Morgunblaðið - 03.03.1967, Side 12

Morgunblaðið - 03.03.1967, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1967. Vesturlandsvegur verði olíumalborinn — þar sem umferð er mest — sagði Axel Jónsson á Alþingi AXEL Jónsson talaði á mið- miðvikudag fyrir þingsályktun- artillögu, er hann flytur um að Alþingi álykti að skora á ríkis- stjórnina að láta gera ýtarlegar tilraunir með lagningu olíumalar á fjölfarnasta kafla Vesturlands- vegar, þ. e. frá Ártúnshöfða að vegamótum Þingvallavegar. Lagði Axel á það ríka áherzlu, að gera þyrfti einhverjar ráð- stafanir til að bæta ástand Vest- urlandsvegarins, þvi að núver- andi ástand vegarins væri óvið- unandi. Þessi ráðstöfun er hann færi hér fram á, væri aðeins til bráðabirgða. Hún væri gerð vegna þess að nokkurn tíma ■ftiyndi taka að gera hinn nýja Vesturlandsveg. Axel sagði í ræðu sinni að mjög mikill umferðaþungi væri á vegunum í nágrenni Reykja- víkur og færi hann vaxandi. Væri ástand veganna víða mjög slæmt. Væri það eðlilegt, að mal- arvegirnir þyldu ekki hina miklu umferð, sem um þá færi óg ekki sizt væri það mikið að kenna hinum mikla öxulþunga. Væri það of algengt að menn brytu ákvæði um hámarksöxulþunga Og þyrfti að herða eftirlit með honum. Einnig gæti það verið að, þungaskattur á bifreiðum væri óeðlilega lágur miðað við þann skaða, er þungar bifreiðar yllu á veginum. Axel sagði að miklar fram- kvæmdir í vegamálum ættu sér atað á Suð-Vesturlandi. Lokið væri lagningu Keflavíkurvegar- ms, og væri lagning hans þátta- skil í vegmálum hérlendis. Það -JTæri ein glæsilegasta fram- kvæmd í vegagerð hérlendis og Þingmál í gær Efri deiid: Frumvarp rí'kisstjórnarinnar um breyting á lögum um al- mannavarnir var samþykkt við þriðju umræðu og sent forseta neðri deildar til frekari með- ferðar. Við umræðu sagði Frið- jón Skarphéðinsson (A) að um- sögn hefði borizt frá Rauða krossi íslands og mælti hann með samþykkt frv. og fagnaði væntanlegri samvinnu við Al- mannavarnir. * Frumvarp um samþykkt rikis- rei'kningsins fyrir árið 1965 var ttt annarrar umræðu. Mælti Ól- afur Bjömsson (S) fyrir nefnd- aráliti fjárhagsnefndar og mælir nefndin með samþykkt frum- varps. Var það samþykkt og vís- að til þriðju umræðu. Neðri deild: Birgir Finnsson (A) mælti fyrir nefndaráliti sjávarútvegs- nefndar um frv. um verðlagsráð sjávarútvegsins. Mælti nefndin einróma með samþykkt frv. og var það samþykkt og vísað til þriðju umræðu. Atkvæðagreiðsla var um frv. , Lúðvíks Jósefssonar (K) um L Olíuverzlun íslands. Var frv. vís að til annarrar umræðu og fjár- hagsnefndar. Björn Páisson (F) mælti fyrir frv. sínu um breyting á lögum um bann við botnvörpuveiðum. Einnig tók til máls Guðlaugur Gíslason (S). Var frv. vísað til annarrar umræðu og sjávarút- vegsnefndar. Umræðna verður getið í blaðinu á morgun hefði kostað um 270 milljónir við síðustu áramót. Þess væri ekki að vænta, að allir vegir væru endurbyggðir jafn glæsilega og Keflavíkurvegurinn í einu, en nú væri verið að endurbyggja Hafnarfjarðarveginn, er muni kosta um 70 milljónir, og eins væri hafin framkvæmd við Reykjanesbraut frá Elliðaám og byggingu nýrrar brúar á árnar. Það væri mjög fjárfrek fram- kvæmd. Þá sagði Axel að unnið væri að vegarstæði fyrir Vesturlands- Axel Jónsson veg að Hvalfirði og kostaði það mikið fé. Vesturlandsvegurinn væri fjölfarnasti þjóðvegur landsins og þótt miklar fram- kvæmdir væru í vegamálum á Suð-Vesturlandi, þá yrði að gera einhverjar ráðstafanir til að bæta ástand vegarins. Það þyrfti að koma eitthvað til úrbóta. Axel lagði á það áherzlu að reyna þyrfti að nýta olíumölina til úrbóta. Lagning olíumalar væri ekki mjög kostnaðarsöm og þótt þarna væri aðeins um bráðabirgðalausn að ræða, þyrfti að gera þessa tilraun. Olíumöl hefði gefið góða raun hér á