Morgunblaðið - 15.10.1967, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.10.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKT. 1967 5 Leysa ekki vandann STARFSSTÚLKNAFÉLAGIÐ Sókn hefur á félagsfundi álykt- að, að tillðgur meirihluta laga- og skipulagsnefn-dar ASÍ leysi ekki þann vanda, sem 'verka- lýðshreyfingin á við að etja. Rétt sé að kanna möguleika ; á því að stækka félagssvæði . verkalýðsfélaga og sameina þau í stærri heildir, og verði sam- | bandsstjórn ASÍ falið, í samráði við fjórðungssamböndin, að kanna þá möguleika ítarlega. Þvi verði máli þessu frestað til næsta reglulegs Alþýðusam- bandsþings. í greinargerð fyrir þessari ályktun segir m.a., að skipu- lagstillögur feli í sér aukinn rekstrarkostnað og geri fjár- skortsvandamál verkalýðsfélag- anna því enn alvarlegra, enn- fremur séu þær of þungar í vöfum. Þá samþykkti Starfsstúlkna- félagið Sókn ályktun þess efnis, að ekki komi til mála að þeim vanda, sem útflutningsatvinnu- vegirnlr eru í og minnkandi greiðslugeta ríkissjóðs skapar, verði velt yfir á launþega. Fulltrúar APECO og skrifstofuvéla við þotuna á Reykjavík- urflugvelli. (Ljósm. Sv. Þorm.) Fulltrúar „APECO“ í 2 daga þotuferð um Evrópu FULLTRÚAR „APECO“ lentu á Reykjavíkurflugvelli í gær í eigin þotu og var henni stjórnað af Mr. Rautbord, forstjóra American Photocopi Equiment Company (APECO). Með vél- inni voru fjórir fulltrúar frá fyrirtækinu, sem verið hafa á ferðalagi um Evrópu til þess að hitta umboðsmerín fyrirtækiis- inh og forstöðumenn eigin úti- búa. Hópurinn lagði upp frá Bandaríkjunum 23. sept., og er nú á heimleið eftir heimsókn í 10 löndum. APECO er með aðalsetur í Evanstoun. Illinóis, og er einn aðalframleiðandi ljósprentunar- tækja og tilheyrandi búnað- ar, teikniáhalda og Ijósmynda- tækja. Fyrirtækið selur og framleiðir í yfir 70 löndum, í Evrópu, Asíu og Mið-Austur- iöndum. Tilgangurinn með heimsókn okkar til Reykjavíkur sagði Rautbord forstjóri er að styrkja samböndin milli APECO og Skrifstofu'véla og kynna tvær nýjar vélar frá okkur, APECO, Mini-Stat og Super Stat II ljós- prentunarvélar. Á meðan á heimsókn okkar stendur, sagði Mr. Rautbord munum við athuga þarfir hér- lendra fyrirtækja fyrir hag- kvæmar, öruggar Ijósprentunar- vélar fyrir skrifstofur, og aðlaga þær APECO vélar sem eru í þróun, þessum þörfum. Nýju vélarnar okkar tvær mæta kaupgetu þeirra, sem nota lítið magn, án þess að gæð- unum sé fórnað, þrátt fyrir lágt verð vélanna og afritanna, sem þær skila, sagði Rautbord. Mini-Stat vélin vegur aðeins 20 kg., og er að utanmáli að- eins 30x45x38 cm, og skilar þurrum afritum, sem eru tilbú- in til notkunar þegar í stað, af hverju sem er vélritað, skrifað, prentað eða mynda$S. Vélin tekur afrit af litum, og tekur víð öllum pappírsþykkt- j um allt frá berki af lauk og j upp í þykkan pappa. Nýja Super-Staí vélin, sem er kynnt hér er með fullkomnu lesborði og undirliggjandi ljós- kerfi, sem gerir vélinni kleift að gera afrit (mynd) af hverju sem er, skrifuðu, prentuðu, teiknuðu eða mynduðu. APECO voru brautryðjendur í framleiðslu ljósprentunarvéla fyrir skrifstofur með því að smíða síðan fyrstu vélina, sem bjó til afrit með vökvaaðferð, en hún reyndist vera fyrirrenn- ari núverandi þurru véla. Tóbak kinna vandlátu i C*r tra c/JmttoeeU cfimMt ctoéeeeer

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.