Morgunblaðið - 25.08.1967, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1»67
Jerúsalem, 21/8
(Einkaskeyti AP).
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
vann ísraelska piltinn Avraham
Neumann í B-flokki á IX. heims-
meistaraskákkeppni unglinga í
Jedúsalem. Guðmundur hefur
hlotið 214 vinning úr þremur
skákum.
Úrslit 3. umferðar, sem var
tefld í dag: (Úrslitaflokkuri.
Julio Kaplan (Puerto Rico)
vann Day (Kanada); Raymond
Keene (Englandi) vann Terje
Wibe CNoregi); Lennart Asp-
lund (Svíþjóð) vann Amikan
Balshans (ísrael); Biðskák var
hjá Dumitru Chizdavu (Rú-
meníu) og Jan Timman (Hol-
landi). Vestur-þjóðverjinn Ro-
bert Huebner sat yfir. Úrslit
biðskáka úr 1. umferð: Keene
og Asplund gerðu jafntefli.
Úrslit biðskáka úr 2. umferð:
Kaplan vann Wibe, en Ghizdavu
og Asplund gerðu jafnteflú
Staðan eftir þrjár umferðir:
1. Kaplan 3 vinninga; 2. Huebn-
er 2 vinninga (af 2 mögulegum);
3—4. Keene og Asplund 2 vinn-
inga! 5. Ghizdavu 1 ( + 1 bið-
skák); 6—8. Balshan, Day og
Timman % vinning hver og
Wibe rekur lestina, en hann
hefur tapað öllum skákunum.
í B-flokki urðu úrslit 3. um-
ferðar: Carlos Cabezudo (Uru-
guay) vann Vagn Jensen (Dan-
mörku); Guðmundur Sigurjóns-
son vann Avraham Neumann
(ísrael); Michael Woodhams
(Ástralíu) vann Walter Pils
(Austurríki) en skák þeirra
Salvatore Matera (USA) og
Nicolas Skalkotas (Grikklandi)
fór í bið. Cabezudo og Tomjuri
gerðu jafntefli í biðskák sinni
úr 1. umferð.
Staðan í B-flokki eftir 3. um-
ferðir: 1. Woodhams 3 vinninga;
2—3. Lombard (Sviss) Og Guð-
mundur 2X4 vinning hvor; 4.
Matera IV2 vinning (+ biðsk.)
5. Cabezudo 1% vinning; 6. Skal
kotas 1 vinning (+ 1); 7—10.
Tompuri (Finnlandi), Neumann,
Jensen og Pils vinning hver.
Eigendur rússneskra
bíla stofna með sér
félag
STÖRFELLDAR GETNAD-
ARVARNIR í PAKISTAN
Fjölgun þar meiri en á Indlandi
Eftir Mohammed
Attab
Rawalpindi, Pakistan,
(Associated Press)
STJ6RNIN í Pakistan hefur,
þrátt fyrir harða andstöðu í-
haldsamra Múhameðstrúar-
manna, hrundið af stokkun-
um djarfri og víðtækri áætl-
un um takmörkun á barns-
eignum íbúanna, sem Ayub
Khan, forseti, kveðst vona,
að afstýri yfirvofandi neyðar-
ástandi í landinu.
„Ef ekkert er gert til til
hefta mannfjölgunina, rennur
mér kalt vatn milli skinns
og hörunds við tilhugsunina
um, hvað ske mun á næstu
áratugum", segir Ayub. „Eina
ekki hér til að horfast í augu
huggun mín er sú, að ég verð
við afleiðingarnar, en kom-
andi kynslóð mun ekki fyrir-
gefa okkur skammsýnina.
Á því hefur lítil athygli
verið vakin á heimsfréttum,
að íbúatala Pakistans, sem nú
er um 112 milljónir, vex enn
hraðari skrefum en nágranna-
ríkis þeirra, Indlands.
Indverjar eru nú um 510
milljónir og fjölgar um 10
milljónir á ári, þ.e. um 2%,
en Pakistönum fjölgar um 2,7
milljónir á ári, eða um 2,5%.
Þar sem Pakistan er nú þeg-
ar orðið eitt af þéttbýlustu
svæðum veraldar (270 íbúar
að meðaltali á hverja fermílu,
í samanburði við 175 að með-
altali í Asíu, óttast menn, að
efnahagur Iandsins þoli ekki
þessa fjölgun.
