Morgunblaðið - 29.03.1967, Síða 19

Morgunblaðið - 29.03.1967, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1967. 19 ÚTRÚLEGT EN SATT 75 dagar kr. 11.800. SÍGLID TIL MÚTS VIÐ SUMARD f fyrsta sinn fá fslendingar nú tækifæri til að sigla með stóru og nýtízkulegu skemmtiferðaskipi til Norður- Evrópu á yndislegasta og blómaríkásta árstímanum þar, áður en sumarhitarnir byrja fyrir alvöru. Farkosturinn er nýlegt luxusskip á níunda þúsund smálestir, þar sem 190 manna áhöfn veitir 350 far- þegum 'fullkonma þjónustu. Um borð er hægt að veita sér flest lífsins gæði, hlaðin borð af góðum mat á matmálstímum og fjölbreyttar veitingar og skemmtanir um borð í rúmgóðum samkomu§ölum, þar sem hljómsveitir leika á hverju kvöldi. Rúmgóðar setustofur, lesstofur, með góðu íslenzku bókasafni spilastofur, kvikmyndasýningar. — Tvær sundlaugar, önnur úti en hin inni, með upphituðum sjó. Hárgreiðslustofa — lítið sjúkrahús með lækni og hjúkrunarkonu. Verzlanir hlaðnar myndavélum, ilmvötn um, silkiefnum og öðrum eftirsóttum varningi, sem seldur er tollfrjáls um borð. Matseðlar á íslenzku við hverja máltíð. Margir fararstjórar frá SU NNU annast um fjölbreytt skemmtanalíf um borð og gefa fólki kost á ótal kynnis- og skoðunarferð um á landi. Ferðaskrifstofunni SUNNU er ánægja að því að geta b oðið viðskiptavinum sínum svo glæsilegan farkost, því enn sem fyrr er kjörorð okkar óbreytt: „Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega“. Vinsamlegast gangið snemma frá bókunum yðar og veljið herbergi. Þeir, sem koma snemma eiga mest úrval úr íbúðum um borð. 18. APRÍL, þriðjudagur: Sigl t frá Reykjavík að morgni. Faiið fyrir Reykjanes um hádegi og síð- degis siglt framhjá Surtsey og Vestmannaeyjum. Kynningarkvöldvaka og dansleikur um kvöldið í aðalsal skipsins. Dansað framyfir miðnætti. 19. APRÍL, miðvikudagur: Á siglingu. Kvik- myndasýning síðdegis. Veitingasalir og samkomu- salir opnir allan daginn. Dansleikur um kvöldið. 20. APRÍL, fimmtudagur: Siglt upp að ströndum Noregs með morgninum, komið inn á höfnina í Bergen um hádegisbilið og lagzt að hafskipabryggju. Kl.' 2 er farið í ökuferð um borgina og nágrennl hennar. Skoðað hið undurfagra landslag, þar sem skógar prýða fjalla- og fjarðabyggðir frænda okk- ar, en einmitt frá þessum slóðum komu margir hinna íslenzku Iandnámsmanna. Klukkan 8 um kvöldið Iætur skipið aftur úr höfn í Bergen og sigl- ir innan skerja áleiðis til Osló. Allir veitingasalir og barir opnir og dansleikur um ltvöldið. 21. APRÍL, föstudagur: Á sglingu um hina und- urfögru siglingaleið innan skerja suður með Nor- egsströndum, sem talin er ein fegursta siglingaleið í heimi. Síðdegis er komið inn á hinn fagra Osló- fjörð og lagzt að bryggju í Osló um kl. 20.00. Sam- eiginlegt ferðalag með -þeim er óska á skemmti- staði í Osló. Allir samkomusalir og veitingasalir einnig opnir um borð, fyrir farþega og gesti þeirra úr landi. 22. APRÍL, laugardagur: Farið í skoðunarferð um Osló og nágrenni hennar. Lagt af stað með bílum frá skipshlið kl. 10.00 M.a. skoðaður Vínlandsgarð- urinn og Bygdösafnið, þar sem sjá má víkingaskipið forna, heimskautafar Nansens, „Fram“ og hinn fræga Kon Tiki fleka, ásamt mörgu öðru. Ekið upp á Holmenkollen, þar sem útsýn er fegurst yfir Oslo- borg og hið fagra umhverfi hennar. KI. 18.00 er siglt frá Oslo út Oslofjörðinn ál eiðis til Kaupmannahafn- ar. Skcmmtun og dansleikur að afloknum kvöldverðL 23. APRÍL, sunnudagur: Siglt upp að Sjálands- ströndum með morgninum og lagzt að skemmti- skipabryggjunni við Löngulínu, þar sem skipið ligg- ur sem fljótandi hótel meðan dvalið er í Kaup- mannahöfn. Kl. 10 fara þeir, sem óska í skemmtiferð um Sjáland. Ekið hina undurfögru leið norður „Strandvejen til Luiseana safnsins, þar sem náttúru- fegurð gefur fagurri list óviðjafnanlegt umhverfi í nýtízkulegum salarkynnum. Þaðan er ekið að Kronborgarkastala, þar sem Hamlet ríkti. Herra- garðsmiðdagur er snæddur á 200 ára gömlum veit- ingastað á Sjálandi, skammt frá konungshöllinni Fredensborg. Síðan er ekið um vatna- og skóga- byggðir Norður-Sjálands um stærstu skóga Dan- merkur til Hilleröd, þar sem skoðuð er hin mikla Friðriksborgarhöll. Komið aftur að skipi um kl. 17.00, eftir viðburðaríkan dag. Sameiginlegar ferð- Ir á skemmtistaði í landi um kvöldið. 