Morgunblaðið - 08.04.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967.
31
Stjórnarfrumvarp á Alþingi:
Spariskírteini fyrir 125 millj.kr.
Nýtt verStryggt ríkisláai
RfKISSTJÓRNIN lagðl í gær
fram á Alþingi frv. er felur
í sér heimild til sölu innan-
lands á ríkisskuldabréfum
eða spariskírteinum allt að
125 millj. kr. Verða skírtein-
in verðtryggð og undanþegin
framtalsskyldu og skattlagn-
ingu á sama hétt og sparifé.
Fénu skal varið til vegagerð
ar landshafna og fleira. í
Sama frv. er heimild fyrtr
ríkisstjórnina til lántöku
vegna ýmissa annarra fram-
kvæmda m.a. 12.5 milljón kr.
lán vegna samgöngubóta á
Vestfjörðum. Þá skal ríkis-
stjórn einnig heimilt að
kaupa fasteignirnar nr. 12
við Vonarstræti og Skjald-
breiðareignina við Kirkju-
stræti, fyrir samtals allt að
21 milljón kr.
Undanfarin ár hefur rikis
stjórnin aflað fjár með sölu
spariskírteina. Hefur sú ráð
stöfun verið vinsæl meðal
sparifjáreigenda og er nú far
ið fram á heimild til slíkr-
ar sölu í á. Fénu skal vaið
til ýmissa famkvæmda og
eu þessa helztar: Til vega-
gerðar 53,6 millj., til lands-
hafna 30 millj., til flugmála
23,2 millj. og til kísilgúrs-
vegarins 29.5 millj.
Veðurkortið var vorlegt í 2ja st. 'hiti. Nær því leysingin
gær, logn og sól á A-landi, en til mikils hluta af hálendinu,
mild sunnanátt og sums stað- svo vötn munu vaxa mjög, ef
ar létt rigning eða úði á svo heldur áfram, en á því
Vesturlandi. Hitinn var víða eru talsverðar horfur.
8-10° og á Hveravöllum var
Ísland og Svíþjóð eru sem
Eitli og stóri bróðir í handb.
Koma sænska landsliðsins í' þúsund iðkendur handknattleiks
handknattleik og landsleikir fs-
lands og Svíþjóðar á sunnudag
eru meðal stærstu íþróttavið-
hurða þessa árs. Svíar hafa löng-
Um verið meðal fremstu hand-
knattleiksþjóða heims. Á ný-
afstaðinni heimsmeistarakeppni
tryggðu þeir sér rétt til að leika
S 8 liða úrslitum, mættu þar
Tékkum, sem síðar urðu heims-
‘meistarar. Komust þeir því ekki
S 4 Iiða úrslit, en unnu hins veg-
úr V-Þjóðverja og tryggðu sér
ineð því 5. sæti í keppninni.
Geta Svía í handknattleik er
hyggð á gömlum og traustum
grunni. Nú eru í Svíþjóð um 53
Sinfóníuhlióm-
sveitin leikur í
Bifröst
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
heldur tónleika á vegum Tónlist-
arfélags Borgarfjarðar í Bifröst,
fimmtudaginn 13. apríl klukkan
21.30. Stjórnandi tónleikanna
verður Bohdan Wodiczko, aðal-
hljómsveitarstjóri hljómsveitar-
innar, og einsöngvari verður
Guðmundur Guðjónsson, óperu-
söngvari. Á þessum tónlei'kum,
sem eru 2. tónleikar Tónlist-
arfélags Borgarfjarðar, flytur
hljómsveitin verk eftir Grieg,
Bizet, Haydn og Weber. Guð-
mundur Guðjónsson syngur með
hljómsveitinni íslenzk lög eftir
Pál ísólfsson, Árna Thorsteinson
og Eyþór Stefánsson.
en til samanburðar má geta þess,
að iðkendur handknattleiks á |s-
landi eru tæplega 4 þúsund. ís-
land og Svíþjóð eru því eins og
litli og stóri bróðir í norrænum
handknattleik.
