Morgunblaðið - 04.06.1967, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1967.
Þuríður Sæmundsen
Blönduósi — Kveðja
í»ann 27. f. m. andaðist á
Blönduósi frú Imríður Sæmund-
sen, ekkja Edvalds Sæmundsen,
verzlunarstj óra.
Hún fæddist að Húnsstöðum í
Húnaþingi og sem lítil stúlka sá
hún sólina renna yfir norður-
hafið og slá gullnum bjarma á
gróðurlönd Ásanna og línu-
mjúku fjöllin í nánasta umhverf-
inu. Sagt er, að mótun manns-
ins byrji snemma í bernsku og
ekki er ólíklegt að sólskinið,
sem bjó í sál hennar Þuríðar
Sæmundsen og speglaðist í við-
móti hennar langa ævi, hafi átt
sinn uppruna í fyrstu viðbrögð-
um náttúrubamsins, sem brosti
mótá rísandi sól á vormorgni og
óð döggvotar mýrar glitaðar
kvöldsólarbj arma.
— Það er ekki ævisaga þess-
arar gagnmerku konu, sem hér
verður skráð, það gera eflaust
aðrir, sem betur þekkja til. —
Ég veit, að hún, í blóma lífsins,
varð fyrir þeirri þungu raun
að missa eiginmann sinn — en
hún var „eins og sá reyrstafur,
sem brotnar ekki, en réttist úr
beygjunni og er þá jafnbeinn og
fyrr.“ — Kjarkur og þrek Þur-
íðar Sæmundsen mun hafa verið
óvenjulegt, enda kynlægt.
Fyrstu kynni mín af þessari
konu, sem nú er ekki lengur
í sviðáljósi hinna lifandi hér
megin tjaldsdns — voru þau, 3ð
við hittumst á fjölmennri sam-
komu á Blönduósi. — Ég var þá
nýfluttur í byggðina og fann
það vel, að í hópi þeirra, sem
þama voru sat sízt á mér að
vera framgjam eða láta til mín
taka. Þá kemur þessi virðulega
aldurhmgna korta, réttir mér
hlýja hönd, brosir til mín mildu
sólarbrosi Húnaflóans og býður
mig velkominn til starfa í byggð
sinni.
Þessi kveðja verður mér alla
tíð ógleymanleg. Ekki fyrst og
fremst vegna þess, að hér hitt-
umst við í fyrsta sinn. öllu
íremur vegna hins, að þetta
saana viðmót mætti mér öU þau
ár, sem ég átti þess kost að
verða henni samferða nokkur
augnablik líðandi stundar.
— Hvað er að eiga samleið
með öðrum? — Ekki endilega
það, að hafa við hann daglegt
samneyti, heldur hitt að finna
við hveTja samfundi þá hlýju og
þann hugblæ, sem endist og ylj-
ar þótt í bili sé vík milli vina.
Ég átti ekki ætið það erindi
f búðina til hennar Þuríðar Sæ-
mundsen, að leita eftir ritum
nýrra höfunda, sem höfðu látið
hugsanir sínar á þrykk út ganga
— öllu fremur hitt, að komast
f snertingu við konu, sem bar
í svip sínum lífssögu stærri og
merkari mörgum þeirra, sem
lágu á búðarborðinu í gylltum
sniðum — falar fyrir fé. Og þess
er ég fullviss, að svipmót frú
Sæmundsen sagði mér og sýndi
sannari lífsmynd, en þótt ég
hefði blaðað í einhverri af bók-
um þeim er á boðstólum voru,
en sleppt stundinni, sem ég gat
átt við öldufall liðins tíma eins
og það lét mér í eyrum, þegar
hún sagði frá.
Það er í minnum haft, að um
árabil, þegar Þuríður Sæmund-
sen kenndi við bamaskólann á
Blönduósi, þá fannst hverju
bami gott að vera ekipað þar í
sveit, sem hún var stjómandinn.
„Aí vörum bama og brjóst-
mylkinga skuluð þér sannleik-
ann heyra." — Þannig er Mfið.
Og dómur um dáinn hvern flytzt
milli fj.arlægra heima. — Dómur
hinna lifandi berst einnig milli
byggða.
— Þuriður Sæmundsen taldi
dóm reynslunnar dýrmætastan
og lifði samkvæmt því — þess
vegna var hún fús að rétta vin-
arhönd hverjum þeim, sem
henni virtist hafa til þess unn-
ið — kviðdómur annarra var í
hennar augum enginn Sólomons-
dómur. — Þess vegna átti hún
'hug allra, sem stóðu vegvilltir á
krossgötum. Hlýtt handtak slíkra
kvenna er í sumum tilfellum eitt
sterkasta mannbótaaflið í heim-
inum. Þannig kom þessi kona
mér fyrir sjónir og þannig var
hún.
