Morgunblaðið - 17.09.1967, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 17.09.1967, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. SEPT. 1967 LOFTIÐ á White City-leikvang- inum í London var þrungiff spennu. Þar fór fram lands- keppni milli frjálsíþróttalands- liða Bandaríkjanna og Stóra- Bretlands, og hinir fyrmefndu höfðu þar örugga forustuu En það skipti engu máli fyrir hina fjölmörgu áhorfendur, heldur biðu þeir óþreyjufullir eftir því að aðalgrein landskeppninnar — míluhlaupið — hæfist. Þar myndu þeir mætast í hreinu and vigi Jim Ryun frá Bandaríkj- unum og Keino frá Kenya, og fiestir voru sannfærðir um aff heimsmetiff myndi enn verða bætt. Að minnsta kosti hafði sú orð- ið raunin, þegar þessir sömu hlauparar, sem taldir eru frá- bærustu millivegalengdar- og langhlauparar sögunnar, háðu einvígi í 1500 metrum í lands- keppni milli Bandaríkjanna og Samveldislandanna nokkru áð- ur og mönnum var sigur Ryuns þar enn í fersku minnL En sig- urinn hafði ekki verið auðfeng- inn, þvi að Keino hafði fylgt Jim Ryun á æfingu. JIM RYUN A MORKUM HINS ÓMÖGULEGA Á einni nóttu varð hann þjóðhetja og nú er hann talinn mesti hlaupari veraldar Ryun sem skuggi. þar til að síðustu metrunum, að hann réð ekki við glæsilegan endasprett Bandarikjamannsins. Hlaupararnir voru kallaðir að rásmarkinu, og skotið reið af. Þeir fóru sér engu óðslega i byrjun, og eftir tvo hringi var ljóst að heimsmetið myndi stand ast þessa raun. Jim Ryun hélt sig aftarlega í röð hlauparanna, og Keino fór síðastur að vanda. Þegar tók að líða nokkuð á hlaupið, jók Ryun ferðina og tók brátt forystuna, en Keino fylgdl fast á eftir. Hann var staðráðinn í að sleppa Bandaríkjamanninum ekki langt á undan sér að þessu sinni. En Ryun jók ferðina enn, og þegar um 300—200 metrar voru í mark tók hann á eins og hann átti til, og þrátt fyrir örvæntingafullar tilraunir blökkumannsins til að komast upp að hlið hans, réði hann ekkl við hraða andstæðings síns, og Bandaríkjamaðurinn sleit snúr- una um 10—15 metrum á und- an. Met Ryuns stóð óhaggað en áhorfendur höfðu fengið að sjá skemmtilega keppni, og Jim Ry- un hafði enn einu sinni sannað, að hann er ókrýndur konungur míluhlaupara veraldarinnar. Alag og ofstæki. Jim Ryun er sennilega um- talaðasti frjólsíþróttamaður ver aldarinnar um þessar mundir, og það er talið nær víst að hann muni verða fyrstur maaina til að hlauipa míluna á skemmri tíma en 3.50.0 mínútum. Mörg- um leikur eflaust forvitni á að fræðast nánar um þennan tví- tuga pilt, sem dregur að sér at- hygli þúsund áhorfenda, hvar sem hann hleypur, og í þeim erinidagjörðum einum fór brezk ur blaðamaðiur frá Observer vestur um haf. Fer hér á eftir lausleg og stytt endursögn á frá sögn hans af kynnum sínum á Ryun: Eins og gefur að ski'lja hlýt- Stúlkur Hraðfrystihús úti á landi vill ráða nokkrar stúlkur. Fríar ferðir, frítt húsnæði. Upplýsingar gefnar í síma 22280 (eftirlitsdeild). Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Oskum eftir að ráða áreiðanlega og reglusama stúlku, ekki yngri en 16 ára, til sendiferða, símavörzlu o. fl. Eiginhandarumsókn sendist skrifstofu vorri eigi síðar en 22. september n.k. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR. ur það að hafa í för með sér gífurlegt álag á taugar fyrir að- eins tvítugan pilt, að hafa hvað eftir annað sannað, að bann sé frábærasti millivegalengdahlaup ari veraldarinnar. En þegar Jim Ryun á í hlut margfaldast þetta álag, bæði vegna þjóðernislegr- ar og persónulegra aðstæðna og aðeins heilsteypt sál gæti stað- ist það. Þessir fáu dagar, sem ég eyddi með Ryun í Topeka í Kansas, þar sem hann starfar í sumar- leyfi sínu frá háskólanum sem ljósmyndari við tímarit, færðu mér heim sanninn um þrennt. Hann er sannur Bandaríkjamað- ur, hanm er sannur Kansasbúi og í þriðja lagi er hann frá einni af þessum fjölskyldum, sem gert hafa heimafylki hans að hjarta Bíblíubeltisins svon/efnda í landinu. Hvarvetna verður á vegi hans nær öfgakenmd ætt- jarðarást, átbhagarækt og trúar- ofsi. Það eitt að vera Bandaríkja- maður tekur talsvert á taugarn- ar fyrir ungan mann með hans órðstír. Þegar Ryun setti heims- met í míluhlaupi í fýrsta sinn sumarið 1966 höfðu Bandaríkin ekki átt methafa í þessari grein í 29 ár. Hanin varð því hetja fólksins á einni nóttu, en hann lét ekki þar staðar numið, heldur hélt ótrauður áfram með því að brjóta á bak aftur mót- spyrnu þekktra keppinauta, svo sem Keino, og bæta met frægra fyrirrennara, eins og t.d. Elli- ots. Þetta hefur kostað það, að landar hans ónáða hann tillits- laust, hvort sem það er á götu úti, í veitingahúsum eða með símhringingum. Þybbnir menn, útlítandi eins og íþróttageta þeirra takmarkist af því einu að klöngrast upp og niður af bar- stólnum skella gjarnam bréf- snepli fyrir framan hann og segja: „Skrifaðu bara: — Þakka ykkur að æfa með mér.“ „Ég get aldrei vanist því að öldungis ókunnugir menn komi og berji á bak mér, eins og þedr hafi þekkt mig alla ævi“, segir Ryun. En Jim Ryium er undir enm voldugra og persónulegra ólagi í heimafylki sínu. FjöLskylda hans heyrir undir svonefnda Kristskirkju, sem er siðavand- ur og vandlætingafullur eveng- elískur mótmælendasöfnuður, og faðir hans, Gerald Ryun, styður að kostgæfni ofurkapp fjöl- skylduklerksims í Wlhithita, heimaborg Jims, að hamn ger- ist ímynd hins vammlausa ung- mennis Kristkirkjurmar. Þeir æskja þess að Jim taki sér ferð ir á hendur, flytji ræður og notfæri sér frægð sína á vett- vamgi íþróttamna í þágu evenge lísku kirkjunmar. Jim stendur öndverður gegn þessu með þöglum þráa, sem hlaðið hefur múr milli hans og og föðurins. Það tekur aðeins tvo tíma að aka á milli Whit- hica og Topeka, en hann fer rnú orðið afarsjaldan heim. Þó er það auðséð á honum, að hann vill gjarnan sjá móður slna oft- ar. Þegar hana ber á góma glaðn ar ósjálfrátt yfir Jim, og hann brosir um leið og hanm segir: Skóli Emils IIEFST 1. OKTÓBER. KENNSLUGREINAR: HARMÓNIKA, MUNN- HARPA, GÍTAR, MELODÍCA, PÍANÓ. HÓPTÍMAR OG EINKATÍMAR. INNRITUN ALLA DAGA KL. 8 — 10 E. H. EMIL ADÓLFSSON, Framnesvegi 36. „Hún er nú aldelfis kvenmað- ur. Kímnigáfa hennar virðist ó- þrjótamdi, og það er alltaf líf og fjör í kringum hana.