Þrátt fyrir þennan ótta hafa
Múhameðstrúarmenn mót-
mælf áætluninni um takmörk
un barneigna, á sama hátt og
heittrúaðir Hindúar hafa gagn
rýnt slíkar ráðstafanir stjórn
arvalda í Indlandi.
Næstum 80% af íbúum Pak
istans búa í sveitum, þar sem
ihaldsemi er miklu meiri en
í borgum. En stjórnin gerir
allt, sem í hennar valdi stend
ur, til að sigrast á mótspyrnu
við getnaðarvörnum. Um 2
þúsund getnaðarvarnarstöðv-
ar hafa verið settar á stofn,
einkum í sveitahéruðum, og
von er á 3 þúsund stöðvum
í viðbót á næstu 3 árum.
Samtals nema fjárveiting-
ar stjórnarinnar til getnaðar-
varnaáætlunarinnar fram til
1070 um 2,5 milljörðum ísl.
kr.
. Eins og í Indlandi leggur
heilbrigðismálaráðuneyti Pak
istans aðaláherzlu á notkun
hins fasta getnaðarvarnatæk-
is, sem komið er fyrir í kon-
unni, og nefnist „lykkja“.
ÞRIÐJUDAGINN 30. maí sl.
boðuðu 38 eigendur rússneskra
bifreiða á Suðurnesjum til stofn
fundar i Aðalveri í Keflavík.
Lög fyrir félagið voru lögð
fram og samþykkt á fundinum.
Eru þau að mestu sniðin eftir
lögum Fíateigendafélagsins,
enda tilgangur félagsins sá
sami, að leitast við að sameina
eigendur rússneskra bifreiða til
þess að gæta hagsmuna þeirra
gagnvart söluumboði bifreið-
anna, framleiðanda, viðgerðar-
verkstæðum og allri þjónustu.
Ennfremur að stuðla að
fræðslu félagsmanna um gerð og
meðferð rússneskra bifreiða.
Félagið er stofnað og starfar
í tengslum við Félag íslenzkra
bifreiðaeigenda (F.Í.B.) Síauk-
mn innflutningur bifreiða und-
anfarin ár hefur skapað það, að
vegakerfi landsins ásamt um-
ferðaröngþveiti í borg og bæj-
um valda skemmdum á bifreið-
um, sem nemur tugmilljónum
króna árlega. Þær raddir verða
EINS og áður hefur verið getið
um í Mbl. var m.s. Gullfoss kærð
ur fyrir að sleppa útbyrðis olíu
úti fyrir ströndum Bretlands. fs-
land er aðili að samþykkt, sem
gerð var 1954 um verndun sjáv-
ar gegn olíumengun og hefur
einnig gengizt undir þær breyt-
ingartillögur, er gerðar voru á
samþykktinni 1962. Eru fslend-
ingar þvi skuldbundnir til þess
að hlýða þessari alþjóðasam-
þykkt.
Skipaskoðunarstjóri hefur gef
ið út tilkynningu í framhaldi af
þessum atburði með Gullfoss, en
eins og menn rekur minni til
var þar aðeins um skolvatn úr
lestum að ræða, og í þeirri til-
kynningu varar hann islenzk
skip við hvers konar aðgerðum
í þessu tilliti. Tilkynningin er
svohljóðandi:
„Eftir „Torrey Canyon" slysið
hefur víða verið hert mjög á
eftirliti með olíuóhreinkun sjáv-
ar.
Board of Trade í Bretlandi
hafa varað sjófarendur við, aS
dæla olíu í sjó við Bretlands-
strendur og halda strangan vörð
með 3kipum og flugvélnm, svo
, hætta á kærum og refsingu er
j mikiL
því æ samstilltari, sem óska eft
ir að varahlutir og viðgerðar-
þjónusta sé fyrir hendi á þeim
stöðum sem mesta þjónustu ann
ast fyrir byggðalög landsins.
