Morgunblaðið - 17.09.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. SEPT. 1967
BILA
IQGA
mmmm.
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI21 símar 21190
,lr lokun s!mi 40381 "
1-44-44
mfíiFW/R
Hverfisgötu 103.
Siml eftir tokan 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstrætl 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalií í leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Sími 35135,
Eftir lokun 34936 og 36217.
FYRIRHDFN
x-:.. *bua ir/erAJf
RAUOARÁRSTfG 31 SfMI 22022
flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
(Jtvarps- og sjónvarpstæki
Hafmagnsvörubiíðin sf
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670 (næg bílastæði).
Ný íslenzk
skáldsaga
Bókaútgáfan Tvistur
Bezt gð auglýsa
1 Morgunblaðinu
Nægir einn sendi-
herra fyrir SAS-
löndin?
„Starkaður" skrifar:
„Velvakandi!
Það hefur stundum verið
kölluð ofrausn af Islendingum
að halda úti þremur ambassa-
dorum á Nor'ðurlöndum, en for-
mælendur þess hafa talið, að
sérstakt vinfengi okkar við hir>
ar Norðurlandaþjóðirnar rétt-
'ætti þau útgjöld, sem af þessu
leiða.
Nú hefur það sannazt í Loft-
leiðamálinu, að við okkur ís
lendinga vilja Norðurlandabúat
ekki tala, fyir en þeir Danir
Svíar og Norðmenn hafa tvkið
sanieiginlega afstöðu til þeirra
mála, sem við teljum okkul
þurfa að fá leiðrétt í Skandi-
navíu.
Ef svo fer fram lengi sem nú
horfir, þá er alveg árei'ðanlegt
að íslendingar munu taka hio
norrænu ambassadorsmál sín
til endurskoðunar, og ef horfið
verður til þess að fækka þeim
þar um tvo, þá mega Norður-
landabúar sjálfum sér um
kenna, en tkki okkur Islend-
ingum.
Starkaður*
Vill hafa K-sjón-
varpið með R-sjón-
varpinu
Enn berast bréf um sjón
varpsmál, og virðast flesti
vilja halda K- sjónvarpinu
(Keflavíkursjónvarpinu) og
hafa það með R-sjónvarpinu
(Reykjavíkursjónvarpinu). —
En þeir verða sennilega aldrei
um það spurðir, hvað þeir vilja
og hvað ekki. Ákvörðun heful
verið tekin. — Hér birtast nokfe
ur sýnishorn af þessum bréfum
og nefur Veivakandi reynt áð
láta öll sjónarmið koma tram
og heldur valið hin hógværari
bréf, þvi að sannast sagna el
mörgum mjög þungt niðri fyril
ins og gæta þá orða sinna ekki
vegna útilokunar K-sjónvarps
alltaf sem skyldi.
Tryggve D. Thorstensen skril
ar meðal annars:
„... allir landsmenn vita nú
þegar, að BandarikjamenD
munu taktnarka útsendingar
sínar, og er talið svo heita, að
sú ákvörðun komi frá þeira
sjálfum. En skyldi það vera
rétt? — Bréfritari spyx síðap
hvort þeir hafi ekki verið beðn-
ir um a’ð takmarka útsending-
arnar....af ótta við hina svo-
kölluðu hernámsandstæðinga
sem hafa allt á hornum sér og
þykjast vera meiri íslendingai
en allir hinir, sem eru lausil
við allt ofstæki í pólitíkinni
Um K-sjónvarpið er það að
segja, að margan fróðleik ei
þangað að sækja, svo og
skemmtiatriði“. Öllum þyki þt
miður að sjá stríðsgiæpamynd-
ir, „en þá er bara hægt að
skrúfa fyrir“.
Bréfritari minnist síðan sér-
staklega á Perry Mason-þáttinn
sem honum finnst ágætur, oj
„þátturinn „This is the life“
sem fjallar um trúmál. Sá þátt-
ur minnir mann á, a'ð hægt ei
að iifa í sátt og samlyndi við
allar þjóðir, ef við viljum gefa
heilagri ritningu gaum. í þess-
um þætti eru sýnd ýmis vanda-
mál úr daglega lífinu, og hverrv
ig hægt er að leysa þau á ham-
ingjusamlegan hátt.
Margt ágætt er hægt að segja
um íslenzka sjónvarpið og líka
pfugt, eins og gengur. En ntí
spyr ég: Hver er munurinn á
að horfa á glæpamyndir í R-
sjónvarpinu og K-sjónvarpinu?
Þeir, sem eru á móti Banda-
ríkjamönnum í öllu þykjasl
e. t. v. geta gefið rétt svar
eða skyldi pað vera, að þeil
vildu helzt sjá þetta í rúss-
nesku sjónvarpi?"
Að lokum segist bréfritári
hafa ástæðu til að ætla, að P-
sjónvarpið batni stö'ðugt, enda
sé það undir stjórn ágætra
manna, og minnist sérstaklega á
Vilhjálm I> Gíslason. ,,Ég fyril
mitt leyti vildi gjaman hafa
K-sjónvarpið með R-sjónvarp
inu, þangað til við höfum náí
okkur betur á strik“.
★ Vinsælasta efnið
— Velvakandi vill skjóta
því hér inn í. að mjög greini
legt er, hvert hefur verið vii>
sælasta efnið í K-sjónvarpinu
eftir hinum mörgu bréfum, sem
honum hafa borizt, að dæma
í>að eru fræðslu- og fréttamynd
ir, upprifjun sögulegra við-
burðá, trúmálaþættir (ekki
sízt) og Perry Mason. Virðisf
af þessu, a’ð smekkurinn haf
ekki verið svo afleiiur, og VeJ
vakandi dirfist að halda þv’
fram, að öll bréfin, sem honunr
hafa borizt, séu e. k. skoðana
könnun meðal almennings um
K-sjónvarpið.