landi, þar sem umferð væri mimni en á Vesturlandsveginum. Væri þvi reynandi að leggja olíumöl á veg inn, og bæta hann þannig, með- an unnið væri áð byggingu hins nýja vegar. Svíar hefðu mesta reynslu 1 lagningu olíumalar. Endur- byggðu þeir ekki sína malarvegi, er þeir legðu olíumöl á þá. En ef í ljós kæmu gallar á vegin- um væri endurbyggt þar sem gallinn væri. Eins mætti gera á Vesturlandsveginum. Jónas Pétursson Bæta þarf vegasamband við Seyiisfjörð — mikilvægi sta&arins krefst þess — sagði Jónas Pétursson i jb/ngræðu Jónas Pétursson talaffi á miff- vikudag fyrir þingsályktunartil- lögu er aff flytur, aff Alþingi álykti að skora á samgöngumála ráffherra aff láta nú þegar full- naffarmælingar og áætlanir fara fram um nýja vegarlagningu yf- ir Fjarffarheiffi milli Seyffisfjarff ar og Héraffs, og sé gerff vegar- ins viff þaff miffuff, aff bifreiffa- samgöngum megi halda uppi á þeirri leiff hindrunarlítiff á með- alvetrum um snjóalög. Lagði Jónas á það áherzlu, aff mikilvægi Seyffisfjarffar, sem eins stærsta útgerffarbæjar á landinu, krefffist þess, aff góðar samgöngur væru viff staffinn. Því bæri brýna nauffsyn aff bæta vegasambandið viff Seyffisfjörff hið fyrsta. Jónas Pétursson sagði í ræðu sinni, að Fjarðarheiði tengdi Seyðisfjörð við akvegakerfi lands ins og þá sérstaklega við Egil- staði og flugvöllinn þar. Hins veg ar væri vegurinn ófullkominn og oft að vetrarlagi lítt fær vegna snjóa. Vegamálaskrifstofan hefði framkvæmt athuganir á snjólög- um á heiðinni og siðast liðið sum ar hefðu farið fram rannsóknir á nýju vegarstæði. Það væri brýn nauðsyn að bæta vegasamgöngur við Seyðis fjörð. Það væri ekki að vísu mjög fjölmennt þar, en staður- inn væri orðinn einn mesti fram leiðslustaður á landinu næmi verðmæti útflutningsvara þaðan um fimm til sex hundruð millj- ónum króna árlega. Jónas sagði að reynt hefði ver- ið að halda uppi vegasamgöng- um við Seyðisfjörð með snjóbíl að vetrarlagi. En það væri óhag kvæmt og ekki beint heppilegt. að væri hins vegar hægt að finna snjóléttari leið yfir heiðina og þyrfti að vinda bráðan bug að því að kanna snijólög á heiðinni. Jónas taldi að mestur vandi við byggingu vegarins yrði efst 1 dalnum, þar sem komið væri upp á heiðarbrún. Ræðumaður lagði S það áherzlu að fyrsta skilyrðið til þessarar framkvæmdar væri, að fram færi meiriháttar rannsókn á vegarlagningu og að gerð yrði kostnaðaráætlun. r A&gerðir til endurskipulagningar hraðfrystii&naðarins MEÐ frv. ríkisstjórnarinn- ar um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins er birt fylgisskjal um fyrirhugað- ar aðgerðir til endurskipu- lagningar hraðfrystiiðnað- arins. Mbl. birtir hér í heild fylgiskjal þetta: Tilgangur. Vandamál hraðfrystiiðnað- arins eru öðrum þræði fólg- in í skorti á samræmi á milli afkastagetu á hverjum stað og þesS1 hráefnis, sem fyrir bendi er á staðnum mikinn hluta ársins ,og jafnvel á öll- um árstímum. Lagfæringar á þessu eru hugsanlegar annars vegar með aðgerðum, sem stuðla að auknu og jafnara framiboði hráefnis, hins veg- ar með aðgerðum sem miða að breytmgu á uppbyggingu iðnaðarins, þ.e. sameiningu frystihúsa eða verkaskipt- ingu á milli þeirra. Þýðingar mikið er, að samhliða slíkum aðgerðum sé stuðlað að tækni legum og rekstrarlegum um- bótuim innan fyrirtækjanna. Jafnframt þarf að gera ráð- stafanir til þess að tryggja heilbrigðari fjárhagslega upp byggingu iðnaðarins en nú er, þar sem óeðlilega mikiar skuldir, skortur á eigin fé og lánsfé til langis tíma háir rekstri margra fyrirtækja, þrátt fyrir hagstæða afkomu á árunum 1964—1965. Undirbúningur tillagna Fyrsta skrefið til þess að framkvæma lagfæringar af því tagi, sem hér að ofan er lýst, hlýtur að felast í ræki- legri athugun á uppbyggingu og fjárhagsaðstæðum iðnað- arins . Þessi