Bifreiðaeign og bifreiðanotkun,
mun vera orðin nokkuð jöfn í
öllum landshlutum, fjöldi fólks
í bæjum og strjálbýli á afkomu
og atvinnumöguleika sína
háða þessum farartækjum. Bif-
reiðin er orðin þarfasti þjónn-
inn í þessu landi. Eigendur
rússneskra bifreiða gera því
kröfu til bættrar þjónustu um
leið og þeir gera þá kröfu að
þjóðvagir landsins verði akfær-
ir.
Eins og að framan segir er
félagið stofnað í tengslum við
F.Í.B., sem mun gefa frekari upp
lýsingar um stofnun félagsins.
Stjórn félagsins til næsta að-
alfundar, sem haldinn skal í
október, samkv. lögum félagsins,
skipa Guðfinnur Gíslason, Kefla
vík, Ragnar Eðvarðsson, Kefla-
vík, Hjörtur Þórðarson, Kefla-
vík.
Engin hámarkstakmörk eru
fyrir bótakröfum þeim, sem gera
má á hendur skipstjórum, sem
gerast brotlegir við hin brezku
ákvæði um olíuóhreinkun á
svæðinu umhverfis Bretland,
kemur jafnvel fangelsisvist til
greina.
Sem dæmi um það, hve alvar-
legum augum er litið á olíu-
óhreinkun sjávar erlendis, má
nefna að norskir skipstjórar
hafa verið dæmdir í 400 ástr-
alskra punda sekt fyrir óhreink-
un sjávar nálægt höfninni í
Melbourne og £50 sekt og £20
í málskostanað fyrir að óhreinka
enska höfn.
Ennfremur hefur vélstjóri
nokkur á norsku skipi
verið kærður fyrir það
að lensa hreinu kjölfestu-
vatni í gegnum dælu og leiðslur,
sem rétt áður höfðu verið not-
aðar við dælingu á dieselolíu.
Enskur dómstóll hefur ný-
lega dæmt útlendan skipstjóra í
£750 sekt fyrir að hafa dælt
hráolíu í sjó við Bretlandsstrend
ur og sennilegt er að auk þess
verði gerðar bótakröfur á hend-
ur eigendum skipsins að upp-
hæð £27.000. „ •
Skipaskoðunarstjóri
EINS og kunnugt er fór Heims-
meistarakeppnin í bridge fram
í Miami Beach í Bandaríkjun-
um. ítalska sveitin sigraði sveit-
ina frá N-Ameríku í úrslitun-
um með 338 stigum gegn 227.
Að þessu sinni var keppninni
hagað þannig, að fyrst var háð
undankeppni, sem skipt var í
15 umferðir og að þeirri undan-
keppni lokinni mættust 2 efstu
sveitirnar i úrslitaleik, Þar sem
öll úrslit í þessum 15 umferðum
í undankeppninni hafa ekki birzt
hér í blaðinu þá fara þau hér
á eftir:
1. umferð:
Ítalía — FrakklEind Thailand — Venzuela 12—8 15—5
2. nmferð: Frakkland — N.-Ameríka Ítalía — Thailand 19—1 19—1
3. umferð: Venezuela — Ítalía N.-Amería — Thailand 11—9 19—1
4. umferð: Ítalía — N.-Ameríka Frakkland — Venezuela 17—3 19—1
5. umferð: Frakkland — Thailand N.-Ameríka — Venzuela 18—2 12—8
6. umferð: N.-Ameríka — Frakkland Ítalía — Thailand. 17—3 12—8
7. umferð: N.-Ameríka — Ítalía Thailand — Venzuela 16—4 16—4
8. umferð: Ítalía — Venzuela í'rakkland — Thailand 20—0 15—5
9. umferð: N.-Amerika — Venzuela ítaMa — Frakkland 12—8 18—2
10. umferð: N.-Amerika — Thailand Frakkland — Venezuela 17—3 20—0
11. umferð: Ítalía — N.-Ameríka Venezuela — Thailand 15— 5 16— 4
12. umferð; N.-Ameríka — Thailand ítaMa — Frakkland 20—0 20—0
13. umferð:
N.-Ameríka — Venezuela 20—0
Thailand — Frakkland 13—7
14. umferð:
N.-Ameríka — Frakkland 19—1
Venezuela — Ítalía 11—9
í SUMAR var vígt á Dalvík
iþróttahús, sem framkvæmdir
hófust við 1963. Er nú fullgerð-
ur íþróttasalur, búningsherbergi
böð og áohrfendasvæði fyrir 300
manns.