“ Wilma Ryun er aðiaðandi kona á fimm tugsaldri og vimnur í kvenfata- deild stórar verzlunar í Whic- hita. Hún gefur sér þó tíma til að fylgjast með frama sonar síns að miklum áhuga, og vinn- ur nú að níunda bindi úrklippu safms um hanm, en er þó fjóra mánuði á eftir áætlun til þess að það nái fram til dagsins f dag. Það hefst 1962 og er þar greint frá þátttöku Jim í 50 mílna göngu, sem varð til þess að hann hvarf frá kúluspili og körfuknattleik yfir í frjólsar íþróttir. „Henni var ekkert um þetta í fyrstu“, segir Jim.“ Þetta var erfitt og ég hreinlega óttaðist æfingarnar. Þær eru ekkert auðveldari núma, en ég er þrosk aðri og líkamlega sterkari, og þekki takmörk min betur. Núna fer ég alltaf strax á brautina og byrja æfingarnar áður en ég hef tíma til að sjá mig um hönd. En hér áður fyrr var ég alltaf slappur eftir æfingarnar og hafði enga matarlyst. Mamma hafði óihyggjur út af þessu og reyndi að fá mig til að hætta.“ En móðir hans gaf fljótlega eftir alla mótspyrnu gegn iþrótta iðkunum sonar síns. „Hún er fljót að átta sig og núna hefur hún menntað sig heilmikið uim hlaupabrautina. Þetta er kannski klaufalega orðað hjá mér, en það sem ég á við — hún veit í rauninni hvað er að gerast. Miklu betur en t .d. pabbi. Ef þú hittir hann á móti mundir þú eflaust álykta að hamn þekkti heilmikið til frjáls íþrótta, en það er þveröfugt. Hann hljóp víðavangshlaup hér á skólaárum sínum, en að öðru leyti veit hann ekkert um hlaup.“ Jim brosir lítið eitt, en segir svo: „Þeir segja, að mamma hafi verið fljót á fæti í gamla daga. Ég þarf að kanna það við tœkifæri. Wilma Ryun þurfti sannarlega að vera fljót á fæti til að halda í við son sinn, þegar honum hafði verið vísað úr gagnfræða- skóla. Þetta var eitt af fyrstu merkjunum um uppreisn gegn valdinu, sem svo erfitt er að bera saman við einlæga og fremur hlédræga framkomu hans. Og uppreisnin hefur hald- ið áfram — þó án nokkurs stærlætis eða frekju. Safnaðar- félögum í Kristkirkju er bannað að spila á spil, en Jim spilar a'lltaf af og tii. Kirkjan banmar dans, en Jim æfði sig í laumi þar til hann hafði náð valdi yfir stÓTum skrefum símum. Hann lenti í ástarævinrtýri með laglegri stúlku, sem var félagi í söfnuðimum og föður hans þótti því tilvalinn kv®n- kostur, en upp úr því sambandi slitnaði íljótlega. „Of mikið safnaðarlíf", upplýsir einm vina hans. Ryun hefur þó ekki kastað burt trú sinni, heldur er hann mjög trúaður og sækir kirkjur reglulega. Honum er sýnilega sálarbórt í því, og hann segir sjálfur: „Ég bið oft fyrir keppni, en bið aldrei um sigur. Aðeins að mér og keppimautum mímum muni takast vel upp“. Jim Ryun æfir af miklu kappi um þessar mundir. Morgna og kvölds má sjá hann hlaupa eftir strætum Topoka eða eftir hlaupa brautinni á leikvamgi Wash- burnháskó'lans. Það er umdarleg tilfinnimg að sjá háan og tá- grannan líkama þessa mesta hlaupara veraldar skokka með einbeittum hreyfingum um- hverfis grasvöllinn. Samnfæring hans ec, að hvert skref, sem hann taki, færi hann áleiðis að því eina marki, sem skiptir hann nokkru — gullverðlaununum á Olympíuleikjunum. Góðar og gildar ástæður voru fyrir því, að hann komst ekki á verðlauna- pail í Tokyo, aðeinis H7 ára að aldri, en ef honum tekst það ekki í Mexiko eru 10 heimsmet hon- um lítils virðL Júnímámuði eyddi hann í há- lendi Colorado við æfimgar, og vera hams þar hefur fært hon- Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.