum við að trúa því, að hún sam- anstandi af eintómum elliærum kerlingum'ðg karlmönnum, sem varla eigi slíkt nafn skilið. Með beztu kveðju, Loftur Þorsteinsson. Ólafur Jónsson." Eldhúsvaskar Ný sending af eldhúsvöskum er komin. Skoðið í dag. Kaupið á morgun. BURSTAFELL, byggingavöruverzlun Réttarholtsvegi 3 — Sími 38840. IVIarz Fólksbílaeigendur Eigendur leigubifreiða Við klæðum bílinn að innan FLJÓTT og VEL. Jeppaeigendur Við klæðum alla jeppa að innan. Greiðsluskil- málar eftir samkomulagi. Úrval áklæða, fljót og góð afgreiðsla. BÉLAKLÆÆJÐNING, SMÁRAHVAMMI, KÓPl Ekið Fífuhvammsveg, skilti á hægri hönd. Símar á kvöldin 35180 og 33869. karlmannaskór Vestur-þýzk gæðavara Nýkomin í góðu úrvali Skóverzlunin í Domus Medica. Vélgæzlustjóri óskast Óskum eftir að ráða vélgæzlu- og ketilhússtjóra að Landsspítalanum. Vélstjóramenntun nauðsyn- leg. Laun samkvæmt kjaradómi. Staðan veitist frá 1. apríl 1967. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29 fyrir 15. marz n.k. Reykjavík, 24. febrúar 1967. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.