Morgunblaðið - 03.03.1967, Side 7

Morgunblaðið - 03.03.1967, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1967. 7 Akstur eftir umferðarreglum Akstur eftir umferðarljósum í»RÁTT fyrir það, að um- ferðarljós stjórni umferð á fjölförnustu gatnamótum borgarinnar, verða þar árlega mjög margir árekstrar — jafnvel stórslys. Aðalástæðan fyrir þessum árekstrum og slysum er sú, að ökumenn aka alls ekki rétt á gatnamótunum og fylgja ekki þeim reglum, sem gilda um umferðarljós, og sumir virðast misskilja gula ljósið. Þegar GULT LJÓS, kemur á eftir eða samtímis rauðu ljósi merkir það, að grænt ljós sé að koma. Það er al- gjört brot og stórvítavert að fara af stað á gulu ljósi, enda hefur það þegar orsakað marga stór-árekstra á gatna- mótum, þar sem umferðarljós eru. Þegar GULT LJÓS kemur á eftir grænu ljósi og á und- an rauðu ljósi, er það stöðv- unarmerki, en það táknar jafnframt að rýma beri ak- brautina, áður en skipt er um akstursstefnu, ef öku- tækið er komið á eða yfir stöðvunarlínu. Þar, sem ekki er stöðvunarlína, skal miða við Ijósmerkið. GULA LJÓSIÐ logar yfirleitt 2—3 sek. og á sá tími að nægja ökumanninum til að rýma gatnamótin. Mikilvægt er, að ökumenn meti rétt umferðaraðstæður og aki ekki of hratt að gatna mótunum, þó svo, að grænt ljós sé framundan. Ef skiptir um ljós, áður en ökumaður- inn kemur að stöðvarlínu, á hann að geta dregið úr hraða og stöðvað, án þess að valda annarri umferð hættu eða ó- þægindum. Þá er það ekki óalgeng sjón, að sjá óþolinmóða bifreiða- stjóra renna bifreiðinni áfram, meðan þeir bíða á rauðu ljósi og aka síðan strax af stað og gula ljósið kemur, en slíkur akstursmáti getjar or- sakað árekstur eða slys. FRETTIR K.F.U.M. og K. Hafnarfirði. Almenn samkoma sunnudags- kvöldið 5. marz kl. 8:30. Sigur- björn Guðmundsson verkfræð- ingur talar. Allir velkomnir. Unglingadeildin mánudagskvöld- ið fyrir 13—16 ára pilta. Kristileg samkoma verður í samkomusalnum Mjóluhlíð 16. sunnudagskvöld 5. marz kl. 8. Sunnudagskólinn kl. 10:30 árdegis. Verið hjartan- lega velkomin. Elliheimilið Grund Föstuguðsþjónusta í kvöld kl. 6:30. Þórhallur Höskulds- son, stud. theol. prédikar. — Heimilisprestur. Froskmannafélagið Syndaselir. Aðalfundur verður haldinn *unnudaginn 26. marz, hjá Gunn ari Ásgeirssyni. Stjórnárkjör og fleira á dagskrá. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði heldur spilakvöld í Alþýðuhúsinu þriðjudaginn 7. marz kl. 8:30. Góð verðlaun. All- ar Fríkirkjukonur velkomnar. Stjórnin. Kvenfélag Kópavogs hefur spilakvöld með bögglauppboði og dansi á eftir í Félagsheimili Kópavogs uppi sunnudaginn 5. marz kl. 8:30. Ágóðinn rennur til byggingar sumardvalarheim- ilis barna í Kópavogi. Allir vel- komnir. Styrkið gott málefni. Stjórnin. Áfengisvarnanefnd kvenna i Reykjavík og Hafnarfirði. Von- arstræti 8. B. Viðtalstími þriðju- daga og föstudaga kl. 3—5 s.d. sími 19282. ÆSKULÝÐSVIKA í Laugameskirkju dagana 26.febr» - 4. marz 19 6 7 Æskulýðsvika K.F.U.M. og K. Á samkomunni í kvöid talar Gísli Arnkelsson kristniboði um efnið: Vald til að reisa á fætur. Nokkur orð flytja: Narfi Hjör- leifsson og Gunnar M. Sand- holt. Mikill söngur. Allir vel- komnir. Fíladelfía, Reykjavík Sunnudaginn 5. marz verður bænadagur í Fíladelfíusöfnuðin- um. Samkoma fyrir söfnuðinn kl. 2. Almenn samkoma kl. 8. Ræðu- menn: Ásmundur Eiríksson og Ólafur Sveinbjörnsson. Fjöl- breyttur söngur. Fórn tekin vegna kirkjubyggingarinnar. Kirkjunefnd kvenna Dóm- kirkjunnar. Aðalfundur verður þriðjudag- inn 7. marz í Skátasal Hallveig- arstaða. Mætið stundlvíslega. Stjórnin. Kvenfélag Ásprestakalls held- ur fund í safnaðarheimilinu Sól- heimum 13 mánudagskvöldið 6. marz kl. 8. Athugið breyttan fundartíma. Matreiðslumenn sýna glóðarsteikinigu (grill) og meðferð slíkra ofna. Stjórnin. Kvenfélagskonur, Keflavík Aðalfundur félagsins verður þriðjudaginn 7. marz kl. 9. í Tjarnarlundi. Stjórnin. Kvenfélag Laugarnessóknar heldur fund í kirkjukjallaranum mánudaginn 6. marz kl. 8;30. Stjórnin. Austfirðingamótið hefst með borðhaldi kl. 7:30 hinn 4. marz. Miðar afhentir í Sigtúni fimmtu- dag og föstudag frá kl. 5—7. Borð tekin frá um leið. Skagfirðingamótið 1967 verður haldið í Sigtúni laugardaginn 11. marz og hefst með borðhaldi kl. 7 stundvíslega. Nánar auglýst síð- ar. Stjórnin. