Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. OKT. 1967 23 IUörg eru Unuhúsin SAMA daginn og ég fermdist sendi vinkona mín, er var nokk- uð við aldur, mér peningaupp- hæð ásamt góðum óskum um framtíðarheill. Þessari sendingu fylgdu þau skilaboð, að ég ætti að nota féð til þess að fara í lysti- og fróðleiksreisu. Ég vissi að vísu, að Róm var til og einnig Búlgaría, en fyrir 42 árum mun það fremur hafa verið sjaldgæft að íslendingar leggðu leið sina á þær slóðir, sem nú er ekki óal- gengara en fyrrum var að heim- sækja góðvin eða venzlafólk í næsta hreppL En þessi fyrr- greinda vinkona mín ætlaði mér hvorki í Rómarferð né til Búlga- ríu. Ég átti að fara til Reykja- víkur. En jafnvel höfuðstaðar- reisa vestan úr Hólmi var þá stór viðburður fyrir annan eins gep- il og mig. Strákar, . sem aðeins voru komnir yfir tekt og áttu ekki við annan kost að búa í flest mál en tros, þrumara og hafragraut, gátu ekki leyft sér þanrr munað að fara í slíkar lystireisur. En ferð mín var ráð- in og gamla Esja öslaði út Breiðafjörðinn. Heiðbjartan júnímorgun, rétt fyrir rismál, var hún lögst við festar í höfuð- staðnum. Ég rólaði um hafnar- bakkann góða stund, var að doka eftir fótaferð fólksins, sem ég ætlaði fyrst að heilsa upp á. Þegar ég þóttist þess vís, að ég þyrfti engum að gera rúmrusk, lá leið min upp í bæinn, með ferðateskið, sem hvorki var fyr- irferðarmikið né skrautlegt. All- ir, sem á leið minni urðu og ég yrti á, vísuðu mér góðfúslega til vegar, eins og við strákarnir í Hólminum höfðum tamið okK- ur að gera, þegar ókunnir ferða- langar spurðu um leiðina að vertshúsinu eða til Hansínu. Fyrr en varði stóð ég við dyrn- ar á Þórsgötu 7. Til dyranna gekk kona hýr í bragði, viðmóts- glöð, innan við miðjan aldur, en þó orðin gráýrð á háLr. „Ert þú Magðalena“, spurði ég. Hún játti því, og ég kynnti mig þegar með þessum orðum: „Ég heiti Lúðvík, sonur henn ar Súsönnu frænku þinnar í Stykkishólmi, ég er kominn til að skoða mig hér um, ætla að- eins að stanza í nokkra daga“. Og þar sem ég stóð nú þarna í dyrum hennar kyssti hún mig á kinnina, tók við ferðateski mínu, bauð mig velkominn í bæ sinn og sagði með viðfelldinni áherzlu: „Þú býrð hjá okkur, meðan þú ert hér syðra“. Þórsgata 7 var ekki stórt hús, einlyft, en að baki þess var ann- að hús minna og þar bjó Sig- ríður ömmusystir mín, móðir Magðalenu. Þá er ég hafði tyllt mér í stofu frænku, veitti ég einkum at'hygli mjög haglega út söguðum og skornum mynda- römmum, er stóðu á orgeli, svo og því, hve öllu var þar hagan- lega fyrir komið, nánast sagt af mikilli list, svo að hver hlutur harmoneraði við annan, en íburður var þar ekki, né óþarfa prjál, hvorki postulínshundar, Viktoría drottning né heldur mynd af næstu ættliðum Dana- konungs. Hinsvegar hékk á ein- um veggnum málverk eftir hús- bóndann. Þegar Kristjón kom héim um hádegið varð enn meiri sveifla á viðræðunni, hann dillaði af kátínu eins og ég væri sonur hans heimtur úr útlegð, og 'hver spurningin rak aðra, um fólkið fyrir vestan, nýjustu atburði og síðast en ekki sízt, hvort ég hefði komið á þennan eð(a hinn staðinn og veitt sérkennum þeirra athygli. Ingigerður og Ólafur Björn voru komin í skjól Kristjóns son ar síns og Magðalenu á Þórs- götu 7. Loks er