Morgunblaðið - 08.04.1967, Síða 21

Morgunblaðið - 08.04.1967, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1967. 21 Brú á Héraðsvötn Málverk eftir Nínu Sæmundsson. (Ljósm. Sv. Þ.) Verk eftir Nínu Sæmundsson og 15 aðra á sýningu eftir listmálara sem lokið hefðu námi um svipað leyti og Nína, eða um 1920-30. Væru þessir listamenn einnig fæddir um mjög svipað leyti, eða um 1890 — 1900. Á Listasafnið öll vðfkin sem eru á sýningunni. Verður sýningin opin þriðjudag, fimm- tudag frá 1.30 — 4, en laugar- dag og sunnudag frá 1.30 — 6, og lýkur 21. maí. SAMGÖNGUR á landi voru hafa löngum erfiðar verið, svo sem kunnugt er. Þó hefir á síðustu áratugum mikil hreyting á orð- ið í þessum efnum. Vegir hafa verið lagðir, með hjálp hinna stórvirku vinnuvéla, og vatnsfSll brúuð. Ekki er því þó að heilsa, að alls staðar sé hægt að benda á framfarir. Er og slíks tæplega að vænta. En öfugsnúið er það, að dæmi skuli mega finna um beina afturför frá frumstæðum samgöngubótum fyrri tíðar. Á Hérðasvötnum 1 Skagafirði, undan Flatatungu, var kláfferja fyrr á árum. Árið 1929 vildi það slys til, að kláfurinn slitnaði nið- Ur, með þeim afleiðingum, að ung stúlka fórst í Vötnutum. Var þá kláfurinn lagður niður. Situr við það enn, að ekkert hefir komið í hans stað. Kláfferjan var vissulega mikil samgöngubót á sínum tíma, og ekki hefði svona illa þurft til að takast, hefði gott eftirlit verið með öllum búnaði hennar. Að kláfferjan var sett þarna á Vötnin sýnir, að þar var talin Aukid fræðslustarf fyrir unqlinga LISTASAFN Islands opnaði í dag sýningn á verkum Nínu Sæ- mundsson, myndhöggvara og mál ara, og hennar samtíðarmanna Er sýningin haldin til minn- ingar um Ninu, en hún arfleiddi Listasafnið að mörgum verkum eftir sig, bæði höggmyndum og málverkum. Eru á sýningunni mörg af fallegri verkum henn- ar. Á sýningunni eru verk eftir 15 listmálara auk Nínu Gunnlaug - MINNING Framhald af bls. 22. unni „Magni“. Hann lézt farinn að heilsu s.L sumar. Er báturinn hljóp af stokkun- um hlaut hann nafnið „Ása“, kantsettur eikarbátur. Þann bát áttu þeir félagar til ársloíka 1929. Þá kaupir Ágúst 1/3 part í „Skuld“ og á hana fram yfir seinna stríð eða til 1946. Sam- eignarmenn hans voru þeir Jón Benónýsson og Guðmundur Ólafsson. „Skuld“ var og er mik- il happafleyta og hefir skilað öll- um eigendum sínum fyrr og síð- ar góðum arði. Eftir að Ágúst hættir útgerð á „Skuld“ sezt hann ekki í helg- an stein. Hann gerist nú starfs- maður við hin miklu fis-kvinnslu hús í Eyjum. Lengst af í Vinnslustöðinni. Gekk hann að verki hvern dag, fram yfir átt- rætt, léttur og réttur, eða þar til hann fluttist úr Eyjum 1962. Auk útgerðar og fiskverkunar fyrir eigin reikning, þá var Ágúst fiskimatsmaður um árabil og metinn að verðleikum fyrir nákvæmni og heiðarleik. Enn- fremur má geta þess að Ágúst tók að sér hraunfláka, girti hann og ræktaði sér gott tún. Hafði þannig styrk af landbúnaði um mörg ár. Ekki skal gengið fram hjá þeim merka þætti í lífi Ágústs, er voru húsabyggingar hans, því hann byggði sér ekki færri en 3 íbúðarhús. Fyrst Vestmannabraut 61, vesturhelming. Síðan Skólaveg 7, Ásnes, er hann var lengstum kenndur við. Er Ágúst var kom- inn yfir sextugt fær hann sér lóð vestur í bæ og enn byggir hann nýtízku einbýlishús að Hólagötu 2. Allt á einni hæð og byggði sér þar fagurt og yndis- legt heknili. Þetta eru nokkrir helztu drætt irnir úr lífi Ágústar. Segja þeir nokkuð sína sögu, um munaðar- lausa drenginn, er kominn var í