Morgunblaðið - 25.05.1967, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 25.05.1967, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1967. 15 Ólafur BjÖrnsson, prófessor: Nýi vísitölugrundvöllurinn og kjör launafólks UNDANFARIN 2—3 ár mun hafa verið að því unnið á veg- um kauiplagsnefndar og Hag- stofu íslands að búa til nýjan grundvöll til notkunar við út- reikning vísitölu framfærslu- kostnaðar. Er þess í sjálfu sér ekki vanþörf, þar sem núver- andi vísitölugrundvöllur er byggður á neyzlurannsókn, sem gerð var árið 1953 og er því orð inn 14 ára gamall, en víst er að miklar breytingar hafa orðið á neyzluvenjum á því tímabilL Drög munu fyrir hendi að hin- um nýja vísitölugrundvelli, en ekkert hefur enn verið birt opin berlega um niðurstöður þeirrar nýju neyzlurannsóknar er hann mun verða byggður á. Þykir mér sú líklegust skýring á jþessu, að ekki hafi enn náðst um það samkomulag í kaup- lagsnefnd að nota hinn nýja igrundvöll við útreikning vísi- 'tölu framfærslukostnaðar. Það bar þó við fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar, að stjórnarandstæðingar tóku að beita því í kosningaáróðri sín- um, að upplýsingar er þeir töldu sig hafa hlerað frá þeim er unnu að hinum nýja vísitölu- grundvelli, sýndu ljóslega, að þorri láglaunafólks hafði minni tekjur en Hagstofan væri nú búin að reikna út, að þyrfti til að geta lifað af, eins og þeir orðuðu það. Rökstuðningurinn var á þann veg, að meðalútgjöld fjölskyldu af meðalstærð voru miklu hærri en a.m.k. flestar tekjur þorra launafólks. Eftir kosningarnar dofnaði hins vegar áhugi stjórnarand- stæðinga fyrir hinum nýja vísi- tölugrundvelli, og hefur ekki verið á hann minnzt, þar til nú fyrir fáum dögum, að hafinn ar á ný samskonar áróður og fyrir bæjarstjórnarkosningar í fyrra. Mér er ókunnugt um niðurstöð- ur þeirrar neyzluannsóknar, sem hinn nýi vísitölugrundvöll- ur verður byggður á. Hins veg ar má telja víst vegna breyttra neyzluvenja, og betri lífskjara almennings nú en var fyrir 14 árum, að allmiklar breytingar hafa á honum orðið og meðalút- gjöld vísitölufjölskyldunnar hafi hækkað meira en nemur verðlagshækkunum á sama 'tíma. En eins og sýnt skal fram á hér á eftir, sannar þetta alveg hið gagnstæða við það, sem stjórnarandstæðingar halda fram, og í rauninni byggist allur þessi málflutningur á því, að þeir, sem í honum taka þátt, virðast enga grein gera sér fyrir því, hver tilgangurinn með vísi- töluútreikningi og þeim neyzlu- rannsóknum, er hann byggist á, er. >að er t.d. firra ein, að grundvöllur vísitölunnar gefi vísbendingu um það, hvað séu þær lágmarkstekjur, sem fólk þurfi til að lifa af. Er mér ekki kunnugt um það, að nokkurn tíma hafi verið framkvæmd neyzluTannsókn, hvorki hérlend is né erlendis, sem haft hafi slíkt markmið, enda væri slíkt alveg út í bláinn. Það sem hins vegar vakir fyrir með slíkum neyzlu- rannsóknum, er að fá upplýs- ingar um það, hver sé hin hlut fallslega skipting heildarút- gjalda þeirra heimila, er þátt taka í rannsókninni á einstaka tegundir keyptrar vöru og þjón ustu. Hver heildarútgjöld meðal fjölskyldu eru, segir auðvitað ekkert um það, hvaða tekjur fólk þurfi til þess að geta lifað, niðurstaðan í því efni verður