Morgunblaðið - 17.09.1967, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.09.1967, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. SEPT. 1967 Verzlunarráð islands í DAG eru liðin 50 ár síðan að Verziunarráð íslands var stofn- að. Minnist ráðið afmælisins með hátíðahöldum er hófust s.I. föstudag og munu ljúka á morg un. Verzlunarráð íslands er fé- lagsskapur kaupsýslumanna og fyrirtækja, sem reka sem aðal- atvinnu verzlun, iðnað, trygg- ingastarfsemi, bankaviðskipti, skipamiðlun, siglingar og aðra atvinnu skylda þessum at- vinnuvegum. Markmið ráðsins er fyrst og fremst að vinna að sameierinleeum hagsmunamálum þessara atvinnugreina, styðja að jafnvægi og stöðugum vexti í efnahagslífi landsins og efla frjálsa verzlun og frjást fram- tak. Á það á þennan hátt að vera vettvangur samstarfs milli höfuðgreina viðskiptalífsins að sameiginlegum framfara- og hagsmunamálum þeirra. Stofnun Verzlunarráðs fslands I Morgunblaðinu frá árinu 1917 má líta eftirfarandi frétt sem segir frá stofnun Verzlun- arráðs íslands: „Fulltrúafundur verzlunar- stéttarinnar var haldinn í fyrra- kvöld I húsi K.F.U.M. Fundinn sátu 52 manns og auk þess var sent til fundarins 21 umboð. Til fundarins var stofnað til þess að koma á fulltrúaráði fyrir verzl- un, iðnað og siglingar. Fundinn setti formaður kaupmannaráðs- ins Jens Ziemsen konsúll og skýrði frá tildrögum til fund- arins. Var síðan Jón Brynjólfs- son kaupmaður kosinn fundar- stjóri, og kvað hann sér til skrif ara Pál H. Gíslason kaupm. — Kaupmannaráðið hafði samið frumvarp til laga fyrir verzlun- arráð íslands, fulltrúanefnd fyrir þessar þrjár atvinnugrein- ar. Samþykkti iundurinn frv. með nokkrum breytingum þó. Ráðið skipar 7 fulltrúa, og voru þessir kjörnir: Jes Zim- sen, Garðar Gísiason, Jón Bryn- jólfsson, Ólafur Johnson, Carl Proppé, Jensen-Bjerg og Olgeir Friðgeirsson. Varafulltrúar voru kosnir Þórður Bjarnason og Ludv. Kaaber með hiutkesti milli hans og Péturs Halldórs- sonar. Endurskoðendur reikn- inga fulltrúaráðsins voru kosnir þeir Pétui Gunnarsson og Jón Þorláksson og v'araendurskoð- andi Pétur Halldórsson. í lögunum stendur: „tilgangur ráðsins er að vernda og efla verzlun, iðnað og siglingar.“ Um verksvið ráðsins segir í lögun- iim: Verksvið ráðsins er: a) Að svara fyrirspurnum frá Alþingi og stjórnarvöldum og öðrum um verzlunar-, toll-, vá- tryggingar- og samgöngumál og annað það, er varðar atvinnu- greinar þær, sem ráðið er full- trúi fyrir. Ráðið skal einnig af sjálfdáðum láta í ljós álit sitt í þessum efnum. b) Að vinna að því að koma á festu og samræmi í viðskipta- venjum. c) Að koma á fót gerðadóm- um í málum, er varða þær at- vinnugreinar, er hér um ræðir. d) Að safna, vinna úr og birta skýrslur um ástand þessara at- vinnugreina, eftir því sem föng eru á. e) Að fylgjast með breyting- um á erlendri löggjöf og öðrum atburðum, er kunna að hafa áhrif á atvinnuvegi landsins. f) Að gefa út blað þegar fært þykir, er skýrt frá því markverðasta í viðskiptamálum