Svíar hafa leikið 257 landsleiki
í handknattleik karla, en fs-
lendingar leika l ú sinn 39. og 40.
landsleik.
Það er viðurkennd staðreynd,
að Svíar hafa sýnt forystumönn-
um ísl. handknattleiks meiri vin-
arhug en starfsbræður þeirra í
hinum Norðurlöndunum. Þeir
koma t. d. í þessa för á algerum
jafnréttisgrundvelli, þ. e. a. s.
greiða fei lir sínar sjálfir og sjá
Um uppihald ísl. landsliðsins síð-
ar í Svíþjóð er þessi heimsókn
verður endurgoldin.
Einn frækilegasti sigur sem Isl.
handknattleiksmenn hafa unnið
er sigurinn yfir Svíum 12—10 í
HM í Tékkóslóvakíu 1964. Sá sig-
ur vakti að vonum feikilega at-
hygli og leið ís'endinga næst’tn
alla leið í úrslit;* jik vlrtist greið-
fær. En í kjolfarið fylgdi slæmt
tap fyrir Ungverjum, svo að
þrátt fyrir tapið gegn íslending-
umhéldu Svíar í lokakeppnina
og hlutu þar silfurverðlaunin.
Það er því góðum vinum sem
handknattleiksmenn f agna, ágætu
landsliði, sem sannarlega verður
ekki auðveldlega unnið, en sæt-
ur væri sá sigur ef hann ynnist.
Aðolfundur
Bluðumunnu-
félugsins
AÐALFUNDUR Blaðamannafé-
lags íslands verður haldinn á
morgun, sunnudaginn 9. apríi og
hefst kl. 2. Fundurinn verður í
Hótel Sögu, hliðarsal Súlnasal-
ar.
— Dráttarbraut
Framhald af bls. 32.
Akureyrar sæi um framkvæmd
verksins.
í samræmi við þetta samkomu-
lag var gerður vinnusamningur
við Slippstöðina hf. þess efnis, að
'fyrirtækið legði til vinnuafl til
framkvæmdanna, bæði verka-
menn fagmenn og undirverk-
stjóra. Hafnarsjóður sér um yfir-
verkstjóra, en vitamálastjóri um
verkfræðilega yfirumsjón með
verkinu.
Verkfræðingur vitamálastjóra,
'Sveinn Sveinsson, og verkfræð-
ingur Hafnarsjóðs Akureyrar,
Pétur Bjarnason, hafa undanfar-
'farið haft með höndum undir-
húning verksins og að þeirra
undirlagi hófust framkvæmdir
skömmu fyrir páska með því að
nauðsynleg tæki voru útveguð
til þilreksturs og dýpkunar.
M.a. kom hingað dýpkunartseki
frá vitamálastjóra ásarnt tveim-
ur mönnum og hófust- dýpk
unarframkvæmdir fyrir nokkrum
dögum.
Nú hefur hins vegar risið
'ágreiningur milli vitamálastjóra
og hafnarnefndar út af ráðningu
yfirverkstjóra er vitamálastjóri
hafði ráðið til alls verksins, en
hafnarnefnd telur slíkt brjóta í
bág við áðurnefnt samkomulag
við vitamálastióra. Hafnarnefnd
var var og ekki kunnugt um
ráðningu yfirverkstjórans fyrr en
um það bil sem hann kom hingað
norð-ur ásamt Sveini Sveinssyni
sl. þriðjudag.
Hefur yfirverkfræðingur vita-
málastjóra kallað hei»n starfs-
mennina við dýpkunartækið og
þar með stöðvað dýpkunarfram-
kvæmdirnar.
Ákveðið var á bæjarráðsfundi
I gær. en fundir þess eru að jafn-
aði á fimmtudögum, að hafnar-
nefndarmennirnir Stefán Reykja-
lín, formaður nefndarrinnar, og
Árni Jónsson færu til Reykja-
víkur til viðræðna við sam-
göngumálaráðuneytið um lausn
þessa máls.
Fóru þeir suður í gærkvöldi og
áttu í morgun viðtal við ráðu-
naytisstjóra ásamt Bjarna Einars-
syni, bæjarstjóra.
