Morgunblaðið - 03.03.1967, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.03.1967, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1967. 19 - SÉRA SIGURÐUR Framhald af bls 14 t Dagarnir koma, dagarnir líða. Einum fylgir regn og öðrum sól og blíða. Hver ókominn er eilífð, hver augnablik að kveldL í>ví leynist ávallt söknuður í sólarlagsins eldi. Svo kvað Sigurður Einarsson, tvítugur að aldri, í kvaeðL sem að öðru leyti er týnt og aldrei ▼ar prentað. f>á var ævin fram- tindan, með ókomnum dögum, eilífðarlöngum og fullum af ▼onum og fyrirheitum. Þá var óralangt til æviloka. Og svo toomu dagarnir í Mfi hans með regn og sól. En nú eru dagarnir liðnir, og þeir eru stuttir í minn- ingunum, ævi Sigurðar er lokið, og það er söknuður í sólarlagsins eldi. f>að var dag einn, seint i febr- éar árið 1918, nokkru eftir að frosthörkunum linnti. Við geng- um þrfr bekkjarbræður í 4. bekk til Hafnarfjarðar til þess •ð fara á skemmtisamkomu í Flensborgarskólanum. Fátt man ég af því, sem til skemmtunar var á þessari samkomu, annað en það, að ungur maður með gleraugu gekk upp á sviðið og flutti þar kvæði með hvellri röddu og skýrum framburði og all gustmikill í framkiomu. í>að ▼ar auðséð á öllu, að hann var ▼anur að vekja athygli og um hann var talað. Þá sá ég Sigurð Einarsson í fyrsta sinni. Þá voru langir ókomnir dagar framund- an. Nii, eftir 49 ár eru dagarnir orðnir að liðnum augnablikum, og ég er að rita fáein minningar- orð urn Sigurð látinn, ekki datt mér þá í hug, að það ætti fyrir mér að liggja. Ég gekk úr samkomuhúsmu með kunningja mínum, sem var í Flensborg út í lygna, hlýja hafnfirzka nóttina, upp á Ham- arinn. Það var tunglsljós. Við aettumst á stein og ræddum um Sigurð. Félagi minn sagði mér, að hann væri 19 ára, úr Fljóts- hlíðinni, bláfátækur, og hefði ▼erið til sjós í mörg ár í Vest- mannaeyjum og á Austfjörðum, sem þá voru fjarlægt ævintýra- land; hefði ratað þar í ýmsar mannraunir og mörg ævintýri, og væri, mikið skáld, og kvæði eftir hann hefðu verið prentuð í blöðum. Allt þetfca man ég glöggt eftir nærri hálfa öld, þó að flest sé gleymt. En svona var Sigurð- ur, hann vakti alltaf athygli og Jlorvitni. Um vorið tók hann gagn- fræðapróf utanskóla upp í 4. bekk Menntaskólans með mjög hárri einkunn, sérstaklega í ís- lenzku og var efstur í þeim ár- gangi. Næsta vetur 1918—19. ▼ar hann í 16 skáldabekkn- um^ vann fyrir sér með bennslu, orti og var mikið um- talaðuir í skólanum og féll um vorið með núll í stærðfræði. Um sumarið vorum við saman á 30 tonna sfldarbát, ég sjó'veik- ur landkrabbi, sem ekkert kunni til verka, en hann langsjóaður og kunni allt í sjómennsku, og naut ég þess. Eina rigningarnótt aigldum við vestur Skagafjörð, og vorum tveir í brúnni, hinir aváfu. Sigurður var við stýrið og sagði*mér sögur af svaðilför- t*m á sjó og ljúfum ævintýrum af Austfjörðum, og sparaði ekki lý’singarorð í efsta stigi. Ég, 19 ára barnalegur heimaalningur úr Reykjavík hlustaði heillaður á hina kynngimögnuðu, spenn- andi frásögn, fornyrfca orðgnótt- ina og hvella seiðandi röddina ▼ið taktföst slög mótorsins, og ondraðist öll ævintýrin og hina furðulegu lífsreynslu þessa unga félaga míns, sem aðeins var lið- lega ári eldri en ég, og ég fcrúði hverju orðL Frásagnarlist Sigurður var frá- bær. Hál'fum fimmta áratug síð- ar heyrði