Morgunblaðið - 03.03.1967, Side 23

Morgunblaðið - 03.03.1967, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1«67. 23 - STJÓRNARFRV. Framhald af bls. 1. nm ársins 1967 um 10%. Enn- fremur er rikisstjórninni heimilt að lækka grreiðslur til Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga fyrir árið 1966 um 24 milljónir króna. • Ríkisstjórninni er heimilt á árinu 1967 að verja 20 milljón- um króna til þess að greiða fisk seljendum verðbætur á línu- og handfærafisk. Koma þessar greiðslur til skipta á miHi sjó- manna og útgerðarmanna skv. samningum um hlutaskipti. • Heimilt er að greiða viðbótar bætur á línufisk veiddan á tíma bilinu 1. okt. til 31. des. 1966 umfram þá 25 aura á kíló, sem þegar hefur verið ákveðið með lögum að greiða skuli. Heildar- verðbætur á línu- og handfæra- fisk 1966 skulu þó ekki fara fram úr 20 millj. kr. • Stofna skal sjóð, sem greiði verðbætur vegna verðfalls á frystum fiskafurðum, framleidd- um á árinu 1967 öðrum en sildar og loðnuafurðum. Ríkissjóður greiði til sjóðsins 130 millj. kr. af greiðsluafgangi 1966. Verði innistæða í sjóðnum eftir reikn- ingslok skal henni ráðstafað til Verðjöfunarsjóðs fiskiðnaðarins. • Sjóður þessi greiði verðbætur á frystar fiskafurðir framleidd- ar á árinu 1967 aðrar en síldar- og loðnuafurðir. Skulu þær nema 55% af verðlækkun, er verða kann miðað við verðlag, er fékkst fyrir sömu framleiðslu á árinu 1966. Verði verðfall á ár- inu 1967 er nemi meiru en 5% miðað við verðlag 1966 skulu verðbætur hækka til viðbótar um 2% af heildarverðlækkuninni fyrir hvert 1%, sem verðlag lækkar umfram 5%. Greiðsla verðbóta skal þó aldrei vera hærri en 75% af verðlækkun. • Ríkissjóður leggur fram 50 milljónir kr. 1967 er.verja skal til framleiðniaukningar frysti- húsa. • 1967 er heimilað að greiða úr ríkissjóði 10 millj. til verðbóta á útfluttar afurðir af öðrum fiski en síld og loðnu. • Aflatryggingasjóði er heim- ilt að ákveða að bætur til tog- ara vegna aflabrests 1966 skuli miðast við úthaldstíma þeirra á því ári. Það hefur verið Ijóst síðan á s.l. hausti, að mjög alvarleg við- horf væru að skapazt í sjávar- útvegi landsmanna, og þá ekki sízt í freðfiskframleiðslunni, vegna mikils verðfalls á erlend- um mörkuðum. A vegum yfir- nefndar verðlagsráðs sjávarút- vegsins hafa verið gerðar ýtar- legar athuganir á afkomu frysti- húsanna og afkomuhorfum þeirra. Þessar athuganir sýna, að afkoma frystihúsanna var tiltölu lega góð á árunum 1964 og 1965, einkum þó síðara árið, og miklu betri en hún hafði verið á ár- unum þar á undan. Stafaði þessi bætta afkoma bæði af hækkandi verðlagi erlendis og umbótum í rekstri. Áætlanir fyrir árið 1966 sýna hins vegar, að afkoman hef- ur versnað mikið á því ári. Kem- ur þar til hin mikla hækkun á fiskverði í ársbyrjun 1966, sem fiskiðnaðurinn tók á sig að um það bil tveimur þriðju hlutum, og aukinn tilkostnaður vegna launahækkana á árinu. Fyrir áhrifum fiskverðshækkunarinnar hafði að sjálfsögðu verið gert ráð, þegar fiskverð var ákveðið með samþykki fiskkaupenda í janúar 1966. Nú bætist það hins vegar við, að þorskafli minnkaði á árinu 1966, og frystihúsin fengu af þeim sökum minna hrá- efni en áður, og enn fremur að hin hagstæða verðlagsþróun snerist til hins verra, þegar kom fram á mitt árið. Um áramótin var talið, að verðið á frystum fiskafurðum væri orðið um 11% lægra en meðalverð ársins 1966 og frekari verðlækkanir væru framundan. Þessar niðurstöður sýndu, að frystiiðnaðurinn var ekki fær um að greiða hærra fiskverð á árinu 1967 en hann hafði gert á árinu 1966. Þær sýndu einnig, að frystiiðnaður- inn mundi ekki vera fær um að standa af eigin rammleik undir verðfallinu. Var því