Morgunblaðið - 03.03.1967, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1967.
31
Byggingaráætlunin til umræðu í horgarstjórn:
Fjármagnsþörfin á
þessu ári 210 milljónir
— Mokkur einbýlishús tilbúin í haust — Fjölbýlis-
hús í des. 1967 - júná 1968
Á BORGARSTJÓRNAR-
FUNDI í gær svaraði Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri
fyrirspurnum, sem fram voru
bornar af borgarfulltrúum
Framsóknarflokksins um
starfsemi Framkvæmdanefnd
ar byggingaráætlunar. Las
borgarstjóri bréf er honum
hafði borizt í tilefni þessara
fyrirspurna frá formanni
Framkvæmdanefndarinnar.
Skv. greinargerð þessari nem
ur fjármagnsbörf nefndarinn
ar á árinu 1967 210,5 milljón-
um króna en af þeirri fjár-
hæð á Reykjavíkurborg að
greiða Vs hluta. Nokkur ein-
býlishús sem ireist verða á
vegum nefndarinnar verða
væntaníega tilbúin í haust
en íbúðir í fjöibýlishúsum á
tímabilinu des. 1967 til júní
1968.
Framkvæmdanefnd byggingar
áætlunar tók til starfa 1. sept.
19©5 og er verkefni hennar að
reisa 1260 íbúðir fram til 19-70.
Til ársloka 1966 höfðu heildar-
útgjöld nefndarinnar numið um
12,7 milljónum króna vegna fram
lags til kaupa á vörugeymslu og
útlagðs kostnaðar við skipu-
lagsvinnu og nemur heildar-
kostnaður því um 10,3 millj. og
er hlutur Reykjavíkurborgar um
2,5 millj. kr.
Upphafleg byggingaráætlun
hefur ekki stgðizt bæði vegna
þess að tæknilegur undirbúning-
ur og gerð útboðslýsinga tók
Jengri tíma en ætlað var, enn-
fremur gatnagerð, holræsagerð
og annar undirbúningur á bygg-
ingarsvæðinu og óvænt niður-
staða könnunar á jarðvegi leiddi
til bess að ákveðið var að hafa
kjallara undir fjölbýlishúsun-
um. Töluverð verkefni hafa þegar
verið boðin út en um kjarna
Johnson að
veröa afi
Washington 2. marz AP
Blaðafulltrúi frú Lady Bird
Johnson staðfesti í dag, að
yngri dóttir forsetans Lucy
Johnson, sem gift er Patrick
Nugent, eigi von á bami um
mánaðarmótin maí-júní. Lucy
og Patrick giftu sig á sl. ári
og hafa sagnir um að Lucy
væri ófrísk oft birzt í banda-
rískum blöðum, en Hvíta hús
ið hefur hvorki neitað þeim
né játað fyrr en nú.
verksins, þ.e. grunngröft, upp-
steypu og ísetningu útveggja-
elementa er ætlunin að semja
við tiltekna verktakasamsteypu,
sem nefndin hefur haft forgöngu
um að komið verður á fót.
Hjá Framkvæmdanefnd bygg-
ingaráætlunar starfa nú 16 stafs
menn, þar af fimm menn aðal-
lega við skipulagsgerð. Að lok-
inni greinargerð borgarstjóra
urðu nokkrar umræður um starf
semi Framkvæmdanefndar og
tóku til máls, Kristján Bene-
diktsson (F), Gísli Halldórsson
(S), Óskar Hallgrímsson (A) og
Guðmundur J. Guðmundsson
(K).
Skíðaflugvélin hefur sig til flugs af Reykjavíkurflugvelli í gær.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Gljáfaxi fór í gær
til Danmarkshavn
í GÆR fór Gljáfaxi, flugvél
Flugfélags Islands, frá Reykja-
vík áleiðis til Danmarkshavn,
þar sem áhöfn Glófaxa hefur
dvalizt, allt frá því er óhappið
henti flugvélina, er vinstri hjála
útbunaður skemmdist. Fór Gljá-
faxi frá Reykjavík rétt eftir kl.
13 og lenti í Meistaravík kl.
17.10.
Flugstjóri á Gljáfaxa er Ingi-
mar Sveinbjörnsson; flugmaður
Magnús Jónsson og vélamaður
Sigurður Ágústsson, en hann á
að rannsaka, hvort unnt sé að
gera við vélina þar nyrðra ásamt
Halldóri Sigurjónssyni, sem er
fulltrúi tryggingafélagsins.
heir félagar munu hafa nátt-
að sig í Meistaravík, en í birt-
ingu í morgun munu þeir hafa
farið af stað til Danmarkshavn.
Munu þeir nota birtuna til þess
að rannsaka flugvélina og sagð-
ist Sveinn Sæmundsson, blaða-
fulltrúi Flugfélagsins, búast við
að til þess færu um tvær klukku
stundir.
