Morgunblaðið - 12.08.1967, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.08.1967, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1967 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn og afgreiðsla: Auglýsingar: í lausasölu: Áskriftargjald kr. 105.00 Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Sími 10-1100. Aðalstræti 6. Sími 2&-.4-80. 7.00 eintakið. á mánuði innanlands. LÝÐRÆÐI Á UNDANHALDI ITaldarán hersins í Grikk- " landi hefur orðið mörg- um að umhugsunarefni. 1 Grikklandi stóð vagga lýð- ræðisins, þar blómstraði það og tók út þroska sinn og varð öðrum ríkjum til fyrir- myndar. Á einni nóttu skip- aðist veður í lofti, og nú rík- ir járnagi einræðisins í land- inu. Grikkland er ekki eins- dæmi um slíka þróun, þótt það sé það dæmi sem snertir okkur íslendinga mest. Þró- un stjórnarfars undanfarinna áratuga hefur ætíð verið í einræðisátt. Margar nýlendur hafa fengið sjálfstæði og byggt við það tækifæri stjórnarskrá sína upp á lýð- ræðislegum grundvelli. En sá grundvöllur hefur vegna þjóð félagslegs vanþroska reynzt þeim ótraustur, og einstak- lingar eða fámennir hópar hafa hrifsað til sín völdin, oft með aðstoð hersins. Þeim, sem búið hafa við lýðræði um langan tíma, hættir til að gleyma hvers virði það er. Hinn kunni rit- höfundur Stefan Zweig komst svo að orði, að persónulegt frelsi væri æðstu gæði jarðar. Á korti því sem Morgunblað- ið lét gera og birtist hér á opnunni má sjá hve tiltölu- lega fá lönd og lítill hluti heimsbúa býr við þessi gæði. Niðurstöður kortsins undir- strika þá nauðsyn, að þau lönd sem búa enn við lýðræði haldi vöku sinni á verðinum um þau dýrmætu réttindi og skyldur sem á hverju þegn- frjálsu landi hvíla. NÁTT ÚRUVERND - EÐA EKKI ins og kunnugt er af frétt- um, hefur risið ágrein- ingur um svonefndan kísil- gúrveg við Mývatn, og sýnist þar sitt hverjum. Hér í blað- inu hefur margsinnis verið bent á, að jafnframt því sem nauðsynlegt er að byggja upp stóriðju hér á landi, verður að gæta þess vand- lega, að ekki verði framin náttúruspjöll úti í sveitum landsins. Hinn 3. þ. m. efndi Nátt- úruverndarráð til fundar að Reykjahlíð við Mývatn. Auk meirihluta ráðsins var fund- urinn haldinn með þátttöku skipulagsstjóra ríkisins, vega- málastjórnarinnar, náttúru- verndarnefndar S-Þingeyjar- sýslu og hreppsnefndar Skútustaðahrepps. Allar að- stæður varðandi vegarstæði væntanlegs þjóðvegar milli Reykjahlíðarhótels og Gríms- staða voru kannaðar, og þó einkanlega kaflinn næst Reyk j ahlí ðarbyggðinni. Að loknum þessum ítarlegu athugunum hefur Náttúru- verndarráð gert samþykkt þess efnis, að óskað verði eft- ir því við menntamálaráðu- neytið að það stöðvi fram- kvæmd verksins á grundvelli laga um náttúruverndun þar eð „hinn fyrirhugaði þjóðveg- ur á þessum kafla myndi að dómi ráðsins valda veruleg- um náttúruspjöllum." Jafn- framt ítrekar ráðið fyrri til- lögu sína um að vegarstæðið verði ákveðið sem næst nú- verandi þjóðvegi á kaflanum frá Reykjahlíðarhóteli vestur fyrir flugvöllinn. Náttúruverndarráði hefur verið falið að hafa yfirum- sjón og eftirlit með náttúru landsins og koma í veg fyrir náttúruspjöll. Við verðum að gera þær kröfur til þeirra ágætu manna, sem hafa það mikla hlutverk á hendi að vernda íslenzka náttúru, að þeir standi vel á verði. Og við verðum einnig að gefa orðum þeirra gaum, þegar þeir telja að hætta sé á