að geta Hilmars stúfsins, sonar Kristjóns og Magðalenu, og er þá upptalið fólkið á Þórsgötu 7, er ég kom þar fyrst, en þar varð mitt Unu- hús. En þótt Malla og Kiddi, eins og þau hafa jafnan heitið á rnáli þeirra, sem gerzt þekkja þau, hefðu bústaðaskipti, breyttist þeirra Unuhús ekki að öðru leyti en því, að gólfflöturinn var eigi ætíð sá sami. En hver eru Malla og Kiddi? Því er í rauninni ekki auðsvar- að og sízt í stuttu máli. Foreldr- ar Kidda voru Ingigerður Þor- geirsdóttir og Ólafur Björn Þor- grímsson. Hún ættuð sunnan fyrir heiði á Snæfellsnesi og voru forfeður hennar einkum í Kolbeinsstaðahreppi, en hann Eyrsveitungur í húð og hár í marga ættliði. Þau bjuggu lengst af á Höfða í Eyrarsveit, síðar á Kvíabryggju og Joks í ellinni í skjóli sonar síns í Rvík. For- eldrar Möllu voru Sigríður Jóns- dóttir, snæfellskrar ættar, og Guðjón Þórðarson sunnlenzkrar ættar, en Þórður yar um skeið umsjónarmaður í Lærða skólan- um. Malla var alin upp í Hlíð- arhúsahverfinu, en þar verkaði hún' ung saltfisk með móður sinni fyrir Geir gamla Zoéga, því að Guðjón var oftast á kaup- förum. Kiddi byrjaði snemma að stunda sjó, fyrst með föður sínum heima á Höfða, en síðan á skútum. Að því búnu lá leiðin til Eyvindar Árnasonar, þar sem hann lærði húsgagnasmíði og lauk prófi í þeirri greip. Síðan hefur hann ekki sinnt öðrum störfum en smíðum. Malla og Kiddi voru nokkuð sérstæð ung hjón í þann tíð, þau voru ekki einungis samhent, heldur voru hugðarefni þeirra mjög lik. Náttúran heillaði þau, Indira Gandhi ræðir við pólska ráðherra Varsjá, 9. oktöber. AP-NTB. FRÚ Indira Gandhi, forsætis- ráðherra Indlands, hóf i dag við- ræður sínar við Josef Cyrenkie- wicz, forsætisráðherra og fleiri pólska ráðherra. Frú Gandhi kom til Varsjáar í dag í þriggja daga heimsókn, en þaðan heldur hún til Júgóslavíu, Búlgaríu, Rúmeníu og Egyptalands. Utanríkisráðherra Póllands, Adam Rapacki, Witoidi Trampcz- ynski, sem fer með utanríkis- mál í pólsku stjórninni og Lucj- an Motyka menningarmálaráð- herra og aðrir ráðherrar tóku þátt í viðræðunum í dag. í fylgd með frú Gandhi er R. Dayal utahríkisráðherra. Indverjar eiga ásamt Pólverj- um og Kandadamönnum fulltrúa í aíþjóðlegu vopnahlésnefndinni í Vietnam og því er talið víst að ástandið í Vietnam hafi borið á góma í viðræðunum. Einnig er talið, að rætt hafi verið um ástandið fyrir botni Miðjarðar- hafs, landamærad'eilu Ind'verja og Kínverja og samskipti Ind- verja og Pakistana. Þá var og rætt um möguleika á aukinni verzlun Indverja og Pólverja og samvinnu á sviði tæknimála. Á leiðinni til Varsjá kom frú Gandhi við í Moskvu, þar sem hún ræddi í fjóra klukkutíma við sovézka forsætisráðherrann Alexei Kosygin og Andrei Gromyko, utanríkisráðherra. Aðalumræðuefnin voru friðar- samningur Indverja og Pakist- ana, sem Rússar komu til leiðar í Tasjkent í janúar 1966, og heimsókn Ayúbs Khan Pakistan- florseta til Moskvu nýlega, en talið er að hann hafi reynt að fá Rússa til að draga úr vopna- sendingum sínum til Indlands. þessvegna lögðu þau ætíð land undir fót, þegar þau máttu því við koma. Snemma eignuðust þau reiðhjól. Allt umhverfi Reykjavíkur varð þeim brátt gerkunnugt. Síðar Reykjanes- skaginn og aðrar nálægar sveitir. Kiddi eignaðist myndavél 1914 og