athugum ætti jafnframt að ná til ráðstaf- ana til að auka framboð hrá- efnis og gera það jafnara, að svo miklu leyti sem sérstak- ar athuganir á þessu sviði, svo sem um endurnýjun tog- araflotans, hefðu ekki bein- línis verið faldar öðrum. At- huguninni ætti að ljúka með undirbúningi tillagna um æskilegar skipulags'breyting- ar. Sérfræðingar á sviði tækni, rekstrar og fjármála, sem sérstaka reynslu hafa 1 fiskiðnaði, ættu að hafa fram kvæmd athugunarinnar með höndum. Myndu þeir að sjálf sögðu njóta allrar tiltækrar sérfræðilegrar aðstoðar frá Fiskifélaginu, rannsóknar- stofnunum sjávarútvegsins. Efnahagsstofnuninni o.s.frv, Þeir aðilar, sem að athugun- inni stæðu, og endanlega mót uðu tillögur um endurskipu- lagninguna, þyrftu hins veg- ar að vera samtök hraðfrysti húsaeigenda sjálfra og þær lánastofnanir, sem einkum skipta við sjávarútveginn, svo sem Fiskveiðasjóðpr, Fram- kvæmdasjóður, Atvinnujöfn- unarsjóður, Landsbankinn og Útvegsbankinn, svo og Ríkis- ábyrgðasjóður og fulltrúar ríkisvaldsins. Frantkvæmd Þegar þeirri athugun, sem að ofan er lýst, verður lokið, er komið að erfiðasta þættin- um, framkvæmdinni. Til þess að af framkvæmid tillagna af þessu tagi geti orðið, þarf ýmsum skilyrðum að vera fullnægt. í fyrsta lagi þurfa þau fyrirtæki, sem hlut. eiga að máli, að hafa sannfærzt um, að framkvæmd tillagn- anna stuðli að öflugum og fjárhagslegum traustum frystiihúsaiðnaði i landinu og sé jafnframt eðlileg og sann- gjörn lausn á vandamálum einstakra fyrirtækja. í öðru lagi þarf að vera séð fyrir all verulegu nýju fjármagni til þess að framkvæma þær breytingar á fyrirkomulagi og rekstri, sem nauðsynlegar reyndust. í þriðja lagi þarf að vera kleift fyrir Rikis- ábyrgðasjóð, og e.t.v. einnig Atvinnujöfnunansjóð og Fiski málasjóð, að gefa eftir skuld- ir, sem óhjákvæmilegt. verður að afskriifa i sambandi við nauðsynlega skipulagsbreyt- ingu. Viðskiptabankar og fjár festingarlánasjóðir þyrftu jafnframt að geta lengt lán, fellt niður afborganir eða samið um lán að nýju að því leyti, sem þetta reyndist óhjá kvæmilegur liður í þessum aðgerðum. Um leið og sMk skuldauppgjöf eða lenging lána færi fram af hálfu opin- berra sjóða og viðskipta- banka, þyrftu einkaaðilar, sem fyrirtækin skulda, einnig undir vissum kringumstæðum að gefa eftir skuldir, eða breyta þeim í hlutafé. Önnur hlutafjársaukning gæti einn- ið verið nauðsynleg og eðli- leg. Tímasetning Erfitt er um það að segja, hversu langan tíma sú at- hugun og sá undirbúningur tillagna, sem að framan er lýst, myndi taka, og enn erfið ara er að tíma>setja fram- kvæmd tillagnanna. Nauð- synlegt er þó að setja sér ákveðin markmið i þessu efni. Athugunin ætti að hefj- ast sem allra fyrst, og henni ætti að Ijúka innan nokkurra mánaða. Ætti þá að reynast unnt að ganga frá heildartil- lögum á grundvelli athugun- arinnar fyrir lok þessa árs og hefja um leið framkvæmd tillagnanna. Á hinn bóginn er þýðingarmikið, að lánasjóð ir og viðskiptabankar fari sem allra fyrst að miða að- gerðir sinar við þau mark- mið, sem athugunin beinist að, og hafi samráð við þá, sem að athuguninni standa, um lánaveitingar sínar á þessu ári. Mætti í þessu skyni hraða sumum þáttum athug- imarinnar og einnig beina henni i fyrstu að sérstökum stöðum, þar sem skjótra að- gerða er þörf. Með þessu móti gætu þær ráðstafanir, sem hér eru til umræðu, þeg- ar farið að hafa nokkur áíhrif á yfirstandandi ári, þótt þeirra gætti ekki að fullu fyrr en á árinu 1968 eða síð- ar. Þeim tilmælum verði beint, tii aft ekki verði gripið til inn- heimtuaðgerða gegn fyrir- tækjum, á meðan athugun á fjárhag þeirra fer fram, enda séu ekki fyrir hendi sérstak- «r aðstæður, er geri slíkar að- gerðir nauðsynlegar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.