Morgunblaðið - 25.05.1967, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MAI 1967.
V4
Útgefandi:
Framkvæmdast j ór i:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
f lausasölu kr.
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
7.00 eintakið.
á mánuði inranlands.
REYKJANESKJÖR-
DÆMI
Fjölbýlishús í smiðum við Beja.
Þýzk bækistöð í Portdgal
Eftir Dennis F. Redmont
BEJA, Fortúgal, (Associat-
ed Press). — í sumar mun
Vestur-Þýzkaland opna
stærsta flugvöll sinn á er
lendri grund. Hann er byggð
ur í samvinnu við Portúgal á
hinni sólbakaða flatlendi ná-
lægt Beja í suðaustur hluta
landsins og umkringdur ströng
um öryggisráðstöfunum.
Þótt hann sé opinberlega
nefndur „Ellefta flugstöð
Portúgals", og stjórnað og
starfræktur af portúgölskum
herforingjum, mun hin yfir-
gripsmikla '60 milljón dala
samsteypa að lokum hafa á
sínu snærum 3000 vesturþýzka
flugliða ásamt fjölskyldum
þeirra. Tilbúin höfn við Atlants
haf og birgðastöð í norðri
munu sjá fyrir stærstu að-
stæðum til tilrauna með þrýsti
loftsvélar í Vestur-Evrópu,
með nógu löngum flugbraut-
um til að taka við hinum nýju
flutningavélum, er fljúga hrað
ara en hljóðið.
Portúgalskir og vestur-Þýzk
ir embættismenn hafa forðazt
að gefa nokkrar upplýsingar
um Beja-stöðina síðan undir
búningsviðræður hófust 1960
innan ramma Atlantshafs-
bandalagsins. Engin opinber
skjöl um samning landanna
tveggja hafa verið birt í
portúgölskum blöðum.
„Portúgalska stjórnin hefur
verið svo vinsamleg að hafa
okkur sem gesti", sagði hátt
settur foringi úr starfshópi 200
Þjóðverja, sem búa í um það
bil 40 bústöðum úr rauðum
múrsteini nálægt alúmínflug-
skýlunum. „Þessi stöð er
portúgölsk og við erum í
portógölsku lögsagnarum-
dærni."
Meira en 2000 verkamenn á
staðnum, sem þurfa sérstök
skilríki til að fara í gegnum
gaddavírshliðin í 6 kílómetra
fjarlægð frá aðalinngangin-
um, eru að leggja lokahönd
á ratsjárstjórnarskrifstofuna,
hina þrjá sveppalöguðu flug-
turna og tvær flugbrautir,
sem gerðar eru fyrir hröð
flugtök. Á útjöðrunum svip-
ast vopnaðar portúgalskar her
sveitir um í sjónaukum eftir
dboðnum gestum.
Vestur-Þýzkaland skipu-
lagði Beje sem „varastöð" ef
gerð yrði kjarnorkuárás á
Vestur-Þjóðverja. Hinar hrað-
fleygu Lockheed F-104 Star-
fighter þrýstiloftsvélar gætu
gert gagnárás innan skamms
eftir flugtak í Portúgal, þar
sem tiltölulega lítið er um
flugumferð.
Til að aðstoða við þjálfun
Luftwaffe-flugmanna og nokk
urra portúgalskra samstarfs
manna verða þrýstiloftsflug-
vélaviðgerðaverkstæði NATO
við Alvera í grennd við Lissa
bon flutt til Beje. Sérstök
áhöfn Þjóðverja og um það
bil 500 portúgalskir tækni-
menn þjálfaðir í Þýzkalandi
munu vinna við á að gizka
þrjár deildir þrýstiloftsvéla
undir hinum grænu þökum
flugskýlanna, sem eru sér-
staklega húðuð til þess að
vernda menn og tæki fyrir
sumarhitunum, sem eru um
40 gráður á C.
Upphaflega íhugaði vestur-
þýzka stjórnin að setja upp
stöð á Spáni, en hin miklu
verzlunarviðskipti við Portú-
gal og hinir 300 sólskinsdagar
á ári í Beje sannfærðu em-
bættismennina um að reyna
þar. Þar að auki lokaði banda
rísk flugstöð í Torrejon loft-
leiðunum á Spáni.
Nú er Þýzkaland að reyna
að fá leyfi fyrir þrýstilofts-
vélar til að fljúga yfir eða
koma við á Spáni 600 sinnum
á ári.
Hinir 18000 íbúar Beje, sem
var stofnuð af Rómverjum um
50 f. Kr. b., fylgjast undrandi
með því að íbúatalan hefur
vaxið um þriðjung. í Beje,
sem eitt sinn var friðsæl mið-
stöð hveitiræktar Portúgals,
skjóta nú upp kollinum tvö
samkomuhús, nýtt sjúkrahús.
hæsti skýjakljúfur sunnan
Tagus-árinnar, sundlaug og ný
tízku flugvöllur. Portógölsk
félög og verkfræðingar sáu um
endurskipulagningu borgar-
innar, eftir að hafa kynnt sér
þarfir Þjóðverja.