Þakklætiskveð|ur
til Keflavíkursjón-
varpsins
„Húsmóðir í Austurbæn-
um“ skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Nú, þegar við höfum ekki
lengur möguleika á að horfa á
Keflavíkursjónvarpið, bið ég
þig að birta í dálkum þínum
þakklæti mitt fyrir fræðslu- og
skemmtiéfni, sem ég og fjöl-
skylda mín höfum haft frá K-
sjónvarpinu nokkur undanfarin
ár.
Messurnar, „Svona er lífið“
og fræðsluþættir ýmsir hafa
verið mjög uppbyggjandi.
„Password“ hefir aukið ensku-
orðaforða okkar.
Persónulega hefi ég glaðzt
yfir vakningar- og trúarsálm-
um, sem sumir skemmtikraft-
ar hafa lokið þáttum sínum
með. Það, sem mér geðjast ekki
að, hefi ég ekki hoft á.
Skýringin á tak-
mörkuninni — o g
þakkir til strætis-
vagnastjóra
,4Iúsmóðir“ skrifar'
„Kæri Velvakandi!
Ég get ekki lengur orða
bundizt út af bréfum þeim, sem
sífellt eru að berast þér út af
Keflavíkursjónvarpinu. Ég sé
ekki, að fólk geri sér grein
fyrir ástæðunum fyrir lokun
sjónvarpsins.
Ég vil taka það fram, að
ég hefi haft mjög mikla
ánægju af mörgum þáttum
Keflavíkursjónvarpsins, en það
aftrar mér ekki frá því a'5
reyna að gera mér grein
fyrir því óhjákvæmilega. Nú
hefur margoft komið fram, áð
hersjónvarpið bandaríska er
ekki rekið á sama grundvelli
og ríkissjónvörp. Það byggist
nær eingöngu á þáttum, sem
framleiðendurnir lána eða
leigja bandaríska hernum gegn
mjög vægu gjaldi. Þessir fram-
leiðendur vilja selja okkur, eins
og öðrum sjónvarpsstöðvum
um allan heim, vöru sína. Því
er það ákaflaga skiljanlegt, að
þeir sætti sig ekki við að við
sjáum þætti þeirra ókeypis hjá
sjónvarpsstöð, sem greiðir þeim
lítið sem ekkert fyrir þættina.
Þessi stáðreynd finnst mér
mjög vel skiljanleg, og ég hell,
að margir þeir, sem skrifa þér
og tala um frelsisskerðingu, ill-
girni íslenzkra ráðamanna og
þ. h., hafi aldrei hugsað til
botns þetta mál. Það kostar
mikið fé að kaupa dýra sjón-
varpsþætti, og ég held ekki,
að við vildum greiða hátt af-
notagjald fyrir bandaríska sjón-
varpið auk þess sem við greið-
um fyrir íslenzkt sjónvarp.
Svo læt ég útrætt um það
mál.
Mig hefur lengi langað til
þess að biðja þig um áð skila
þakklæti til strætisvagnastjóra
fyrir það, hve mjög þeir eru
liðlegir í umferðinni yfirleitt,
og mættu margir taka sér þá til
fyrirmyndar.
Með þakkiæti fyrir birtingu.
„Húsmóðir".
Vill eina undir-
skriftarsöfnunina
enn
„Þá eru aftu.rhaldsseggim-
'r búnir að koma því til leiðar,
að Ketlavíkursjónvarpi’ð verð-
ur tekið frá okkur. Hvernig er
þettn eiginlega með þetta land
okkar, island? Hér er ekkert
leyfilegt, sem ieyfist í sjö-
menntuðum löndum (ísland er
varla hægt að kalia siðmentað,
sem daemin sanna). Hér er
ekkert tillit tekið til fjöld-
ans. Fimemar klíkur sjálfskip-
aðra „menningarvita“!! eða
grúttemplara (nei, þetta er ekki
prentvilla) ráða hér öllu, sbr.
lokun Keflavíkursjónvarpsins
(60 menningarnir illræmdu),
og bannið á góða bjórnum og
vínmálin í heild. Nú, og hægri
akstur, auðvitað á að koma hon
um á, þótt fjöldinn sé á móti.
Hvernig haldi'ð þið eiginlega a”
íslenzka sjónvarpið verði í fram
tíðinni, þegar ekki er lengur
hið bandariska til að bera sig
saman við. Hundleiðinlegt.
Enda er strav farið að bera á
leiðinlegheitunum.
Þið birtið þetta kannski ekki.
Finnst senniiega fullmikið um
stóvyrði í greininni. En það,
sem mér liggur helzt á hjarta,
er það, hvort þið bláðamenn
góðir, gætuð ekki hvatt til þess,
að hafin verði undirskriftasöfn-
un um að skora á hr. Stein (I.?r.
Stone), herformgja á Keflavík-
urflugvelli, að láta ekki loka
Keílavíkursjónvarpinu.
Ég trúi ekki öðru en ef fengj-
ust svona 60.000 manns til að
skrifa undir (en ég er ekki
frá því, að þeirri tölu væri
hægt að ná), myndi hann verða
við þeim tilmælum, Sjáið bara:
60 þúsund méti 60. K.A.“