Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. OKT. 1967 31 r— - Börnin Framhald af bls. 3 aS ég ytrði að ná í Rúnatr, því að hann á bát. Hann á hehna hérna hinumegin við götuna, og ég hljóp til hans og sagði honum hvernig komið var. Hann náði strax í árarnar að bátnium, en svo þutum við niður í fjöru, þar sem bátur- inn er geymdur. Þegar við kamum þanigað voru börnin komin í sjóinn. Mér fannst við vera heila eilífð að losa bátinn frá, en það hafðist að lokum“. Og nú tók Rúna.r við frá- sögninni: — Ég settist undir árar, en Frissi sat frammí bátnuan. Báturinn virtist ekikert mjak ast áfraim, en lotesins náð- ♦uim við svo þangað, sem flekinn maraði í hálfu kafi. Strákarnir þrír flutu allir með höfuðið upp úr, en stúlkan maraði í hálfu kafi. Elzti strálkurinn var þó al- veg kominn að því að Þeir eru ekki háir í loftinu þessir drengir en við að bjarga börnunum sýndu þeir þó ró og karlmennsku sem margur eldri maður gæti verið ánægður með. sökkva. Friissi var enga stund að ná þeiim urn borð, en börn- in máttu þá öll heita meðvit- undarlaus. Við rerum með þau að klöppinni, þar sem fólkið' beið. Þar voru fyrir þrír menn, Björgvin Bryn- jólfsison, Ómar, bróðir minn, ag Hallbjörn Hallsson, sem tóteu börnin og gerðu lífgun- artilraunir á strákunum, en Inga Sigríður hljóp með litlu stúlkuna heiim. — B.V. — Ó.T.J. 13% hækkun d áfengi og tóbakí 1 GÆR hækkaði éiengi og tóbak um 13%. Kamelpakkinn kostar nú 33.75 kr. og filtersígarettur 37—37,75 kr. Neftóbaksdósin kostar 19 kr. og Edgeworthpakki - BJÖRN JÖNSSON Framhald af bls. 32 í mfðstjórn hans síðan 1957 og verið fulltrúi hans í bæjarstjórn Akureyrar um skeið. Jafnframt hefur Björn Jónsson verið einn helzti forvígismaður Sósíalista- flokksins innan verkalýðshreyf- ingarinnar og er hann m. a. varaformaður Verkamannasam- bands íslands og á sæti í stjórn ASÍ. Björn Jónsson hefur lengi verið einn af mestu áhrifamönn um í kommúnistaflokknum en á síðustu árum hefur hann verið einn helzti samstarfsmaður Hannibals Valdimarssonar innan Alþýðubandalagsins. Úrsögn Björns Jónssonar úr Sósíalistaflokknum nú er glögg vísbending um þá ringulreið, sem ríkjandi er í Sósíalista- flokknum og Alþýðubandalag- inu og getur haft víðtækar af- leiðingar innan Sósíalistaflokks- ins. Feðgarnir Ragnar Haukur og Högni. Ragnar var klæddur, en lá fyrir. - TEPPALAGT Framhald af bls. 32 teppl með hvítu munstri. Mun þetta gert í auglýsingaskyni og er það Fransk-íslenzka verzlun- arfélagið, sem gengst fyrir þessu. Teppalagning þessi er aðallega gerð með það fyrir augium að tekin verði auglýsingakvikmynd. Munu ýmsir frægir leikarar spígspora á teppinu ogum það gengur m.a. Guðmundur Jóns- son, óperusöngvari. Þá mun Lúðrasveit Reykjavíkur leika og standa á teppinu meðan hún leik ur lög um hádegisbilið. Teppi þetta er af franskri gerð og heitir Flotex, ofið úr nælon, en klætt vinyl að neðan. — Árni Eiríksson, hjá Fransk-íslenzka verzlunarfélaginu, tjáði Mbl. í gærkvöldi, að fólk yrði hvatt til þess að ganga á teppinu og hiyndi teppið veirða jafnigott eft- ír. — Hefur félagið síðan hug á að teppaleggja skrifstofur sínar með þessu sama teppi, þeg- ar það hefur lokið hlutverki sínu i Austurstræti í kvöld. - 66 TALDIR AF Framhald af bls. 2 aftur á Kýpur, að hann hefði séð að minnsta kosti 30 manns á floti í sjávarborðinu og sagði að brak úr vélinni væri á við og dreif .uim 27 ferkilómetra svæði. Flug- maðurinn var á flugi yfir slys- staðnum í fimm klukkustundir, en sá engin merki þess að líf væri með nokkrum manni. — Grískar, tyrkneskar, bandarísk- ar og brezkar fluigvélar tóku þátt í leit og björgunarstörfum á svæðinu milli Ródos og Kýpur og öllum nærstöddum skipum var stefnt á slysstað, en óhægt var