Vitamálastjóri er erlendis um
þessar mundir, en er væntan-
legur heim alveg á næstunni.
sennilegt er, að ákvarðanir í
málinu bíði heimkomu hans.
— Sv. P.
— Sendineínd
Framhald af bls. 1
þessum átökum, og um 60 hand
teknir.
Átökin hófust snemma morg-
uns þegar skæruliðar þjóðernis-
sinna skutu á sveit brezkra her-
manna. Kom skothríðin frá A1
Noor bænahúsinu í Sheik
Othman-hverfinu í Aden, sem
hlotið hefur viðurnefnið „Litla
Vietnam“. Svöruðu Bretar skot-
hríðinni, og sprengdu niður einn
turn bænahússins þar sem fáni
Jemen hafði blaktað. Eftir þetta
dró nokkuð úr átökunum um
stund, en svo hófust þau að
nýju. Skæruliðar höfðu komið
sér fyrir í fjölbýlishúsum með-
fram götu, er liggur að bæna-
húsinu, og héldu þaðan uppi
látlausri skothríð á Breta og her-
menn stjórnarinnar, ef þeir
birtust. Var þá tekið til bryn-
vörðu bifreiðanna, og þeim
ættlað að ryðja hermönnunum
braut að bænahúsinu. Var talið
að leiðtogar skæruliða hefðu
leitað hælis þar.
Tólf brynvörðum bifreiðum
var beitt, og glumdu skot skæru-
liða eins og haglél á brynvörn-
unum. Svöruðu Bretar með vél-
byssum sínum, en áttu í miklum
erfiðleikum því skæruliðar skutu
úr íbúðum þar sem fyrir voru
konur og böru. Brezkir hermenn
voru þá sendir inn í hverfið,
og tókst þeim að hrekja skæru-
liða á brott. Stóðu bardagar
yfir í þrjá stundarfjórðunga
áður en herliði stjórnarinnar
tókst að komast til bænahússins.
Voru þá leitogar skæruliða, sem
þar höfðu verið, horfnir.
— Framkvæmda-
áætlunin
Framhald af bls. 10
á öðrum atvinnuframkvæmdum
í ríkara mæli, en upphaflega
hafði verið gert ráð fyrir. Þá
varð með júní-samkomulaginu
1964 og enn frekar með júní-
samkomulaginu 1965 tekin sú
stefna, að stuðla sérstaklega að
aukningu íbúðarbyggmga, jafn
framt því sem stefnt var að sem
mestri aukningu raunverulegra
tekna launþega. Af þessum sök
um gat hið opinbera ekki nema
að tiltölulega litlu leyti notað
það aukna svigrúm, sem hinn
mikli vöxtur þjóðartekna gaf til
efni til, til aukningar opinberra
framkvæmda, heldur var nauð
synlegt að aðrir ráðstöfunar-
þættir sætu í fyrirrúmi. Vegna
almennrar þenslu í efnahagslíf
inu varð ríkisvaldið einkum að
beita ströngu aðhaldi að eigin
framkvæmdum og þeim óðrum
framkvæmdum, er það hafði
mest áhrif á. Eigi að síður hef-
ur orðið mikil og almenn aukn
ing opinberra framkvæmda á
þessu tímabili, eins og hin upp
haflega þjóðhags- og fram-
kvæmdaáætlun einnig gerði ráð
fyrir.
Merkjasöludag-
ur Ljósmæðrafé-
lags Reykja-
víkur
LJÓSMÆÐRAFÉLAG Reykja-
víkur efnir til merkjasölu ár-
lega. Sunnudagurinn 9. apríl er
merkjasöludagurinn í ár. Ágoði
rennur allur til félagsins, sem
sinnir margs konar góðgerðar'
starfssemi.
Mæður eru beðnar um, að
leyfa börnum sínum að selja
merkin og klæða þau hlýlega.
Merkin eru afhent í eftirtöldum
skólum: Álftamýraskólanum,
Hlíðarskólanum, Breiðgerðis-
skólanum, Langholtsskólanum,
Vogaskólanum, og að Rauðar-
ársstig 40 hjá Guðrúnu Halldórs-
dóttur, ljósmóður. Sími hennar
er 12944.
