Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. OKT. 1967
Útgefandi: Hf. Arvakur, R'eykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Jphannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingar: Arnj Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími. 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Askriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
JÁKVÆÐ STEFNU-
YFIRL ÝSING RÍKIS-
STJÓRNARINNAR
¥ gær flutti Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráð-
herra, á Alþingi stefnuyfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar,
en eins og kunnugt er hefur
orðið samkomulag milli Sjálf
stæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins um að stjórnar-
samstarfi þessara tveggja
flokka, sem staðið hefur síð-
an 1959 verði haldið áfram.
Er sú niðurstaða og í sam-
ræmi við úrslit þingkosning-
anna í vor, þegar kjósendur
veittu stjórnarflokkunum
ótvíræða traustsyfirlýsingu.
í stefnuyfirlýsingunni fjall
aði forsætisráðherra annars
vegar um þau vandamál, sem
skapazt hafa í efnahagslífi
landsmanna vegna verðfalls
og aflabrests og gerði grein
fyrir þeim ráðstöfunum,
sem ríkisstjórnin mun beita
sér fyrir til þess að afgreiða
fjárlög greiðsluhallalaus. —
Gagnvart þeim vandamálum,
sem skapazt hafa í efnahags-
lífinu, mun ríkisstjórnin
leggja megináherzlu á at-
vinnuöryggi og samstarf við
stéttasamtök.
Hins vegar gerði forsætis-
ráðherra svo almennt grein
fyrir stefnu ríkisstjórnarinn-
ar. í atvinnumálum leggur
ríkisstjórnin sérstaka á-
herzlu á eflingu atvinnuveg-
anna með maigvíslegri ný-
sköpun atvinnutækja og fjöl-
breyttari framleiðslu, og
að unnið verði ötullega að
framleiðniaukningu. Jafn-
framt lýsir ríkisstjórnin yf-
ir því að hún muni beita sér
fyrir því að haldið verði
áfram stóriðjuframkvæmd-
um.
Afdráttarlaus afstaða er
tekin til þess að bæta verði
markaðsaðstöðuna erlendis
m.a. með tafarlausri könnun
á möguleikum á aðild að Frí-
verzlunarbandalaginu, jafn-
framt því sem leitað verði
viðhlítandi samninga við
Efnahagsbandalagið.
í þeim málefnum, sem sér
staklega varða unga fólkið
er gert ráð fyrir að aðstoð
af ríkisins hálfu í húsnæð-
ismálum verði samræmd
svo, að sem flestir mögu-
leikar skapist fyrir nægileg-
um byggingum með sem
minnstum tilkostnaði og
jafnframt lýsir ríkisstjórnin
yfir því að fram muni fara
allsherjar endurskoðun á
fræðslukerfinu og stefnt
verði að því, að vaxandi hlut
fallstala hvers árgangs
stundi framhaldsnám.
Stefnuyfirlýsing ríkis-
stjórnarinnar í heild sýnir
glögglega, að sá framfara-
andi, sem þegar í upphafi ein
kenndi samstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks
ríkir enn og að þrátt fyrir
þá erfiðleika, sem um sinn
hafa skapazt í efnahags- og
atvinnumálum landsmanna
mun enn verða haldið áfram
því umbótastarfi, sem hafizt
var handa um 1959 og þegar
hefur gjörbreytt lífskjörum
og allri aðstöðu þjóðarinnar.
SVIK OG
BLEKKINGAR
KOMMÚNISTA
k fundi Sameinaðs Alþingis
í gær var hið umdeilda
kjörbréf Steingríms Pálsson-
ar samþykkt með atkvæðum
kommúnista og Framsóknar-
manna. Stjórnarflokkarnir
sátu hjá við atkvæðagreiðslu
um kjörbréf þetta í samræmi
við yfirlýsingar talsmanna
þeirra í umræðunum um
kjörbréfið í fyrradag.