ljóst, aö ekki yrði komist hjá víðtæk- mn ráðstöfunum af hálfu ríkis- valdsins, bæði til þess að tryggja eðlilega útgerð vélbáta til þorsk- veiða og einnig til þess að tryggja rekstur frystihúsanna. Frá því að fiskverð var ákveð- ið í byrjun árs 1966 og þar til fiskverð var ákveðið nú í árs- byrjun 1967, hafði útgerðar- kostnaður aukizt nokkuð og kjör sjómanna á þorskveiðum versn- að í samanburði við aðrar sam- bærilegar starfsgreinar, þar sem þeir höfðu ekki notið verðlags- bóta á laun. Nauðsyn bar til, að fiskverð gæti hækkað til þess að jafna þann mismun, sem þannig hafði orðið á kjörum sjó- manna á þorskveiðum og annarra starfsgreina, og einnig til þess að draga úr áhrifum hækkunar útgerðarkostnaðar. Áður en til ákvörðunar fiskverðsins kom gaf ríkisstjórnin yfirnefnd verðlags- ráðs til kynna, að hún væri reiðubúin að beita sér fyrir því, að greidd yrði á árinu 1967 8% viðbót á verð landaðs fisk, ann- ars en síldar og loðnu. Með til- liti til þessarar yfirlýsingar ákvað yfirnefndin, að fiskverð skyldi standa óbreytt frá því, sem verið hafði á á*inu 1966. Sú viðbót, sem ríkisstjórnin vildi beita sér fyrir að greidd yrði, svarar um það bil til hækkunar kaupgreiðsluvísitölu frá því fisk- verð var ákveðið í upphafi árs 1966, þar til það var ákveðið nú. Ætlunin er, að þessi viðbótar- greiðsla skiptist þannig, að 5% viðbót verði greidd mánuðina marz og apríl, en 11% aðra mán- uði ársins. í þessu framvarpi er farið fram á heimild Alþingis til þess að inna þessar greiðslur af hendi. Eftir að fiskverð hafði verið ákveðið tók ríkisstjórnin upp við ræður við fulltrúa frystihúsaeig- enda um aðgerðir til stuðnings frystihúsunum. Ríkisstjórnin taldi frá upphafi, að leita ætti lausnar á vandamálum frystihús anna ánnars vegar í bættri upp- byggingu iðnaðarins og fjárhags- legri endurskipulagningu hans, en hins vegar í því, að byrð- inni af verðfallinu væri að nokkru létt af frystihúsunum. Um þessi tvö atriði hafa viðræð- ur ríkisstjórnarinnar og frystihús anna snúizt að undanförnu, og hefur í þeim viðræðum náðst samkomulag um þær aðgerðir, sem þetta frumvarp felur í sér. Það samkomulag hafa Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna og frysti- hús á vegum Sambands ísl. sam- vinnufélaga síðan staðfest. í sérstöku fylgiskjali er nánari grein gerð fyrir hugmyndunum um endurskipulagningu hrað- frystiiðnaðarins, en í 10. gr. þessa frv. eru fyrirmæli um þær ráð- stafanir, sem gerðar yrðu í þessu skyni. Felur sú grein í sér fyrir- mæli um þær athuganir, sem fram þurfa að fara, og nauðsyn- lega heimild fyrir ríkisábyrgða- sjóð til eftirgjafar á kröfum á frystihúsin með viðhlítandi skil- yrðum. Ákvæðin um aðstoð til frysti húsanna vegna verðfallsins er að finna í 6. og 7. gr. frumvarps- ins. Er þar gert ráð fyrir, að stofnaður verði sérstakur sjóður í því skyni, að bæta frystihúsun- um áhrif verðfallsins að veruleg- um hluta. Ætlazt er til, að sá sjóður, sem þannig yrði stofnað- ur, og fengi 130 m. kr. af tekju- afgangi ársins 1966 til ráðstöfun- ar, gæti orðið vísir að almennum verðj öfunarsjóði f iskiðnaðarins. Sveiflur á verðlagi erlendis hafa á undanförnum árum valdið fisk iðnaðinum og þjóðarbúinu í heild ýmsum erfiðleikum. Örar verð- hækkanir hafa ýtt undir hækk- anir á kaupgjaldi og hráefnis- verði, en þessir útgjaldaliðir lækka ekki aftur nema að litlu leyti, þótt verðlækkanir eigi sér stað erlendis. Jöfnun þessara verðsveiflna er því mikið hags- munamál fyrir fiskiðnaðinn, sem mundi bæta þjóðfélagslega að- stöðu hans og gera rekstur hans og skipulagningu framávið örugg ari og betri. Augljóst er, að skipu lag og starfsreglur sjóðs er hefði það hlutverk að jafna