Morgunblaðið - 03.03.1967, Síða 30

Morgunblaðið - 03.03.1967, Síða 30
30 MÖRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUK 3. MARZ 1967. 4,5 millj. kr. skíða lyfta á Akureyri 700 kr. velta til stuðnings hugmyndinni ALMENN fjársöfnun er nú hafin með sérstöku „veltusniði" til byggingar skíðalyftu við skíða- hótelið í HIíðarf.ialli, skammt frá Akureyri. Fjársöfnun þessi fer Körfuknutt- leikur í kvöld íslandsmeistaraTnótinu í körfu- knattleik verður haldið áfram í kvöld, föstudagskvöld, 3. marz. Verða leiknir tveir leikir í 1. deiid. Leikirnir eru: ÍS—KFR og Á—ÍKF. Leikirnir verða í Laugardals- höllinni og hefst keppnin kl. 20:15. Á mánudagskvöld verða svo leiknir nokkrir leikir í yngri flokkunum og verður þá leikið á Hálogalandi. Leiknir verða eftirtaldir leikir: 4. fl. karla: ÍR—KR 4. fl. karla: ÍKF—Á 3. fl. karla: ÍKF—ÍR 3. fl. karla: Á—KR fram að frumkvæði Lionsklúbbs ins Huginn á Akureyri, en hann hafði einnig forgöngu um fjár- söfnun er skíðahótelið var byggt. Geta þeir Reykvíkingar, sem hafa áhuga á að styrkja þessa framkvæmdir leitað til Þráins Þórhallssonar hjá Prentsmiðj- unni Viðey að Túngötu 5, þar sem þeir greiða 100 kr. fyrir styrktarmiða, en fá að auki þrjá miða, handa þremur kunningj- um sínum, sem þeir skora á að gera slíkt hið sama. Forráðamenn Akureyrarhæjar, sem hafa forgöngu um smiði lyft unnar, vonast til að þessi „100 kr. velta“ fái góðar undirtektir hjá almenningi. Tveir Akureyr- ingar Hermann Sigtryggsson, íþróttafulltrúi Akur eyr arbæj ar og Pétur Bjarnason verkfræð- ingur, fóru utan í morgun til þess að athuga þrjú lægstu til- boðin, sem bárust í smiði lyft- unnar. Verða þeir tíu daga í förinni, og muniu heimsækja þessi þrjú fyrirtæki, sem hafa aðsetur í Noregi, Sviss og Aust- urríki. Skíðalyfta þessi verður mjög fullkomin, og er hún einn lið- í fyrrakvöld fóru fram tveir leikir i 1. deild handknattleiksmanna. Haukar unnu Víking 26—16 og Fram vann Ármann með 2 7—12. Myndin er úr leik Hauka og Víkinga. Unglingameistara- mót á skíbum urinn í því að gera Akureyri að miðstöð vetraríþrótta á íslandi. Verður hér um að ræða stóla- lyftu, sem verður rúmur kíló- metri að lengd, og á að geta flutt 500 farþega á klukkustund. Er gert ráð fyrir að efnið í hana er- lendis frá muni kosta um 2 millj. króna, en áætlað er að lyfta þessi kosti um 4.5 milljónir uppkomin. Skýðalyfta þessi, sem rísa mun upp á Akureyri, er þvi ekki að- eins hagsmunamál Akureyringa, heldur allra þeirra, sem áhuga hafa á vetraríþróttum. Enda er það nú kostnaðarlitil fram- kvæmd fyrir fólk á Suðurlandi að taka sér á hendur ferð norð- ur, t.d. um páskana, til að iðka skíðaíþróttina. Á ÞEESU ári annast Skíðaráð Reykjavíkur um Unglinga- meistaramót fslands á skíðum. Mótið verður dagana 11. og 12. marz. Föstudaginn 10. marz kl. 21:00 verður sett með viðhöfn við Skíðaskálan í Hveradölum. Mótshald Á laugardag kl. 1<1 hefst keppni í stórsvigi og kl. 4 sama dag verður keppt í 7,5 km. göngu. Sunnudaginn 12. marz hefst keppni í svigi kl. lil og í stökki kL 15:30. Verðlaunaafhending fer fram að lokinni keppni á sunnudag í Skíðaskálanum í Hveradölumn. Skrifstofa mótstjórnar verður í Skíðaskálanum í Hveradölum mótsdaganna. Mótsstjóri er Sigurður Einars- son. ur frá 1465 og 1672 á stórri úrasýningu Verzl. Jóh. Norðfjörð minnist 65 ára afmælis með sérstæðri sýningu EIN elzta úra- og skartgripa- verzlun Reykjavíkur minnist í dag, 3. marz, 65 ára afmælis síns. Það er Úra- og skartgripa- verzlun Jóh. Norðfjörð h.f. Verzlunin var stofnsett á Sauð- árkróki og er verzlunarleyfi stofnandans útgefið 3. marz 1902. í tliefni afmælisins hefur verzlunin sýningu á gömlum úr- um í eigu fslendinga og úrum, sem fengin eru frá Sviss í til- efni af afmæli verzlunarinnar. Er hið elzta frá Sviss smíðað 1465. Það elzta í eigu fslendings er smíðað 1672. Verður sýningin í glugga og í verzluninni að