Fyrir kosningarnar í vor
var því afdráttarlaust lýst
yfir af hálfu umboðsmanna
G-listans í Reykjavík og mál-
gagns Alþýðubandalagsins,
Þjóðviljans, að I-listi Hanni-
bals Valdimarssonar væri
utanflokka og Alþýðubanda-
laginu óviðkomandi, ekki
kæmi til mála að viðurkenna
túlkun Hannibals Valdimars-
sonar sjálfs á framboði sínu,
sem var, að það væri annað
framboð á vegum Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík.
Eins og Jóhann Hafstein
rifjaði upp í umræðum í
þinginu, lýsti Þjóðviljinn því
svo, að það væri „í ætt við
fáránlegustu sjónhverfingar
og blekkingar“ að slíkur
listi (það er I-listinn) gæti
einungis með því að kalla sig
Alþýðubandalagslista orðið
aðnjótandi réttinda og viður-
kenningar, sem listi Alþýðu-
bandalagsins“.
Og ennfremur sagði Þjóð-
viljinn: „Léti einhver stjóm-
málaflokkur á Alþingi tilleið-
ast að samþykkja slíkt yrðu
afleiðingarnar alger ringul-
reið um framboð...“
í kosningunni um kjörbréf-
ið á Alþingi í gær stóðu þing-
menn kommúnista, sem einn
maður að því að samþykkja
kjörbréf Steingríms Pálsson-
ar og gerðu sig þar með seka
„Föðurlandið getur fyrirgefið
víxlspor en aldrei landráð"
sovézku rithöfundasamtakanna
- segir í málgagni
Moskvu, 11. okt. NTB-AP
BÓKMENNTATÍMARIT-
IÐ „Liternaturnaja Gaz-
eta“ í Moskvu, málgagn
sovézku rithöfundasamtak-
anna, beindi í dag alvar-
legri aðvörun til sovézkra
menntamanna og þá eink-
um rithöfunda er legðu
leið sína til annarra landa,
um að erlend njósnasam-
tök sætu um þá og hand-
rit þeirra.
í tímaritinu segir að þús
undir Rússa ferðist ár
hvert til útlanda og eigi
þar að fagna áhuga — en
séu einnig oft litnir illu
auga. „Þar er á ferð fólk
sem hatar Sovétríkin og
vill okkur allt gera til
miska sem það má, fólk
sem lætur sig ekki muna
um viðurstyggilegar ögran
ir, kúgun alls konar og of-
beldi til þess að fá einstaka
sovézka borgara til þess að
gerast landráðamenn“.
'1 grein um þetta í tímarit-
inu eru nefnd ýmis dæmi þess
að Rússar hafi orðið fyrir
ásókn og ögrunum erlendra
njósnasamtaka, einkum þó
bandarísku leyniþjónustunn-
ar, CIA. Þá ræðst tímaritið á
„Frelsissjóðinn" í New York
fyrir útgáfu lesefnis sem ætl-
að sé til dreifingar meðal
sovézkra ferðamanna. Þá er
og sagt í greininni að erlend
bókaforlög sum sýni sovézk-
um rithöfundum og blaða-
mönnum sérstakan áhuga með
það fyrir augum að komast
yfir handrit, sem ekki hafi
fengizt gefin út í Sovétríkj-
unum vegna hugmyndafræði
legs og listræns vanþroska.
Einnig er í tímaritinu deilt
har'ðlega á samtök þau í
Bandaríkjunum sem beita sér
fyrir alþjóðlegri samvinnu á
sviði bókmennta og þau sögð
stefna að því beinlínis að gefa
út verk sem smyglað hafi ver
ið út úr Sovétríkjunum. —
Brezka forlagið „Flegon
Press“, sem gefið hefur út
nokkur slík verk sætti einn-
ig aðkasti í greininni. Segir
„Literaturnája Gazeta" að
útgáfustjóri „Flegon Press“
hafi oftlega boðið sovézkum
rithöfundum stórfé fyrir óbirt
verk þeirra.