Hilmar Danielsson, sveitiar-
stjóri á Dalvík tjáðd Mbl. í gær
að salurinn væri um 360 fer-
metrar. Eftir er að ganga frá and
dyri, fatageymslu og snyrtiher-
bergjum fyrir áhorfendur. Ekki
er ákveðið enn, hvort breytt
Fjöldamálaferli
i Aþenu
Aþenu, 23. ágúst — AP—NTB —
37 MENN komu í dag fyrir her-
dómstól í Aþenu ákærðir fyrir
að hafa prentað og dreift flugu-
miðum í Aþenu i maí sL, þar
sem Grikkir voru hvattir til
þess að gera uppreisn gegn her-
foringjastjórninni. Meðal hinna
ákærðu eru Katsikopoulos, fyrr
verandi þingmaður miðflokka-
sambandsins, Peponis, fyrrver-
andi útavrpsstjóri í Aþenu og
fleiri fyrrum háttsettir stjórn-
mála- og embættismenn í Grikk
landi. Margir hinna ákærðu
voru félagar í miðflokkasam-
bandinu og æskulýðshreyfingu
þess. Þeir voru handteknir í
júní, og hafa setið í fangelsi síð
an.
JAÐARSMÓT íslenzkra ung-
templara var haldið um síðustu
helgi. Mótið sóttu um 1500
manns, en margir þátttakenda
dvöldu í tjaldbúðum um helgina,
og fór mótið vel fram. Þetta er
í tíunda skipti sem íslenzkir ung
templarar efna til þessa móts
fyrir unga fólkið í Reykjavík og
nágrenni.
Mótið að Jaðri var sett á laug-
ardag, en þá um kvöldið var
skemmtikvöld og dans stiginn á
tveimiur stöðum, inni að Jaðri
og í stóru samkomutjaldL — Á
15. umferð:
Frakkland — Venezuela 20—0
ítalía — Thailand 15—9
Lokastaðan varð þessi: Ítalía
170 stig, N.-Ameríka 161, Frakk-
land 132, Thailand 73 og Vene-
zuela 64.
verði fyrri áætlun um gerð and
dyrisins, og á því gerðar ein-
hverjar breytingar.
Mikill íþróttaáhugi er á Dal-
vík og var orðin mjög brýn þörf
á húsi þessu, sem er mjög vand-
að, teiknað £if Gísla Halldórs-
syni, arkitekt og Jósepi Reynis.
Yfirsmiður var Jón Stefánsson
byggingameistari.
Með tilkomu hússins hefur
verið ráðinn íþróttakennari,
Matthías Ásgeirsson úr Hafnar-
firðL
Vill skilja Við
Sukarno
Djakarta, 23. ágúst — NTB —
RATNA Sari Dewi, eiginkona
Sukarnos fyrrum forseta, en
hún er af japönsku bergi brot-
in, vill sækja um skilnað frá
manni sínum, sökum þess að
hún telur, að hinn 66 ára gamli
eiginmaður hennar eigi ekki
lengur neina framtíð fyrir sér.
Frú Dewi hyggst búa í Japan
þar sem hún hefur dvalið síð-
ustu mánuði ásamt lítilli dóttur
sinni. Hún er fús til þess að
hitta Sukarno til þess að koma í
veg fyrir, að hún verði svipt
eignum sinum í Indónesíu og þá
fyrst og fremst glæsilegu húsi,
sem hún á í Djakarta.
sunnudag var guðsþjónusta kL
14.30, séra ÁreMus Nielsson pre-
dilkaði. Síðar um daiginn var
skemmtidagskrá: Birna Aðal-
steinsdóttir söng þjóðlög, þjóð-
dansaflokkur sýndi dansa og
Ómar Ragnarsson skemmrti með
leik og söng. Þá var handknatt-
leikskeppni og áttust við lið frá
ungtemplarafélögunum Hrönn og
Árvak í Keflavik. Sigruðu hinir
síðarnefndu. Jaðarsmótirxu lauk
síðan með dansleik, en flugeld-
um< var skotið á miðnættL
Hert á eftirliti með
olíuóhreinkun sjávar
Nýfft íþróttahús
á Dalvík
Fjölsótt Jaðarsmót