Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. OKT. 1967 19 - ATVINNUVEGIR Framhald af bls. 10 skattheimtu ríkisins einfaldari og öruggari. Sett verði ný löggjöf um Stjórnarráðið og htna æðstu umboðsstjórn. Teknar verði upp viðræður milli stjórnmála- ílokkanna um þá breytingu á stjórnarskránni, að Alþingi verði ein málastofa. Endursamþykkt verði á þessu þingi stjórnarskrárfrumvarp um lækkun kosningaaldurs í 20 ár. Nauðsyniegar breyfing- ar á kosningalögum til Alþingis verði gerðar. Efnt verði til sérfræðilegrar könnunar af íslands hálfu á því, hvernig vörnum landsins verði til frambúðar bezt háttað. Unnið verði álrum að friðun fiskimiða umhverfis landið og viðurkenningu a rétti íslands yfir öllu landgrunninu. Gylfi Þ. Gislason mennta- málaráðherra, sagði að innan miðstjórnar Alþýðuflokksins hefði verið samþykkt einróma áframhaldandi stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn á grund- velli þeirrar stefr.uyfirlýsingar er forsætisráðheri a hefði fiurt. Eysteinn Jónsson (F) sagði Framsóknarflokkinn andvígan stefnu ríkisstjórnarinnar og teldi hana í grundvallarreglum ranga.Viðhorfin hefðu breytzt mikið frá því að gengið var til kosninga. Þrátt fyrir að mikið verðfall hefði orðið á útflutn- ingsvörum íslendings. bæri að geta þess. að ærð þeirra væri nú hagstæðara, en þegar ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins hefði fyrst tekið við. Athyglivert væri, að ekkert af þeim álögum sem rík- ísstjórnin hyggði nú á, væri ætlaðar til stjrrktar atvinnuveg- unum, en erfiðleikar þeirra væru nú mjög miklir, og mundi Framsóknarflokkurinn á þessu þingi berjast fyrir endurreisn þeirra og vildi við það hafa sem víðtækast samstarf við hinar ýmsu starfsgreinar. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum nú, mundi leiða til nýrrar verðhækkunarbylgju sem skella mundi á af fullum þunga, og væri bein karaskerð- ing. I stað þess væri nauðsyn- legt að takast á við þær gru'nd- vallarmeinsemdir sem nú þjök- uðu íslenzka atvinnuvegi. >á las Eysteinn upp nokkur atriði sem hann sagði að Framsóknarflokk- urinn mundi leggja áherzlu á á Alþingi í vetur. Lúðvík Jósefsson (K) sagði, að ráðstafanir ríkisstjórnarinar nú myndu leiða af sér beina kjaraskerðingu og væru þær beinlínis brot við hið svokallaða júní samkomulag við verkalýðs- iireyfinguna, og ennfremur á verðstöðvunarlögunum. Aðgerð- ir þær sem nú væru fyrirhug- aðar sýndu fram á, að ríkis- stjórnin hefði ekki látið af dýr- tíðarstefnu sinni, og ekki væri uppi nein áfornt um að létta undir með framleiðsluatvinnu- vegunum, og leysa rekstrar- vandamál þeirra. Koma þyrftí nú til grundvallarbreyting í efnahagsmálum landsins, því lítið mundi ávinnast með þeirr* stefnu að lækka urnsamið kaup, — slíkt mundi ekki standast í framkvæmd Þær grundvallar- breytingar sem ti! þyrftu að koma yrði að framkvæma i sam ráði við launþegastéttir lands- ins. Frumvarp iam æsku- lýðsmúl lagt Irum Kjörbréf Steingrlms Pálssonar samþykkt — með atkvœðum framsóknar- manna og kommúnista FYRSTA málið em var á dag skrá Sameinaðs Alþingis í gær var atkvæðagreiðsla um kjörbréf þingmanna. Voru þau öll-samþykkt samhljóða, nema kjörbréf Steingríms Pálssonar, 8. landskjörins þingmanns. Við atkvæða- greiðslu um það var viðhaft nafnakall, og var það sam- þykkt með 28 atkvæðum framsóknarmanna og komm- únista. Einn þingmaður greiddi atkvæði gegn kjör- bréfinu, en 31 sat hjá. Við atkvæðc-greiðslu gerði Magnús Kjartansson grein fyrir atkvæði sinu, og sagði að þar sein landskiör- stjórn hefði úrskurðað að