Gljáfaxi mun koma aftur til
Reykjavíkur í kvöld, en á leið-
inni hingað mun hann hafa við-
dvöl í Meistaravík og í Scoreby-
sundi, en þangað sækir hann far
Lægðin yfir sunnanverðu
Grænlandshafi var á hreyf-
ingu ANA í gær, og nálgaðist
snjósvæði hennar landið. Var
búizt við, að úr frostinu
þega.
Að sögn Sveins Sæmundsson-
ar geta úrslit máls þessa orðið á
hvora veg sem er. Annað hvort
verður unnt að bjarga Glófaxa,
ellegar hann lýkur ævlskeiði
sínu á ísnum í Danmarkslhavn.
Þú mun verða unnj að bjarga
verðmætustu hlutum úr flugvél
inni.
hegar Gljáfaxi fór frá Reykia-
vík í gær kom hinn góðkunni
blómasali Þórður á Sæbóli og
fékk áhöfninni blórn til þess að
afhenda félögunum af Glófaxa
og einnig fyrstu grænlenzku
blómarósinni, sem yrði á vegi
þeirra.
- JARÐHITAV.
Framh. af bls. 2
veitu. Dreifikwstnaður vegna
•hitaveitu í Fossvogi er áætlað-
ur um 40 millj. króna.
Borgarstjóri sagði að lokum,
að borgamáð hefði skipað
þriggja manna nefnd til að
kanna allar hugsanlegar leiðir
til að tengja hin nýju hverfi
hitaveitu. í nefndinni eru þeir
borgarfulltrúarnir Birgir ísl.
Gunnarsson .Guðmundur Vigfús
son og Jóhannes Zoega, hita-
veitustjóri. Frekari umræðna
um málefni Hitaveitunnar er að
vænta, þegar tillögur borgarráðs
liggja fyrir.
Ekki urðu umræður að lok-
inni ræðu borgarstjóra, en hins
vegar urðu nokkrar umræður
síðar á fundinum um málefni
hitaveitunnar vegna tillögu
Framsóknarmanna um málefni
'hennar.
fyrir sunnan land, eins og
búizt er við, herðir það aftur
í dag. í gær var 13 stiga frost
á Hveravöllum, en mildast var
á Fagurhólsmýri, 1 stig.
- NEW ORLEANS
Framh. af bls. 1
ið skýrt frá.
Clay Shaw var höfuðsmaður í
fótgönguliði í heimsstyrjöldinni
síðari og var þá sæmdur franska
heiðursmerkinu „Croix de
guerre", bandaríska heiðurs-
merkinu „Legion af Merit“ og i
fleiri heiðursmerk j um fyrir
frammistöðu sína í styrjöldinni
í Evrópu. Yfor honum vofir eins
til tuttugu ára fangelsi, ef hann
verður fundinn sekur um þátt-
töku í samsæri, en næsta skref
saksóknarans verður að leggja
fram nákvæmt ákæruskjal í rétt
inum.
Bandaríska dómsmálaráðu-
neytið skýrði frá því í dag, að
ríkislögreglan FBI hefði þegar
í nóvember og desember 1963
látið fara fram rannsókn á því,
að hve miklu Clay Shaw hefði
verið viðriðinn morðið á Kenn
edy forseta. Á grundvelli þeirra
sannanna, sem fyrir hendi voru,
komst FBI að þeirri niðurstöðu,
að Shaw hefði engin afskipti
haft af morðinu.
Johnson forseti sagði á blaða-
mannafundi í dag, að hann áliti,
að það væri tilgangslaust að
taka upp að nýju málið um morð
Kennedys forseta. „Ég hef enga
ástæðu til þess að breyta neinu
af því, sem ég hef áður sagt um
skýrslu Warren-nefndarinnar“.
sagði forsetinn.
Brezkur bókaútgefandi skýrði
frá því í dag, að hann myndi
gefa út bók um morðið á Kenn-
edy forseba og væru þar hátt-
settir embættismenn í lögregl-
unni í Dallas ásakaðir um þátt-
töku í morðinu. Bók þessi er rit-
uð af þýzkættuðum manni, Joa-
chim Josten og skýrði útgefandi
hennar, Peter Dawnay frá því,
að Joesten hefði skorað á þá
menn í Dallas, sem tilnefndir
væru í bókinni, að höfða meið-
yrðamál gegn sér, þannig að
unnt yrði að taka þetta mál fyr-
ir í réttinum. Bókin, sem ber
heitið „Oswald, sannleikurinn",
kemur ekki út fyrr en í næsta
mánuði, en Dawney afhenti
blaðamönnum hluta af bókinni í
próförk. Dawney sagði enn frem-
ur, að yfirlýsingar þær, sem
Garrison saksóknari í New Orle-
ans hefur látið frá sér fara,
hleyptu stoðum undir skoðanir
Joestens.
Dawnay sagði, að bókin bygg-
ist á þeirri kenningu, að til hefði
verið „rangur Oswald“. tvífari
þess Oswalds, sem ákærður var
fyrir morðið og síðar var skot-
inn af Jack Ruby. Dawnay held-
ur því fram, að hinn falski Os-
wald hafi starfað fyrir Ruby og
að hann hafi farið um í Dallas í
því skyni að skilja eftir röng
merki, sem seinna myndu draga
athyglina að hinum raunverulega
Oswald.