ferð- um. Nú hefur ráðið komizt að þeirri niðurstöðu, eftir vandlega athugun, að það mundi valda verulegum nátt- úruspjöllum, ef hinn fyrir- hugaði þjóðvegur yrði lagður eins og ráðgert er. Annað hvort verðum við að taka til- lit til óska Náttúruverndar- ráðs og veita því víðtæk völd til þess að koma í veg fyrir náttúruspjöll, eða þá að hafa það einungis til punts. Það hlýtur að vera í anda lag- anna, að Náttúruverndarráð hafi mikil og heillavænleg áhrif á náttúruverndun í landinu. Af þessum sökum virðist ekki annað fært en fara að ráðum þess og stöðva lagningu hins fyrirhugaða vegar við Mývatn. [. EVRÓPA. 1. Island: lýðræði — lýðveldl 38. Filippseyjar: 39. Indónesia: 2. Noregur: lýðræði — þingbundin konungsstjórn 40. Malaysia: 3. Svíþjóð: Iýðræði — þingbundin konungsstjóm 41. Kambodia: 4. Finnland: lýðræði — lýðveldi 42. Laos: 5. Danmörk: lýðræði — þingbundin konungsstjórn 43. Thailand: 6. Bretland: lýðræði — þingbundin konungsstjórn 44. Burma: 7. trland: lýðræði — lýðveldi 45. Bhutan: 8. Holland: lýðræði — þingbundin konungsstjóm 46. Pakistan: 9. Belgía: lýðræði — þingbundin konungsstjórn 10. Luxemburg: lýðræði — lýðveldi 47. Nepal: 11. Frakkland: lýðræði — stjóm Gaullista 48. Indland: 12. Spánn: einræði Francos 49. Ceylon: 13. Portúgal: einræði Salazars 50. Afganistan: 14. ttalia: lýðræði — lýðveldi 51. Iran: 52. Irak: 15. Sviss: lýðræði — lýðveldi 16. Austurríki: lýðræði — lýðveldi 53. Kuwait: 17. V-Þýzkaland: lýðræði — iýðveldi 54. Saudi-Arabí 18. A-Þýzkaland: einræði kommúnista 55. Vemen: 19. Pólland: einræði kommúnista 56. Sýrland: 20. Tékkóslóvakía: einræði kommúnista 57. Jórdanía: 21. Ungverjaland: einræði kommúnista 58. Líbanon: 22. Júgóslavía: einræði kommúnista 23. Albanía: einræði Stalínista 59. Israel: 24. Grikkland: einræði hersins 25. Búlgaría: einræði kommúnista 26. Rúmenia: einræði kommúnista m. AFRlKA. 27. Tyrkland: takmarkað lýðræði — lýðveldi 60. Egyptaland: 28. Ráðstjórnarríkin: einræði kommumsta 61. Sudan: 62. Eþiópía: U. ASÍA. 29. Mongólía: 30. Tíbet: 31. Kínv. alþýðulýðv.: 32. N-Kórea: 33. S-Kórea: 34. Japan: 35. N-Víetnam: 36. S-VIetnam: 37. Formosa: einræði kommúnista einræði kínverskra kommúnista einræði kommúnista einræði kommúnista takmarkað lýðræði — Iýðveldi iýðræði — keisaradæmi einræði kommúnista takmarkað lýðræði — stjóm Kys hershöfðingja einræði Chang kai-sheks 63. Franska Sómalía: 64. Sómalía: 65. Uganda: 66. Kenya: 67. Tanzania: 68. Malawi: 69. Zambia: 70. Rhodesia: 71. Mozambique: 72. Madagaskar: MORGUNBLAÐH), LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1967 iýðræði — iýðveldi einræði hersins lýðræði — lýðveldi einræði prins Norodoms elnræði Sri Savang Vathana takmarkað einræði Rama IX. konungs takmarkað einræði hersins einræði Bhutans National Congress- flokksins einræði Ayub Khans forseta einræði Shah Deva konungs lýðræði — brezkt samveldisland lýðræði — lýðveldi einræði Mohammed Zahir Shah einræði Mohammed Shah Pahlavi einræði Abdels Rhaman Arefs hersh. einræði Sheiks As-Sabah einræði Faisals konungs borgarastyrjöld einræði Baath flokksins og hersins takmarkað lýðræði — Hussein konung- ur valdamikill takmarkað lýðræði — forseti valda- mikili lýðræði — lýðveldi einræði Nassers forseta takmarkað einræði ættbálka takmarkað lýðræði — Haile Selassie keisari valdamikill nýlenda Frakka einræði Osmans forseta einræði Mitto Obote forseta einræði Jomo Kenyatta einræði Juliusar K. Nyerere einræði dr. H. Banda einræði Kaunda forseta einræði hvítra manna (stjórn Ians Smiths) einræði Portúgala takmarkað lýðræði — Tunku Abdul Rahman valdamikill 73. S-Afríka. 