Morgunblaðið - 25.05.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1967.
BILALEIGAN
- FERÐ-
Da&gjald kr. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGIMÚSAR
skipholti 21 s!mar21190
eftir lokun slmi 40381
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið i leigugjaldi.
SffYi/ 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
YJ===*B/tAiritíJkM
RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022
Fjaðrir. fjaðrablóð tiljóðkútar
púströr o.fI varahlutir
i margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simi 24180.
MálOutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar,
Guðmundar Péturssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar,
Aðalstræti 6. III hæð.
Símar 12002 - 13202 - 13602.
Sveinbjörn Dagfinnsson. hrl. .
og Einar Viðar, hrl.
Hafnarstræti 11 — Sími 19406.
Fiskibótoi
Seljum og leigjum fiskibáta
af öllum stærðum Talið við
okkur um kaup og sölu fiski-
báta.
Skipasalan og skipaleigan,
Vesturgötu 3. simi *3339.
Skíðaskólmn
í Kerhngafjöllum
Sími 10470
mánud — föstud, kl. 4—6,
laugard. kl. I—3.
•jt Borgin í sólskini
í>egar þetta er sterifað á
þriðjudagsmorgni, virðist ekk-
ert lát ætla að verða á sólskin-
inu, en fullkalt og þurrt hefur
verið fyrir flestra smekk.
Fólk lætur þurrkaldann ekki
aftra sér frá sólböðum, og sýn-
ast margir ganga nokkuð langt
í eftirsókn sinni eftir brúnleitu
hörundi. Varað er við því vest-
an hafs um þessar mundir að
láta sólina baka húðina of
mikið, því að alls konar kvillar
og vesöld í fólki er nú rakið til
sólbaða.
Gaman er að ganga um borg-
ina í góðu veðri, en prýðilegt
gönguveður hefur verið að
undanförnu. Furðufáir munu
samt nota sér veðrið til „labbi-
túra“. Hór áður fyrri var geng-
ið vestur á Seltjarnarnes, út i
Effersey, suður í Skerjafjörð
og upp á Öskjuhlíð og jafnvel
inn fyrir Elliðaár. Nú rúlla
menn þetta í bílum, ef menn
fara þá yfirleitt nokkuð út í
frístundum sínum.
Friðun borgarsvæða
Gott var að lesa ræðu
Gunnars Helgasonar og tillögu
hans í borgarstjórn. Mér lízt
vel á þá hugmynd að friða
landið meðfram Skerjafirði og
allt up á Öskjuhlíð. Fyrr hefði
mátt fara að friða ýmis svæði,
og þá fyrst og fremst Effersey,
eða a.mk. hluta hennar. Segja
má, að erfitt sé að vernda land,
sem liggur að höfn eða öðru
athafnasvæði, og þarna sé dýr-
mætt land, sem verði að hag-
nýta. Þetta gildir að vísu um
þann hluta eyjarinnar, sem
næstur er Grandanum, en
Reýkjanes og norðurhluta
hennar hefði vel mátt friða. Þá
hefðu ýmis svæði á Seltjarnar-
nesi verið vel til friðunar fall-
in.
I
f
okemmdarvargar
og skaðræðisfuglar
Margir reyna að prýða
umhverfis hús sin eftir beztu
getu, en alkunna er, að sum-
um gengur illa að fá að vera í
friði með garða sína. Velvak-
anda finnst einhvern veginn,
að tilfinningin fyrir því, að
láta eigi garða og lóðir annarra
í friði, — eða a. m. k. skemma
ekki garðana, — hafi dofnað á
siðari árum bæði meðal barna
og fullorðinna. Er það harla
einkennilegt, því að með ár-
unum ætti borgarmenningin
fremur að aukast að þessu
leyti.
Ekki er laust við, að stund-
um heyrist sagt með hnussi og
hnyssi, að þessi og þessi garð-
ur sé svo fínn, af því að eig-
endurnir séu srvo merkilegir
með sig, að „blessuð börnin“
megi ekki einu sinni ganga um
hann, hvað þá leika sér í hon-
um. Það er auðvitað algert
einkamál hvers og eins, hvort
hann vill leyfa öðrum börnum
en sínum eigin að leika sér 1
húsgarðinum. Fæstir garðar
eru svo „fínir“, að ekki sé
óhætt að hleypa börnum inn í
hann, ef þau ganga prúðmann-
lega um og skemma a. m. k.
ekki hlutina viljandi.
Allir hafa víst séð stálpaða
krakka gera sér það „til
skemmtunar“ að brjóta grein-
ar af trjám, slíta upp blóm og
tálga börk utan af trjám. Þeir,
sem fyrir slíkri áreitni verða
æ ofan í æ, neyðast til þess
að grípa til gagnráðstafana, svo
sem með því að girða rækilega
umhverfis garðholuna sína, en
slíkt þykir víst ekki nógu „al-
þýðlegt“ og „lýðræðislegt" á
okkar dögum. Hér hafa menn
jafnvel beitt sér fyrir því, að
girðingar séu rifnar og veggj-
um steypt í heilum hverfum,
af því að það sé miklu falllegra
og „eðlilegra", að garðarnir
renni út í eitt, og allir krakkar
geti haft frjálsan aðgang húsa
og garða á milli. Ekki er gott
fyrir einn eða tvo að standa
gegn niðurrifi girðinga, þegar
anti-girðingarfólk kemst í
meirihluta og hugaræsing í
heilu hverfi. Þetta getur svo
sem verið gott og blessað, ef
umgengnin er góð, en við
verðum að viðurkenna, að
enn er því miður langt í land
að hún nái því stigi, að hægt
sé að leggja allar girðingar
niður.