Dawnay sagði m.a.; „Þetta var
ekki bara eitt samsæri heldur
tvö“. Sagði honn, að bókin sýndi,
að Jack Ruby og hinn rangi Os-
wald hefðu byrjað að áforma
árás á Connally ríkisstj. í Texas,
en þetta samsæri hefði smám sam
an runnið saman við morðárásar
áform gegn Kennedy, og hefðu
þar verið um að ræða ráðagerðir
samvizkulausra olíumilljónamær-
inga, uppgjafahershöfðingja, of-
stækismanna í kynþáttamálum
og annarra afturhaldssamra
afla. í bókinni er ennfremur
haldið fram, að starfsmenn lög-
reglunnar í Dallas hafi komið
með rangar ákærur gegn Oswald
og að þeir hefðu síðan spillt þeim
tiltækilegu sönnunargögnum,
sem Warren-nefndinni voru
fengin í hendur.
Joachim Joesten, sem áður
hefur skrifað 26 bækur, hefur
starfað að rannsóknum í sam-
bandi við morð Kennedys, allt
frá því að það átti sér stað, og
sagði Dawney útgefandi, að
Joesten hefði flett ofan af hb*.
um ótrúlegustu nýjum staðreynd-
um úr þeim sönnunargögnum,
sem Warren-nefndin hefði haft
„Warren-nefndin verður dæmd
af sinum eigin sönnunargögnum",
sagði Dawnay.
Höfundurinn sjálfur, sem er 59
ára að aldri, var ekki viðstaddur
blaðamannafundinn. Þegar Daw-
nay var spurður, hverju það
sætti, svaraði hann, að hann
gæti ekki skýrt frá því, hvar
Joachim Joesten dveldi.
Samsærið
- HANDTEKINN
Framh. af bls. 1
hann hand'ekinn af Bandaríkja-
mönnum i Austurríki og afhent-
ur austurriskum yfirvöldum
1947.
Stangl var hafður í haldi I
grennd við Linz, á meðan þess
var beðið, að réttarhöld yfir hon
um færu fram, og var hann send
ur ásamt öðrum stríðsföngum til
þess að hreinsa styrjaldarrústir
þar. Þar tókst hónum að flýja.
Sagt er, að hann hafi fyrst farið
til ítaliu, þaðan til Sýrlands og
síðan þaðan til Suður-Ameríku.
Austurrísk yfirvöld gáfu út
handtökuskipun á Linz 1962.
- ÁHERZLA LÖGÐ
Framh. af bls. 32
3 stórir ihvolfii skermar með
myndum, sem einkennandi eru
fyrir Norðurlöndin. Er þar beitt
nýrri Ijósatækni, sem ekki hef-
ur fyrr verið notuð á listræn-
an hátt, þannig að litaspil er á
myndunum og viðeigandi músík
samin við það, og er þessi sýn-
ing abstrakt í úbfærslu. Fjrir
framan er vatnsflötur, sem litirn
ir speglast í. En það er tákn
fyrir hafið, sem tengir Norður-
löndin og þau Vesturheimi. Á
baklhlið skermanna eru myndir
er sýna arkitektúr á Norðurlönd-
um og hefur Arkitektafélagið val
ið íslenzku myndirnar.
Sameiginlega hafa Norður-
löndin kosið að sýna hvernig ná-
grannaþjóðir, sem allar eru
frjálsar og fullvalda, starfa sam
an á fjölmörgum sviðutn. Kalla
þau sameiginlega deild sína á
ensku ,)'"in inn Unity“ í sam-
ræmi við heiti heimssýningar-
innar, sem nefnist „Maðurinn og
heimurinn hans.‘;
Öll hin norræna sýning á að
vera tilbúin 19. apríl. en þá verð
ur hún kvnnt fyrir blaðamönn-
um vestanhafs.
- BRIDGE
Framh. af bls. 22
og koma því ekki til greina I
sveitina.
í nóvember fór fram kepp.'ú
í Bandaríkjunum um hverjir
skyldu skipa ‘sveit N-Ame’-iku
og urðu þessir hlutskarpastir:
Eric Murray, Sammy Keihela,
Edgar Kaplan. Nonman Kay, Al-
vin Roth og Bill Root. Þeir tveir
fyrsttöldu eru Kanadamenn og
þeir einu sem voru í sveitinm
sl. ár.
Ekki er enn vitað hvernig
italska sveitin verður skipuð, en
vitað er að hinn kunni fyrirliðl
þeirra, Carl Perroux, mun
stjórna sveitinni eins og undan-
farin ár og vonast allir til að fá
að sjá enn einu sinni ítölsku
snillingana í heimsmeistara-
keppni.
BLAÐBURÐARFÓLK
1 EFTIRTALIN HVERFI:
VANTAR
Túngata Sjafnargata
Tjarnagata Baldurgata
Kjartansgata
Lambastaðahverfi
Talið við atgreiðsluna,
sími 22480
jftlotcjnnliTfiíiifa