Morgunblaðið - 25.05.1967, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1967.
JOfnunarmark ur víta-
spyrnu á síöustu mínútu
IJrvalið og Hearts gerðu Jaíntefli 3-3
■ÚRVALSLIÐ landsliðsnefndar
og skozka atvinnumannaliðið
Hearts gerðu jafntefii í skemmti-
legum leik í gærkvöld 3:3. Jöfn-
unarmark úrvalsins var skor ið
úr vítaspyrnu á síðustu mínútu
leiksins. Sáu fæstir af hverju sú
vítaspyrna var dæmd, enda mót-
mæltu Skotarnir dómnum ákaf-
lega. Það var Högni Gunnlaugs-
son sem framkvæmdi spyrnuna
og skaut föstu skoti í hornið
niðri, óverjandi fyrir markvörð
Hearts.
Leikurinn í gær var fjörugur
frá upphafi til enda. íslending-
arnir léku í fyrri hálfleik und-
an snarpri norðan golu, en eigi
að síður voru það Skotar sem
að sóttu meira fyrstu mínúturn-
ar. Sókn þeirra fylgdi þó ekki
veruleg haetta við íslenzka mark-
ið, enda virtist þeim margt betur
gefið en að skjóta. Á 12. mín.
leiksins kom svo fyrsta tækifær-
ið sem eitthvað kvað að. Ingvar
einlék þá skemmtilega inn á víta
teiginn, en hikaði þegar mark-
vörður kom á móti honum og
skotið lennti framhjá. Skömmu
siðar var Ingvar aftur í góðu
færi en þá náði hægri bakvörður
Karl og
Siguröur
segja upp
KARL G. Benediktsson, þjálf
ari ísl. landsliðsins í hand-
knattleik og Sigurður Jóns-
son „einræðisherra" um val
landsliðsins hafa skrifað
stjórn Handknattleikssam-
bandsins bréf og beðist und-
an störfum sínum í sambandi
við landsliðið í handknatt-
leik.
Báðir færa þeir sömu rök
fyrir uppsögn sinni, þau að
þeir geti ekki sinnt þeim
vegna anna.
Hafa þeir Karl og Sigurð-
ur hafið störf hjá nýju bygg-
ingafélagi, Breiðholti h.f.,
sem er eitt þeirra félaga er
tekið hafa að sér störf í sam-
bandi við byggingu hins nýja
hverfis í Breiðholti. Það
hverfi mun rísa með ógnar-
hraða, sem kunnugt er, og því
mun mikil vinna vera hjá
þeim er verk hafa tekið að
sér í sambandi við bygging-
arnar. Treysta þeir félagar
sér ekki til að sinna störfum
sínum fyrir HSÍ um sinn að
minnsta kosti.
HSÍ hefur ekki fjallað um
málið enn. Þeir félagar höfðu
nýlega sent HSÍ tillögur um
þjálfun landsliðsins og lagt
þar áherzu á nauðsyn þess að
þjálfað yrði í allt sumar, ef
verulegur árangur ætti að
nást. Uppsögnin veldur því
miklum áhyggjum, en vænt-
anlega tekzt HSÍ að ráða
fram úr vandanum.
Hearts að bjarga í horn sem
síðan var ekkert úr.
Um miðjan hálfleikinn skora
svo fslendingar tvö mörk með
stuttu millibili. Voru þar að
verki þeir Ingvar Elísson og
Elmar Geirsson, voru bæði
mörkin góð, sérstakfega þó mark
Elmars, en hann nýtti út í
hörgul mistök sem urðu í vörn
Hearts. Skotarnir sóttu nokkuð
eftir mörkin, en tókst ek'ki að
skapa sér hættuleg tækifæri þar
sem varnarmenn úrvalsins voru
ágættega á verði og gáfu þeim
ekki tíma til að athafna sig.
Þegar 10 mín. voru eftir af
hálfleiknum var sfeammt stórra
högga á mili. Elmar sfeoraði
mark, sem dæmt var af vegna
rangstöðu. Hermann komst einn
inn fyrir og átti bara eftir að
koma knettinum framhjá mark-
manninum, en tókst það ekki,
heldur skaut beint í fang hans.
Á 43. mín. kom svo þriðja
mark hálfleiksins, en það skor-
aði vinstri innherji Skotanna
með lausu skoti, eftir mistök í
vörn úrvalsins.