ég sumar af þessum aögum aftur í úfcvarpinu, að visu I hófsamana búningL og ég vissL að þær voru sannar. Síðla sumars lentum við i roki og rigningu við Rit. Nótabátarn- ir voru í eftirdragi og gekk sjór í þá og var hætta á, að þeir sykkju. Þeir voru dregnir að hekkinu og skipstjóri spurðL hverjir vildu fara út í þá að ausa. Sigurður brá við strax og annar með honum og stukku út í bát- ana. Sjóhatturinn fauk af Sig- urði og þarna sat hann og jós, berhöfðaður og gleraugnalaus, þar til við komum inn á fsa- fjörð. Svona var Sigurður, skjót- ráður, áræðinn og ósérhlífinn og sást lítt fyrir um áhættu, ef hon- u*m þóttL að nauðsynjaverk þyrfti að vinna. Svo skildu leiðir um stund. Þremur árum síðar, snemma vors 1922, mætti ég Sigurði í sólskini á Laugaveginum. Hann var orð- inn settari en áður, en þó gust- mikill nokkuð. Hann var þá að taka sfcúdentspróf utanskóla, hafði unnið fyrir sér hér og þar með kennslu á veturna árin á undan. Hann tók gott stúdents- próf, því að námsgáfurnar voru ágætar, skilningurinn skarpur og afkastagetan ó'hemjuleg. En hann hafði ekki aðeins lært hinar venjulegu skólanáms- greinar. Hann var þá langtum menntaðri og víðlesnari en við flestir jafnal'drar hans. Hann h'afði drukkið í sig fornbók- menntirnar, og þaðan hafði hann orðkynngina og hið meitlaða málfar, sem hann alla ævi lagði stund á. Æskan var liðin. Sigurður lauk guðfræðiprófi og tók til við sitt margháttaða lifsstarf. Hann lét sig þá starx margt skipta; réðst í ræðu og riti á margt það, er honum þótti fúið og feykið, og gat þá verið ærið hornóttur á stundum í sannleiksást sinni. Það fylgdi honum alla ævL þó að hornin yrðu slípaðri eftir því sem árin liðu. Slíkt er ekki væn- legt til vinsælda en entist Sig- urði til umtals alla ævi. Hann var um áratugi einhver mál- snjallasti maður á landinu og talaði ævinlega blaðalaust. Hið talaða orð lá honum svo leikandi á tungu, að hann hélt élheyrend- um sínum heilluðum. Ég minn- ist eins slíks abviks fyrir 10-12 árum. Það var á skemmtisam- kornu Sbúdentafélags Reykja- víkur f Sjálfstæðishúsinu síðasta vetrardag. Sigurður átti að halda þar ræðu um miðnætti til að fagna nýju sumri. Mikill fjöldi glaðra veizlugesta var þar sam- an kominn og glaumur og hávaði mikill. Mér þótti því ekki árennilegt fyrir Sigurð að fá þar hljóð til ræðuhalds. Sigurður gekk upp á sviðið og skimaði um húsið með sínu sérkenhilega augnaráði gegnum sterk gler- augun, en ysinn hélt áfram. Síð- an ræskti hann sig og sagði eina setningu með þeim hætti, að sfceinhljóð varð í salnum á einu augabragðL og síðar hélt hann álheyrendum töfrabundnum, svo að heyra mátti flugu anda, þar til hann hafði lokið máli sínu. Slíkt hefði enginn getað þá, nema Sigurður Einarsson. Hvað hann sagðL man ég lenguir, en 'hið meitlaða íslenzka mál og seiðandi silfurhljómur raddar hans ómar mér enn í eyrum. Það var unaðsleg stund. Orðsnilld Sigurðar og seið- magn raddar harns naut sín lika vel í útvarpL sem annars staðar, þó að þess mætti reyndar kenna, að ’honum væri nokkuð brugðið hina síðustu mánuði. En nú í janúar, eftir að Sigurður hafði tekið sína banasótt og lá á spít- ala, flutti útvarpið það síðasta, sem hann hafði lesið þar inn á segulband. Það var smásaga, Systir Helena. Flutningur Sig- urðar á þessari gullfallegu frá- sögu var svo fagur, að hann