Morgunblaðið - 25.05.1967, Síða 1
48 SÍÐDR og Með ungu fólki *
34. árg. — 114. tbl.
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Egyptar leggja tundurdufl í Tiran-sund
— jafngildir stríðsyfirlýsingu, segir Ksraelsstjórn
— Deilur á skyndifundi Öryggisráðsins
New York, Kairo, Tel Aviv,
24. maí, AP-NTB.
• Egyptar hafa lagt tundur-
dufl í Akaba-flóann til að
hindra siglingar ísraelskra
skipa um flóann til hafnar-
borgarinnar Eilath. Egypzk
herskip og flugvélar gæta
mynnis flóans við Rauða hafið
Bandaríkjastjórn hefur lýst
því yfir, að hún telji Akaba-
flóann alþjóðlega siglingaleið,
og að þessar aðgerðir Egypta
séu ólöglegar og ógnun við
friðinn. Levi Eshkol forsætis-
ráðherra ísraels hefur áður
lýst því yfir fyrir hönd stjóm
ar sinnar, að hún líti á lokun
Akaba-flóans sem stríðsyfir-
lýsingu gegn ísrael.
• Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna var kallað saman í
dag kl. 15.15 að ísl. tíma, til
að ræða hið háskalega ástand
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Ráðið var kallað saman að
beiðni NATO-ríkjanna Dan-
merkur og Kanada. Goldberg
fulltrúi Bandaríkjanna lýsti
(Ljósm. Sigurgeir Jónsson)
Fiskiðnaður í framþróun:
Mikil aukning á afkasta-
getu síldarverksmiðja
— Framleiðniaukning og umbætur í frystiiðnaði
í KJÖLFAR mi'killa siildveiða
undanfarin ár hefur komið
mi'kil uppbyigging síldar-
vinnslustöðvanna í landi
enda hefur orðið gífur-
leg aukning á afkastagetu
síldariðnaðarins á viðreisnar-
tímabilinu. Fjöldi nýrra síld-
arverksimiðja hefur verið
byggður á Austurlandi og
Suðvesturlandi og aðrar
stækkaðar. S um a r síld ve i ði n
hefur á undanförnum árum
verið stunduð að langmestu
leyti út af Austurlandi og
mestu af aflanum skipað þar
á land. Síðustu árin hefur
hins vegar verið leitazt við
að nýta afkastagetu síldar-
verfesmiðjanna á Norður-
landi með því að flytja til
þeirra síld með sérstökum
síldarfluitningaskipum. Hefur
ríkissjóður lagt fram fjár-
magn til þess að stuðla að
siífeum flutningum. Einnig
hefur nokkuð verið um síld-
arflutninga tiil verfesmiðja á
Suðvesturlandi. Einar Guð-
finnsson og synir hans í Bol-
ungarvík höfðu forgöngu um
tillraunir með síldarflutninga,
sem tókust hið bezta.
Hraðfrystiiðnaðurinn hef-
ur lengi verið mikilvæg kjöl-
festa í fiskiðnaði íslendinga.
Á undanförnum árum heíur
þýðingarmikið starf verið
unnið að aufeinni hagræðingu
í hraðfrystiiðnaðinum og hef-
ur rífeissjóður á síðustu þrem
ur árum varið 126 milljónum
króna til framQeiðniaukning-
ar og annarra endurbóta í
framleiðstu frystra afurða. Á
aufein hagræðing og bættur
rekstur drjúgan þátt í til-
tölulega góðri afkomu hrað-
frystiiðnaðarins árin 1964 og
1965. Á árinu 1967 mun enn
verða varið 50 milljónum kr.
úr ríkissjóði til framleiðni-
aufeningar í frystiiðnaðinum.
Sjá ennfremur frásögn
ásamt myndum á bls. 12 og
13.
því yfir, að stjórnin styddi
beiðnina um skyndifund ráðs
ins, og kvað brýna nauðsyn
bera til að ráðið lýsti yfir
stuðningi við tilraunir U
Thants til að koma á friði fyr
ir Miðjarðarhafsbotni.
• Samkvæmt fregnum
frönsku fréttastofunnar AFP,
voru Sovétríkin og Búlgaría
ásamt Indlandi og Mali á
móti skyndifundi Öryggisráðs
ins. ísrael og Arabíska sam-
bandslýðveldið fóru þess á
leit í dag, að fá að taka þátt
í þessum fundi ráðsins og var
það leyft, en hvorugt ríkið
hefur atkvæðisrétt í Örygg
isráðinu.