algjörlega undir því komin, hve ' tekjúháar þær fjölskyldur eru, sem þátt taka í rannsókninni. Samkvæmt niðurstöðum neyzlurannsóknarinnar frá 1953, sem núgildandi vísitölugrund- völlur er byggður á, námu heild arútgjöld meðalfjölskyldu mið- að við verðlag í marz 1959 (en þá var grundvöllurinn tekinn í Danskir ferðamenn hart leiknir í Kína Ólafur Björnsson notkun) 00182 kr. Með núver- andi verðlagi kostar sama magn vöru og þjónustu 129922 kr., þannig að vísitalan hefur hækk- að um 95%. Ef neyzluvenjur væru þær sömu 1953 og kaup- máttur atvinnutekna sá sami og í marz 1959, ættu meðalútgjöld fjölskyldu af þeirri stærð, sem miðað var við þá að nema 129 þús. kr. Sé það hins vegar rétt, sem nú er haldið fram í áróðri stjórn- arandstæðinga, að meðalútgjöld vísitölufjölskyldunnar samkv. hinni nýju neyzlurannsókn muni jafnvel allt að 250 þús. kr., þá hlýtur það einkum að liggja í því, að fólk veitir sér nú miklu meira en verið hefir 1959. Til þess að kaupa sama magn vöru og þjónustu og 1959 þurfa tekj- urnar að hafa hækkað sem verð hækkunum nemur, eða út 06,2 þús. í 129,0 þús. Það sem meðal- útgjöldin hafa aukizt umfram þetta, eru því, ef gert er ráð fyr- ir óbreyttum vinnutíma, þær raunverulegu kjarabætur, sem fólkið hefir fengið á umræddu tímabilL Þetta kemur óneitanlega mjög í bága við það, þegar Tíminn hefir verið að reyna að „sanna“ að kaupmáttur launa hafi ekkert breytzt síðan 1959. Þó að vitað sé, að lífskjör almennings hafa að vísu batnað stórkostlega á umræddu tímabili. þá hygg ég þó, að kjarabætur geti varla ver ið svo miklar, sem vera ætti, ef þessar staðhæfingar stjórnmála- andstöðunnar væru réttar. Hygg ég, að annað hvort hljóti hækk- un grundvallarins að vera eitt- hvað ýkt eða þá að hinar tekju- hærri launastéttir vegi meira í nýja grundvellinum en þeim gamla. Vera má og, að raunveru legur vinnutími sé eitthvað lengri nú en var 1959, þó að mér vitanlega liggi ekki fyrir nein- ar upplýsingar um það, hvort svo sé eða ekki. Meginástæða hækkunar vísi- tölugrundvallarins er þó tví- mælalaust hin aukna neyzla eða hin breyttu lífskjör almennings á tímabilinu, þannig að sé rétt farið með þessar upplýsingar stjónarandstæðinga um niður- stöður hinnar nýju neyzlurann- sóknar, þá sanna þær alveg hið gagnstæða við það, sem þeir ætlast til. Eldur í ein- ongrun húss Grunur um íkveikju SAMKVÆMT upplýsingum frá slökkviliðinu í Reykjavík kom upp eldur í einangrun hússins að Grenimel 48, laust eftir klukkan 20 í fyrrakvöld. Húsið er í smíðum og var eig- anda, ásamt slökkviliði, þegar gert viðvart. Tókst fljótlega að slökkva eldinn, en skemmdir munu hafa orðið nokkrar. Elds- upptök eru ókunn, en álitið er að um íkveikju hafi verið að ræða. Peking 22. maí AP—NTB DANSKIR ferðamenn, 19 talsins sem hafa verið á ferðalagi í Kína síðustu 17 daga, komu í dag til Mongólíu og höfðu heldur ljóta sögu að segja af dvöl sinni hand an landamæranna. Létu þeir svo um mælt, að væntanlega mundi 'lngur tími þar til ferðamanua- 'hópur frá Danmörku legði upp í Kínaför á ný. I ferðamannahópnum var .blaðamaður nokkur frá Árós- um. Hann hafði á fundi með há- skólamönum í Shanghai fyrir tlu dögum látið falla einhverjar •athugasemdir, sem Rauðir varð- liðar töldu