um vik að komast þangað fyrir sjógangi. Forstjóri flugdeildar BEA, William Baillie flugstjóri, lét fhafa það eftir sér í dag að þetta væri einkennilegasta flugslys 6em hann heföi nokkru sinni vit- að til að orðið hefði því að það hefði orðið í 8.800 metra hæð yf- ir jörðu. Baillie er formaður rannsókntirdeildar slyssins sem kom til Rhodos í dag að reyna áð henda reiður á hversu slysið haifi borið að hönd'um. Síðast heyrðist til vélarinnar kl. 04.16 í morgun. Talaði þá flugstjórinn við flugumferðarstjórnina í Aþenu og sagði allt með eðlileg- um hætti um borð. Þetta er fjórða Comet-þotan sem ferst yfir Miðjarðarhafi síð- an 1954. Það ár fórust tvær þot- ur af þessari gerð (fjögurra hreyfla) og með þeim samtals 54 menn. Þriðja Comet-þotan fórst svo 1961, tveimur mínútum eftir flugtak af flugvellinum við Ankara í Tyrklandi og týndu þax 27 lífi. Hef aldrei séð meira af hrefnu — segir Hörður Einarsson, hvalaskytta HREFNU VEIÐ ARNAR hafa gengið vel í sumar og var mikið af henni. Báturinn Hrönn, sem gerður var út frá Reykja- ■áík fékk 30 hrefnur, 4 grind- að minnsta kostj 30 mans á reki hvali og 3 háhryrninga. Frá Akureyri voru gerðir út tveir bátar, Björgvin, sem fékk 29 hrefnur, og Njörður, sem kom með 37. hrefnuna til Akureyrar á þriðjudagsmorgun. Einnig voru stundaðar hrefnuveiðar frá Vestfjörðum og hafði Mbl. tal af Karli Þorlákssyni á Súða- vík. Karl sagði, hrefnuveiðina hafa gengið ágætlega og 9 hrefnur hefðu veiðzt. Sagði hann að mikið hefði verið af hrefnunni, sérstaklega undir lok veiðitímans. Hrefnan hélt sig mikið inni í djúpinu og hefði verið hægt að veiða mun meira af henni, ef markaður hefði verið fyrir hendi. Melra spennandi en hvalveiðar. Mbl. hafði tal af Herði Ein- arssyni skyttu í Hrönn og sagði hann, að veiðarnar hefðu gengið vel brátt fyrir nokkrar frátafir vegna bilana og ýmissa byrj- unarörðugleika. — Ég hef gengið með það í maganum í mörg ár, að fara á hrefnuveiðar, en ekki haft að- stöðu til þess fyrr. Veiðarnar gengu betur, en ég þorði að vona í upphafi. Ég er að vísu \anur hvalveiðum og þekki þær, hafði verið á hvalbátunum í 17 sumur, en þessar veiðar eru töluvert frábrugðnar. Hrefn an hagar sér allt öðru vísi en stóri hvalurinn og ég er aldred frá því, það sé meira spennandi að fást við þær. Það er um þessar veiðar eins og allar aðr- ar, að maður verður að vita, hvernig dýrin haga sér, og ég þekki það naumast nógu vel ennþá. — Það virðist vera mikið af hrefnu við landið. 12 norskir bátar voru að veiðum hér og við Grænland í sumar, og ég hafði tal af sumum skipstjór- anna. Þeir létu allir mjög vel yfir veiðinni og töldu hana jafnari en undanfarin ár. Hins vegar kvörtuðu þeir mikið yfir því, að fá ekki að veiða innan landhelgi, því að hrefnan held- ur sig mikið upp við strendurn- ar og jafnvel tnm í fjarðarbotn- um gagnstætt við stóru hvalina. — Norðmennirnir segja, að hrefnan eigi afkvæmi sín sunn- ar í Atlantshafinu og ali þau þar upp, ég man heldur ekki til þess, að ég hafi séð dýr með unga í sumar. Hrefnurnar ganga upp að suð-vesturströnd- inni á vorin, en halda sig aðal- lega út af Norðurlandi á sumr- in. Þær haldr sig ekki í hóp- um, en algengt er að sjá þær tvær saman. Híns vegar virðast þær fylgjast, að í göngum á dá- lítið stóru svæði og getur þá verið talsvert af þeim, Óhemja var af þeim vestur í Arnarfirði um miðjan ágúst og hetf ég aldrei séð jafn milkið af hrefnu. Við fengum átta á fjórum dög- um, en þá gerðt langvarandi norðaustan átt, en þegar lægði, voru þær allar horfnar. Mér var sagt, að þær hefðu haldið sig í fjarðarmynmnu um þriggja vikna skeið. — Mikið var af Hrefnu í Húnaflóanum í allt sumar og talsvert, þegar við hættum vegna ógæfta. Ef gaf fengum við alltaf