tók mikið af myndum á ferðum þeirra hjóna. Síðan lá leið þeirra um fjarlæg lönd. Víst er, að á erlendri grund hafa þau séð margt, sem var þeim fram- andi, en mér er til efs, að ann- að hafi veitt þeim meiri ánægju en náttúruskoðun á Reykjanesi og ekki sízt í námunda við Reykjavík. Kiddi er frábær völundur, hef ur auga og hendur listamanns. Og enn er hann þrátt fyrir all háan aldur svo næmur og óskeik ull í iðn sinni að fáir munu eftir leika. Eitt sinn stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, eignaðist stórhýsi ekki allfjarri miðtoæn- um og hefði því nú samkvæmt guðs- og mannalögum átt að vera margfaldur milljónerL En alla tíð hafa verið til bragðarefir á íslandi, sem purkunarlaust hafa hlunnfarið þá, er ástunda heið- arleika og ætla aldrei neitt mis- jafnt í fari annarra, og þess vegna er Kiddi ekki margfald- ur milljóneri í dag, ekki einu sinni einfaldur, en þó manna glaðastur og sælastur. Um síðir reisti Kiddi sér snot- urt timburhús inni á Ártúns- höfða og þar bjuggu þau hjón í mörg ár og gerðu þar stóran og fagran blóma- óg trjágarð. Handarvik þeirra í þessum garði verða aldrei talin, en þau sýndu með öðru ást þeirra á gróðri og fegurð. En loks kom að því, að þau urðu að víkja úr húsi sinu og sjá garðinn sinn fara undir verksmiðju'byggingar. En enn hafa þau þó hjá sér nokkrar minjar úr Ártúnshöfða- garðinum, þar sem þau nú búa í litlu húsi við Langholtsveg 55. Af heimilislífi Möllu og Kidda er fögur saga, hvar sem niður er drepið. Sigríður móðir Möllu dvaldist hjá þeim átta síðustu - U % , Magðalena Guðjónsdótt ir og Kristjón Ólafsson. æviárin, blind og lengst af rúm- föst, en hún andaðist 1960, þá 94 ára gömul. Alúðin, hlýjan og umhirðan, sem þessi aldna, blinda og útslitna kona mætti hjá þeim, var frábær og væri óskandi, að allir þeir, sem hafa stritað linnulaust langa ævi, nytu slíkra iauna, sem Sigríður ömmusystir mín, þvi að þau verða aldrei metin á kvarða sjúkrahúsdagspeninga. Jóhanna bróðurdóttir Kidda kom til þeirra hjóna á fyrsta ári og ólst alfarið upp hjá þeim. Hún er gift Ingva Viktorssyni og á 3 börn. Loks k:m Inga syst- urdóttir Kidda til þeirra 16 ára gömul og var hjá þeim þar til hún giftist. Sonurinn Hilmar, sem í .mörg ár hefur verið forstöðumaður fyrir fiskiveiðideild F.A.O., er búsettur í Róm. Þann starfa hef- ur hann rækt á þá lund, að ís- lendingum má vera mikil fremd í að eiga svo góðan full- trúa á alþjóða vettvangi. Hið mikla rit hans „Modern fishing gear of the world“, sem kom út í London 1959, er mjög víðkunn- ugt og þykir afbragð. Hilmar er kvæntur Önnur Ólafsdóttur og eiga þau 3 börn. Gleði- og skemmtistundirnar á heimili Möllu og Kidda voru margar og ógleymanlegar og var þó Bakkus ekki kátínumeðal á því heimili. Skáld og listamenn áttu sitt Upprifjunarnámskeið fyrir ökumenn hjá BFÖ UNDANFARIN ár hafa komið fram margar nýjungar í sam- bandi við umferð og margir ökumenn hafa ekki fengið tæki- færi til að kynna sér þær. Eru þeir af þeim sökum óvissir um hvernig haga skuli akstri við ýmsar aðstæður. Til þess að reyna að ráða bót á þessu, tók Reykjavíkurdeild Bindindisfé- lags ökumanna upp þá ný- breytni á síðastl. vetri, að efna til upprifjunarnámskeiða fyrir ökumenn. Hafa verið haldin tvö námskefð, en á þeim var farið yfir umferðarlögin og fræðslu- erindi með skugga- og kvik- myndum flutt, m.a. um hálku- ak.stur og störf umferðarlögregl- unnar. Þótti starf þetta takast mjög vel og kom glöggt í ljós, að mikil þörf er á slíku fræðslu- starfi. Nú hefur verið ákveðið að taka upp starfsemina að nýju og mun fyrsta námskeiðið á þessum vetri hefjast 16. októ- ber n.k. í húsi Slysavarnafélags íslands á Grandagarði og standa dagana 16.