niðrandi fyrir Mao Tse-tung og kínversku þjóðina. Þegar hópurinn kom til Hanc- how daginn eftir komst hann að því, að ferðaáætlun hans hafði verið gersamlega felld nið ur, en þess í stað var Dönunum gert að vera á fundi með 250 Rauðum varðliðum. Varðliðarnir kröfðust þess, að Danirnir bæru fram afsakanir og tryggðu, að . þeir segðu ekkert niðrandi um Kína er heim kæmi. Að svo búnu skyldu þeir taka þátt í að lesa tilvitnanir úr verkum Maos og syngja byltingarsöngva með varðliðunum. Eftir hálfrar þriðju klukkustundar þóf neydd ust Danirnir til að láta undan. Ekki bar fleira til tíðinda með- an þeir dvöldust í Kína, en þeir fóru þaðan í algeru uppnámi eftir þessa meðferð. Starf forstfóra IMorræna hússlns STJÓRN Norræna hússins hefir ákveðið að auglýsa laust til um- sóknar starf forstjóra stofnunar- innar, og er starfið auglýst á öllum Norðurlöndum. Starf for- stjórans er ákveðið í samþykkt- um fyrir stofnunina. Er það fólg ið í að veita forstöðu þeirri starfsemi, sem fram fer í stofn- uninni, en henni er ætl- að að stuðla að aukinni þekk- ingu íslendinga og áhuga á norrænum menningarmálum svo og að stuðla að auk- inni þekkingu og áhuga manna á hinum Norðurlöndunum á ís- lenzkri menningu. Umsækjandi skal hafa lokið háskólaprófi og hafa gott vald á einu norrænu tungumáli og a.m.k. nokkra þekkingu á íslenzkri tungu. Starfið verður veitt frá 1. janúar 1968 til fjögurra ára og er hægt að endurráða forstjórann eftir lok þess tírna. Árslaun eru 322.000,— ísl. kr. og nýtur for- stjóri leigulausarar íbúðar 1 Norræna húsinu eftir að hún er tilbúin. Umsóknir um starfið ber að senda til háskólarektors, Ármanns Snævars, fyrir 15. júli n.k. (Frétt frá stjórn Norræna hússins). ÞjóðleikhúsiÖ — Lindarbœr: Nemendasýning Leiklistarskólans Leikstjóri: Kevin Palmer Maður fótbrotn- ar í bygginga- vmnu ÞAÐ slys varð að Geitlandsey 3 í Reykjavík um klukkan 22 í fyrrakvöld, að Guðjón Þor- valdsson, til heimilis að Háa- leitisbraut 18, datt er hann vann að byggingu hússins og fótbrotn- aði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík var Guðjón fluttur strax í Slysavarð stofuna, en þaðan skömmu síðar í Landsspítalann. , X LEIKLISTARSKÓLA Þjóðleik- hússins var slitið í síðustu viku, og útskrifuðust þá fyrstu nem- endur, sem stundað hafa þriggja ára nám við skólann, tíu talsins. 'Lokapróf þessara nemenda voru að því leyti söguleg, að hvorug- an daginn, sem þau stóðu yfir, voru allir kennarar eða prófdóm- arar skólans viðstaddir, og verð- ur það að teljast vítaverð van- ræksla á augljósum skyldum, að ekki sé meira sagt. Hins vegar var að þessu sinni brugðið á þá gleðilegu nýbreytni að efna til sérstakrar nemenda- sýningar um helgina, þar sem fullnaðarprófsnemum var gef- inn kostur á að koma fram í tveimur einþáttungum við sitt hæfi. Var Kevin Palmer falið að stjórna sýningunni, og valdi hann einþáttungana sem sýndir voru. Stjórnaðist valið fyrst og fremst af því sjónarmiði, að allir nemendurnir fengju færi á að koma fram, en að sjálfsögðu voru hlutverk þeirra misstór og gáfu misjafna möguleika til túlkunar. Einþáttungarnir, sem valdir voru, eru báðir eftir bandaríska höfunda, en annars mjög ólíkir að inntaki og allri gerð. Sá fyrri, „Yfiirborð“ (Over- tones), er eftir bandarísku skáldkonuna Alice Gerstenberg, sem af ýmsum er talin vera ifrumkvöðull expressjónismans í leikritun. Leikurinn er saminn árið 1913 og bregður upp svip- mynd af tveimur konum, sem eru tvöfaldar í roðinu á leik- sviðinu, hvor þeirra túlkuð af tveimur leikkonum. Túlkar önnur innri mann persónunnar, en hin yfirborðið — það sem að öðrum snýr. Gefur þessi sam- stilling tilefni til skemmtilegra víxlverkana og leikrænna átaka, sem komu þó ekki fram nema að takmörkuðu leyti í túlk un hinna ungu leikkvenna, en þær gerðu efninu samt furðugóð skil, þegar á allt er litið. Viða sýndu þær talsverð tilþrif; svip- brigði og raddbeiting voru yfir- leitt í góðu lagi, en blæbrigði samtalanna kornu ekki öll tdl skila og sums staðar var farið heldur geyst í sakirnar. Leik- nemarnir sem fram komu voru Anna Guðmundsdóttir, Auður Guðmundsdóttir, Guðrún Guð- laugsdóttir og Margrét Helga Jó- hannsdóttir. Fallegir búningar þeirra voru teiknaðir af Unu Collins. Þýðinguna gerði Sigurð- ur Skúlason og virtist mér hún vera á tungutömu máli. Seinni einþáttungurinn og sá viðameiri var „Dauði Bessie Smith“, frægt verk eftir kunn- asta leikskáld Bandaríkjanna af yngri kynslóð, Edward Albee. Leikurinn gerist í borginni Memphis í Tennessee í septem- ber 1937 og hefur að bakgrunni hörmuleg endalok blökkusöng- konunnar frægu, Bessie Smith, sem fékk ekki aðgang að sjúkra- húsi fyrir hvíta menn, eftir að hún hafði lent í bílslysi, með þeim afleiðingum að hún lét líf- ið. Albee fjallar fyrst og fremst um starfsfólk spítalans, hjúkrun arkonu og kandídat, og leitast við að finna undirrót hins ömur- lega atviks í sálarlífi þeirra og umhverfinu sem hefur mótað þau. Er krufning hans áhrifa- sterk. Leiknemarnir sex, sem fluttu þennan einþáttung, skiluðu hon- um furðuheillegum, og náði sýningin víða mjög sterkum tökum á áhorfendum. Jónína Jónsdóttir kom sennilega mest á óvart í hlutverki hjúkrunar- konunnar, því hún hefur ekki komið fram á leiksviði fyrr, svo talizt geti. Túlkun hennar var skapheit og blæbrigðarík, þó 'hún væri ívið ýkt með köflum, og í sumum atriðum var hún hrífandi, t.d. þar sem hún lýsir hatri sínu og viðbjóði á öllu sem kringum hana er. Fæ ég ekki betur séð en hér sé á ferð efni í eftirtektarverða leikkonu. Sig- urður Skúlason hefur leikið nokkur stór hlutverk áður og kom því ekki á óvart í hlutverki kandidatsins, sem var vand- virknislega túlkað, en það var eins og vantaði sannfæringar- kraftinn. Hákon Waage lék Jack, samfylgdarmann söngkonunnar, af miklum sannfæringarkrafti i leikslok, en náði ekki sambæri- legum tökum á hlutverkinu 1 byrjun, þó margt væri snotur- lega gert í einræðunum við söngkonuna. í minni hlutverk- um voru Jón Gunnarsson, Ketill Larsen og Sigrún Björnsdóttir, sem öll skiluðu sínum verkefn- um með sóma. Þýðingurna gerði Margrét Jóns- dóttir, og var hún liðlega unnin. Þó þessi nemendasýning verði tæplega talin til leiklistarvið- burða, er hún kærkomin ný- breytni sem bæði hlýtur að örva leiknema til dáða og veita áhugamönnum um leiklist nokkra hugmynd um hvar á vegi stödd leiklistarkennslan er og hvers má af nýliðunum vænta. Sigurður A. Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.