Morgunblaðið - 04.06.1967, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ,
sxitzírwévMi&.imz
Ragnheiður og Margrét með fö ndursýnishorn.
Föndurnnmskeið fyrir börn
TVEIR kennarar úr Hlíðaskóla
þæ-r Margrét Thorlacius og Ragn
heiður Benediktsson, munu
halda föndurnámskeið fyrir
íbörn á aldrinum 6—8 ára. Kenn
urum þessum fannsit vel til fall-
ið að halda slíkt föndurnámskeið
einmitt fyrir böm á þessum
aldri, þar sem fá þeirra hafa
nokkuð ákveðið fjrrir stafni eft-
ir að skólum lýkur á vorin.
Böm fá að liæra ýmiss konar
pappírs- og pappaföndur, svo og
gerð margs konar leikfanga og
muna úr ódýru efni, til dæmis
eldspýtustokkum korktöppum
og pípuhreinsurum.
Því er nú einu sinni þannig
farið, að þau leikföng, sem börn
búa til sjálíf, verða þeim mun
kærari en önnur, jafnvel þótt
þau hafi kostað offjár, um leið
þroska þau huga og hönd.
Kennt verður í Auaturbænum
í júnímánuði frá kl. 10—12
Upplýsingar verða veittar í síma
16116 hjá Margréti Thorlacius og
í síma 17135 hjá Ragnheiði Bene
diktsson í dag og næstu daga
„Tíminn“ seinheppinsi
„ALLT er hey í harðindum“ seg-
ir málitækið og sannaðist það enn
í „Tímanuim“ í.gær. Þar var það
ein helzta frétt blaðsins, að orð-
ið hefði að aflýsa fundi ungra
Kjálfstæðismanna, sem ráðgerð-
■ur hafði verið á Selfossi s.l.
sunnudag. „Tíminn" forðaist að
sjálfsögðu að nefna hina réttu
orsök þessa atviks, en það eru
mistök, seim urðu í sambandi við
boðun fundarins. f ágætum aug-
lýsingum um fundinn urðu þau
mistök, að fundardagurinn var
á reiki, ýmist laugardagur 27.
msd eða sunnudagur 2fl. maí.
Þannig var a.m.k. tvívegis aug-
lýst, að hann yrði haldinn laug-
ardaginn 27. maí — í stað sunnu-
dagsins 28. maí, og var þetta
ekki leiðrétt nægiiega tímanlega.
Afleðingar af slíku þebkja allir,
sem að fundarhöldum standa, þó
að „Tíminn“ láti öðruvísi. Svo
seinheppið er þó blaðið, að með
„fréttinni" er einmitt birt mynd
af auglýsingunni eins og hún
birtist röng! ! !
Ástæðan til þessara skrifa
Framsóknarmálgagnsins er að
sjálfsögðu sú, að þeim stendur
mesti stuggur af sókn ungra
Sjálfstæðismanna um þessar
mundir, þ.á.m. hinum glæsilega
fundi á Blönduósi fyrir nokkr-
um dögum.
Vonbrigði Belgíumanna vegna
fundar æðstu manna EBE
Krefjast afdráttarlausra svara v/ð inngönguumsóknum
\
BRÚSSEL, 1. júní, NTB. —•
Belgía, sem eins og sakir standa
skipar formannsHtöðuna í ráð-
herranefnd Efnahagsbandalags-
ins, mun krefjast þess á utan-
ríkisráðherrafundinum í Bríissel
í næsitu viku, að ríki Efnahags-
bandalagsins gefi svör við um-
sóknum Bretlands, Danmerkur
og frlands um inngöngu í banda-
lagið. Var þetta haft eftir opin-
berum heimiidum í Brúiss.eJ í dag.
Margrét prinsessa
þakkar fslendingum
Fær Papandreou
að fara til USA ?
1 New York, 3. júní (AP).
ANREAS Papandreou, sem var
prófessor I hagfræði við háskól-
ann í Bereley í Kaliforníu áður
en hann sneri aftur til Grikk-
lands og gerðist einn af aðal-
leiðtogum Miðflokksins, verður
sennilega leyft að fara aftur til
Bandaríkjanna, en ekki fyrr en
réttarhöld hafa farið fram í máli
hans, að þvi er Edmund G.
Brown, f.v. ríkisstjóri Kaliforniu,
sajþVi í gær. Andreas Papandreou
Spilakvöld
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖG Garða-
og Be&sastaðahrepps halda sið-
asta spilakvöld félaganna mánu-
daginn 4. júní að Garðaholti og
hefst stundvíslega kL 8.30.
Afhent verða heildarverðlaun
fyrir þriggja kvölda keppnina.
Góð kvöldverðlaun. Félagar fjöl
menmið og takið með ykkur
gesti.
hefur verið ákærður fyrir Iand-
ráð.
Brown hefur verið fenginn til
að aðstoða lögfræðinga Andreas-
ar Papandreous í Bandaríkjun-
um, kvaðst telja að honum yrði
leyft að fara frá Grikklandi þótt
hann yrði dæmdur.
