Morgunblaðið - 08.04.1967, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.04.1967, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967. aææai Ellefu alda afmælis íslandsbyggðar — minnzt með veglegum hættf — Alþingi virðist hlynnt tillögu um þjóðarhús á Þingvöllum SAMEÍNAÐ Alþingi tók til fyrri umræðu þingsályktunar tiilögu ríkisstjórnarinnar um að þjóðhátíðarnefnd verði fal ið að vinna áfram að frekari undirbúningi þjóðhátíðarinn- ar 1974 á grundvelli tillagna þeirra, er hún hefur sett fram. Kom fram í ræð- um þingmanna mikilll álhugi á því, að 1100 ára afmælis landsbyggðar yrði minnzt með veglegum hætti og svo vandað til há- tíðabrigða, er kostur væri. Bjarni Benediktsson forsætis- ráðherra mælti fyrir tillögunni og sagði, að Þjóðhátíðarnefnd hefði unnið gott starf og kæmi margt athyglisverðra hugmynda fram í hennar áliti. Uin hug- mynd nefndarinnar, að reisa þjóðhýsi á Þingvöllum sagði for- sætisráðherrann, að þörf væri nýrra húsa á Þingvöllum, Val- höll væri orðin gömul og skorti tilfinnanlega gistihús. Hugmynd- in að þjóðhýsi væri íhugaverð, en nefndin þyrfti að vinna bet- ur hugmynd sína; fyrr væri ekki hægt að taka ákvörðun um byggingu þess. Þá kæmi það til álita, hvort fremur ætti að byggja þjóðhýsi á Þingvöllum eða reisa nýtt þinghús og stjórn arráðsbyggingu, en mjög hefði tflnegist úr hömlu að ákveða það. Þá drap ráðherra á hugmynd nefndarinnar um listamanna- búðir á Þingvöllum. Taldi ráð- herra, að ekki værú allir sam- mála því, að fjölga mjög byggð- um á Þingvallarsvæðinu, og væri hægt að reisa slíkar búðir víðar en á Þingvöllum. Hins veg- ar væru allir sammála um, að þjóðhátíðin ætti þar að fara fram. Allar stórhátíðir þjóðar- innar hefðu verið haldnar þar og hefðu þær mjög mikil áhrif haft á þá, er þar voru. Þá væri líka mikil nauðsyn á því, að bæta veginn til Þingvalla, því að hann væri alls ekki góður nú, og mikil nauðsyn góðs veg- ar þangað, svo að öll umferð til Þingvalla gangi greiðlega. Þá fór forsætisráðherra nokkr um orðum um útgáfustarfsemi vegna hátíðarinnar, en benti á, að athuga þyrfti, hver kostn- aður yrði af slíkri útgáfu og eins hvort ekki ætti að semja við- unandi íslandssögu af því til- efni, annaðhvort samtímis eða þá að velja í milli. Einnig tók ráðherra undir hugmyndir nefnd arinnar um sögusýningu og list- sýningar. Forsætisráðherra þótti hins vegar vafasamara að smíða vík- ingaskip til að sigla frá Noregi hingað til lands og til Vínlands ■hins góða. Væri það heldur ameríkanalegt og meiri auglýs- ingabragur af því en bein þýð- ing fyrir íslendinga. Litist sér betur á að reisa eftirlikingar af sögualdarbæjum, enda færðu slík hús okkur nær þeirra tíma atbburðum. í lok ræðu sinnar þakkaði for- sætisráðherra nefndinni gott starf og þær hugmyndir, er hún hefði fram sett. Þær væru á margan hátt athyglisverðar og sjálfsagt að skoða þær betur og vinna úr þeim. Þjóðhátíðar- nefnd hefði sjálf óskað eftir því að starfa launalaust, en ljóst væri að allur frekari undirbún- ingur að þjóðhátíð kostaði fjár- útlát, og því væri þessi þings- ályktunartillaga flutt. Ólafur Jóhannesson (F) tók næstur til móls. Tók hann und- ir orð forsætisráðherra, að hug- myndir nefndarinnar væru á margan hátt athyglisverðar. En þegar rætt væri um byggingu þjóðhýsis á Þingvöllum, sem væri vissulega athyglisverð til- laga, væri vert að athuga að ýmis hús skorti hér á landi og þá fyrst og fremst Alþingishús nýtt og stjórnarráðsbyggingu. Lagði Ólafur ríka áherzlu á, að kannað yrði, hvort reisa ætti allar byggingar í einu, eða setja eina framar annarri. Taldi hann sjálfur, að setja bæri nýtt þinghús