Krakkaskrlll
í Vesturbænum
Ljót var sagan í Morg-
unblaðinu síðastliðinn þriðju-
dag um krakkavargana, sem
hafa baft það sér til ununar og
yndisauka þessa fallegu vor-
daga að skera börk utan af
trjám í garði vestur á Unnar-
stig. Það er eitthvert óeðli í
svona börnum (eða hálfstálp-
uðum unglingum?), sem for-
eldrarnir eiga að taka sig sam-
an um að uppræta. Hingað til
hafa Vesturbæingar þótt kunna
að ala börn sín vel up, og þar
sem fólk í grenndinni hlýtur
að vita, hverjir þarna voru á
ferð, ætti það að láta foreldra
barnanna vita, svo að þeir geti
beint hugum barnanna að ein-
hverju skemmtilegra viðfangs-
efni. — Velvakanda er minnis-
stætt, að fyrir nokkrum árum
kom sams konar atvik fyrir
niðri í Bæjarfógetagarði, og
víðar mun þessi skepnuskapur
hafa verið iðkaður.
•jf Hvað á maðurinn
að gera?
Maður, sem nefnir sig
Borgara, skrifar Velvakanda:
„Kæri Velvakandi!
Ég er ekki vanur að skrifa
þér, en nú er ég í nokkrum
vanda.
Ég bý í einbýlishúsi, og lóð-
in mín liggur að barnaleik-
velli (gæzluvelli), og er gæzl-
an frá kl. 9 á morgnana til
kl. 5 eftir hádegið og er það
allt í góðu lagi. En strax þegar
gæzlukonurnar eru farnar kL
5, þá kemur strákahópur á
aldrinum 8—14 ára með fót-
bolta og hamast þarna fram á
kvöld, og þarna er vandamálið.
Þegar boltinn fer yfir girðing-
una, vaða þessir strákar yfir
allt, rífa rimla úr girðingu
þeirri, sem er um leikvöllinn
og smjúga svo í gegn hVar sem
er. Þeir vaða yfir trjárunna,
blómabeð og hvað sem er. Nú
vil ég spyrja: hvað get ég gert
til að fá að vera í friði með
minn garð? Mig langar til að
hafa fallegan garð og með þvf
leggja mitt til að fegra borg-
ina, en það er gjörsamlega úti-
lokað að leggja bæði vinnu og
fé í slíkt, þegar það er jafn-
óðum eyðilegt.
Borgari“.
Fyrst þ?ð er látið afskipta-
laust að yfirvalda hálfu, að
börn og unglingar leiki sér þar
eftir kl. 17 á daginn, og fyrst
ekki hefur tekizt að kenna
börnunum mannasiði og al-
mennar umgengnisvenjur, svo
að skaði hlýzt af, þá er víst
ekki um annað að ræða en
yfirvöldin hafi þar gæzlumann
fram á kvöld eða nótt (með
ærnum tilkostnaði), sem annað
hvort sæki knöttinn, þegar
hann hrekkur yfir i næstu
garða, eða sjái um, að hann sé
sóttur á prúðmannlegian hátt,
eða, segi ég, að yfirvöldin láti
reisa háa netgirðingu milli
leikvallarins og garðs bréfrit-
ara, ef hann þá fellst á slíka
lausn, því að slík girðing gæti
bæði spillt fegurð og útsýni á
staðnum.
Ibúð við
Tómasarhaga
Höfum til sölu 3ja herbergja íbúð 100
ferm. á jarðhæð við Tómasarhaga.
Skip og fasteignir
Austurstræti 18 — Sími 21735.
Eftir lokun 36329.
IDitöci'Btíjcn
í IStoMani
FERÐAMANNALANDIÐ ÞYZKALAND býður yður vel-
komin með glampandi sólskini, stórkostlegri náttúrufegurð
og heillandi miðaldarborgum. Hafið Þýzkaland sem ákvörð-
unarstað, þegar þér skipuleggið sumarfri yðar í ár - þess
munið þér ekki iðrast. Þér getið búið á þægilegu »Gasthaus«
eða einhverju hinna fjölmörgu ágætu hótela. Takið alla
fjölskylduna með yður - þáð er alls ekki dýrt f FERÐA-
MANNALANDINU ÞÝZKALANDI.
Sendið mér (mér að kostnaðarlausu) bæklinga og upplýsingar um
FERÐAMANNALANDIÐ ÞÝZKALAND 1967.
Nafn:................................
Heimilisfang:.............
Sendið seöilinn til Tysk Turist-Central, Vesterbrogade 6 D, *
Kaupmannahöfn V.