Síðari hálfleikur
Síðari hálfleikur var framan
af nokkuð þófkenndur og tókzt
hvorugu liðinu að skapa sér
hættuleg tækifæri. Skotarnir
voru þó að mun ágegnari við
ísfenzka markið, enda léku þeir
nú undan vindi. Á 30. mín. hálf-
feiksins var nokkuð þóf við ís-
lenzka markið og endaði það
með góðu skoti frá miðherja
Hearts. Guðmundur hafði hætt
sér um of framarlega og var
því úr leið, en á síðasta augna-
bliki kom Sigurður Albertsson
aðvífandi og tókst að skalla út
fyrir markströng. Örfáum mín-
útum síðar jafnar Hearts 2:2.
Var þar að verki hægri útherj-
inn sem skoraði með föstu og
fallegu skoti af löngu færi. Átti
Guðmundur ekki möguleika á
að verja það. Og fimm mín.
síðar skora svo Skotarnir aftur.
Að pessu sinni með lausum
skalla eftir hornspyrnu, en ís-
lenzka vörnin og markamður-
inn stóð frosin á marklínunni
og gerðu ekkert til varnar.
Þegar þrjár minútur voru til
leiksloka sótti úrvalið fast, og
endaði sú sókn með því að
Guðni Kjartansson, sem kom inn
á í síðari hálfleik fyrir Elmar,
skallaði í stöng. Og er ein mín.
var eftir var dæmd vítaspyrna
sú er áður er frá sagt.
Liðin
Lið Hearts er fremur jafnt og
liggur styrkur þess að mestu í
því. Þeir hafa skemmtilega
knattmeðferð og spila vel sam-
an úti á vellinum. en þegar kem
ur upp að markinu er eins og
sóknin fari úr böndunum, því
Dundee vunn
SKOZKA liðið Dundee og enska
meistaraliðið Manch. Utd.
kepptu í San Francisco i gær.
Var báðum liðunum boðið vest-
ur þangað til þess að kynna
knattspyrnuna.
Dundee vann frægan sigur
skoraði. 4 mörk gegn 2. Voru
liðsmenn ákveðnir mjög en liðs
menn Manch. Utd. virtust iíta á
leikinn sem aukaleik í sumar-
fríi.
eins og áður segir virðast þeir
ekki hafi miklum skotmönum á
að skipa.
Landsliðsnefnd má vera á-
nægð með lið sitt eins og það
lék í gærkvöld. Vörnin var
sterkasti hluti liðsins, með þá
'Sigurð Albertsson og Árna
Njálsson sem beztu menn. I
heild börðust varnarmennirnir
mjög vel og gáfu Skotum lítið
tóm til að athafna sig. í fram-
l'ínunni átti Elmar Geirsson og
Ingvar Elísson beztan feik, en
þeir ógnuðu mjög með hraða sín
um og dugnaði. Þá átti Eyleif-
ur þokfcalegan leik, en urðu oft
á mistök í sendingum. Björn Lár
usson skilaði hlutverki sínu
mjög þakkalega, en lítið reyndi
'á hann, sérstakleag í fyrri hálf-
leik. — sjl:
íslendingar
áOL
í Mexíco
OLYMPÍUNEFND Islands
hefur nýlega ákveðið þátt-
töiku fslands í sumarleikun-
um í Mexico á næsta ári,
sagði Björn Vilmundarson
form. FRÍ á blaðamanna-
fundi í gær. Kvað hann þetta
Vera merkasta framtíðarverk
efni frjálsíþróttamanna. Þá
gat hann þess að FRÍ gerði
ráð fyrir landskeppni við
Dani og Skota á næsta ári, en
næsta Evrópumót verður
haldið í Aþenu 1969. Næsta
ár verður því „stórt ár“ hjá
FRÍ ef allt fer að líkum.
400 m hlaupið á Vormóti I.R. Þórarinn Ragnarsson sigrar
Halldór Guðbjörnsson. J
Hvað gerir Guð-
mundur í kvöld?
EÓP-mótið á IHelavellinum
—
í KVÖLD íer fram EÓP-mótið
— frjálsíþróttamót KR og hefst
aðalhluti þess kl. 8 á Melavelli,
en keppni í stangarstökki mun
hefjast kl. 7.30. Hápunktur þessa
móts verður án efa kúluvarps-
keppnin, þar sem athyglin bein-
ist fyrst og fremst að Guðmundi
Hermannssyni, sem í kuldanum
á Vormóti ÍR varpaði 17.34 m.,
en fær vonandi betra veður í
kvöld. Einnig mun athyglin
beinast að syni hans Arnari, sem
á æfingum að undanförnu hefur
verið að varpa um og yfir 15
metra.