slík- ar sveiflur, verði ekki ákveðnar itema að undanfarinni rækilegri athugun og rannsókn, þar sem bæði yrði kannað eðli þess vandamáls. sem hér er við að etja, og sú reynsla, sem fengizt hefur af sams konar starfsemi annars staðar í heiminum. Það er því ekki lagt til, að ákvörð- un verði tekin um stofnun verð- jöfnunarsjóðs með þessu frum- varpi. Aftur á móti er gert ráð fyrir að sá sjóður, sem settur verði á laggirnar vegna verð- falls á frystum afurðum, geti orð ið visir að slíkum sjóði fram- vegis, ef ákveðið yrði að stofna hann að undangenginni ná- kvæmri athugun. Væri hægt að ljúka þeirri athugun fyrir haust- ið og setja löggjöf um sjóðinn á næsta þingi. Meginlínurnar í starfsemi verðjöfnunarsjóðs myndu verða þær, að með innheimtum í hann og greiðslum úr honum yrðu að nokkru jafnaðar þær sveiflur, sem verða á heildarverðlagi þýðingarmikilla afurðaflokka á milli framleiðsluára. Við mat á verðbreytingum yrði miðað við meðaltalsverð sömu afurða á nokkrum undanförnum árum. Sé verð á ákveðnu ári fyrir ofan þetta meðaltal sé innheimt í sjóð inn, en greitt úr honum ef það er fyrir neðan. Verðjöfnunar- greiðslurnar myndu að sjálf- sögðu ekki geta orðið nema hluti af heildarverðbreytingunni og væntanlega ekki meira en um það bil helmingur hennar. Þetta mundi þýða, að verðlagsbreyt- ingar fyrir fiskiðnaðinn sjálfan yrðu helmingi minni en nú á sér stað. Verðsveifluvandamálið er að sjálfsögðu ekki einskorðað við frystiiðnaðinn. Öll rök mæla með því, að starfsemi verðjöfn- unarsjóðs yrði miklu víðtækari og næði bæði til frystingar, salt- fiskverkunar og skreiðarverkun- ar og einnig til síldariðnaðarins. Einkum er það mikið hagsmuna- mál fyrir aðrar greinar sjávar- útvegsins, að dregið sé úr þeim miklu sveiflum, sem verðlags- breytingar á sildarafurðum valda. Á hinn bóginn er sjálf- sagt, að sjóðurinn starfi í að- greindum deildum fyrir hverja meginafurð. Áætlað er, að þær ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, sem hér hefur verið gerð grein fyrir, funi krefjast greiðsln.a, er nemi 130 m.kr. vegna framlags til verð jöfnunar frystra fiskafurða og 100 m.kr. vegna 8% viðbótar við fiskverðið. Ríkisstjórnin telur eðlilegt, að framlagið til verð- jöfnunar verði greitt af tekjuaf- gangi ársins 1966, enda er þar um að ræða ráðstöfun á fé til stofnunar varanlegs sjóðs, svo framarlega sem um þetta verða sett lög síðar. Á hinn bóginn er nauðsynlegt að gera sérstakar ráðstafanir til að standa straum af greiðslum viðbótarinnar við fiskverðið, þar sem ekki er gert ráð fyrir þeim greiðslum á fjár- lögum ársins 1967. Augljóst er, að hækkun skatta í þessu skyni myndi ekki samræmast þeirri verðstöðvunarstefnu, sem fylgt hefur verið að undanförnu, og sem miklu máli skiptir, að beri sem fyllstan árangur. Er því nauðsynlegt, að útgjöld séu lækk uð sem hinum nýju greiðslum svarar. Er í þessu frumvarpi far- ið fram á heimild til að lækka greiðslur til verklegra fram- kvæmda og framlaga til verk- legra framkvæmda annarra að- ila á fjárlögum ársins 1967 um 10%. Er áætlaður sparnaður af þessu 65 m.kr. Þá er jafnframt farið fram á heimild til þess að lækka greiðslur til Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga fyrir árið 1966 um 20 m.kr., en talið er, að greiðslur til sveitarfélaganna ættu á árinu 1966 að nema um 23 m.kr. hærri upphæð heldur en gert hafði verið ráð fyrir í fjárlögum ársins 1966. Þar sem svejtarfélögin njóta mjög góðs af árangri verðstöðvunarinnar í lækkun útgjalda frá því sem ella hefði orðið, telur ríkisstjórnin sanngiarnt, að þau taki nokkum þátt í þeim ráðstöfunum, sem nauðsynlegar eru til þess að tryggja framgang þessarar stefnu. Er því hér gert