Morgunblaðið - 26.02.1967, Síða 5

Morgunblaðið - 26.02.1967, Síða 5
MORGUNBL.AÐIÐ, SUNNUÐAGUR 2«. FEBRUAR 1967. 5 HELDUR er nú farið að lifna yfir umræðum og tillöguflutn- ingi á AlþingL Miklar umræður hafa orðið um utanríkismál og er þeim ekki lokið enn og sl. miðvikudag urðu víðtækar um- ræður um sjávarútvegsmál og þó sérstaklega um vandamál minni bátanna. Þess er og nokkuð farið »ð gæta í tillöguflutningi þing- manna að kosningar eru í nánd. í sl. viku voru 7 lagafrv. lögð fyrir þingið. Ríkisstjórnin lagði fram tvö frv. og einstakir þing- menn fimm, fjögur þeirra voru flutt í Neðri deild og eitt í Efri deild. Eitt frv. var lagt fram af þingmanni Alþýðuflokksins, tvö af þingmönnum Framsóknar- flokksins og tvö af hálfu Alþbl. Þrjár þingsályktunartillögur voru lagðar fram, tvær af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins og ein af þingmönnum úr hópi Sjálf stæðisflokks og Alþýðuflokks. Ennfremur voru tvær fyrir- spurnir lagðax fram í »1. viku. Stjórnarfrv. sem lögð voru fram um Búreikningastofu land- búnaðarins og breytingu á lög- um um útflutningsgjald af sjáv- arafurðum. Skv. síðarnefnda frv. munu sjómannasamtökin nú fá hlutdeild í útflutningsgjaldi til jafns við Landssamband ísl. út- vegsmanna, sem um nokkurt skeið hefur fengið hlut af þessu gjaldi og mun það hafa runnið til þess að standa straum af kostnaði við starfsemi þess, og hafa sjómannasamtökin talið réttmætt að þau fengju þá einnig sinn hlut. Óneitanlega virðist vera farið hér inn á nokkuð hæpna braut og hugsanlegt að það eigi eftir að draga dilk á eftir sér. Gjald þetta er að vísu tekið af sjávarútveginum, þótt það renni til hans aftur með ýmsum hætti. En þegar ríkis- valdið hefur á annað borð tekið að sér innheimtu m. a. fyrir hags munasamtök sjómanna og út- vegsmanna, þyrfti a. m. k. eng- an að undra, þótt fleiri hags- munasamtök fylgdu í kjölfarið og teldu sig eiga rétt á sömu fyrirgreiðslu. Af þingmannafrv. mun frv. Benedikts Gröndals um Sements verksmiðjuna vekja einna mesta athygli en skv. því á starfsfólk verksmiðjunnar að hafa rétt til þess að kjósa tvo fulltrúa í stjórn hennar. Kallar flutningsmaður fyrirkomulag þetta atvinnulýð- ræði. Mun tilgangurinn með því einkum sá, að fulltrúar starfs- fólks hafi aðstöðu til þess að hafa áhrif á ákvarðanir, sem sér- staklega snerta starfslið fyrir- tækisins. Draga verður í efa, að mikið gagn yrði að slíku fyrir- komulagi. Áhrif starfsfólksins á rekstur verksmiðjunnar yrðu betur tryggð með því að breyta rekstrarformi verksmiðjunnar og gera hana að opnu hlutafélagi, sem allur almenningur gæti gerzt þátttakandi í þ.á.m. starfs- fólk verksmiðjunnar. Það er orðið tíambært fyrir íslenzka ríkið að losa sig við margvísleg- an atvinnurekstur, sem það Cætið að velferð barnana veljið þeim rétta skó. Aka 64 er rétta lausnin. Kaupið skóna hjá skósmið Skóverzlun og skóvinnustofa Sigurbjörns Þorgeirssonar, Verzlunarhúsinu, Miðbæ, Háaleitisbraut 58—60. Góð bílastæði. hefur með höndum og fylgja þar með þeirri þróun, sem nú er að verða víða um lönd, að stórfyrir tæki verða í reynd eign almenn- ings og að hann hafi bein áhrif á stjórn þeirra og rekstur. En frv. Benedikts mun þykja nýstár legt og líklegt til þess að vekja menn til umhugsunar um það, hvert rekstrarform sé heppileg- ast fyrir stórfyrirtæki hér á landi á borð við Sementsverksmiðj- una. Lúðvík Jósefsson fylgir hins vegar gamla tímanum og flytur frv. um þjóðnýtingu olíuverzl- unarinnar í landinu. Það mun vafalaust eiga litlu fylgi að fagna, þótt sú skoðun sé hins vegar útbreidd, að samkeppni milli olíufélaganna þriggja mætti að skaðlausu vera meiri en nú er. Fimm þingmenn Sjálfstæðis- flokksins undir forustu og að frumkvæði Jóns Árnasonar flytja mjög gagnlega þingsályktunartil lögu um auknar sjúkratrygging- ar til sjúklinga, sem þurfa að leita læknishjálpar erlendis. Tillaga þessi er flutt vegna þess, að það færist nu mjög í vöxt að leita verði læknisaðgerða erlend- is vegna hjartasjúkdóma og hef- ur oft sinnis verið efnt til