Morgunblaðið - 08.04.1967, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.04.1967, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967. Garðy rk j umeim Tilboð óskast í standsetningu lóða við húsin Safamýri 34—38. — Uppl. í síma 32932. Skrifsloiustúlka Óskum eftir að ráða stúlku til almennra skrif- stofustarfa.. Góð laun. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Skrifstofustúlka — 2086“. 1 Kökur yðar og brauð verða bragðbetri og fallegri ef bezta tegund af lyftidufti er notuð. Loffhernaðurinn yfir N-Vietnam: Bandaríkjamenn hafa misst 500 þotur þar Saigon og Washington, 4 apríl NTB — AP. TAI.SMAÐUR bandarísku her- stjórnarinnar í Saigon skýrði frá því i dag, að sl. sunnudag hefði ein bandarísk orrustuþota verið skotin niður yfir N-Viet- nam Hafa þá alls verið skotnar niður 500 bandarískar þotur yfir -Vietnam siðan loftárásir hóf- ust fyrir tvcimur árum og tveim ur mánuðum. 390 flugmanna er saknað, en verðmæti flugvél- anna nemur um einum milljarði bandarískra dollara og kostnaður við þjálfun og útbúnað 390 flug- manna er um 300 milljónir doll- ara. Hörð átök voru á landi í Viet nam yfir helgina og að sögn | bandarísku herstjórnarinnar felldu Bandamenn yfir 600 skæruliða, en mannfall 1 liði þeirra sjálfra var sagt lítið. Bandarískar flugvélar fóru í 147 árásarferðir yfir N-Vietnam í dag og hafa þær ekki verið fleiri í 5 mánuði, enda veðurskilyrði mjög góð. Var sprengjum varpað á flutninga og samgönguleiðir, brýr og birgðageymslur. Herskip úr 7. flota Bandaríkjamanna héldu uppi skothríð á strand- virki og bækistöðvar N-Vietnam í dag. Robert McNamara varnarmála ráðherra Bandaríkjanna vísaði i dag á bug kröfunum um auknar loftárásir á N-Vietnam, þar á meðal árásir á flugvelli N-Viet- nam. Sagði ráðherrann á fundi með fréttamönnum í Washing- ton í dag ,að árásir væru ekki gerðar á flugvelli í N-Vietnam, vegna þess að Bandaríkin vildu ekki auka styrjaldaraðgerðir í Vietnam. Sagði ráð'herrann að þessi afstaða kynni að breytast eftir því sem tímar líða. Fundur Sjálf- siæðiskvenna á Akranesi AKRANESI 4. apríl. - Fjölmenn- ur og ágætur fundur var haldinn á Akranesi þriðjudaginn 4. marz í Sjálfstæðiskvennafélaginu Báru sl. Frú Auður Auðuns alþm. mætti á fundinum og flutti er- indi um viðhorf stjórnmála hér á landi í dag. Var gerður mjög góður rómur að máli hennar. Síðar var kaffidrykkja, skemmtiatriði og sýndar lit- skuggamyndir. Áhugi og einhugur ríkti á fund inum um að gera hlut Sjálfstæð- isflokksins sem mestan í væntan- legum alþingiskosningum. Fulltrúakjör fór fram til Landsfundar Sjálfstæðismanna. hjþ. VÍSAÐ ÚR LANDI Moskvu, 6. apríl (NTB) STJÓRN Sovétríkjanna hefur vísað úr landi forstöðumannl Moskvuskrifstofu belgíska flugfélagsins Sabena. Er mað- urinn, Lucien Thoye, sakaður um óleyfilega og fjandsam- lega starfsemi. SP0RTVAL ! LAUGAVEGI116 Siml 14390 Verzlunin opnar fostudaginn 7. apríl 1967 að Laugavegi 116, Reykjavík — Hiís Egils Vilhjálmssonar — Áður Ríma Höfum nú stm fyrr ó boðttólum urval af alltkonar sporf- og tómitundavörum og Mkföngum Ljósmyndavörur: Afga - Braun - Edixa - Eumig - Kodak Viðleguútbúnaður: Tjöld - Franskir - svefnpokar og íslenzkir svefnpokar Dönsku Hammersholmvindsængurnar Veiðisfangir: Kanadisku Major Rod Köfunartæki: Tauchtecnik Með stœrra húsnœði bœtum við þjónusfu okkar LAUGAVEGI 116 Simi 14390 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.