Þá eru sovézkir rithöfund-
ar einnig varaðir við erlend-
um útgáfufyrirtækjum sem
sérhæft hafi sig í and-sovézk
um bókmenntum og sagt að
þar sé frumtexta aðfenginna
handrita oft breytt og hann
færður úr lagi, bókin síðan
gefin út með mjög and-sovézk
um formála og skipulagt ögr-
andi uppistand í kringum út-
gáfu hennar, deilur og blaða-
skrif.
„Föðurland okkar getur fyr-
irgefið víxlspor, en það fyrir-
gefur aldrei landráð", segir
loks í „Liternaturnaja Gaz-
eta.“
Eisako Sato, forsætisráðherra Japans lagffi á sunnudag af staff
í heimsóknir til ýmissa Asíu- og Kyrrahafsríkja, m.a. til Suð-
ur-Víetnam. Kom ráffherrann til Ástralíu í gær, miffvikudag.
Viff brottför Satos frá Tókíó efndu vinstrisinnaffir stúdentar
þar tU mótmælaaffgerða vegna heimsóknarinnar til Víetnam, og
var þessi mynd tekin viff brú hjá flugvellinum t Tókíó þar sem
kom til átaka milli stúdenta og lögreglu. I baksýn eru bif-
reiffar lögreglunnar í björtu báli eftir aff stúdentarnir kveiktu
í þeim.
um „fáránlegustu sjónhverf-
ingar og blekkingar“ og stuðl
uðu að „algerri ringulreið um
framboð" svo að orð komm-
únistablaðsins sjálfs séu not-
uð. Með þessari afstöðu hafa
kommúnistar algjörlega
kyngt fyrri ummælum um
mál þetta og tekið fegins
hendi atkvæðum, sem þeir
afneituðu í byrjun kosninga-
baráttunnar í vor. Þar með
hafa þeir framið hin frek-
legustu svik við kjósendur
og allt þetta mál er með
slíkum hætti að með eindæm
um er.
Sérstök ástæða er til að
vekja athygli á afstöðu eins
þingmanns Alþýðubandalags-
ins, Magnúsar Kjartanssonar,
sem lýsti því ótvírætt yfir í
blaði sínu í kosningabarátt-
unni, að ekki kæmi til mála,
að listi Hannibals yrði viður-
kenndur, sem listi Alþýðu-
bandalagsins með þeim af-
leiðingum, sem slíkt hefði í
för með sér, þar með, að at-
kvæði I-listans yrðu talin
með atkvæðum Alþýðu-
bandalagsins við úthlutun
uppbótaþingsæta, Þessi mað-
ur hefur nú algjörlega snúið
við blaðinu og greitt atkvæði
í beinni andstöðu við það,
sem hann kvaðst fyrir kosn-
ingar mundi gera. Aldrei áð-
ur hefur stjórnmálamaður á
íslandi leikið svo ósæmilegan
blekkingarleik.
ÖNOTHÆFAR
ELDSPÝTUR
í fengis- og tóbaksverzlun
ríkisins hefur um langt
skeið flutt inn eldspýtur, sem
eru gjörsamlega óhæfar til
notkunar. Þessi eldspýtnainn
flutningur hefur margsinnis
verið gagnrýndur, en það
virðist ekki hafa hrifið.
Gagnrýni á þær eldspýtur,
sem hér eru á boðstólum
hefur aðallega byggzt á því,
að brennisteinninn hrökkvi
gjarnan í föt manna og
skemmi þau. Mbl. hefur nú
örugga vitneskju um, að eld-
spýtur þessar eru stórhættu-
legar notendum.
Þess verður að krefjast,
að Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins stöðvi tafarlaust inn
flutning og sölu á þessum
ónothæfa og stórhættulega
varningi og bjóði neytend-
um í þess stað vöru, sem not-
hæf er.