at- kvæði I-listans skyldu reikn- uð Alþýðubandalaginu við úthlutun uppbótarþingsæta og málgögn stjórnarandstöð- unnar höfðu lýst stuðningi sínum við þann úrskurð, teldi hann að kjósendur ættu siðferðis- og lýðræðislegan rétt á að atkvæði I-listans væru reiknuð með atkvæð- um Alþýðubar.dalagsins með atkvæðum Framisóknarmanna og kommúnista. Pétur Benediktsson greiddi atkvæði gegr. kjörbréfinu, og gerði eftirfarandi grein fyrir atkvæði sinu: „Mér var eiginlega um og ó að stuðla að því að þröngva vinum mínum í Aiþýðu- flokknum til að taka við þing sæti sem pólitísk hófsemi þeirra bannar þeim að gera kröfur til, — þótt ég telji lagaréttinn vera þeirra meg- in. Og því hafði ég heldur hallast að þvi að fylgja þeim hóp, sem ekki greiðir at- kvæði. En hinn skýri mál- flutningur hv. 6. þm. Rvk. (Mag.núsar Kjartanssonar) í gær, hefur opnað augu mín fyrir ótvírseðurr. rétti kjós- enda til þess að þingsætum sé úthlutað í samræmi við það hvernig atkvæði féllu á kjördag, á iöglega auglýsía framboðslista. Og því hlýt ég að segja nei.“ á Alþingi f GÆR var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um æskulýðs- mái. Frumvarp þetta var éinnig lagt fyrir Alþingi si. vetur, en hlaut þá ekki afgreið'slu. ' Tilgangur laganna er, að setja reglur um opinberan stuðning við æskulýðsstarfsemi. Þeir aðii ar, er njóta stuðnings samkvæmt lögunum, eru: 1. Félög, er vinna að æskulýðs málum á frjálsum áhugamanna- grundvelli, enda byggist félags- starfsemin fyrst og fremst á sjálfboðastarfi og eigin fjárfram lögum félagsmanna. 2. Aðrir aðilar, er sinna eink- um velferðarmálum ófélagsbund ins æskufólks í skipulögðu starfi. Heimilt er að styðja frjálsa félags- og tómstundastarfssemi í skólum, sem ekki er takmörkúð við nemendur viðkomandi skóla. Lögin miðast einkum við æsku lýðsstarfsemi fyrir ungmenni á aldrinum 12—21 árs. Einig var á Alþingi í gær lagt fram stjórnarfrumvarp um inn- heimtu ýmissa gjalda við við- auka. Með því frumvarpi er gert ráð fyrir að innheimta tiltekin gjöld á árinu 1968 með sömu við aukum og verið hefur undanfar- in ár. — Þingforsetar Framhald af bls. 32 Sigurður Bjarnason hefur ver- ið forseti Neðri deildar árin 1949—1956 og síðan 1963 eða í 11 ár samtals. Birgir Finnsson hefur verið forseti Sameinaðs Alþingis síðan 1963, eða í 4 ár. Við kosningu forseta Samein- aðs Alþingis hlaut Birgir Finns- son 32 atkvæði, en Eysteinn Jónsson 28. Fyrsti varaforseti var kjörinn Ólafur Björnsson með 31 atkvæði, er. Hannibal Valdimarsson hlaut 28 at- kvæði, einn seðill var auður. Annar varaforseti var kjörinn Sigurður Ingimundarso.n með 32 atkvæðum, 27 seðlar voru auðir. Skrifarar Sameinaðs Alþingis voru kjörnir þeir Páll Þorsteinsson og Bjartmar Guð- mundsson. Við kosningu forseta Neðri deildar hlaut Sigurður Bjarna- son 21 atkvæði, en Ágúst Þor- valdsson 19. Fyrsti varaforseti var kjörinn Benedikt Gröndal með 21 atkvæði, Eðvarð Sigurðs son hlaut 19 atkvæði og annar varaforseti var kjörinn Matthías Á Mathiesen með 21 atkvæði, 19 seðlar voru auðir. Skrifarar Neðri deildar voru kjörnir þeir Friðjón Þórðarson og Ingvar Gíslason. Við forsetakjör í Efri deild hlaut Jónas G. Rafnar 11 at- kvæði, en Ásgeir Bjarnason 9. Fyrsti varaforseti var kjörinn Jón Þorsteinsson með 11 atkvæð um, en Björn Jónsson hlaut 9 atkvæði. Annar varaforseti var kjörinn Jón Árnason með 11 atkvæðum, 9 seðlar voru auðir. Ritarar Efri deildar voru kjörn- ir þeir Steinþór Gestsson og Bjarni Guðbjörnsson. í kjör’bréfanefnd voru kosnir: Matthías Á. Mathiesen, Pálmi Jónsson, Auður Auðuns, Jón Þorsteinsson, Ólafur Jóhannes- son, Björn Fr. Björnsson og Karl Guðjónsson. 