innanlands og utan. í blaðinu skulu einnig birt lög og stjórnar- fyrirskipanir er snerta atvinnu- mál. Á hverju ári skal gefin út greinileg skýrsla um aðgerðir ráðsins og reikningur um fjár- hag þess undanfarið ár. Það er ástæða til þess að gleðjast. yfir myndun ráðs þessa. Það hefur verið mjög tilfinnan- legur skortur á samheldni og samvinnu milli þeirra þriggja Garðar Gíslason atvinr.ugreina, sem hér er um að ra-ða, og sérstaklega hefur það verið tilfinnanlegt, að hér er angi.i miðstöð, þar sem hægt var að leita ábyggilegra upp- lýsingú um allt viðvíkjandi at- vinnugreinum þessum. Nú er ráðin bót á þessu og fyrirkomu- lag það, sem komið hefur verið á, getur áreiðan'ega haft mjög mikla þýðingu fyrir verzlun, iðnað og siglingar þessa lands. Maður hefir fulta ástæðu til þess að vænta mikíls af ráðinu. Svo vel er það monnum skipað. Kaupmannaráðið er nú úr sögunni. í þess stað er komið fulltrú aráð verzlunarstéttarinn- ar og vonandi nýtt fjör í félags- skapinn. Ráðið heldur opinni skrifstofu hér í bænum í Kirkju- stræti 8 B og er hr. Georg Ól- afsson cand. polit, forstjóri hennar. En þar getur hver og einn aflað sér ábyggilegra upp- lýsinga' um verzlunarmál.“ Stofnendur ráðsins 156 Hugmyndin sem varð að veru- leika 17. sept. 1917 um stofnun verzlunarráðs var allmiklu eldri. Benedikt S. Þórarinsson, merkur kaupmaður og bókamaður mun manna fyrstur hafa hreyft henni opinberlega á Kaupmannafélags- fundi í árslok 1906. Frá því urðu síðan stöðugar umræður um málið unz að af framkvæmdum varð 1917. Að stofnfundinum stóðu 73 menn eða fyrirtæki, en eins og í fréttinni segir, sóttu 52 fund- inn, en lagt var fram umboð fyrir 21 annan. Síðar bættust við enn aðrir, og urðu alls 156, sem taldir eru stofnendur ráðs- ins. Fram til ársloka 1917 bæt+- ust við enn fleiri, og voru þá félagar Verzlunarráðsins orðnir 186, þar á meðal 4 kaupfélög, en þau tóku í heild sinni ekki þátt í störfum ráðsins. Þegar ráðið var stofnað voru á landinu alls 694 verzlanir, þar af 227 í Reykjavík. Formenn verzlunaráðs íslands Garðar Gíslason var kosinn fyrsti formaður Verzlunaráðs íslands á fyrsta stjórnarfundi þes, er var haldinn 21. sept. 1917 í skrifstofu þess að Kirkju- stræti 9 B. Var Garðar formað- ur til 1921 og aftur frá 1922 til 1934. en í stjórn Verzlunarráðs átti hann sæti til 1942, Ólafur Johnson var formaður árið 1921, og í stjórn þess til 1929. 1934 var Hallgrímur Benediktsson kjör- inn formaður ráðsins og aðrir þeir er gegnt hafa þeim störf- um eru: Eggert Kristjánsson, Gunnar Guðjónsson, Þorvaldur Guðmundsson, Magnús J. Bryn- jólfsson og nú Kristján G. Gísla- son. Margþátta málefni tekin til meðferðar Verzlunarráð íslands tók þegar til afgreiðslu fjölmörg mál og málefni. Á fyrri aldar- fjórunginum má til dæmis nefna að ráðið tók til umræðu flest lagafrumvörp sem fram komu í viðskiptamálum og fjallaði um flesta samninga er gerðir voru um slík mál. Verzlunarráðið tók að sér yfirstjórn eða fjárhags- legan rekstur Verzlunarskólans. Það