verð- ur mér sífelldlega minnisstæður. Þetta var hans svanasöngur. Og sögunni lauk eifcthvað á þessa leið: ,,Þú getur ekki vænzt bænheyrslu, ef þú tímir ekki að gefa það, sem þér þykir vænt um“. Og nú er rödd hans hljóðnuð. En í öllu sínu lífi og starfi fyrir þjóð sína og tungu sýndi Sig- urðuc, að hann tímdi að gefa það, sem honum þótti vænt um. Þess vegna mun hann sjálfur öðlast bænheyrslu og þjóðin minnast hans. Einar Magnússon. t Á LESTAFERÐ lífsins verður nr.argt um manninn þegar við lítum yfir farinn veg og skammt er í áningarstað Þegar frá eru taldir nánir og stöðugir samferða menn, þá hverfur fjöldinn •allur í jóreyk óljósra minninga. Samt verða alltaf nokkrir, sem ber hátt yfir hópinn, fara mikinn, þeysa framihjá endrum og eins með mikilúðlegu fasi og ið sópar af þeim. Dynurinn af þeirri för berg- málar í huganum langa lengi. Séra Sigurður Einarsson var slíkur maður. Öll þjóðin þekkti hann. Ævi hans var á engan hátt hversdagleg, enda maður- inn mikillar gerðar. Þegar á unga aldri vakti hann meiri eftir tekt en við mátti búast um bl'á- snauðan skólapilt í ókunnum stað. Fyrstu endurminningar mínar um séra Sigurð eru frá árunum fyrir 1918. Þá stundaði hann nám við Flenzborgarskólann í Hafnarfirði. Tvennt var það, se*m mér er í barnsminni úr tali fólks um séra Sigurð a þessum tíma. Hvað hann væri fátækur, og hve feikna gáfaður hann væri. Lárus Bjarnason, síðar skólastjóri í Flenzborg, var kennari séra Sig- urðar um þetta leyti. Heyrði ég hann dásama hæfileika þessa unga pilts, og það svo mjög, að séra Sigurður varð mér þaðan af minnisstæður. Árin liðu, og séra Sigurður gerðist brátt áberandi maður I þjóðlifinu. Hvar sem hann fór, vakti hann athygli og sneimma stóð um hann mikil'l styr. Það var því með þó nokkurri eftir- væntingu, þegar ég mætti í fyrstu kennslustund hjá séra Sig urði í Kennaraskóla fslands veturinn 1933-34. Hann var asf- burða kennarL réttlátur, gerði sér engan mannamun og var í senn félagi og leiðtogi nemenda sinna. Hann hafði einstakt lag á að hvetja þá til átaka, seim hik- andi voru vegna vanmats á eigin getu. En á þessum árum var slíkrar hvatningar mikil þörf, því að langflestir necnendur voru sárfátækir, og þurfti í rauninni mikinn kjark fyrir þá, sem lítið áttu, til þess að fara að leggja út í nokkurt skólanám. Kreppan var í algleymingi, atvinnleysi al- mennt og landsfólkið barðist í 'bökkum. Séra Sigurðuc var alltaf gunnreifur, fullur af þrótti og trú á lífið. Það var enginn kreppubragur kringum séra Sigurð. Hann vakti eldmóð hjá nemendum sinum, hvort 'heldur sem var á vettvangi stjórnmála, trúmála eða al- mennrar menntunar. Sjálfuc var hann þá vinstri sinnaður í stjórnmálum, og flestir nemendur hans voru mjög vinstri sinnaðir. Um þetta leyti stóð hann í miklu/m ritdeilum og háði snarp- ar orrustur um dagsins brenn- andi spursmál. Vér nemendur ■hans fylgdumst með öllu þessu af hinum mesta álhuga, og fjöl- menntum þegar séra Sigurður hélt ræður opinberlega. Einkum mun mörgum minnistætt erindi, sem hann flutti í Iðnó, og kall- aði: Farið heflar, flornu dyggðir. Húsið var fullt út úr dyrum, og margir þurftu að sfcanda. Séra Sigurður hélt þarna eins af sín- um miklu ræðum, þar sem slegið var á flesta strengi orðsins list- ar. Röddin römm og snjöll, ísmeygileg glettni, ádeiluþungL gáskL rökfimi, sem