á oddinn. Dregizt hefði úr hömlu að á- kveða staðsetningu og byggingu slíks húss. Væri 1100 ára afmæl- is íslandsbyggðar vel minnst með því, að reisa veglegt nýtt hús fyrir elztu og merkustu stofnun þjóðarinnar. Gils Guðmundsson (K) sagð- ist vilja benda á, þar sem hann væri einn nefndarmanna, að þjóðhátíðarnefnd hefði engan veginn hugsað sér, að ríkið ann- aðist sjálft allan undirbúning og framkvæmd vegna þjóðhá- tíðarinnar. Hún hefði hugsað sér, að ýmsar stofnanir og sam- bönd, auk héraðanna, veldu sér verkefni til að vinna úr. Benti hann í því sambandi á bókaút- gáfuhugmyndina, en þjóðhátíða nefnd hefði haft í huga, að ýmis hin stærri bókaforlög landsins ynnu í sameiningu að þeirra út- gáfu og veldu sér vissa hluta þeirrar útgáfu. Lagði þingmaður áherzlu á, að virkja bæri fjölda slíkra stofnana, þvi að þá yrði þjóðhátíðarinnar minnst fyrir margra hluta sakir. Um byggingu þjóðhýsis á Þingvöllum sagði þingmaður, að nefndin hefði alls ekki ætlað sér, að auka mjög ferðamanna- straum til Þingvalla, en þjóð- hýsi yrði til margvíslegra há- tiðaafnota, þar mætti setja Al- þingi og halda ýmsa fundi, er merkir væru. Gils sagði nefnd- ina hafa talið að ákvörðun um byggingu Alþingishúss væri í höndum Alþingis og því hefði hún ekki lagt slíkt fram, en hins vegar bent á þá hugmynd. Væri nefndinni vissulega ljóst, að brýna nauðsyn bæri til að koma upp nýju þinghúsi og stjórnarráðsbyggingu. Gísli Guðmundsson (F) benti á í upphafi, að þegar minnst væri 1100 ára landsbyggðar, ætti að minnast þess, að fleiri mark afmæli væru á þessari öld, er tilefni gæfu til hátíðahalds. Benti Gísli á í því sambandi á 900 ára afmæli Ara fróða, 800 ára afmæli Snorra Sturlusonar og auk þess afmæli funda Græn- lands og Vínlands. Taldi þing- maður rétt að benda nefndinni á það, að hafa þessi afmæli í huga, er hún undirbyggi hátíða- höld vegna 1100 ára afmælia landsbyggðar. Þá fór þingmaður nokkrum orð um um kostnað af hátíðahöldun- um og hvatti til aðgátar um notkun fjármuna og áminnti, að ekki yrði sóað af fyrirhyggju- leysi og óráðsíu. Ekki taldi þingmaður rétt, að minnast afmælisins með bygg- ingu víkingaskipa. Væri okkur hollara að minnast annarra gjörða forfeðra vorra en vík- ingar þeirra. Að lokum lagði þingmaður á- herzlu á, að þjóðhátíðarnefnd og Alþingi hefði í huga, að hér væri verið að minnast afmælis landsbyggðar. Því bæri að hafa sambönd við héruð og ráðgast við þau, hvað gjöra skyldi til hátíðabrigðis og um það, hvern- ig þau vildu minnast þessa af- mælis landsbyggðar. Taldi Gísli mjög mikilsvert að hafa sam- band við almenning í þessu sam bandi og lagði til, að þingsálykt- imin yrði ekki afgreidd á þessu þingi, heldur beðið til hausts, svo að þingmönnum gæfist tími til að sitja á rökstólum við landsmenn og ílytja til þings þær hugmyndir, er landsmenn vildu öðru fremur koma að. Að lokum tók forsætisráð- herra til máls. Sagði hann, að nefndin hefði unnið gott starf á löngum tíma, og ætti hún þakkir akilið fyrir það. En tíminn flygi frá okkur og þegar þyrfti að hefjast handa um, að undirbúa og rannsaka betur ýmsar þær hugmyndir, er nefnd in hefði fram sett, þannig að Alþing gæti að hausti ákveðið hvað skyldi gert. Tillögunni var síðan vísað til síðari umræðu og fjárveitingar- nefndar. Staðgreiðslukerfi skaíla Framhald af blaðsíðu 32. um atvinnurekstur eða sjálf- stæða starfsemi, svo og félög, sj’óðir og stofnanir, yrðu krafð- ir um greiðslu opinberra gjalda á skattárinu eftir áætlun þeirra sjálfra og eftir ákvörðun skatt- yfirvalda. Hvaða gjöld eru innheimt. Gert er ráð fyrir, að stað- greiðslukerfið nái til allra skattskyldra