Formaður Ö ryggisr á ðsÍTis, Liu
Chiedeh firá Formósu, setti fund-
inn og spuirðd í uppbafi hans
hvart nokkiur fulltrúanna hefðd
athugasemd firam að færa. Þá
tófe tál máls fulltrúi Sovétrikj-
anna, Nikolai Fedorenko, og
ágakiaði Vesturveldin fyrir að
þyrla upp moldviðri í sambandi
Við ástandið fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Hann sagði að þess
hefði vandlega verið gætt, að
tvö NATO-lönd, sem vaeru langt
firá því að vena nágranraar Aust-
urlanda nær, hefðu tekið firum-
kvæðið að skyndifundi ráðsdns,
en hims vegar hvorugt ríkið, sem
málið væri viðkomandi. Fedo-
renko spurði, hvort hér væri
ekki um að ræða leynda löngun
til að blanda sór í málefni ann-
atrra fremur en sönn umhyggja
fyrir friði og öryggi í Austur-
löndum nær. 1 sama streng tóku
fiulltrúar Miali og Búlgaríu. Sagði
fiulltrúi Mali, Mousisa Leo Keita,
að hann værd efins í að þeissd
skyndifiundur ráðsins yrði ttl að
minnkia ófriðarbldkumar í um-
Framhald á bls. 34.
Tala láf-
inna 321
Brússel, 24. maí — NTB
SÉDUSTU fregnlr frá Briissel
herma að tala þeirra er lét-
ust í verzlunarbrunanum þar
í borg á mánudag væri nú
komin í 321. Óttast er a3 tal-
an eigi enn eftir að hækka,
en hingað til hafa aðeins
fundizt rúmlega 60 lik, enda
björgunarstarfið mjög tor-
velt. Lögreglan í Brússel hef-
ur enn ekki komizt fyrir um
orsakir brunans, en mjög
sterkur grunur leikur á að
um íkveikju hafi verið að
ræða. Fréttaritarar telja að
björgunarstarfið kunni að
taka marga daga og jafnvel
vikur, vegna þess að nú þeg-
ar er búið er að slökkva í
rústunum hafa þær kólnað
svo mikið, að nota verður
stórvirkar borvélar til að
brjóta járn- og glerhaugana
niður.
SAMTAL VIÐ ASHKENAZY
í DAG birtist í Morgunblað-
inu (blaði II) samtal við
rússneska píanósnillinginn
Vladimir Ashkenazy. Þar
segir hann frá æsku sinni og
uppeldi, erfiðleikum sínurn
og andlegum átökum, sem
voru samfara því að hann
tók ákvörðun um að fara
ekki aftur til heimalands
sins.
Matthías Johannessen, rit-
stjóri, skrifar sarmtal þetta
við Ashkenazy og segir hann
meðal annars um það: „Sam-
talið er unnið úr tveimur
viðtölum okkar, sem fóru
fram þegar Ashkenazy var
hér heima í byrjun þessa
mánaðar. Við ræddum saman
á ensku. Ashkenazy bað mig
aðeins um tvennt: að engin
kaldhæðni yrði í samtalinu
„— þó ég sé kalðhæðinn að
eðlisfari“, því hann vildi ein-
ungis að fram kæmu stað-
reyndir, einkum þar sem seg-
ir frá viðhorfum hans til
Sovétríkjanna; annað bað
hann um: að birta ekki sam-
talið fyrr en 25. maí. Ástæð-
an er sú, að faðir Ashk-
enazys hefur fengið leyfi til
að hitta son sinn, eins og
fram kemur af samtalinu, og
var hann væntanlegur til
Lundúna í gær. Ashkenazy
vildi ekkert aðhafast, sem
komið gæti I veg fyrir að
hann hitti föður sinn.
Að öðru leyti vona ég að
samtalið tali sjálft sínu máli.
Ashkenazy er einn geðugasti
og menningarlegasti ungur
maður, sem ég hef kynnzt.
Ég sagði við hann eitthvað á
þessa leið, „það þekkja allir
nafnið Ashkenazy, en enginn
veit hvað stendur á bak við
þetta nafn, nema hvað allir
vita að þú ert rússneskur
píanósnillingur. Mig langar
til að kynnast lífi þínu og
láta aðra kynnast því. En mig
langar ekki til að vinna þér
tjón á nokkurn hátt.“
„Ég hef ákveðið,” svaraði
Askhenazy, „að nauðsynlegt
sé að ég geri upp, bæði við
sjálfan mig og aðra á opin-
berum vettvangi. Mér þykir
vænt um að það skuli vera í
íslenzku hlaði og þá ekki sizt
MorgunMÍðinu. Ég hef skoð-
að hug minn í mörg ár, og
niðurstaðan flækist á engan
hátt fyrir mér. Þú getur ekki
unnið mér tjón. Sannleikur-
inn getur engan skaðað."
Á þessum forsendum er
samtalið við Ashkenazy
skrifað. Hann er einna fræg-
astur þeirra, sem tekið hafa
ástfóstri við ísland, en mér
er áreiðanlega óhætt að full-
yrða að ísland hefur ekki síð-
ur tekið ástfóstri við hann“.