hóf útgáfu á Verzlunartíð- indum 1918 og stóð að útgáfu Einokunarsögu Jóns J. Aðils 1919, auk þess sem það viðaði að sér bókasafni um verzlunar- mál. Það stofnaði gerðardóm í verzlunar- og siglingamálum 1920. Á fyrra aldarfjórðungi sínum hét Verzlunarráðið alls 625 stjórnarfundi. Þá voru félagar Verzlunarráðs orðnir 339. Árs- tekjur þess námu tæpum 118 þús en heildarútgjöld tæpum 85 þús. kr. Allar eigur Verzlunarráðs voru þá metnar á um 335 þús. kr. Verzlunarráð minntist 25 ára afmælis síns með hófi og flutti þá aðalræðuna Hallgrímur Bene diktsson þáv. formaður þess. Sagðist honum m. a. á þessa leið: „25 ár telst ekki langur tími í mannkynssögunni, en einmitt þetta tímabil (sem saga Verzl- unaráðsins nær yfir) hiefur verið sérlega þýðingarmikið og við- burðaríkt fyrir íslenzku þjóðina og þá ekki sízt fyrir verzlunar- stétt hennar, því að í upphafi þessa tímabils færðist verzlunin algjörlega í hendur innlendra manna. Þessir frumherjar hinn- ar ungu íslenzku verzlunarstétt- Nefndin er skipulagði 50 ára hátíðahöld V. í. Frá vinstri: Gunnar Ásgeirsson, Gunnar J. Frið riksson, Kristján G. Gíslason, Þorvarður Jón Júlíusson, og Ha aldur Sveinsson. Hús Verzlunarráðsins að Laufásvegi 36. ar stofnuðu svo Verzlunarráð fs- lands .... Tilgangur samtak- anna var sá að efla og treysta hina íslenzku verzlun og skapa heilbrigða og hagfellda verzlun- arhætti meðal þeirra, sem verzl- un stunda. Einmitt þetta hefur verið leiðarljós Verzlunaráðsins fram á þennan dag, og með slíku starfi sem þessu telur það sig vera að vinna fyrir alþjóðar- heill." í hófinu talaði Vilhjálmur Þ. Gíslason fyrir minni Verzlunar- ráðsins, Ólafur H. Ólafsson stór- kaupmaður mælti fyrir minni íslands, Eggert Kristjánsson for- maður félags íslenzkra stór- kaupmanna flutti ráðinu kveðju sérgreinafélaganna, Sigurjón Pét ursson flutti kveðju iðnrekenda. Þennan síðari aldarfjórðung sem Verzlunarráð hefur starfað hefur það ekki síður haft af- skipti af fjölmörgum máluim. Of langt mál væri að telja þau öll upp, en nefna má til sem dæmi að árið 1947 voru haldnir 32 stjórnarfundir og þar rædd 147 mál. 49 um viðskiptamál, 12 um verðlagsmál, 29 um almenn félagsmál stjórnarinnar, 11 um samninga við útlönd, umsagnir og tillögur til stjórnarvalda og opinberra stofnana og erindi frá ýmsum aðilum, 6 um mennta- og skólamál, 2 um skattamál, 5 um verzlunarlöggjöf, 5 um blaðamál, 4 um ákömmtunarmál, 3 um fjárhagsmál og 4 um hús- næðismál. Gefa þesar tölur i heild sinni nokkuð gLögga mynd af viðfangsefnum ráðsins. Á árunum eftir 1950 getur m. a. að líta í samþykktum ráðs- ins að lögð er áherzla á að fá stjórnarvöld landsins til þess að hlutast til um, að fullnægt yrði eðlilegri rekstrarfjárþörf verzl- unarinnar og að gerðar yrðu ráð- stafanir til verndar öllum nauð- synlegum og heilbrigðum iðnaði í landinu og honum séð fyrir sanngjarnri tollvernd, en at- hafnafrelsi yrði aukið og við- skiptahöftum, sem þá voru víð- tæk, yrði aflétt. Þá var einnig unnið að athugun á gildandi