ráð fyrir, að þau leggi í þessu skyni fram 20 m.kr. af þeim umframtekj- um, sem þau ella hefðu fengið fyrir árið 1966. Þá er loks gert ráð fyrir, að í reynd muni fram- lag til ríkisábyrðarsjóðs á árinu 1967 reynast 15 m.kr. lægra en gert var ráð fyrir í fjárlögum ársins. Samtals nema þessar upphæðir 100 m.kr. Undanfarin 3 ár hefur ríkis- sjóður greitt framlag til fram- leiðniaukningar og annarra end- urbóta í framleiðslu frystra fisk- afurða, er nam 3 m.kr. árið 1964, 33 m.kr. árið 1965 og 50 m.kr. árið 1966. Einnig hefur ríkissjóð- ur ráðstafað 22 m.kr. á árinu 1965, og 20 m.kr á árinu 1966, til þess að greiða fiskseljendum viðbót á hvert kíló línu- og hand færafisks. Þá hefur tvö sl. ár verið heimild í lögum til þess að greiða 10 m.kr. til verðbóta á út- flutta skreiðarframleiðslu. Aug- ljóst er, að ekki muni fært að fella þessar greiðslur niður eins og aðstæður eru nú í sjávarút- veginum. Var þetta þegar ljóst, þegar fjárlög voru undirbúin, og var í þeim gert ráð fyrir 80 m.kr. fjárveitingu til aðstoðar við sjávarútveginn, (16. gr. B. 15), án þess að nánar væri kveð ið á um það, hvernig þessi upp- hæð skyldi skiptast. Með frum- varpi því, sem hér er lagt fram, er m.a. ætlúnin að setja nánari fyrirmæli um notkun þessa fjár. Er gert ráð fyrir, að upphæð- in skiptist í aðalatriðum á sama hátt og á sl. ári. Munu 50 m.kr. ganga til framleiðniaukningar frystihúsanna og annarra endur bóta i framleiðslu frystra fisk-_ afurða. Þá er ætlunin að ráð- stafa 20 m.kr. til greiðslu viðbót ar við verð línu- og handfæra- fisks. Á hinn bóginn hefur ekki þótt rétt, eins og nú horfir við að takmarka notkun 10 m.kr. af fjárveitingunni við skreiðarfram leiðsluna eina. í þess stað er lagt til, að heimilt sé að nota þessa upphæð til greiðslu verðbóta á útfluttar afurðir af öðrum fiski en síld og loðnu eftir reglum, sem ráðherra setur. Myndi þá vera unnt að nota þessa upphæð til lausnar aðkallandi vanda- mála. sem upp kunna að koma I sambandi við einstakar afurðir. BRIDGE Heim.smeistarakeppnin i bridga fyrir árið 1967 fer að þessu sinni fram í maí og verður 1 Miami Beaoh í Bandaríkjunum. Þátttakendur að þessu sinni verða 5 eða sami fjöldi og sL ár þrátt fyrir mikla óánægju bridgespilara í Afríku, sem telja að þeir. eigi að hafa sama rétt til þátttöku og Asía og S-Ame- ríka. Þátttökuþjóðix eru þessar: ftalía, Frakkland, N-A.meríku, Venuzela og Thailand. Ítalía keppir sem núverandi heims- meistari, Frakkland keppir sem Evrópumeistari, Venezuela sem sigurvegari í S-Ameríkukeppn- inni og Thailand, sem sigurvegari í Asíu. Keppnin í Asíu var ekki stór- brotin, aðeins 3 þjóðir kepptu um þátttökuréttin. þ.e sveitir frá Thailandi, Kína og Filippseyjum. Spilararnir frá Tailandi unnu með töluverðuin yfirburðum og taka nú þátt í keppninni í ann- að sinn, en þeir kepptu einnig sl. ár. Venezuela keppir f.h. S-Ame- ríku, en þar var keppnin afar hörð og spennandi. Að lokinni árlegri keppni voru sveitirnar frá Venezuela og Brasilíu efstar og jafnar og fór fram auka- keppni milli, þessara sveita og sigraði Venezueia mjög naum- lega. Sveitin er þannig skipuð: Benaim, Berah, Loynaz, Roman- elli, Rossignol og Vernon. f Frakklandi stendur nú yfir umfangsmikil keppni um hvaða spilarar eigi að skipa sveitina. Mlkla athygli vekur að hinir kunnu spilarar Jais og Trezel taka ekki þátt í keppni þessart Framh. á bls. 31 OSTA-eldhús eru þekkt fyrir gæði. ___ Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar. |^j II Sjón er sögu ríkari! — Komið og skoðið! >4 cssda msta osta rwu ne.t.n m=.ij SKORRI H.F SuSurlandsbrout 10 (gegnt íþróttohötll sími 38585

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.