74. Lesotho: 75. Botswana: 76. S-V-Afríka: 77. Angola: 78. Kongó: 79. Kongólýðveldið: 80. Gabon: 81. Cameroon: 82. Mið-Afríka: 83. Chad: 84. Niger: 85. Nigeria: 86. Dahomey: 87. Togo: 88. Ghana: 89. Efri-Volta: 90. Fílabeinsströndin: 91. Liberia: 92. Sierra Leone: 93. Guinea: 94. Mali: 95. Gambia: 96. Senegal: 97. Máritanía: 98 Spánska Sahara: 99. Marokkó: 100. Alsír: 101. Túnis: 102. Libya: IV. AMERÍKA. a) Norður-Amerika 103. Kanada: 104. Bandaríkin: einræði hvítra manna lýðræði — Jonathan forseti þó valda- mikill takmarkað einræði Khama forseta einræði hvítra manna einræði Portúgala einræði sambandsstjórnarinnar (hers- ins) takmarkað lýðræði takmarkað einræði Léon M’Ba hers- höfðingja takmarkað lýðræði — forsetinn valda- mikill einræði Jeans Bedels Bokassa forseta lýðræði — lýðveldi takmarkað einræði forseta borgarastyrjöld takmarkað iýðræði — forsetinn valda- mikill einræði — en áformað að hafa þar kosningar svo fljótt sem unnt er einræði þjóðfrelsisráðsins (hersins) takmarkað einræði Lamizana forseta lýðræði — lýðveldi lýðræði — lýðveldi takmarkað einræði hersins einræði PDG flokksins takmarkað einræði Keita forseta takmarkað einræði Sighateh hershöfð- ingja lýðræði — lýðveldi takmarkað einræði Daddah forseta einræði Spánverja einræði Hassans konungs II einræði Houari Boumedienne takmarkað lýðræði — Bourguiba for- seti valdamikill einræði Mohammeds As-Sanusi lýðræði — brezkt samveldisland lýðræði — lýðveldi b) Mið-Ameríka 105. Mexíkó: 106. Kúba: 107. Haiti: 108. Dominkanska Iýðv.: 109. Guatemala: 110. E1 Salvador: 111. Honduras: 112. Jamaica: 113. Nicaragua: 114. Costa Rica: 115. Panama: lýðræoi — en forseti valdamikiil einræði kommúnista (Kastros) einræði Francois Duvalier lýðræði — lýðveldi v takmarkað einræði forseta og hers takmarkað einræði Caraballos forseta takmarkað einræði forseta lýðræði — brezkt samveldisland einræði forsetans Iýðræði — lýðveldi takmarkað einræði forsetans c) Suður Ameríka 116. Kolombía: 117. Venezuela: 118. Guyana: 119. Brezka og Hollenzka Guyana: 120. Brasilía: 121. Paraguay: 122. Uruguay: 123. Argentína: 124. Chile: 125. Bolivía: 126. Peru: 127. Ecuador: takmarkað lýðræði — forsetinn valda- mikill takmarkað lýðræði — forsetinn valda- mikill lýðræði — lýðveldi nýlendur einræði hersins og E. Silva forseta einræði Alfredos Stroesners lýðræði, en forseti valdamikill einræði hersins og Juans Carlos Ongania lýðræði, en forsetinn valdamikill einræði Barrientos forseta takmarkað einræði forseta og hers lýðræði — lýðveldi V. ASTRALÍA. 128. Astralía: lýðræði — brezkt samveldisland 129. Nýja-Sjáland: lýðræði — lýðveldi Við gerð meðfylgjandi korts var valin sú leið að skipta stjórn- arháttum í löndum heims í fjóra flokka: Lýðræði, takmarkað lýð- ræði, takmarkað einræði og einræði. Borgarastyrjöld er ríkjandi í tveimur löndum, Yemen og Nigeríu og því ekki hægt með neinu móti að flokka þau undir neinn hinna fjögurra flokka. Það gefur hinsvegar auga leið, að oft er erfitt að flokka stjórnar- far einstakra landa undir einn þessara fjögurra flokka og þó t. d. Framihald á bls. 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.