Morgunblaðið - 19.04.1967, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 1967.
7
Dimission í M. R.
DIMISSION í Menntaskól-
anum í Reykjavík fer fram í
dag. Hefst hún kl. 11 í Há-
tíðasal skólans. Eins og allir
þeir vita, sem numið hafa í
Menntaskólanum, er Dimiss-
ion sú stund, sem mestum
trega er bundin, sú stund, sem
skilur milli skólagöngunnar
og stúdentsprófsins.
6. bekkingar kveðja þá
skólann, stunda þar ekki leng
ur nám, og þótt fólk almennt
leggi ekki trúnað á þessi sann-
indi, að þetta unga námsfólk
sakni skólagöngunnar sem
vafalaust hefur verið ströng,
þá er þetta nú einu sinni
svona, að áranna í Mennta-
skólanum sakna allir, þau
voru hin gullnu ár, á hvern
veg, sem það er skilið, því að
„vita nostra brevis est.“
Aldrei hefur talan verið
hærri á þeim stúdentsefnum,
sem í dag kveðja skólann og
syngja Integer vitae með
trega. 240 eru þau talsins,
sem nú leggja upp í próflest-
ur 40 daga og 40 langra nátta,
til þess að búa sig undir þrek
raunina, sjálft stúdentsprófið.
Öllum þessum ungu mönnum
og konum er hér með óskað
góðs gengis.
Svo sem áður segir hefst
Dimisson á Sal kl. 11. Þá tek-
ur Vilmundur Gylfason, hinn
nýi Inspector Scholae við
embætti úr hendi fráfarandi
Inspectors, Baldurs Guðlaugs
TU •kl»l.| ÍÚM •( U.1..1U r—1»-
Baldur Guðlaugsson,
Inspector scholae.
sonar. Sungið er til sikiptis á
latínu og íslenzku. Fyrr um
morguninn, kl. 8:10 hefur
verið hringt inn til venjulegs
náms, og kennt í 3 tíma. Síð-
an hefst Dimission, hin rúm-
lega 120 ára gamla athöfn í
þessum skóla. I>á hverfa dim-
ittendar á braut og biða neðan
plötu. Remanentes bíða ásamt
kennurum á plötunni og verð
ur þá skipst á kveðjum um
stund. Allir kennararnir fá
blómvendi, sem þeim verður
afhent einum og einum, og
mun ung tilvonandi stúdína
smella á þá kveðjukossinum.
Lagt verður upp frá skól-
anum rúmlega kl. 12 á há-
degi, og eru nú breyttir tím-
ar frá því síðustu hrópin heyrð
ust, þegar stúdentsefnin hurfu
enda hefur borgin þanizt út i
og héldu inn í Austurstrætið,
enda hefur borgin þanist út í
allar áttir. Nei, nú hefur tækn
Forsíða Faunu sýnir Ietidýr skriða „baglæns" upp
menntaveginn.
in tekið í taumana, og nem-
encLurnir leggja upp frá skól-
anum í 10 heyvögnum, sem
dregnir eru af dráttarvélum.
Er þá haldið til heimila allra
kennara, og þeir kvaddir með
virktum. Kl. 7 um kvöldið
munu Dimittendar hittast í
Klúbbnum, matast þar og
skemmta sér með nokkrum
kennaranna.
Þegar þeim mannfagnaði
lýkur, hefst svo hið fræga
H 4, w-.
Sigurður Arnalds, for-
maður 6. bekkjarráðs.
40 daga og 40 nátta stríð,
próflesturinn. Og þá er fyrsti
sumardagur og fer vel á því.
15. júní verða svo þessi 240
Dimittendar stúdentar, ef guð
lofar og gsefan er þeim með
I för, en 18. júní halda 60 af
þeim til Ítalíu á vegum Út-
sýnar, og verða Baldur Guð-
laugsson Inspector og Sigurð-
ur Arnalds formaður 6. bekkj-
arráðs fararstjórar. Verður
þetta hálf9mánaðarferðalag.
Eins er ógetið í sambandi
við þessa Dimission en það
er útgáfa FAUNU, sem er
nokkurskonar stúdenta- og
kennaratal M.R. frá þessu
ári. Þetta er stór bók í stóru
broti, enda mannskapurinn
fjölmennur. Á forsíðu er
mynd af letidýri að skríða
„baglæns" upp menntaveg-
inn, og teiknaði þá mynd Jó-
hannes Ólafsson .Aðrir teikn-
arar Faunu í ár eru þau:
Björn Kristleifsson, Ingólfur
Margeirsson, Kristján Linnet,
Margrét Reykdal, Ólafur
Torfason, Trausti Valsson og
örlygur Richter.
Ekki vitum við, hvort bók-
in er til sölu fyrir almenning,
en hún geymir mikinn fróð-
leik og margvíslegan, og verð
hennar hlýtur að vera sér-
staikt verðbólguverð, en hún
hefur gormabindingu.
Og svo ekki meira fyrir-
fram um Dimission að sinni.
— Fr. S.
XIWIIIU IIIUIH
Ólafur Hansson, mennta-
skólakennari, um hvern var
kveðið á árum áður: „hann
er eins og lifandi, lexicon í
skrautbandi“.