—20. október kl. 20 —22 hvert kvöld. Verða nám- skeiðin mun fjölbreyttari en þau fyrri, þar sem nú verður fjalla’ð um umferðarlög, lög- reglumál og rannsókn umferðar- slyaa, leiðbeinirhgair í umferð- inni, hálkuakstur, skyndihjálp, slysa, leiðbeiningar í umferð- ökutækja. Hafa verið ráðnir hin ir hæfustu leiðbeinendur og skugga- og kvikmyndir verða notaðar sem hjálpargögn. BFÖ vill hvetja ökumenn til að sækja þessi námskeið, sem verða opin öllum sem áhuga hafa á umferðarmálum, en góð þekking á umferðarlögum og reglum er bezta undirstaðan undir væntanlega breytingu úr vinstri í hægri umferð. Þátttöku skal tilkynna til Ábyrgðar h.f. Skúlagötu 63, Reykjavík, sími 1755. (Fréttatilkynning). Unuhús. En mér er til efs, að ég hefði grætt meira fyrir sál- arheill mína og þroska á að vera gestur í því alkunna húsi, heldur en í mínu Unuhúsi hjá Möllu, Kidda, Ingigerði, Ólafi Birni og Sigríðþ þessu greinda og margreynda alþýðufólki, sem bar kennsl á kíf og nauð á sjó og landi. Guðrún Ulugadóttir, fóstra Sigríðar, var fædd í sjálf- um Móðuharðindunum, svo að sögur af athyglisverðum viðburð um fóru þar ekki margra á millL f dag er hálf öld, síðan Malla og Kiddi gripu um sama bands- haldið, eins og sagt var undir Jökli og séra Jóhann lagði bless- un sína yfir þá ákvörðun þeirra. Á þessu bandshaidi hefur aldrei tognað, því síður að það hafi slitnað. Mínu fólki í mínu Unuhúsi óska ég gæfu og blessunar, en það er nú að klíía á áttunda tuginn og þakka hjartanlega fyr- ir það, sem ég he£ hjá því not- ið fyrr og síðar. Lúðvík Kristjánsson. Tónleikur í Gorðnkirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 15. þ.m. verða haldnir kvöldtónleikar í Garðakirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Mun LSinfóníuhljómsveit ís- lands leika undir stjórn Bohdan Vodiczko. — Einsöngvari með hljómsveitinni verður Ruth Little Magnússon. Á þessurn kvöldtónleikum munu verða flutt verk eftir Bach, Handel, Gluck Geminiani og Grieg. Þetta eru fyrstu tónleikar Sin- fóníutoljómsveitar íslands í hinni nýju og faUegu Garðakirkju. Eru þeir haldnir á veigum Tón- listarfélags Garðahrepps fyrir styrktarfélaga tónlistarfélaigsins og aðra gesti. Þó mun öllum vera heimill aðgangur á meðan hús- rúm leyfir. (Frá Tónlistarfélagi Bændur Vegna geymsluörðugleika seljum Við eftirtalin landbúnaðartæki með afslætti meðan birgðir end- ast. Afslátturinn miðast við staðgreiðslu og að tækin verði sótt strax. Fella heytætlur 4ra og 6 stjörnu. Lien moksturtæki fyrir Ferguson 35 og TF-20 Zetor 3oll og Ford 2000. Bentall steypuhrærivélar, fyrir traktora. Kvernelands heykvíslar. Howard jarðtætara, 50 tommu. Vicon Lely múgavélar, 6 hjóla. Notið ykkur þetta einstaka tækifæri og hafið samband við okkur strax. Globusa LÁGMÚLI 5, SlMI 11555

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.