0^1 B • ® ^ holskin vio sundin Jóns Stefánssonar fór á 95 þús. kr. Frá má/verkauppboði Sigurðar Ben. A MALVERK A CPPBOÐI Sig- urðar Benediktssonar á Hótel Sögu í gærkvöldi fór mynd Jóns Stefánssonar, Sólskin við Sund- in, á hæstu vcrði. 95 þús. kr. Næstar í röðinni voru tvær Kjarvalsmyndir, Úr Gálga- hrauni á 79 þús. kr. og Sumar- kvöld við Korpu a 75 þús. kr. Alis voru 53 myndir á uppboð- inu og seldust 49. Alltaf keypt of ódýrt Mynd Jóns Stefánssonar, olíu- mynd á masórít, taldi Sigurður meðal hans beztu listaverka. Úr Gálgahrauni er nýjasta mynd Kjarvals og varla orðin þurr. Hins vegar var Sumarkvöld við Korpu málað 1933, ,,ein af þeitn myndum, sem aldrei verður nógu dýr, en er alltaf keypt of ódýrt“, eins og Sigurður Komst að orði. Mynd Gunnlaugs Blöndais, Venus með greiðu, var slegin á 32 þús. kr., en hún var eitt sinn í eigu Sigvalda Kaldalóns. Hvítt barn Jóhanns Briem fór á 28 þús. Nature morte á 22 þús. og Snæfellsjökull á 18 þús., báðar eftir Kjarval, Tvær myndir fóru á 13 þús. Lifsgieði Kristjáns Davíðssonar og Rökkurgeislar Kjarval, Landslag Jóns Engil- berts fór á 11 þús. og Kjarvals- myndin Hús í þoku á 10 þús. Síðastnefnda myndin og Nature morte, siem fyrr er getið kann- ast Kjarval við að hafa selt Einari Benediktssyni og hefði hann borgað sér vel. Þessar myndir lentu síðar á Kyrrahafs- strönd, en eru nú loks endur- heimtar. Samvinna framsóknar og kommúnista - ÞEGAR atkvæðl vorn talin við forsetakjör á Alþingi í gær kom í ljós, að kommún- istar og frainsóknarmenn höfðu þar ruglað saman reytum sinum, eins og svo oft áður Kommúnistar studdu Eystein Jónsson, for- mann Framsóknarflokksins sem forseta Sameinaðs Alþing is, Ágúst Þorvaldsson við kjör forseta Neðri-deildar og Ásgeir Bjarnason við kjör forseta Efri-deildar. Fram- sókn launaði greiðann með því að kjósa Hannibal, Eðvarð og Björn er fyrstu varaforsetar þingdeildanna voru kjörnit. Virtist ekki ganga hnífur á milli samherjanna, Fram- sóknar og kommúnista, og at- hygli vakti einnig hversu mjög keiinlíkar ræður þeirra Eysteins og Lúðvíks voru þegar þeir tóku til máls um stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar. Fór 10 þús. ódýrara vegna lélegs ramina. I stuttu spjalli við Mbl. sagði Sigurður Benediktsson eftir uppboðið: — Það var voðalega þungt yfir mönnum, en það er von. Brennivínið hækkaði í dag og smjörið líka. En myndirnar gierðu ekki meira en að standa í stað. Að vísu fékkst sæmilegt verð fyrir bezlu myndirnar, en aðrar myndir voru heldur undir meðallagi. — Ég var svoiítið skúffaður yfir myndir.ni af Korpu, af því að’ hún fór 10 þús. ódýrara en hún þurfti, þar sem hún var í svo lélegum ramma. Það er miklu meira atriði en fólk held- ur, að ramminn sé góður. En myndin kom svo seint, að ekki gafst ekki tími tii að láta ramma hana inn. — Næsta uppboð verður bóka uppboð nú eftir helgina. Síðan kemur væntanlega listmuna- uppboð í nóvember og líkiega annað málverkauppboð fyrir jólin. — Ég vil svo gjarna taka það fram, úr því að þú ert að skrifa um uppboðin, minn elskanlegi, að fólk, komi með myndirnar í tæka tíð til mín eða hálfum rnánuði fyrir uppboð. Það er svo skrítið, að sumar myndirnar get ég ekki seit, ég þekki þær ekki og get ekki mælt með þeim, nema ég hati haft þær hjá mér um nokurt skeið. H. Bl. Sigurð'ur Benediktsson slær mynd Jóns Slefánssonar, Sól- skin við Sundin á 95 þús. kf. (Ljósm. Kristinn Benediktss.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.