Hverfisgötu 49 allan þennan mánuð og eru allir velkomnir að skoða. Jóhannes Norðfjörð, úrsmíða- meistari, stofnandi verzlunarinn ar var fæddur 7. september 1875 og lézt 17. júní, 1952. Hann nam úrsmíði hjá Jónasi Varsöe í Stav- anger og lauk námi 1901. Verzlunarleyfi fékk Jóhannes á Sauðárkróki 3. marz, árið eftir og eru í dag liðin 65 ár frá þeim degi. Jóhannes Norðfjörð starf- rækti verzlun sína á Sauðárkróki fyrstu 10 árin en fluttist til Reykjavíkur 1912 og opnaði verzl un í Bankastræti 12. Siðar var verzlunin til húsa á ýmsum stöð- um en þó lengst í Austurstræti 14 og þar muna flestir Reykvík- ingar hana. 14. mai 1939 flutti aðalverzlun in að Hverfisgötu 49 en útibú var áfram um tíma í Austur- stræti 14, en síðan fluttist það í Austurstræti 18 í hús Almenna Bókafélagsins. Sérstæð afmælissýning. 65 ára afmælisins minnist verzlunin, sem fyrr segir, með merkilegri úrasýningu. Hefur núverandi eiganda verzlunarinn ar, Wilhelm Norðfjörð, tekizt að safna saman um 20 gömlum úr- um í eigu fslendinga. Á einu þeirra er smíðaártalið 1672. Er það í eigu Gunnars Bjarnason- ar skólastjóra Vélskólans. Hin úrin eru frá ýmsum tímum, þó ekki séu á þeim ártöl og gætu þau því verið eldri. En öll eiga úrin það sammerkt að vera hin fegurstu á að líta. Sum eru með silfurslegnum hlífðarlokum. Yngsta úrið á sýningunni í eigu íslendings er eitt af fyrstu úr- unum, sem verzlun. Jóh. Norð- fjörð seldi á Sauðárkróki fyrir 65 árum. Eitt úranna — vasaúr — er þannig úr garði gert að það slær og gefur til kynna líðandi klukkustund sólarhringsins þegar ýtt er á sérstakan sláttu- takka. Sé klukkan milli 3 og 4 slær úrið 3 högg, sé klukkan milli 6 og 7 slær úrið 6 högg OÆ.frv. Svissnesk antique-úr. >á hefur verzluninni tekizt að fá hingað til lands 13 gömul úr frá Sviss, öll hin fegurstu. Sum þeirra eru gulli slegin og lögð smelti. Um aldur þeirra allra er ekki nákvæmlega vitað en á einu þeira er smíðaártalið 1465. Sýningin mun standa út þennan mánuð og eru allir vel- komnir í verzlunina til að skoða úrin. 1946 tók Wilhelm Norðfjörð, sonur Jóhannesar, við rekstri verzlunarinnar og rekur hana með sonum sínum, ásamt heild- verzlun með úr- og skartgripi er hann stofnaði 1941. Verzlunin hefur á boðstólnum úr- og klukkur og skart- og skrautgripi. Mest seldu úrin síðan 1938 eru Alpina en i verzluninni eru einnig á boð- stólnum OMEGA-úr og TERVAI* úr. í verzluninni er einnig að finna vandað og fjölbreytt úr- val af hinum heimskunnu Mauthe-klukkum. Sérdeild i verzluninni er gjafa og skraut- vörur úr silfri, gulli, kopar og postulíni. Verzlunin hefur m.a, aðalumboð fyrir hinar þekktu vörur frá Georg Jensen í Kaup- mannahöfn. Verzlunin hefur lagt áherzlu Elzta svissneska úrið er tH hægri og að ofan silfurkassinn sem um það var smíðaður. Urið er frá 1465. T.v. er elzta úrið á sýningunni í eigu tslendsings smíðað í London 1672. á að hafa á boðstólnum hand- unna íslenzka skrautgripi út gulli og innflutta silfurgripij skálar, bakka bikara o.fl. Áherzla var á það lögð er verzlunin flutti í eigið húsnæði að Hverfisgötu 49 að vanda um- hverfi vörunnar, þvi viðskipta- vinurinn á ekki aðeins kröfu á að fá góða og vandaða vöyu, heldur og fagurt umhverfi á sölustað samfara góðri þjónustu. Til vinstri sjást svissnesku úrin 13 sem á sýningunni eru. Efst í miðju er úrið frá 1465 og beggja vegna neðan til við það úr frá sömu tíð þó ekki sé vitað um smíðaár. Um þau eru silf- urkassar og önnur eru slegin emaleringu. Neðsi er nær 300 árr gamalt dagatalsúr. Hægra meg in er úr sem er í eigu íslendinga. Efst til hægri er úr frá 1672 nú í eigu Gunnars Bjarnasonar skólastjóra Vélskólans. Þriðja að ofan er úrið sem slær „eftir beiðni" og gefur til kynna með slætti sinum liðnar klukkustundir og liðna stundarfjórðunga. En úrasýningin er opin og sjón er sögu ríkari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.