Fyrir skömmu kvað Hæsti-
réttur Bandaríkjanna upp þann
úrskurð, að ekki mætti svipta
bandaríska þegna ríkisborgara-
rétti þótt þeir tækju þótt í kosn-
ingum erlendis. Talið er, að
þessi úrskurður kunni að hafa
áhrif á mál Andreasar Papan-
dreous.
Seldi 38
myndir íyrsta
kvöldið
Sýning Gunars S. Magnússon
ar í nýbyggingu Menntaskólans
við Lækjargötu var opnuð á
föstudagskvöld. Þá strax seldust
3® mynddr. Á sýningunni eru
alls 135 myndir, þannig, að hér
mun vera um að ræða eina allra
stærsta málverkasýning hér-
lendiis.
Sýning Gunnars er opin dag'
lega frá kl. 2—10 og gengið inn
frá Bókhlöðustíg. Hún verður
opin næstu 10 daga. Þegar hafa
heimsótt sýninguna á sjöunda
knn^nnX *MOna
Einkaskeyti frá fréttaritara
Morgunblaðsins, Gunnar Ryt-
gaard.
Kaupmannahöfn, 3. júnl.
Margrét krónprinsessa og
Henrik greifi höfðu í gærmorg-
un boð inni í Amalienborgarhöll
fyrir fulltrúa dönsku stjórnar-
innar og danskra atvinnuvega
og ýmsa aðra, sem hafa fært
þeim gjafir í tilefni af brúð-
kaupinu 10. júní, Aðeins tveim-
ur erlendum sendimönnum var
boðið, Gunnari Thoroddsen,
ambassador lslands, og Hector
Allard, ambassador Kanada,
sem hefur gegnt sendiherra-
störfum í Kaupmannahöfn leng-
ur en nokkur annar.
Gunnar Thoroddsen flutti
ræðu til brúðhjónanna, þar sem
hann færði krónprinsessunni
kveðju frá forseta íslands og
islenzku þjóðinni. Einnig lýsti
hann brúðkaupsgjöf Islendinga,
hestunum Stjömu og Perlu, og
lagði áherzlu á 'hina sérstöku
eigihleika íslenzkra xeiðhesta.
Þá sýndi Gunnar hnakkana,
beizlin og hinar fallegu silfur-
búnu svipur, sem fylgja gjöf-
inni. Hestarnir eru enn á býli
Gunnars Jónssonar verkfræðings
á Norður -S j ála ndi. Margrét
prinsessa þakkaði með nokkrum
hlýjum orðum og bað Gunnar
Thoroddsen að skila þakklæti og
kveðjum til forsetans.
Allir erlendir gestir hafa nú
boðað komu sína til brúðkaups-
ins. Forseti Islands verður í hópi
hinna fyrstu tignu gesta, sem
koma til Kaupmanna.hafnar.
Hann kemur til Kastrup síð-
degis á miðvikudag og tekur
Friðrik konungur á móti hon-
um. Forsetinn mun búa á Hótel
d’Angleterre meðan á dvöl hans
stendur, og verður F. Ásberg
Petersen, ritari í utanríkisráðu-
neytinu, sérstakur fylgdarmaður
forsetans.
Konungar Svíþjóðar, Noregs
og Belgíu verða viðstaddir brúð-
kaupið, og frá Hollandi kemur
Júlíana drottning, frá Finnlandi
Kekkonen forseti og frá Bret'
landi Marína prinsessa, sem
verður fulltrúi Bretadrottningar.
Stórhertogahjónin í Luxemborg
verða meðal margra annarra
konunglegra gesta. Fulltrúi
Frafcklandsforseta verður Ohris-
tian Fouchet innanríkisráðherra,
sem var eitt sinn sendiherra í
Kaupmannahöfn.
í ræðu sinni í boðinu í Ama-
lienborgarhöll sagði Gunnar
Thoroddsen ambassador, að ís-
lenzki hesturinn hefði verið
þarfasti þjónn íslenzku þjóðar-
innar í 1000 ár og væri henni
enn hjartfólginn. Hann benti á,
að íslenzki hesturinn væri sér-
staklega góður reiðhestur og
sagði að töltið væri einstakt, þar
sem engir aðrir hestar í Evrópu
kynnu þann gang, sem væri
svo þægilegur að það færi eins
vel um knapann og í hæginda-
stól. Prinessan og Hinrik greifi
dáðust mjög að reiðbúnaðinum,
ekki sízt hinum siifurbúnu svip-
um.
að hann teldi það mikinn heiður
að honum hefði verið boðið edn-
um erlendra sendimanna auk
kanadíska ambassadorsins, sem
afhenti gjöf fulltrúa erlendra
ríkja, tvo nýtízkuilega silfur-
bakka. Gunnar kvaðst telja
þetta lýsa mikilli vinsemd og
velvilja í garð forseta Íí.lands
og íslendinga.
