Morgunblaðið - 19.04.1967, Page 32
Pierpont-úr
Hermann
Jónsson
úrsmiður
II Lækjargötu 2.
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 1967
Heitt vatn
úi borholu
á Akranesi
AKRANESI 17. apríl: — Að
undanförnu hafa staðið yfir
jarðboranir hér á Akranesi og
hafa þær gengið mjög vel og
betur en vonazt var eftir í
upphafi. Er hitinn var mæld-
ur í borholunni sl. mánudag
reyndist hann vera 74 stig á
550 metra dýpi. Eftir því sem
leið á síðustu viku, jókst hit-
inn enn með auknu dýpi og
var mönnum ljóst, að heita-
vatnsæð myndi vera í ná-
grenni borhoíunnar.
Þá gerðist það í gær, að
heitavatnsæð opnaðist skyndi-
lega á 850 metra dýpi og
streymdi heitt vatn upp úr
holunni. Eru menn nú mjög
vongóðir um árangur af þess-
um borunum, en ekki er hægt
að segja nákvæmlega um hita-
veitumöguleika fyrr en kann-
að hefur verið, hver er þrýst-
ingur, hiti og magn þess vatns,
sem þarna kemur upp. — hjþ.
Fjárveitinganefnd um tillögur Þjóðhátíða rnefndar 1974:
Leggur áherzlu á byggingu nýs
þinghúss í tilefni hátíðarinnar
en andvíg byggingu þjóðarhúss
í GÆR var lagt fram á Al-
þingi nefndarálit fjárveit-
inganefndar um tillögur þjóð
hátíðarnefndar 1974 vegna
ellefu hundruð ára afmælis
byggðar á íslandi ásamt
breytingartillögu frá nefnd-
inni.
í nefndarálitinu kemur
fram, að fjárveitinganefnd
er ekki hlynnt hugmyndinni
tun þjóðarhús á Þingvöllum,
en telur hins vegar nauðsyn-
legt að bæta þar aðstöðu til
gistingar og fyrirgreiðslu við
ferðafólk. Hins vegar tekur
fjárveitinganefnd sérstaklega
undir þá ábendingu þjóðhá-
tíðarnefndar að stefnt verði
að því að koma upp nýju Al-
þingishúsi í tilefni landnáms-
hátíðarinnar, eins og það er
orðað I nefndarálitinu, og
væntir þess að greinargerð
verði lögð fram á næsta þingi
um það mál af hálfu þeirrar
nefndar, sem falið hefur ver-
ið að gera tillögu um fram-
tíðarhúsnæði Alþingis.
Nefndin lýsir sig hlynnta
tillögu um byggingu eftirlík-
ingar á sögualdarbæ og jafn-
framt hugmyndum um bóka-
útgáfu í tilefni hátíðarinnar,
en telur of viðamikið að ráð-
ast í 58 binda útgáfu.
Hér fer á eftir í heild nefnd
arálit fjárveitinganefndar mn
málið, svo og breytingartillag
an:
Framhald á bls. 19
Æðisgenginn bardagi
við drukkinn mann
DRUKKINN maður ruddist inn
í lögreglustöðina á Akranesi í
fyrrakvöld og réðist á lögreglu-
þjón, sem var þar einn á vakt.
Upphófust æðisgengin slagsmál
og var allt brotið og bramlað og
blóði drifið þegar félagar lög-
regluþjónsins komu á vettvang.
Maður þessi hefur áður átt í
kasti við lögin, en ekki fyrir
líkamsárás.
Eins og gefur að skilja átti
hann ekkert erindi inn í lögreglu-
stöðina nema hann hafi komið
gagngert til þess að veitast að
lögreglunni. Var hann gersam-
lega óður í slagsmálunum og lög-
regluþjónninn varð að grípa til
kylfunnar til að yfirbuga hann.
Innrásarmaðurinn var fluttur til
læknis eftir að lögregluþjónninn
hafði yfirbugað hann og þurfti
að sauma sár hans saman á höfð-
inu. Lögregluþjónninn var blár
og marinn en ekki alvarlega
meiddur. Yfirleitt eru þrír lög-
regluþjónar á kvöldvakt á Akra-
nesi, en tveir þeirra voru úti við
þegar þetta skeði.
Júpiter siglir inn í Reykjavíkurhöfn í gær með fullfermi af karfa af Nýfundnalandsmiðum.