verzlunarlöggjöf og endurskoð- un hennar og var kosin nefnd til að fjalla um þau mál. Enn- fremur var rætt um skattamál og endurskoðun skattalaganna og á aðalfundi ráðsins 1957 var skipuð sérstök nefnd til að kanna þau mál. Gjaldeyrismálin voru mikið til umræðu, svo og tollamál, en ráðið beitti sér fyrir endurskoðun á ýmsum tolla- ákvæðum og framkvæmd þeirra. Gerði það einnig samþykktir um tollgeymslu og afgreiðslumið- stöð í Reykjavík fyrir land- og loftflutninga. Aðstaða einka- verzlana og ríkisfyrirtækja var einnig oft rædd á þessum árum, og t. d. á aðalfundinum 1955 var samþykkt áskorun í þá átt, að leggja beri niður ríkisfyrirtæki, er keppa við einkarekstur og njóta ýmissa forréttinda, svo sem um greiðslu opinberra gjalda, lántökur, föst viðskipti o. s. frv. Árið 1955, þegar liðin var öld frá upphafi frjálsrar verzlunar á íslandi gekkst Verzlunarráðið ásamt Sambandi ísl. samvinnu- félaga og fleiri samtökum fyrir því að gefa út bók eftir Vil- hjálm Þ. Gíslason. Nefnist bók- in íslenzka verzlun og er hið ágætasta heimildarrit um sögu verzlunar, og baráttuna fyrir frjálsri verzlun. Mörg hinna sömu mála og áður eru enn efst á baugi hjá ráðinu nú. Má nefna til skatta- mál, verðlagsmál, en ný hafa bætzt við eða ný sjónarmið hafa komið fram. Nú beinist t. d. athygli að lánsfjármálum. Þótti kaupsýslumönnum verzlunin vera þar afskipt og ílla haldin. í skýrslum 1956 segir t. d. að í skiptingu nýrri lána fjárfest- ingalánstofnana eftir atvinnu- greinum hafi verzlunin hlotið 0,4 millj. kr., sjávarútvegur 68,0 millj. kr., landbúnaður 38,5 millj. kr., iðnaður 46,3 millj. kr., og íbúðarbyggingar 75,3 millj. kr. Af þessu mumræðum leiddi að Verzlunarsparisjóðurinn var stofnaður 1956 og nokkrum ár- um síðar Verzlunarbankinn. Síðari aldarfjórðunginn sem Verzlunaráð hefur starfað hafa bætzt margir félagar í það. Eru þeir nú orðnir tæpir 600 og árið 1966 voru tekjur þess komn- ar upp í 1,6 millj. kr. Myndarlegt afmælisrit VerzlnnnrróSs íslnnds í TILEFNI 50 ára afmælis Verzlunaráðs íslands gekkst ráðið fyrir útgáfu myndar'egs afmælisrits. Samdi Verzlunarráð íslands við Verzlunarútgáfuna h.f. að hún tæki að sér umsjón með útgáfunni, er. það er Verzl- unarútgáfan, sem gefur út bfað- ið Frjálsa v'uzlun Ritstjórar afmælisblaðsins voru þeir Jóhann Briem og Ólafur Thoroddsen. Er blað'ð sérstaklega vel og smekklega úr garði gert, en uppsetningu og prentun ritsins annaðist Solna- prent h.f. Ritið hefst á kveðjum til Verzlunarráðs íslands 50 ára frá forseta íslands, herra Ásgeiri Ásgeirssyni, forsætisráðherra dr. Bjarna Benediktsyni, við- skiptamálaráðherra dr. Gylfa Þ. Gíslasyni, Geir Hallgrímssyni borgarstjóra og Kristjánd G. Gíslasyni núverandi formanni Verzlunaráðs. Viðtal er við Egil Guttorms- son stórkaupmann um verzlun- ina áður fyrr, viðtal er við Þor- varð Jón Júlíusson um starf, stefnu ag tilgang Verzlunaráðs, Framhald á bls. 11 Forsíða afmælisrits Verzlunar- ráðs íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.