fóstur fjarri foreldrahúsum, en rættist svo úr, að hann lagði mikinn og stóran skerf til upp- byggingar byggðarlags síns. Ágúst gekk mikið gæfuspor er hann kvæntist Ingveldi Gísla- dóttur frá Syðri-Brúnavöllum i Árnessýslu. Brúðkaup þeirra stóð árið 1911. Bjuggu þau i far- aælu hjónabandi í 56 áir. Þar var mikið lán og hamingja fyrir þau bæði. Ingveldur var mjög samstæð manrú sinum, hjartaihlý og Blöndal, Guðmund Einarsson frá Miðdal, Brynjólf Þórðarson, Eggert Laxdal, Ólaf Túbals, Höskuld Björnsson, Svein Þórar innsson, Karen Þórarinnsson, Magnús Á. Árnason, Kristinn Pétursson, Kristján Magnússon og Freymóð Jóhannesson. Á fundi með blaðamönnum síðdegis 1 gær, sagði dr. Selma Jónsdóttir að valin hefði verið á sýningiuia verk tryggðin einskær. Hún lifir nú mann sinn, en farin heilsu. Ágúst var faðir fjögurra barna, elzt er Sigrún, ekkja í Vestmannaeyjum, þá Gísli er dó aðeins 8 ára, vegna hraps í klettum. Þá Guðmundur fram- kvæmdastjóri í Reykjavík og Gísli rafvirki í Kópavogi. öll eru þau systkin er lifa, mætir og nýtir borgarar og bera föð- ur sínum fagurt vitnL Sá er þetta ritar kynntist Ágústi og Ingveldi einkanlega á Hólagötu 2. Þar var gott að koma. Þar ríkti fölskvalaus trú á Drottin og handleiðslu hans. Þar var gagnkvæm virðing hjón- anna. Þar var heimili mótað af trú og kærleika. Okkur Vest- mannaeyingum þótti sjónar- sviptir að, er þau hurfu úr Eyj- um af heilsufarslegum ástæðum. En böndin rofnuðu ekki. Verk þeirra hjóna lifa og minningin er geymd hjá samferðafólkinu i þakklæti og virðingu. Einar J. Gislason. - ÆTLAR AÐ GERA FramJhald af bls. 16 um veikleika í þessum efnum og sagði, að „hárskerar vorir nota úðunartæki frá tímum afa okkar og ömmu og verk- færi, sem eru langt frá því að vera fullkomin.“ Blaðið hélt því fram, að betri útbúnaður og efni myndu ekki aðeins „auka getu hárskera vorra heldur einnig breyta hugarfari við- skiptavina þeirra.“ Það hvatti einnig sovézka hárskera til að taka oftar þátt í alþjóða- keppni, svo að þeir geti lært af starfsbræðrum sínum í öðrum löndum. Blaðið sagði, að of lítið hefði verið að þessu gert og benti á ,að Vísinda- og tækni nefnd þjóðarinnar tæki ákvarðanir varðandi utan- ferðir hárskera. „Ekki þarf að taka það fram, að nefndin hefur meiri áhuga á að senda verkfræð- inga til Fiat-verksmiðjanna á Ítalíu eða vísindamenn til venjulegra þinga, en að fylgj ast með hárskerum," sagði blaðið í kvörtunartón. „Hér í landi er næstum milljón hárskera og hárgreiðslufólks. Þessi grein hagkerfisins á rétt á viðeigandi athygli eins og hver önnur grein.“ BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag, til- lögur þess efnis, að fræðsluráði og æskulýðsráði sé falið að at- huga á hvern hátt megi auka fræðslustarf fyrir unglinga og ungt fólk í Reykjavík utan hins almenna fræðslukerfis. Sérstak- lega skal athuga, hvort auka megi fræðslu um ýmiss konar sjóvinnu og hvernig koma megi á fót námskeiðum fyrir unglinga og ungt fólk í meðferð vinnu- véla og tækja. SVO sem menn rekur minni til, sigruðiu Borgfirðingar í keppni í ríkisútvarpinu, sem kölluð vax „Sýslurnar svara“. Þeir, sem kepptu fyrir Borgfirðinga, Magn ús Sigurðsson, bóndi, Gilsbakika, séra fó.t Guðnason, Reykholti og Sigurður Ásgeirsson, bóndi, Reykjum, fóru utan til Luxem- burgar í gærmorgun, rétt fyrir hádegi, en verðlaunin í keppn- Flutningsmaður tillögunnar, Björgvin Guðmundsson, fylgdi henni úr hlaði með nokkrum orð um og ræddi gildi þess og nauð- syn að auka unglingafræðslu