(Ljósm. Mbl. Ol.K.M.)
Júpifer kom með full-
fermi af karfa í gœr
BOTNVÖRPUNGURINN Júpi-
ter kom í gær til Reykjavíkur
úr 19 daga veiðiför á Nýfundna-
landsmiðum. Var hann með full-
fermi af karfa, eða um 340 tonn.
Skipstjóri á Júpiter er Markús
Guðmundsson, og átti Mbl. stutt
samtal við hann í gær.
Markús kvað Júpiter hafa ver-
ið eina isl. togarann á þessum þau alltaf treg, en kvað þau samt
betri nú en á sama tíma í fyr.-a.
Markús Guðmundsson
skipstjóri á Júpiter.
slóðum, allan þann tíma sem
hann var þarna við veiðar. Tals-
vert magn væri af karfa á viss-
um svæðum á Nýfundnalanis-
miðum, en oft og tíðum erfitt að
komast að honum vegna íss, sem
væri til mikilla trafala. Kvaðst
Markús hafa þurft að sigla um
150 mílur suður af Ritubanka,
þar sem íslenzku togararnir
halda sig mikið, til að komast
út úr ísnum.
Um ásigkomulag karfans,
sagði Markús, að hann yrði að
teljast allsæmilegur að gæðum,
en væri orðinn talsvert gotinn.
Markús kvaðst ekki geta sagt
um það að svo stöddu, hvort
Júpiter færi strax aftur á Ný-
fundnalar.dsmið. Togarinn hefði
orðið fyrir vélarbilun á leiðinni
heim, sem fyrst yrði að lagfæra,
og óvíst hvað það tæki langan
tíma.
Júpiter kom einnig inn með
fullfermi í síðustu ferð sinni, en
aflinn þá var fenginn á heima-
miðum. Við spurðum Markús
um aflabrögðin, það sem af er
þessu ári, og svaraði hann því
svo að togaraskipstjórum þætti
Júpiter hefur farið þrjár sölu-
ferðir á þessu ári, tvær til Bret-
lands og eina til Þýzkalands —
og fékk togarinn sæmilegar söl-
ur, að sögn Markúsar.
.Úldin og lyktar illa'
segir Bergens Tidende um íslenzka
krydd- og saltsíld
NORSKA fréttastofan NTB um tunnunum var hún
sendi ' gær út svofellda frétt klesst saman í einn stóran
um íslenzka síld sem seld hef- klump Kaupendurnir voru
ur verið til hinna Norður- sammála um að síldin hefði
landanna: ekki verið rétt meðhöndluð
Björgvin 17. apríl. eftir að hún var komin í tunn
Mikiil hluti salt- og krydd- urnar. Nokkur hluti af miklu
síldarinnar frá árinu 1966 magni Íslandssíldarinnar sem
sem norrænir síldarkaupmenn norskar niðursuðuverksmiðj-
fengu frá fslandi er lélegur. ur keyptu er algerlega ónot-
Dagblaðið „Bergens Tidende" hæfur og afgangurinn er lé-
segir að við gæðamat hafi legur. Verksmiðjurnar hafa
komið í ljós að mikill hluti krafizt skaðabóta af seljeud-
síldarinnar hafi verið úldinn unum og neitað að taka við
og vond lykt af henni. f sum- ókomnum sendingum.
Félagsmálaráðun. úrskurðar fjárhagsáœt lun Hafnartj. ógilda:
Bæjarstjðrn Hafnarfjarðar
mótmælir úrskurðinum
— Bœjarfulltrúar Alþýðuflokks og
kommúnisfar kröfðust ógildingar en
greiddu atkvœði gegn nýrri atgreiðslu
FÉLAGMÁLARÁÐUNEYT-
IÐ hefur úrskurðað fjárhags-
áætlun Hafnarfjarðarkaup-
staðar fyrir árið 1967 ógilda
á þeirri forsendu að vanrækt
hafi verið að láta fara fram
lögboðna atkvæðagreiðslu
um hverja einstaka grein
fjárhagsáætlunarinnar.
Á fundi bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar í gær var þess
um úrskurði mótmælt sem
röngum og segir í samþykkt
bæjarstjórnarinnar um þetta
efni, að fylgt hafi verið í einu
og öllu ákvæðum laga um
Framhald á bls. 31