1 skeyti frá NTB segir, að
Friðnik konungur og Ingiríður
drottning hafi í dag tilkynnt
trúlofun næstelztu dóttur þeirra,
Benediktu prinsessu, sem er 23
ára, og þýzka prinsins Richard
Sayn-W ittgenstein-Berleburg.
Tilkinningin var gefiin út að
loknum stjómarfundL
Gunnar sagði fréttaritara Mbl.
Krafa Belgíumanna mun verða
á þann veg, að í næstu viku
verði hafizt handa um eftirfar-
andi: Að fá svar við umsóknun-
um um inngöngu í bandalagið,
að farið verði þess á leit, að
Efnahagsbandalagsnefndin geri
grein fyrir áliti s.ínu varðandi
umsóknirnar. Fram fari fyrsta
könnun á því meðal hinna sex
ríkja bandalagsins, hvaða fyrir-
komulag verði viðhaft varðandi
meðferð þessa máls og að lokum
verði komið á fundi með full-
trúa brezfeu stjórnarinnar, þar
sem hann geri grein fyrir sjón-
armiðum Breta.
Mikil vonbrigði Belgiumanna
í ummælum belgísfcra emlbætt-
ismanna um fund æðstu manna
Efnahagsbandalagsiris í Róm
kama fram mikil vorabrigði, en
þó sagt, að fundurinn hafi ekki
farið algjörlega út um þúfur, Að
því er varðar hinar stjórnmála-
legu umræður í Róm, er lögð
áherzla á, að þær hafi verið af-
ar ruglingslegar og menn hljóti
að yarpa þeirri spurningu fram,
hvort taka eigi þær upp að nýju.
Haft er eftir hollenzkum
stjórnarvöldum, að hugsanlegur
fundur æðlstu manna Efnahags-
'bandalagsins aftur á þessu ári
muni fara fram í Hollandi.
Uppeldismálaþing
/ Melaskólanum
Um þessa helgi er háð upp-
eldismálaþing í Melaskólanum
í Reykjavík. Slík þing eru hald-
in annaðhvort ár og standa að
þedm Samband íslenzkra barna-
kennara og Landseamband fram-
haldsskólakennara.
Skúli Þorsteimsson, formaóur
S.Í.B. setti þingið í gærmorgun,
en síðan flutti ávarp Gylfi Þ.
Gíslason, menntamálaráðherra.
Að því loknu flutti Þórhallur
Vilmundarson, prófessor, erindi
um þjóðernið, skólann og upp-
eldið. Eftir hádegið var opnuð
kennslutækjasýning í Melaskól-
anum og síðdegiskaffi drukkið
í Hóted Sögu í boði borgarstjóra,
Geirs Hallgrímssonar.
í dag kl. 10 segir Andri Is-
aksson, sálfræðiragur, fréttir af
skólarannsóknum, en síðan
verða hringborðsumræður um
kennaramenntuniraa. Þátttakend-
ur eru þeir Matthías Jónasson,
prófessor, Broddi Jólhannesison,
skólastjóri, Magnús Magnússon,
kennari, Sigurþór Þorgilsson,
kennari, Ólafur Ólafsison, kenn-
ari, Jón R. Hjálmansson, sikóla-
stjóri, Stefán Ólafur Jónsson,
námsstjóri og Páll Theódórsson,
eðlisfræðingur. Umræðum stjóm
ar Andri ísaksson, sálfræðingur.
Að lokrau matarhléi, kl. 13.30
flytur Jón Emil Guðjónsson stutt
erindi um starfsemi Rikisútgáfu
námsbóka, álit nefnda verða
lögð frarn og Ólafur S. ÓLafsson,
formaður Landssambarads fram-
holdssikólakennara slítur þirag-
inu. Að þingi loknu verður farið
í heimsókn í skóla í Hafnarfirði
og síðdegiskaffi drukkið í boði
fræðsluráðs Hafraarfjarðar.
Þingið er opið kennurum,
skólamönnum og öðrum, sem
áhuga hafa. Forseti þess er Þór-
arinn Þórarinsson, fyrrv. skóla-
stjóri.
SNEMMA morguns nk. miðviku
dag 7. júraí eru væntanlegur
til landsins hópur V-íslendinga.
Það er íslendingafélagið í Se-
attle á Kyrrahafsströnd Banda-
ríkjanna. sem stendur fyrir þess
ari hópferð.
í hópnum eru 102 manns, og
hefur margt þeirra ekki komið
til fslands ðáur. Ferðast þeir með
leiguflugvél frá flugfélaginu
Pacific Vestern Air Linas. Lent
verður á Keflavíkurflugvelli, og
annast Loftleiðir afgreiðslu vél-
arinnar. Afgreiðsla Loftleiða á
Reykjavíkurflugvelli mun, þegar
þar að kemur, gefa nánari upp-
lýsingar um komu fólksina til
Reykjavíkur. Nöfn farþegarana á-
samt einhverjum upplýsóngum
um þá verða birt í blöðunum
fljótlega efitir komuna. Héðan
fer hópurinn aftur vestur 3. júlí.
(Fréttatilkynning frá Þjóð-
ræknisfélaginu)