íbúð til leigu 5 herb. íbúð til leigu 1. maí. Tilb. með uppl. send- ist fyrir 26. apríl merkt „Laugateigur 2328“, á af- gr. Mbl. Byggingarlóð Lóð óskast undir einbýlis- tvíbýlis- eða raðhús. Mætti vera á byrjunar- stigi. Uppl. í síma 30427.
íbúð óskast 1—2 herb. íbúð óskast sem fyrst. Uppl. í síma 22150. Keflavík — Suðurnes Afghalon kjólefnin eru komin. Verzlun Sigriðar Skúla- dóttur. Sími 2061.
Einhleyp fullorðin kona óskar eftir 1—2 herb. með eldunarplássi. Uppl. í síma 10238 eftir kl. 6. Keflavík Til leigu stór 4ra herb. íbúð með eða án hús- gagna. Uppl. gefur Fasteignasalan, Hafnargötu 27. Sími 1420.
Skuldabréf fasteignatryggð og ríkis- tryggð til sölu hjá okkur. Fyrirgreiðsluskrifstofan > Fasteigna og verðbréfasala Austurstr. 14. Simi 16223. Moskvitch af árgerð 1963 i góðu standi til sölu. Uppl. í síma 40150 eftir kl. 20 á kvöld- in.
Mohairgarnið italski lopinn og kisugarn- ið er komið. Þorsteinsbúð Snorrabraut 61 og Keflavík. Til sölu V 8 Chrysler nýupptekin frá Kistufelli. Selst ódýrt. Uppl. í síma 37677 eftir kl. 6 á kvöldin.
Til leigu er 2ja herb. kjallaraíbúð. Tilb. með upplýsingum um fjölskyldustærð og leigu- upphæð sendist Mbl. fyrir 22. þ.m. merkt „Reglu- semi — 2394“. Einhleyp eldri kona óskar eftir 2—3ja herb. íbúð í rólegu húsi, kring- um 1. maí. Algjör reglu- semi og góð umgengni. Fyrirfrmborgun ef óskað er. Sími 19286.
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu Hljómsveitarmeðlimi vantar Vantar bassa — og gítar- leikara (sóló). Hafið sam- band við David Lehman síma 38 eða 55 Rockville (um KeflevJlugv.).
Sölumaður
óskum að ráða góðan sölumann. Þarf helzt að hafa
bíl. — Upplýsingar í síma 19847.
Frá Eyjaflugi h.f.
Viljum gefa Vestmannaeyingum í Reykjavík kost
á því að eignast í félaginu. Mun maður frá okkur
verða staddur í Hótel Lofleiðir herb. 426 í dag og
næstu daga, sem veitir nánari upplýsingar.
EYJAFLUG H/F.
Sumardagurinn fyrsti
Aðgöngumiðar að skemmtun Sumargjafar í
Austurbæjarbíó, Laugarásbíó, Réttarholtsskóla og
Tjarnarbæ, verða seldar í húsunum sjálfum frá
kl. 4—6 seinasta vetrardag og frá kl. 1 sumar-
daginn fyrsta.
SUMARGJÖF.
Misseraskipta-
messur
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 6 síðdegis
á síðasta vetrardag. Altaris-
ganga. Á sumardaginn fyrsta,
guðsþjónusta kl. 10. árdegis,
Ólafur ólafsson kristniboði
prédikar. Heimilisprestur.
Hafnarfjarðarkirkja
Skátaguðsþjónusta kl. 11.
Skáti flytur ræðu. Sóknar-
prestur þjónar fyrir altari.
Séra Garðar Þorsteinsson.
Ytri-NjarWvík
Skátamessa í Stapa á sum-
ardaginn fyrsta kl. 10 árdegis
Séra Björn Jónsson.
Keflavíkurkirkja
Skátamessa kl. 11:15 ár-
degis. Séra Björn Jónsson.
VÍSIJKORIM
Situr nótt í silfurkjól,
sveipuð stjörnu-loga,
þar til aftur ekur sól
upp á himin-boga.
Þegar Máninn merlar fold
muna blómin spretta.
Andinn laus við maga og
mold
meitlar tungu rétta.
St. D.
ÁrnaS heilla
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína, ungfrú Sigurlaug Guð-
finna Guðmundsdóttir, Réttar-
hol'tsvegi 73 og Jón Valgeir Guð
mundsson, húsasmíðanemi,
Snorrabraut 81.
Þann 13. marz sl. opiniberuðu
trúlofun sína i Englandi Kristín
M. Graham, Meðalholti 5,
Reykjavík og Peter Inohcomb,
Jersey, C.I.
Spakmceli dagsins
Menn verða ekki sælir í þessu
lífi af því að hafa engar ástríð-
ur, heldur af hinu, að kunna að
stjórna þeim. —
Sænsk stúdína
sem jafnframt er kennari og blaðakona, óskar eftir
atvinnu á íslandi yfir sumarmánuðina. Hvaða
vinnu sem er hvar sem vera skal. Hún hefur há-
skólapróf í ensku og bókmenntum, 10 ára reynslu
sem kennari í Svíþjóð og Bandaríkjunum, og
reynslu í skrifstofustörfum. Allar tillögur kær-
komnar. Tími: 15. júní til 1. september. Tilboð
sendist til:
INGA JONSSON,
Vbhv. 54 A, Viggbyholm 2, Sverige.
— Tennyson.