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Fundur verður í Tjarnarbúð mánudaginn 6. marz kl. 8:30. Fundarefni. Ýmis mál. Sýndar verða hárkollur og lausir topp- ar og kynnt meðferð þeirra. Kvikmyndasýning. Skaftfellingafélagið í Reykja- vík og nágrenni efnir til Skaft- fellingamóts að Hótel Borg laug- ardaginn 4. marz. Mótið hefst með borðhaldi kl. 7 stundvíslega. Aðgöngumiðar að Hótel Borg, miðvikudag, fimmtudag og föstu dag kl. 5-7. Úr Passíusálmum Ónytjuhjal og mælgin mín mér til falls koma ætti, ' en Jesú, blessuð þögnin þín í það allt fyrir mig bætti. Skylda mín aftur er eftir að breyta þér, 1 þegjandi í þýðri trú I þola, nær líð ég nú, þörf er ég þess vel gætti. 20. sálmur, 6. vers. MÁLSHÁTTUR^ Svengdin gerir síldina sæta. Munið eftir að gefa smáfugl- unum, strax og bjart er orðið. Fuglafóður Sólskríkjusjóðsins fæst vonandi í næstu búð. Málaravinna önnumst alla málaravinnu. Jón og Róbert, simi 15667 og 21893. DYROTAL Hamrað lakk, fæst í átta litum. Málarabúðin sími 21600. Þvottur — Þvottur Þvoum allan þvott s. s. skyrtur, soppa og vinnu- fatnað. Einnig stykkjaþvott og blautþvott. Sækjum — sendum Vogaþvottahúsið, Gnoðavogi 72. Sími 33460. Millivegg j aplötur fyrirliggjandi í 5, 7 og 10 cm þykktum. Vönduð og ódýr framleiðsla. Sendum. Hellu og steinsteypan sf. Bústaðabletti við Breið- holtsveg. Sími 30322. Rúskinshreinsun Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sér stök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—60. Sími 31380, útibúið Barma hlíð 3, sími 23337. Málmar Kaupi alla málma, nema járn, hæsta verði. Opið kl. 9—17, laugard. kl. 9—12. Staðgreiðsla. Arinco, Skúla götu 55 (Rauðarárport). Símar 12806 og 33821. Trabant árgangur 1964 til 1965 ósk- ast. Upplýsingar eftir kl. 7 í kvöld, sími 33084. Sendibílastöð óskar eftir að kaupa hluta- bréf ásamt stöðvarleyfi á sendibílastöð. Tilb. leggist inn á afgr. Mbl., merkt „Leyfi 8861“ fyrir 10. þ.m. Kemisk-hreinsiun stein, við, olíu, kísilmynd- un í gufukötlum, kælivatns rásum, í dísilvélum og mið stöðvarkerfum, ásamt véla- hlutum. Uppl. í síma 33349. Notað mótatimbur til sölu. Upplýsingar í síma 41869 eftir kl. 6. Málverk Til sölu olíumálverk, lands lagsmynd frá Hornafirði, 56x65 cm eftir Jón Þorleifs son. Verð kr. 8000,00 eða tilboð. Uppl. í síma 18193. Kenni frönsku og ítölsku Get bætt við nokkrum nemendum 2—3 saman. — Sími 16989. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu Keflavík Pedegree b-rn nvagn til sölu. Uppl. í síma 2484. Afgreiðslustúlka Rösk stúlka óskast til afgreiðslustarfa í bókaverzl- un. Málakunnátta nauðsynleg. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 124. ' Atvinnurekendur - Verktakar Reglusaman mann um þrítugt vantar góða fram- tíðaratvinnu. Er vanur jarðýtustörfum og viðgerð- um traktorsgröfu og lyfturum. Hef réttindi á stóra vörubíla. Þeir sem háfa áhuga á þessu hringi í síma 42594. Vandaðar bifreiðir Sportmenn, Willys jeep, árg. 1967, óvenju vandaður og glæsilegur, Crusedo park V6 til sölu, Buick Skylark ’65, stórglæsilegur einkabíll. Uppl. í síma 14743 í dag og á morgun. ÚTSALA - ÚTSALA Nýir hattar á útsölunni teknir fram dag- lega. Kuldahúfur á 200 kr. Hattabúðin Huld Kirkjuhvoli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.