24. APRÍL, mánudagur: Kl. 10 leggja þeir sem óska upp í dagsferð yfir til Svíþjóðar. Farið er með langferðabílana yfir á ferjunni og ekið síðan til hins sögufræga háskólabæjar Lundar, þar sem eitt sinn var erkibiskupsstóll yfir íslandi og biskupar vígðir hingað til Iands, þar er fornfrægur háskóli og ein mesta og fegursta kirkja á Norðurlöndum. Skoðað- ir eru skemmtigarðar í Malmö eftir ökuferð um Skán. Eftir komuna til Kaupmannahafnar verður efnt til sameiginlegrar ferðar í hinn víðfræga skemmtistað Lorry. 25. APRÍL, þriðjudagur: Tilhögun frjáls fram yf- ir hádegi. Að afloknum hádegisverði er efnt til stuttrar skoðunarferðar um söguslóðir íslendinga í Kaupmannahöfn og komið í heimsókn í hinar miklu Carlbergsverksmiðjur, þar sem fólki er að lokum gefinn kostur á að reyna framleiðsluna að vild. TU- högun frjáls þar til klukkan 22.00 um kvöldið er skipið leggur frá bryggju áleiðis til Hollands. Veit- ingasalir opnir um borð. 26. APRÍL, miðvikudagur: Undir morgnn er lokið siglingu um Kílarskurðinn og síðan si.lt undan ströndum Þýzkalands. Kvikmyndasýning í sam- komusal og leikir á sólþilfari að afloknum hádeg- isverði. Dansleikur og skemmtun um kvöHið. 27. APRÍL, fimmtudagur: Komið til Hollands snemma morguns og lagzt að bryggju í Amsterdam Langferðabílar eru á bryggjunni og er lagt upp í ökuferð um Amsterdam og blómumskrýd^ir byggð- ir Hollands, skoðuð postulínsverksmiðjan D»lft á leið til höfuðborgarinnar Den Haag, komið til Rotterdam, þar stm fólki gefst kostur á að kaupa í verksmiðj- unni. Farið á skemmtistaði í Amsterdam um kvöldíð. 28. APRÍL, föstudagur: Dagurinn til frjálsrar ráð- stöfunar í Amsterdam til að sinna erindum í verzipn- um og fleira. En Amsterdam er talin ódýracta verzl- unarborg í Norður-Evrópu nú og mikið úrval af fatn- aði og margs kyns varningi í tiltölulega litlu en vel skipulögðu verzlunarliverfi. Nokkrar verzlanir veita þátttakendum í ferðum SUNNU 5—10% afslátt gegn framvísun ferðaskilríkja. Fararstjórar eru til leið- sagnar og hjálpar eftir því sem fólk óskar og við verður komið. KI. 17.00 síðd. leggur skipið frá hryggju í Amsterdam áleiðis til London. Skemmtun og dansleikur um borð að afloknum kvöldverði. 29. APRÍL, laugardagur: Skipið leggst að bryggju í London um kl. 8.00 að morgni. Bílar standa tilbúnir til að flytja fólk í skoðunarferð um borgina og biða eftir farþegum við Oxford street, í aðalve'zUinar- hverfi borgarinnar. Dagurinn er annars til frjálsrar ráðstöfunar. Skipið leggur síðan frá byggju í London kl. 18.00 áleiðis til íslands. Skemmtun og dansleikur um borð að afloknum kvöldverði. 30. APRÍL, sunnudagur: Á siglingu undan Eng- landsströndum. Efnt er til keppnisleika á sólþilfari og í sundlauginni þar uppi. Dansleikur og skemmti- atriði að afloknum kvöldverði. 1. MAÍ, mánudagur: Á siglingu. Skemmtanir og leikir um borð og kvikmyndasýning siðdegis. Að af- loknum kvöldverði er. efnt til skilnaðarhófs í sam- komusölum, dansleikur og skemmtiatriði. Dansað til kl. 2 um nóttina. 2. MAÍ, þriðjudagur: Siglt meðfram suðurströnd íslands, framb’á Vpsfmannaeyúnn og Snrfj no- ko*v.jg til Rvíkur um kl. 22 um kvöldið og lagzt að bryggju. Ferðaskrifstofan SUNNA Bankastræti 7. Símar 16400 og 12070.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.