hval, einn og upp í þrjá á dag. Stærsta hrefnan var 26 fet og gaf rúm 2 tn. af kjöti af sér, en þær minnstu um 600—700 kg. — Nýting kjöts til manneldis er um 85—90% af hretfnu, sem gefur um tonn af sér, en mátnk- ar svo eftir þvi sem hvalirnir stækka, jafnvel niður í 25—30%. Manneldiskjötið far allt á inn- anlandsmarkað, en ekki er Ijóst hvert við seljum dýrakjötið, en líklega þó til Englands. Við höfðum hug á því að kanna möguleika á kjötsölu til Noregs, en á því eru ýmsir vankantar, þótt eftirspurn sé næg, t.d. eru innflutningstollarnir mjög háir, 1,10 kr. norskar á kg, en verð á manneldiskjöti allt frá 3 kr. og upp í 6 kr. Einnig vilja þeir halda mörkuðunum lokuðum. — Ég held, að það geti verið grundvöllur fyrir þessum veið- um, sérstaklega ef það reyndist kleitft að nýta hrefnuna til fulls, en mjög slæmt er að geta ekki af píputóbaki 33.10 kr. London Docks kostar 62 kr. ag eldspýtna búntið 11.50. Sterkari víntegundir hækka um 35—55 kr, s'kozkt wiský kostar minnst 465 kr., pólskt Vodka 395 kr., Genever 470—4/75 kr. og íslenzka brennivínið 315 krónur. Aðrar hœkkanir eru samsvar- andi. - VAKA Framhald af bls. 2 listum og má þar geta, að Vaka hefur fengið Jón Þórar- insson til að flytja erindi um tónlist. Að lokum má geta þess, að Vaka mun beita sér fyrir því, að fengnir verði erlendir stjórnmálamenn og aðnir for- ystumenn til fyrirlestrahalds. — Hér haifa verið nefnd meginatriðin í tillögum Vöku um starfsáætlun Stúdentafé- laigsins. Er hér þó aðeins um starfsramma að ræða. Stúd- entar sjálfir móta og bera iuppi starfið og það hlýtur að ivera undir þeim sjálfum kom lið hvernig til tekst. Vafea ætl- ar sér ekki að gera Stúdenta- félagið að spilverki, sem faki að sér að halda umræðufundi úti í bæ, enda er það ekki tilgangur félagsins. Við hittuim einnig að máli Kristján T. Ragnarsson. stud. med., sem skipar (jórða sæti listans. Hann er stúdent úr Menntasfeólanum í Reykjavík 1963. Er hann nú ritstjóri Læknanemans. Hann var einn þeirra er samdi lög Stúdenta- félagsins, þegar það var end- urreist. — Mín hugmynd um Stúd- entafélagið var og er sú, að það eigi að stuðla að auknum þroska og þekkingu stúdenta. En ef stúdentar ætla að auka þrosfca sinn, verða þeir að gangast fyrir umræðufuindum sin f milli, en ekki hlusta ein- göngu á almenna borgara- ’fundi, eins og gert var síðast- ■liðinn vetur. Stúdentafélagið tá ekki að vera að setja upp 'leiksýningar úti í bæ. — Það er mikilsvert að ktúdentair komi fram sem ein eining út á við, og eins það, að Stúdentafélagið geti sent 'frá sér þær ályktanir og já- ’kvæða gagnrýni, sem mark Verði tekið á. Skiptir það þá íttlu máli á hverjum hún iendir, því að jákvæð gagn- rýni hlýtur ætíð að vara met ' Það þýðir ekki að vera að þyrla upp einhverju pólitísku moldviðri, — við erum jú á- byrgir menn í þjóðfélaginu. — Ég tók eftir þvi, að þið 'læknanemar eruð margiir á framboðslista Vöku. — Já, það er rétt, og hefði það vissulega þótt sæta tíð- indum fyrir nokkrum árum, en þá ríkti nánast styrjaldar- ástand miUi læknanema og Vöku. Það byggðist á sann- færingu okkar læknanema að Stúdentaráð ætti að startfa á ópólitískum grundvelli og fengum við því framgengt. En þá skorti grundvöll fyrir póli- tísku félögin og fékkst hann ekki fyrr en með tilkomu hinna nýju laga um Stúdenta- félag Háskólans. Er harun var fenginn hafa lýðræðissinnar í læknadeild hneigzt til Vöku og nú eru fimm læknanemar á framboðslista Vöku, þar afl þrír í fimm efstu sætunum. nýtt spikið. Mig langar til að halda áfram á næsta sumri, en enn er ekki víst, hvort mögu- ieikarnir séu tri þess. En þá verðum við að byrja fyrr, ekki seinna en um mánaðamótin apríl—maí eða fyrr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.