hlóð velkesti úr orðum andstæðinganna. Áheyrendur hlustuðu sem berg- numdir af funamælsku þessa ein- stæða manns. Margir nemendur voru sem heillaðir af honum, litu á hann sem foringja, sem fylgja bæri til hins ýtrasta á þeirri skoðna- braut, sem sr. Sigurður virtist þá marka. Það eru engar ýkjur að hann var stórgáfaður og hámenntaður maður. En einmitt þess vegna var hann enginn einstefnumaður í lífi sinu eða skoðunum. Þegar séra Sigurður taldi sig finna ágalla á einhverri hugmynda- fræði það stóran, að hann taldi sér ekki lengur stætt á aS fylgja fram því málefni — þá söðlaði hann um, skipti um stefnu. Einu sinni sagði hann við okkur nem- ur sína: „Stærsta syndin á ís- landi í dag, er að skipta um skoðun“. Þá þegar mun séra Sig- urður hafa verið farinn að kenna á þeim afleiðingum sem það hef- ir að fylgja sannfæringu sinnL hvað sem hver segir. Sumir hinna mörgu aðdáenda séra Sig- urðar áttu bágt með að fylgja honum eftir, þegar hann þeysti úr leið og stefndi á brattann, alveg öfugt við það 9e mvið mátti búast, samkvæmt venjuleg um lestagangi hversdagsmanna. Gerðist nú ærið stormasamt í kringum hann, enda mikil ólga í þjóðlífinu. En sr. Sigurður var það fjöl'hæfur maður, að enda þótt stjórnmálin yrðu honum að harðri hríð, þá ávann hann sér almenna hylli með starfisemi sinni við Ríkisútvarpið. Þar nutu menn góðs af mælsku hans, frábærlega skýrum flutningi og þeirri andagift, sem á stundum einkenndi ræðu hans alla. Þá gerði séra Sigurður breyt- ingu á 'högum sínum og fluttist austur að Holti — þar sem „hinir voldugu fjalldrekar skríða fram með fannýrða mön sem kembir af gnæfandi brúnum" — Skáldgáfa 'hans virtist fé nýjan •ótt, og nú gaf hann út hverja ljóðabókina á fætur annarri. Þrætukliður dægurmiálanna fjarlægðist skáldklerkinn í Holti, og nú sat hann á friðarstóli í náð hjá guði og mönnum. — Séra Sigurði var alla tíð annt um þá sem minna máttu sín eða voru á annan hátt hjálparþurfi. Þannig studdi hann ýmsan þjóð- hollan félagsskap, eins og t.d. Slysavarnafélag íslands. Það var á þeim vettvangi, sem ég hitti sr. Sigurð á ný eftir mörg ár. Á landsþingum Slysavarnafé- lagsins er alltaf samankomið mi'kið mannval úr öllum lanis- hluturn, og á þessum þingum naut sr. Sigurður sín ágætlega. Þar vann hann Slysavarnafélag- inu mikið og gott starf, með viturlegum tillögum og þeirri reynslu, sem hann hafði í öllu er að félagsmálum laut. Við þessi tækifæri varð þing- heimur stundum aðnjótandi þeirrar fágætu reynslu að hlýða á roann, sem talaði af innblæstrj, guðmóði. Þegar séra Sigurður var í þeim ham, þá virtist hann ummyndast. Orð hans féllu með þrumugný og fólk stóð florviða. Ekki þurfti þó til heilt þing, til þess að andinn kæmi yfir séra Sigurð. Þannig er mér í ævar- andi minni sá dagur á einu SlysavarnaþingL þegar hlé varð á milli funda, og ég var af til- viljun stödd með séra Sigurði inni í stjórnarherbergi félagsins. Hvernig sem á því stóð, þá upp- hóf hann ræðu um helgi skrifta- sakramentisins. Þá var sem séra Sigurður talaði með tungu hinna fornu kirkjufeðra um dulvís- indi Heilagrar Kirkju. Andinn hreif hann, og skáldskyggn hug- ur hans sá yfir allar aldir, allt að upprunans glóð, l'eyndardómi trúarinnar, mysterium fidei. Á þeirri stundu varð mér ljóst, að hér talaði einn sá mesti guðs maður, sem uppi hefir verið á þessari