utan hins almenna fræðslukerí- is. Frú Auður Auðuns tók til máls og ræddi störf borgarinnar á umræddu sviði. Lýsti hún sig fylgjnndi tillögunni. Tillaga Björgvins var sam- þykkt með samhljóða atkvæð- um. inni voru einmitt ferð með Lotftleiðaflugvél þangað. í dag munu þeir félagar skoða Luxem burg í fylgd stöðvarstjóra Loft- leiða. Fararstjóri er Stefán Jónsson hjá útvarpinu. Ferðalangarnir föru utan með fhigvélinni Guðríði Þorbjarnar- dóttur og lentu i Luxemburg um kl. 16.56 i gær. Þeir koma heim að viku liðinnL þörf samgöngubóta. Og sú þörf er engu síður fyrir hendi enn 1 dag. Gegnir það reyndar nokk- urri furðu, að þarna skuli ekki vera komin brú. Héraðsvötnin hafa meir en hálfnað leið sína til sævar, áður en brúartylla verður á vegi þeirra. Og segja má, að engin brú sé á þessu stórfljóti. er menn geti óhræddir farið yfir. Er slíkt firn mikil. Það er augljóst mál, hve stór- felld sængöngubót það yrði fyrir Skagafjarðarhérað að fá brú á Héraðsvötn, hjá Flatatungu, með tilheyrandi vegi. En þetta mál snertir fleiri en Skagfirðinga eina. Með þessum framkvæmd- um myndi þjóðbrautin gegnum héraðið styttast að mun. Og enn meira máli skiptir þó það, að leiðin yrði stórum öruggari en hún nú er. • Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að vegurinn yfir Hólm- inn er vandræðagripur. Vegna ótraustrar undirstöðu þolir hann illa þá miklu og þungu umferð, sem nú er orðin um hann og fer stöðugt vaxandi. I öðru lagi er vegur þessi í hættu vegna Hér- aðsvatnanna, á hvaða árstíma sem er. Af þeim sökum hefir ekki þótt ráðlegt að hækka hann upp á löngum kafla. Og þvl er hann oft erfiður vegna snjóþyngsla á vetrum. Þá er Djúpadalsáin líka í flokki þeirra höfuðskepna, sem leið þessi á við að stríða. Er frúin sú stundum ærði aðsópsmikil, er hún geysist fram í leysingatíð. Og þó að nútíminn þykist hafa yfir að ráða mikilvirkum tækj- um, má segja, að „rýrt verði smámennið" fyrir náttúruöflun- um, er þau fara hamförum. Þar sem yfir þessari samgöngu- æð vofa þau sverð, sem höggvið geta á hana fyrirvaralaust, svo sem reynslan hefir sýnt, þá þurfum við að fá aðra og örugg- ari leið í gegnum héraðið. Og hún fæst varla betri með öðru móti en því, að brúað verði hjá Flatatungu. Þegar litið er á það ófremdar- ástand, sem hér er um að ræða, má segja það gegni furðu, að ekki hefir þegar verið hafizt handa um úrbætur. Staðreynd- irnar blasa við, og hljóta flestir að sjá og skilja nauðsyn um- ræddrar samgöngubótar. Segja má, að meira þurfi til en skiln- inginn einn saman, þetta kosti fé, og í mörg horn sé að líta. Rétt er það, en slæmar sam- göngur eru líka dýru verði keyptar. Sveitarstjórn Lýtingsstaða- hrepps hefir um langt árabfl haft í frammi áróður fyrir þessu nauðsynjamáli. Hafa þingmenn kjördæmisins verið beðnir að leggja því lið. Vonum við, að þeir geri það með slíkri rðgg- semd, að brúin og vegurinn komi innan skamms. Fleiri mættu gjarnan leggjast á sveifina, þar sem hér er um að ræða miklar umbætur á leiðinnl milli Suður- og Norðurlands. Bk» þá leið þurfa margir að nota. Bjartmar Kristjánsson. -----------------------------■*» Sjálfvirkt 44 steina 100% vatns- og rykþétt úr meó dagatali Verksmiójuabyrgó Merkid tryggir gæóin! Úra- og skartgripaverzlun KORNELIUS JÓNSSON Skólavörðustíg 8. Ferðalangamir halda utan, talið frá vinstri: Magnús Sigurðs- son, séra Einar Guðnason og Sig urður Ásgeirsson. (Ljósm. Heim ir Stígsson). Sigurvegarar fara utan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.