— Við hjónin þökkum ógleym-
anlegt viðmót — viðmót, sem
gerði veðrabrigði umhverfisins
léttbærari og trúna á lífið
traustari.
— Nú er langur starfsdagur
liðinn. Júnísól ljómar yfir byggð
inni, sem Þuríði Sæmundsen ól.
Hún á góða heimvon. — Hlýtt
stórmannlegt handták ógleyman-
legra vina, sem á undan eru
gengnir mun mæta hermi á
ströndinni 'handan við hafið.
Glaðar minningar um traiust-
an vin — góða móður og ömmu
milda hin svíðandi sár.
— Þökk, Þuríður Sæmundsen.
— Döggfallið á kyrru vorkvöldi
eru tár byggðarinnar við brott-
för þína.
Þ. M.
Átök
í Kína
SL. FIMMTUDAG var statt1
I Reykjavíkurhöfn sænska 1
bifreiðaflutningaskipið „Trist I
an", sem er í eigu skipa-
félagsins Wallenius. Flutli I
skipið hingað um 50 bifreiðar i
af Plymouth Valiant, árgerð |
1967. Bifreiðaranar eru i
tveggja dyra af „standard"
gerð. Umboð fyrir Plymouth (
hér á landi hefur Chrysler-
umboðið Vökull h.f.
Peking, 2. júni, NTB.
RAUÐIR varðliðar óku í dag
vöruhifreið hlaðinni blóðugum
klæðum upp að einu stærsta
verzlunarhúsinu í mestu um-
ferðargötu Pekingborgar og settu
þar upp veggspjöld, þar sem
skýrt var frá átökum og ofbeldis
aðgerðum í mörgum héruðum
Kína. Á veggspjöldunum sagði
að klæðin værn komin frá Hon-
an-héraði í Mið-Kína, en ekki
var skýrt frá afdrifum eigenda
þeirra.
í fréttum vegghlaðanna und-
anfarna daga hefur verið talað
um „Hvít hryðjuverk", og er
þar átt við ofbeldisaðgerðir and-
stæðinga Mao Tse-tungs og
menningarbyltingarinnar. Frétt-
ir hafa borizt um slíkar aðgerðir
frá ýmsum stöðum í Kína, og
virðist sem svo að andstæðingar
Maos séu mjög öflugir víða j
Kína.
Wilson í Washington
Norræn ráðstefna
í amerískum fræðum
The Nordic Association for
American Studies gengst fyrir 3.
samnorrænu ráðstefnunni í amer-
ískum fræðum við háskólann í
Helsinki 26.—30. júní n.k. Fyrstu
tvær ráðstefnurnar voru í Sigt-
una (1961) og Osló (1964). Ráð-
Aðalfundur
S.R.F.Í.
AÐALFUNDUR SRFÍ var hald-
inn í Sigtúni 4. maí sl.
Formaður skýrði frá starfsemi
á liðnu ári 88 nýir meðlimir
bættust í félagið. 150 nýir áskrif
endur að timariti félagsins,
Morgunn.
Haldnir voru 5 félagsfundir á
starfsárinu, auk þriggja skygni-
lýsingafunda, með Hafsteini
Björnssyni, sem um 1000 manns
sóttu.
33 miðilsfundir voru haldnir
með brezka miðlinum Horace
Hambling, sem um 500 manns
sóttu.
Bókasaifn félagsins var mikið
notað af félagsmönnum.
Stjórn félagsins skipa nú:
Guðmundur Einarsson, verkfr.,
Guðmundur Jörundsson, útgm.,
Magnús Guðbjörnsson, skrifstm.,
Sveinn Ólafsson, fulltrúi, Ottó
A. Michelsen, forstj. og Leifur
Sveinsson, lögfr.
Fyrirhuguð starfsemi félagsins
á næsta starfeári er meðal ann-
ars skyggnilýsingafundir með
Hafsteini BjörnssynL Einnig er
brezki miðillinn H. Hambling
kominm hingað aftur.
Mikill áhugi er úti á landi á
því að stofna félagsdeildir, og er
það í undirbúningl
stefnurnar eru liður í starfsemi
félagsins, en tilgangur þess er að
efla amerísk fræði á Norðurlönd-
um og stuðla að gagnkvæmum
kynnum þeirra, sem að þeim
efnum vinna, bæði einstaklinga
og stofnana. Hefur félagið í
þessu skyni haft ýmis verkefni
með höndum auk ofangreindra
ráðstefna, t.d. unnið að útgáfu
•bókaskrár yfir amerísk tímarit 1
öllum bókasöfnum á Norður-
löndum. í stjórn félagsins eiga
sæti háskólakennarar frá öllum
Norðurlöndunum, en af íslands
•Hreinn Benediktsson,
Ráðstefnan í Helsinki verður
með líku sniði og hinar fyrri.