öld. Og eins það, að séra Sigurður samlíktist fremur kynngiklerkum fyrri tíða heldur en sinni eigin samfcið í trúarvið- horfum sínum. — Svo hafa kunnugir haft fyrir satt, að 'hann hafi verið í námu andlegu sambandi við sóknar- börn sin. f ljóðum hans má finna myndir, sem hann dregur upp af hinum mikla skriftaföður. Þessar myndir gætu alveg eins átt við um sr. Sigurð sjálfan: Og því var fylkingin þétt urn hans skriftastól, að þar var sjálfgert að lúta drottins valdi, hver fólginn uggur, hver freisting, sem hjartað 61, hvert falið afbrot, 'hver hrösun, sem brjóstið kvaldL hér fékk það mál, hið minnsta, jafnt sem hið stærsta, var metið og vegið fyrir áisýnd hins hæsta, og viljinn elfdur til alls, sem vair með dáð, en ofviða tökin falin drottins náð. Holt undir Eyjafjöllum hefir verið höfuðból að fornu og nýju, og þar hafa margir merkismenn gert garðinn frægan. En hvort mun nokkur þeirra hafa verið samtið sinni jafn hugstæður og séra Sigurður Einarsson var sinni tíð? Um þetta var ég að hugsa á leiðinni heim að Holti fyrir fá- um árum. Þá var séra Sigurður hress og glaður heim að sækja. Frú Hanna Karlsdóttir, kona hans, bjó honum gott og virðu- legt heimilL jafnframt þvi, sem hún var ljóðadís hans og bezti gagnrýnandi, eins og hann sjálf- ur sagði við gestinn. Þá las hann fyrir mig úr hand- riti að nýrri bók sinnL sem fjall- aði uim ein fcólf Wæði eftir Einar Benediktsson. Þessi bók hefir enn ekki verið gefin út, og er það mikill skaði ef ekki verður af, því að svo mun mörgum hafá fundizt, sem heyrt hafa þessar ritgerðir sr. Sigurður, að þar sé brugðið upp alveg nýrri birtu yfir skáldskap Einars Benediktssonar. Við ræddum um fyrri tíðar menn á þessum slóðum, og sr. Sigurður sagði, bæði í gamni og alvöru, að stundum fyndist sér sem einn hinna fornu kirkjuböfð- ingja stæði sér nærrL þegar hann væri einn við að yrkja. Séra Sigurður sagðist reyndar hafa orkt kvæði um þennan dulda vin sinn, og kallaði kvæðið Sæmund fróða. Þegar skáldið las kvæðið, þá fann ég að þarna var hann ómeðvitað að lýsa sjálfum sér þótt undir dul væri. Og með einu stefi þessa Ijóðs Weð ég þennan hjartfólgna læri- föður og vin, með innilegri hlut- tekningu til frú Hönnu og barna hans. Hans fas var mótað af Suður- heirns lærdómi og list er ljómi vökullar skyggni yfir augum og hvarmi. Og þrátt fyrir klerksins búnað sem bar hann yzt, stóð bjóðándi máttur af návist hans einni — og varmL Hann átti dulræðan seið í tilliti og svörum, bar sólfar af kyrrlátu brosi á harðlegum vörum. Það var, sem hann skildi mein og fcorrek hvers manns, og mönnum fannst rakna hver vandi við tilkomu hanfe. Sigurveig Guðmundsdótti*, Hafnarfirði. t Það hetja fallið hefur á helgri dýrðarbraut, er samtíð sinni gefur vel sigurkraft í þraut með verkum, sem að ver#a það vitaljós á jörð, af gáfum list þá gerða sem geymist i Guðs hjörðL Hans listaverk þau lifa og líka hirðisstarf, Guðs andi oft fékk skrifa það efast um ei þarf, í Ijóðum störf hans ljóma og líka ræðustóL vér heyrum helga óma frá himnaríkissól. Það sannir vinir sakna oft sárt að kveða er og viða strengir vakna sem viðkvæm mál með fer, þó ástvinir þeir eiga það erfiðasta mál og góðir gráta mega þó Guð hann styðji sál. En heim til dýrðarhæða er harn kominn af jörð, Framhald á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.