og gjaldskyldra að- ila, sem greiða eiga þau opin- beru gjöld, sem kerfið nær til. Þessi gjöld eru 21 að tölu, eins og fram kemur í skýrslu nefndar innar. í þessu sambandi bendir nefndin á, að íslenzka skatta- kerfið sé frábrugðið kerfum flestra annarra landa að því leyti, að beinir skattar og gjöld, sem ekki eru miðuð við tekjur, eru mjög mikilvæg. Væri kerfið hér á landi takmarkað við þá skatta og gjöld, sem miðast við tekjur, myndi skapast óánægja meðal skattþegna, vegna þess að þeir yrðu að standa skil á veru- legum hluta opinberra gjalda eiftir á, þrátt fyrir staðgreiðslu- kerfið. Til að koma í veg fyrir, að framkvæmdin yrði óviðráð- anleg af þessum sökum gerir nefndin þó þá fyrirvara, að svið ákveðinna gjalda verði takmark að, önnur verði samræmd og viss opinber gjöld verði alls ekki felld inn í kerfið. Þá má vekja á því athygli, að félög yrðu tekin með í kerfið sam- kvæmt hugmynd nefndarinnar, en hérlendis munu þau ekki vera í kerfinu annars staðar en í Sví- þjóð. Enda þótt innheimta skatta af félögum eftir staðgreiðslu- kerfi sé ýmsum erfiðleikum háð, bendir nefndin á það, að svo- nefnd atvinnurekstrárgjöld, þ.e. gjöld, sem greidd eru af at- vinnurekstrinum í landinu, t.d. viss tryggingargjöld, launaskatt- ur, aðstöðugjöld o.fl., séu mikil- vægur þáttur opinberra gjalda hér á landinu. Myndi því skap- ast verulegt misræmi milli fél- aga og einstaklinga, sem hafa með höndum atvinnurekstur, ef félög væru undanskilin. Auk þess er íslenzkri félagslöggjöf svo háttað, að auðvelt er að stofna til félags um rekstur. Með því að láta kerfið ná til félaga, feng ist bezt samræmi og engum yrði mismunað. Tilhögun staðgreiðslu yrði tvenns konar eftir því, hvort um er að ræða launþega eða at- vinnurekstur. Vinnuveitendur héldu eftir skatti af launum starfsfólks síns víð hverja út- borgun launa, en atvinnurekend ur stæðu sjálfir skil á sköttum sínum. Launþegar. Að því er varðar launþega, færu skattagreiðslur eftir skatt- kortum og skatttöflum gerðum af skattyfirvöldum, og er gerð þessara gagna lýst í skýrslu nefndarinnar. Skattkort launþeg ans vísar til ákveðinnar skatt- töflu, sem byggð er á ýmsum atriðum er ákvarða gjaldskyldu hvers skattþegns. Nefndin ger- rir ráð fyrir að nokkrum teg- undum skatttaflna, og byggist mismunur þeirra fyrst og fremst á því, að gert er ráð fyrir, að útsvarsstiginn verði ekki hinn sami um land allt, heldur verði sveitarfélögum gefinn kostur á að velja milli nokkurra útsvars- stiga, sem yrðu stighækkandi. Aðrir þætitir, er ákvarða upp- byggingu sikatttöflunnar eru persónufrádráttur einstaklinga, hjóna og barna, tekjuskattstigi, sem gert er ráð fyrir að verði stighækkandi, nefskattur og fastafrádrátur.. Síðstnefndi þátt urinn er byggður á þeirri upp- hæð frádráttarbærra gjalda, sem flestir launþegar ættu rétt á. Mundu þeir fá þennan frádrátt án tillits til þess, hvort saman- lögð raunveruleg útgjöld þeirra af þessu tagi næðu heildarupp- hæð fastafrádráttarins. Ef skatt- þegn teldi hins vegar, að þessi frádráttarbæru gjöld væru hærri en fastafrádrátturinn, fengi hann tækifæri til að færa sönnur á það við skattyfirvöld. En í slí'kum tilvikum mundu skattyfirvöldin m.a. reikna til tekna ákveðna liði, sem ekki teldust skattskyldir hjá þeim, sem sætta sig við fastafrádrátt- inn. Þetta ákvæði, sem yrði al- gjört nýmæli í framkvæmd ís- lenzkrar skattalöggjafar, miðar að því að einfalda staðgreiðslu- kerfið án þess þó að takmarka á neinn hátt rétt skattþeganna. Skattyfirvöld senda þessi gögn til réttra aðila áður en skattárið gengur í garð. Laun þegi skilar skattkorti sínu til aðalatvinnuveitendá, þegar hann mætir til vinnu fyrsta skipti á skattárinu. Aðalvinnuveitandi heldur kortinu, meðan skatt- þegninn er í þjónustu hans, og heldur eftir skatti af launum við hverja útborgun í samræmi við upplýsingar á skattkortinu. Þetta yrði algengasta aðferðin, en auk þess myndu koma til greina tvær aðferðir, sem beitt yrði við útborgun launa fyrir aukavinnu o.