Verða fyrirlestrar og umræðu-
fundir um ameríska sögu, þjóð-
félagsmál og bókmenntir, en
meðal fyrirlesara verða Daniel
Aaron, Marcus Cunliffe, Cleanth
Brooks og Arthur Schlesinger Jr.
Þátttakendur í ráðstefniunni
verða aðallega háskóla- og
menntaskólakennarar í ensku,
og félagsvísindum, svo og há-
skólakandidatar í sömu greinum.
Af fslands hálfu er þess vænzt,
að nokkrir þátttakendur geti sótt
ráðstefnuna. f því skyni verða
fyrir hendi nokkrir ferða- og
dvalarstyrkir. Þeir sem hafa hug
á að taka þátt í þessari ráð-
stefnu, snúi sér til próf. Hreins
Benendiktssonar fyrir 1. júní
n.k.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Wasihington, 2. júnf, AP-NTB.
WILSON, forsætisráðherra
Bretlands, kom til Washington í
dag til viðræffna við Johnson
Bandaríkjaforseta nm ástandið
í löndunum fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Til Washington kom
Wilson frá Ottawa, þar sem
hann ræddi við Pearson, for-
sætisráðherra Kanada.
Jothnson forseti sagði í ræðu,
sem hann hélt við kooiu Wil-
hons til Hvíta hússins, að Churc-
hiil, forsætisráðherra Bretlands,
og Roosevelt Bandaríkjaforseti,
hefðu á sínum tíma lagt mikla
áherzlu á nauðsyn náins sam-
starfs Bandarikjanna og Bret-
lands til varðveizlu friðar oig
réttlætis í heiminum. Fbnsetinn
sagði: „Þeir tveir tóku á sig
skuldbindingar vegna þjóða
sinna, sem við höldum enn i
dag, og það er vegna þess, sem
við hittumst hér i dag, er friður-
inn og réttlætið í heiminum er
i hættu".
Wilson sagði við brottför sina
frá Ottawa, að mikið væri nú f
húfi með að hægt væri að leysa
deilumar milii Araba og ísraels-
manna, meðan öldurnar heffSi
laegt í bili að minnsta kosti.
Sovéimenn ústtka
Bandttríkjamenn
um að hafa varpað sprengjum á
sovézkt skip í N-Vietnam
Moskvu, 2. júní, AP-NTB.
SOVÉTSTJÓRNIN sakaði í dag
Bandaríkjamenn nm að hafa
varpað sprengjum á sovézkt
skip, sem var aff afferma vömr
í norður-víetnamískri höfn í
dag. Sagði I mótmælaorffsend-
ingu Sovétmanna, að ef slikt
kæmi fyrir aftur myndu þeir
grípa til sinna ráða. Það var
Grómýkó, utanríkisráðherra Sov
étríkjanna, sem afhenti banda-
riska sendiráðunautnum í
Moskvn mótmælin, vegna fjar-
vem sendiherrans, sem nú er í
Washington.
Bandarieki aðstoðarvarnar-
málaráðherrann, Philip Gould-
ing, sagði í dag, að Bandarfkja-
stjórn hefði engar upplýsingar
fenrgið, sem gætu benit til þes*
að ásakanir Sovéfemanna hefðu
við rök að styðjast. Sagði ráð-
herrann, að varnarmálaréðu-
neytið hefði gefið bandanísku
herstjórninni í Saigon fyrir-
mæli um að rannsaka málið
vandlega og yfirfara allar skýrsl
ur flugmanna, sem kynnu að
hafa flogið yfir umrætt hafn-
svæði í dag.
Sovétmenn krefjast þess að
flugmönnunum, sem sprengjun-
um vörpuðu verði hegnt og að
Bandarikjamenn tryggi að slík
atvik endiurtaki sig ekki
Bandarísk arás
á sovézkt skip
Moskva, 3. júní, AP
MÁÍGAGN sovézka kommún-
Istaflokksáns, Pravda, sagffi í
dag, að árás Bandarikjamanna á
'sovézka verzlunarsikipið „Turk-
estan" í hafnarborginni Cam Pha
í N-Vietnam væri tilraun til að
auka spennuna á alþjóðaveitt-
Vangi. í loftárásinni fórst einn
sovézkur sjómaður en sex seerð
ust alvarlega. Pravda krafðist
þeus, að flugmönniunum sem loft
áráíána gerðu yrði nefsað, og
sagði að það vaeri skylda stjóm-
arvaldanna í Washington að gefa
fryggingu fyrir að slíkur atburð
ur endurtaki sig ekki.
Bandariska stjórnin hefur
sagt, að rannsókn fari fram á
loftárásinni. Fréttastofan Tasa
sagði, að eftir að sprengjum
hefði verið varpað á skipið hefðu
tvær bandarískar flugvélar skot
ið á það úr vélfbyssum.