„Það getur verið, að leigan
hækki en viðskiptin munu
ganga miklu betur", spáir von
góður bóksali, sem hefur flutt
inn birgðix af þýzkum skáld-
sögum.
Til að samlagast umhverfinu
er þýzkum hermönnum ráð-
lagt í skærlitum bækling að
klæðast dökkum borgarlegum
fötum (ekki leðurstuttbuxum)
drekka rauðvín en ekki bjór,
og að forðast að koma nálægt
nokkurri stúlku eða konu úr
bænum og forðast jafnvel
„saklaust daður".
Bæklingurinn rekur sam-
skipti Þjóðverja og Portúgala
aftur til 12tu aldar, þegar
krossfarinn Hinrik af Bonn
frelsaði Lissabon úr höndum
Mára. En þar er ekki minnzt
á að Þjóðverjar borga þrjá
fjórðu kostnaðarins við að
hyggja stöðina.
Aðrar klausur í samningn-
um tryggja Portógölum vopna
sölu til Vestur-Þýzkalands i
nokkur ár að upphæð 195 mill
jónir dala, hjúkrun í þýzkum
sjúkrahúsum fyrir portú-
galska hermenn, sem særzt
hafa í Angóla, og flókna á-
ætlun um áveitur i hinum
þurru héruðum í suðurhluta
Portúgal.
leika, sem leitt hafa af hinu
¥ aukablaði Mbl. í dag eru
fjórar síður sérstaklega
helgaðar málefnum. Reykja-
neskjördæmis. Þar er skýrt
frá helztu framfaramálum
þessa fjölmenna byggðarlags
og þeim fjölmörgu verkefn-
um, sem framundan eru.
Reýkjaneskjördæmi er fjöl-
mennasta byggðarlag lands-
ins utan Reýkjavíkur. Af-
koma íbúa þess byggist á
fjórurn höfuðatvinnuvegum
íslendinga, útgerð og fisk-
vinnslu, landbúnaði, iðnaði
og verzlun. í Reykjaneskjör-
dæmi eru nokkrir mestu út-
gerðarstaðir landsins, svo sem
Keflavík, Njarðvík, Sand-
gerði, Grindavík, Hafnar-
fjörður, Garður og Vogar. Út
gerð og fiskvinnsla hefur
jafnan verið höfuðatvinnu-
vegur fólksins í syðri hluta
kjördæmisins og þar eru
margar glæsilegar fiskvinnslu
stöðvar. í norðurhluta kjör-
dæmisins eru blómlegar sveit
ir, Kjós, Kjalarnes og Mos-
felissveit sem ásamt öðrum
hafa haft forustu um þær
framfarir og nýjungar, sem
orðið hafa í landbúnaðinum
á undanförnum árum. Iðnað-
urinn hefur fyrst og fremst
byggzt upp í Kópavogi og
Hafnarfirði og á Seltjarnar-
nesi en á þessum stöðum hafa
ri9ið upp fjölmörg ný iðnað-
arfyrirtæki á undanförnum
árum. í Garðahreppi er einn-
ig starfandi hin myndarlega
skipasmíðastöð Stálvík, sem
ásamt öðrum hefur haft for-
ustu um uppbyggingu stál-
skipasmíði irinanlands. Þá er
nú að rísa upp í Reykjanes-
kjördæmi mesta iðnfyrirtæki
landsins, álbræðslan við
Strausvík, upphaf stórfelldr-
ar iðnvæðingar landsins í
krafti fossaaflsins. Það fyrir-
tæki mun tryggja mörgum at
vinnu, verða aflvaki nýrra
framkvæmda, svo sem hafn-
argerðar og veita miklu nýju
fé ekki aðeins í Reykjanes-
. kjördæmi heldur einnig ti'l
allra annarra landshluta. Það
blandast því engum hugur
um, að atvinnulífið í Reykja-
neskjördæmi stendur með
mifelum blóma, þótt þar gæti
auðvitað eins og annars stað-
ar þeirra erfiðleika, sem oft
er við að etja, t.d. í sjávarút-
vegi og er ekkert nýtt fyrir-
bæri nú.
Reykjaneskjördæmi hefur
einnig orðið'aðnjótandi mestu
framkvæmdar í gerð varan-
I legra vega, sem enn hefur
! verið ráðizt í hér á landi en
það er lagning Reykjanes-
brautar, sem hefur gjör-
breytt samgöngum milli
Reykjanesskagans og þétt-
býlissvæðanna fyrir norðan.