þ.h. Er hér í fyrsta lagi um það að ræða, að skatti sé haldið eftir samkvæmt há- markshundraðshluta, þ.e. hæsta hundraðshluta samanlagðs tekju skatts- og útsvarsstiga með á- lögum, og í öðru lagi samkvæmt aukaskattkorti með sérstökum hundraðshluta. Hámarkshundr- aSshluti yrði t.d. ávallt notað- ur, þegar launþegi gæti ekki framvísað skattkorti, en skatt- þegn gæti sótt um það til skatt- yfirvalda að fá aukaskattkort vegna aukavinnu o.þ.h. Mundi slikt kort útgefið með lægri hundraðshluta en hámarki, ef skattyfirvöld teldu ekki á því líkur, að viðkomandi þegn hefði það háar árstekjur, að þær lentu í hámarksstiga. Atvinnurekendur Atvinnurekendum yrði gert að skyldu að gera fyrir upphaf skattársins sjálfsáætlun um tekjur sínar og eignir á komandi skattári, en skattyfirvöldum yfði einnig heimiluð slík áætlana- gerð. Á grundvelli sjálfsuppgjörs eða áætlana skattyfirvalda yrði atvinnurekendum gert að greiða áætlaða skatta og gjöld, önnur en atvinnurekstrargjöld, sam- kvæmt gjaldseðlum á fastákveðn um gjalddögum. Yrði gjaldanda ljóst á skattárinu, að áætlun hans eða skattyfirvalda fengi ekki staðizt, þyrfti hann að til- kynna það skattyfirvöldum, sem tækjú á ný ákvörðun um stað- greiðslu, sem gæti orðið til hækkunar eða lækkunar. Á sama hátt gætu skattyfirvöld endur- ákvarðað staðgreiðslu eftir viss- um reglum. Staðgreiðsla svonefndra at- vinnurekstrargjalda, sem þegar hefur verið rætt um, yrði með nokkuð öðrum hætti. í hverjum ársfjórðuingi skattársins mundu gjaldendur þessara gjalda greiða mánaðarlegar bráðabirgða- greiðslur vegna þessara gjalda, er næmu % hluta atvinnureikstr argjalda samkvæmt lokaupp- gjöri fyrir sama ársfjórðung árs ins á undan. Ef um nýja atvinnu rekendur er að ræða, myndi þess ar bráðabirgðagreiðslur miðast við næsta eða næstu ársfjórð- unga fyrra árs eða hreina áæfl- un. Á gjalddaga bráðabirgða- greiðslu fyrsta mánaðar hvers ársfjórðungs yrði atvinnurekend um skylt að gera lokauppgjör fyrir næstliðinn ársfjórðung. Fyrirkomulag innheimtu Hugm. nefndarinnar um skip- an staðgreiðslukerfis leiðir ó- ■hjákvæmilega til þess, að gera þyrfti veigamiklar breytingar á yfirstjórn skattmálanna, bæði á- lagningu skatta og innheimtu þeirra. Gerir nefndin ráð fyrir því, að við embætti ríkisskatt- stjóra verði þrjár deildir. Ein deildin hefði með höndum yf- irstjórn innheimtu, sem yrði að vera sameiginleg fyrir alla þá aðila, sem gjöld fá, er inriheimt verða eftir kerfinu. önnur deild hefði með höndum yfirstjórn á- lagningar og sú þriðja yfirstjórn skattrannsókna. Leiðir það af uppbyggingu staðgreiðslukerfis- ins, að allir þessir þættir verða að vera í mjög nánum tengslum. f sambandi við innheimtudeild ina er gert ráð fyrir, að settar verði upp innheimtu- og eftir- litsstöðvar í umdæmum, sem á- kveðin verði hæfilega stór til þess að tryggja skynsamlega verkaskiptingu og vinnubrögð. Greiðslur allar gangi annað hvort til umdæmisstöðvanna eða til banka og sparisjóða. Þessir aðilar greiði síðan féð til þeirra, sem það eiga að fá samkvæmt fyrirmælum yfirstjórnar inn- heimtunnar. Álagningardeildin við embættl ríkisskattstjóra færi með yfir- stjórn álagningar. Stefnt yrði að því að ná sem mestu samræmi Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.