al- mennra fjörsöfnunar til þess að greiða kostnað af slíkum aðgerð- um, sem hefur þurft að fram- kvæma á börnum. Tillaga Sjálf- stæðisþingmannanna fimm er þess efnis, að endurskoðuð verði lagaákvæði um almannatrygg- ingar með það fyrir augum, að sjúkrasamlögin og Trygginga- stofnunin greiði fyrir slíkum læknisaðgerðum í ríkara mæli en nú er. Þetta er hið nytsamasta mál og fagnaðarefni, að það hef- ur verið komið fram á Alþingi. Þá mó einnig nefna þingsálykt unartillögu, sem Sigurður Bjarna son, Matthías Bjarnason og Birgir Finnsson flytja um þara- þurrkstöð á Reykhólum. Stofn- kostnaður slíkrar stöðvar, sem framleiddi 1000 tonn af þurrk- uðum þara á ári er talinn um 3 milljónir króna og markaður fyrir hendi í Noregi og Frakk- landi. Mál þetta mun þegar hafa verið rætt í hinu nýstofnaða Iðn- þróunarráði. Nú má telja líklegt, um um- ræður hefjist' á Alþingi um hag og rekstur dagblaða hér á landi, þar sem Einar Olgeirsson hefur borið fram fyrirspurn á Alþingi um könnun á hag dagblaðanna. í byrjun vikunnar var haldið áfram umræðum þeim um utan- ríkismál, sem hafnar voru í fyrri viku og flutti Einar Olgeirsson langa ræðu í Neðri deild sl. mánudag, sem hann hafði ekki lokið við, þegar fundartími dildarinnar var búinn. Var Einar kominn fram á daga Marshall- hjálparinnar þegar hlé var gert á fundi og málið ekki verið tekið á dagskrá síðan, en vafalaust eiga enn eftir að verða töluverð- ar umræður um þessi mál. Sl. miðvikudag urðu svo mikl- ar umræður í Sameinuðu þingi um tillögur vélbátaútgerðar- nefndarinnar svokölluðu og skýrði Eggert Þorsteinsson sjáv- arútvegsmálaráðherra frá því hvað liði framkvæmd einstakra liða í tillögum nefndarinnar. Af hálfu stjórnarandstæðinga töluðu einkum þeir Jón Skaftason og Lúðvík Jósefsson og töldu að skýrsla sjávarútvegsmálaráð- herra sýndi, að svo til ekkert hefði verið framkvæmt af tillög- um nefndarinnar en ljóst var af ræðu Eggerts Þorsteinssonar að lítillar sanngirni gætti í þeirri túlkun. Hér er um að ræða mikið vandamál, sem skapazt hefur vegna gjörbreyttra aðstæðna í út vegsmálum en ríkisstjórnin hefur þegar beitt sér fyrir verulegum umbótum fyrir eigendur þessara skipa. Sverrir Júlíusson, for- maður LÍÚ benti á, að fulltrúar sjómanna og útvegsmanna í Verðlagsráði sjávarútvegsins sjávarútvegsins hefðu samþykkt 8% meðaluppbót á fiskverðið, sem ríkisstjórnin gaf fyrirheit um og Matthías Bjarnason, einn skeleggasti talsmaður sjávarút- vegsins á Alþingi, vakti athygl^ á þeirri staðreynd, að Verðlags- ráðinu bæri, lögum skv. að taka tillit til verðlags á erlendum markaði við ákvörðun fiskverðs- ins en verðfall á frystum fiski næmi nú um 12%. Ríkisstjórnin hefði hins vegar gripið inn í á myndarlegan hátt með fyrirheiti um verðuppbætur á fiskverðið, sem næmi rúmlega eitt hundrað milljónum króna. Styrmir Gunnarsson. HEILDSALA Rýmingarsala á hinum þekktu kjólum og drögtum, sem má þvo, fer fram gegnum okkur, SPARIÐ NÚNA .... Aldrei eins góðir skibnálar. Mánudag, þriðjudag, mið- vikudag. Muverzlunin L 0 L ¥ Vesturveri. Skaftfellingamót Skaftfellingafélagið í Reykjavík og ná- grenni efnir til Skaftfellingamóts að Hót- el Borg laugardaginn 4. marz n.k. Mótið hefst með borðhaldi kl. 7 stundvís- lega. Allir Skaftféllingar eru velkomnir með gesti sína meðan húsrúm leyfir. Til skemmtunar verður m.a.: Ræða: Séra Páll Þorleifsson. Skemmtiþáttur: Gunnar og Bessi. Dans. Aðgöngumiðasala og borðapantanir á Hótel Borg (suðuranddyri) miðvikudag, fimmtudag og föstudag fyrir mótsdag, kl. 5—7 e.h. STJÓRNIN. Æskulýðsvika í Laugarneskirkju K.F.U.K. K.F.U.M. Samkomur á hverju kvöldi vikunnar 26. febr. — 4. marz. í kvöld talar Ástráður Sigursteindórsson skólastjóri. Á mánudagskvöld tala: Katrín Guðlaugs- dóttir kristniboði og Jóhannes Ólafsson, læknir. Ungt fólk tekur til máls á hverju kvöldi. Mikill söngur og hljóðfærasláttur. Allir velkomnir. »• vaei-a iVjfo SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA ÁRMÚLA 3 SÍMI 38900 VÉLADEILD

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.