Næstu stórverkefni í sam-
göngumálum kjördæmisins
eru vafalaust gerð Vestur-
landsvegar, sem mun gjör-
breyta allri umferðaraðstöðu
frá Suðvesturlandi, norður og
vestur, lagning hraðbrautar
um Kópavog, og tenging út-
gerðarstaðanna á Suðurnesj-
um við Reykjanesbraut með
varanlegu slitlagi á vegum.
Þéttbýliskjarnarnir í kjör-
dæminu hafa verið í örum
vexti síðustu ár og má þar
nefna Selitjarnarneshrepp,
Kópavog, Garðahrepp og
Hafnarfjörð. Svo ör vöxtur
skapar að sjálfsögðu marg-
víslega erfiðleika, ekki sízt í
byggingu skólahúsnæðis en
ný skólakostnaðarlög munu
mjög létta undir með sveitar-
stjórnum í þeim efnum.
Sjálfstæðisflokkurinn er
langöflugasti stjórnmálafl. í
kjördæminu. Á undanförnum
vikum hafa frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæminu boðað til fjölmargra
atvinnustéttafunda, sem tek-
izt hafa með afbrigðum vel,
nær 500 konur úr kjördæm-
inu sóttu síðdegiskaffi fram-
bjóðendanna að Hótel Sögu
sl. sunnudag og um næstu
helgi verða tvö vormót í kjör
dæminu. Allt þetta sýnir, að
Sjálfstæðismenn í Reykjanes
kjördæmi starfa af miklum
krafti undir forustu frambjóð
enda, sem hafa bæði til að
bera framsýni og djörfung
æskunnar og traust og
reynslu þeirra, sem um lang-
an aldur hafa méð einum
eða öðrum hætti starfað að
bættum hag undirstöðuat-
vinnuvega þjóðarinnar, og
eru staðráðnir í að tryggja
Sjálfstæðisflokknum öflugt
fylgi í Reykjaneskjördæmi í
kosningunum 11. júní. Þar
sem annars staðar verður bar
áttan hörð en góður málstað-
ur sigrar jafnan að lokum.
EINKENNILEG
„UMHYGGJA"
FRAMSÓKNAR
að gefur auga leið, að þrátt
fyrir meiri og örari upp-
byggingu en nokkur dæmi
eru til um áður í sjávarútveg-
inum hefur hið stórfellda
verðfall á sjávarafurðum er-
lendis skapað verulega erfið-
leika hjá mörgum útgerðar-
fyrirtækjum víða um land.
Verðfallið nemur nú um 15%
á hraðfrystum fiski, 25% á
síldar- og fiskimjöii og 40%
á síldarlýsi. Slfkt verðfall og
í umum tilvikum verðhrun
hlýtur óhjákvæmilega að
skapa töluverða erfiðleika.
Þeim mun furðulegra er
það, að Framsóknarflokkur-
inn skuli nú gera tilraun til
þess að hvetja verkalýðsfélög
in til óraunhæfrar kröfugerð-
ar og fylgja því eftir með
svæsnum árásum á þá forustu
menn verkalýðsfélaganna,
sem hafa viljað virða verð-
stöðvunarlögin og þann grund
völl, sem þau eru byggð á.
Með verðstöðvunarlögun-
um, uppbót á fiskverðið og
verðtryggingu til hraðfrysti-
iðnaðarins, hefur ríikisstjórn
og Alþingi leitast við að að-
stoða sjávarútveginn og fisk-
iðnaðinn vegna þeirra erfið-
stórfellda verðfalli. Það er
einkennileg „umhyggja“ sem
Framsóknarflokkurinn sýnir
þessum atvinnugreinum nú
með því að hvetja launþega
til óraunhæfrar kröfugerðar,
sem óhjákvæmilega mundi
hafa í för með sér mjög alvar
leg vandamál fyrir atvinnu-
vegina og jafnvel stofna at-
vinnuörygginu í hættu.
TALANDI TÁKN
Sl. þriðjudag var frá því
skýrt í Mbl. að nær 3000
gestir hefðu sótt málverka-
sýningar í Reykjavík og ná-
grenni að undanförnu og að
151 málverk hefði þá selzt.
Vafalaust hefur sú tala hækk
að síðan.
Hér var þó aðeins um að
ræða hluta þeirra málverka-
sýninga sem stóðu yfir þá.
Fátt sýnir betur þá velmeg
un sem hér ríkir nú og mikil
peningaráð fólks en einmitt
sú staðreynd að svo mikil
sala skuli vera í listaverkum,
því að búast má við að fólk
mundi einmitt spara við sig
slík kaup, ef erfiðleikar steðj-
uðu að. Þetta dæmi er talandi
tákn um þá velmegun, 9em
nú ríkir með þjóðinni og í
öllum meginatriðum hefur
skapazt á síðustu árum.