Keppnisgreinar eru annars
22 ef allt er talið með, drengja-
sveina og stúlknakeppni. Keppn-
isgreinar eru:
Karlar:
100 m hl., 400 m hl., 800 m hl<
5000 m hl., 110 m gr.hl. og 4x100
m boðhl., kúluvarp, spjótkast,
sleggjukast, stangarstökk og
hástökk.
Drengir 17—18 ára:
100 m hl., 400 m hl., 4x100 m
boðhl., spjótkast.
Sveinar 14—16 ára:
100 m hl., 400 m hl., 4xl0C m
boðhl. og spjótkast.
Stúlkur:
100 m hl., 80 m gr.hl. og 4xfeQ
m boðhl.
Alls taka um 50 manns þátt
í mótinu frá 7 félögum og sam-
böndum.
Frjálsíþróttamenn á fimm
mótum erlendis í sumar
Á FUNDI með fréttamönnum í
gær gaf stjórn Frjálsíþróttasam-
bandsins yfirlit um starfsemi
sína sem í vændum er á sumr-
inu. Hafði Björn Vilmundarson
formaður FRÍ orð fyrir stjórn-
inni og kvað hana ánægða með
vetrarstarfið og innanhússmót-
in, nema hvað aðsókn hefði
verið helzt til lítil. Hann kvaðst
vona að þau „efni“ sem skotið
hefðu upp kollinum í vetur
myndu halda áfram og auka af-
rek sín og eins að fleiri bættust
við — t. d. að allur sá skari sem
handknattleik stundaði að vetr-
inum sneri sér að frjálsum
íþróttum að sumrinu til.
Björn ræddi um aðsókn að
mótun frjálsíþróttamanna og
kvað hafa verið dauft yfir þeim
hvað hana snerti, en að stjórn
FRÍ hefði þá trú að nú væri að
rofa til og framundan væru
betri tímar.
Hann gaf síðan yfirlit yfir
mót innanlands á vegum FRÍ
og munum við birta það síðar,
en einnig ræddi hann um mót
erlendis með þátttöku íslend-
inga.
Munu íslendingar taka þátt í
að minnsta kosti 5 mótum er-
lendis og eru þau þessi:
24. — 25. júni. Bikarkeppni
Evrópu í Dublin. Riðlakeppni
fer fram í nokkruim borgum
Evrópu á þessum tíma, en í okk-
ar riðli keppa auk íslands,
Belgía og írland. Luxemburg
hefur hætt við þátttöku í keppn-
inni. Einn keppandi er í hverri
grein. Gert er ráð fyrir auka-
keppni í írlandi á eftir. Við höf-
um gert okkur von um lands-
keppni við Skota í þessari ferð,
en úr því getur ekki orðið að
þessu sinni.
I. — 2. júlí. Tugþrautarkeppni
í Kaupmannahöfn. Mót þetta er
haldið í sambandi við 800 ára
áfmæli Kaupmannahafnar. Óvíst
er um fjölda þátttakenda héðan.
II. — 12. júlí. Landskeppni
unglinga milli Noregs, Finn-
lands og Svíþjóðar, sem háð
verður í Stavanger, Noregi. Þetta
er árfeg keppni þessara landa og
hefur Frjálsiþróttasambandið
nú óskað eftir því að nokkrir
íslenzkir unglingar gætu tekið
þátt í þessu móti, ef einstök fé-
lög eða héraðssambönd vildu
senda sína beztu unglinga til
þessarar keppni. Sambandsaðil-
ar eru vinsamlega beðnir aS
hafa samband við stjórn FRÍ um
þetta mál. Danir hafa oft áít'
einstaka þátttakendur í þessu
móti.
16. — 17. sept. Meistaramót
Norðurlanda í tugþraut haldið !
Kaupmannahöfn. Óvíst er um
fjölda þátttakenda héðan.
27. — 28. sept. Landskeppni
í tugþraut í Schwerin í Austur-
Þýzkalandi. Keppendur verða 3.
Boð hafa borizt um þátttöku
í fleiri mótum t. d. Skotlandi
en ekkert hefur verið ákveðið
um þátttöku í þeirn.
Þjálfun. Fráfall Benedikts
Jakobssonar hefur orðið frjáls-
um íþróttum þungt áfall. Mjög
fáir einstaklingar hafa lagt
stund á sérmenntun í þessari
íþróttagrein en skortur á leið-
beinendum og íþróttakennur-
um er mikið vandamál hér á
landL Frjálsíþróttasambandið
mun eigi hafa þjálfara í sinni
þjónustu í sumar en mun reyn*
að hafa milligöngu um ráðn-
ingu þjálfara fyrir sambanda-
aðila, ef þess er óskað.