Alls byggðar 5832 íbúðir.
Eftirfarandi atriði varðandi
íbúðaframkvæmdir, voru meðal
þess, sem fjármálaráðherra
gerði að umtalsefni:
í sambandi við undirbúning
þjóðhags- og framkvæmdaáætl
unarinnar fyrir árin 1963-1966
var gerð athugun á íbúðaþörf
á tímabilinu, og var áætlun um
nauðsynlegar framkvæmdir við
ibúðarbyggingar á þessum árum
miðuð við þá þörf. Var reiknað
með framkvæmdum, sem sam-
svöruðu 1.300 fullgerðum íbúð-
um árið 1963 og 1.500 íbúðum til
jafnaðar á ári 1964-1966, eða alls
framkvæmdum, er samsvöruðu
5.800 fullgerðum íbúðum á öllu
tímabilinu. Samkvæmt því, sem
nú liggur fyrir, hafa fullgerðar
íbúðir árið 1963 reynzt 1.303, en
1.510 að meðaltali árin 1964-
1966, eða alls á öllu tímabilinu
5.832. Aftur á móti hafa heild-
arframkvæmdir við íbúðarbygg
ingar reynzt nokkru meiri en
sem svarar fullgerðum íbúðum,
þar eð magn þeirra íbúða, sem
í byggingu er, hefur aukizt nokk
uð á tímabilinu. Séu heildar-
framkvæmdirnar umreiknaðar i
fullgerðar íbúðir reynast þær
samsvara 6.270 íbúðum, og er
þetta 8% hærri tala en áætlun-
in gerði ráð fyrir. Þar við bæt-
ist, að þær íbúðir, sem byggð-
ar hafa verið á tímabilinu, eru
að meðaltali nokkru stærri og
vandaðri en ráð hafði verið fyr-
ir gert og áður tíðkaðist. Verð-
ur því aukning fjármunamynd-
unarinnar sjálfrar enn meiri en
þetta, eða um 20% meiri en áætl
unin gerði rað fyrir.
Margt fleira athyglisvert kom
fram í ræðu fjármálaráðherra
og verður nánar skýrt frá því
hér í blaðinu síðar.
^Stefán Jónsson, formaður Frant
Landsmálafélagið Fram minnist
40 ára afmælis síns í kvöld
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Fram
í Hafnarfirði var stofnað 12. nóv-
ember 1926 og var því 40 ára sl.
haust. 1 kvöld verður afmælis-
ins minnzt með hófi í samkomu-
húsinu á Garðaholti og hefst það
kl. 7 með sameiginlegu borð-
haldi. Forsætisráðherra, Bjarni
Bencdiktsson, mun verða gestur
félagsins og flytja ávarp.
Fyrstu stjórn Fram skipuðu
þeir Sigurgeir Gíslason, verk-
stjóri, Sigurður Kristjánsson,
fyrrv. kaupfélagsstjóri og Ing-
ólfur Flygenring, forstjóri.
Samkvæmt lögum félagsins
gátu allir fengið inngöngu í það,
jafnt konur sem karlar, 18 ára og
eldri.
Formenn félagsins hafa verið,
auk Sigurgeirs Gíslasonar, Jón
Mathiesen, Sigurður Kristjáns-
son, Bjarni Snæbjörnsson, Þor-
leifur Jónsson, Loftur Bjarnason,
Eyjólfur Kristjánsson, Guðmund
ur Guðmundsson, Páll V. Daníels > firði.
son, Gestur Gamalielsson og
Eggert ísaksson.
Núverandi formaður Fram er
Stefán Jónsson og hefur verið
það frá árinu 1965. Með honum
í stjórn eru nú Sigurður Krist-
insson, Finbogi F. Arndal, Stefán
Sigurðsson og Gestur Gamaliels-
son.
Félagið hefur alla tíð haldið
uppi reglulegri starfsemi og haft
mikil áhrif á aðstöðu og baráttu
Sjálfstæðisflokksins í Hafnar-