Morgunblaðið - 15.10.1967, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.10.1967, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKT. 1967 15 Laxveiði í sjó og laxamerkingar — Frá stjórnarfundi Norrœna sportveiðimannasambandsins STJÓRNARFUNDUR var Rald- inn í Norræna sportveiðimanna- sambandinu eða Nordisk Sports- fiskerunion að Hótel Borg sunnu daginn 'þann 10. sept. sL Af ísl hálfu sátu fundinn Hákon Jó- hannsáon, Oliver Steinn Jðhann- esson og Guðmundur J. Krist- jánsson. Formaður sambandsins, Erik Cristoffersen frá Danmörku, setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna. Aðalumræðuefni fundarins var laxveiði í sjó og laxamerkingar. Einnig var rætt um sportveiði og notkun þeirra, stangveiði og ferðamann, veiðieftirlit og mögu leikum á að koma gagnkvæmum upplýsingum um reynslu, nýj- ungar og þróun í fiskirækt og fiskræktarstöðvum, Knut Rom, framkvstj. Norges- Jager of Fiskerforbund flutti at- hyglisvert erindi um laxveiði í sjó við Noreg. Kom fram í er- indi hans að um 90% af laxin- um er veiddur í sjó og að mikill 'hluti af stangveiðiveiddum laxi 'bæri m.erki um netaför. Sjávar- veiðin hefur einkum verið stunduð meðfram norsku strönd- inni. Auk þess hefur laxveiði farið sívaxandi í hafinu fyrir utan landhelgina við vestur- strönd Noregs, einkum 5-6 sið- ustu árin, bæði á línu og rek- net. Mikill hluti þessarar veiði er smá-lax. Er álitið að lax sá, sem veiddur er þarna í úthafinu geti verið frá Skandinavíu, Bret- landséyjum og íslandi. Ennpá munu þó ekki liggja fyrir sönn- unargögn um það. Þá flutti ritari Landssamb. ísl. stangveiðimanna, Hákon Jó'hansson, erindi um laxa- merkingar og laxveiði í sjó við Grænland. Gat hann þess að laxamerkingar væru dýrar, kostnaður við að merkja hvert seiði (merki innif) og vinna við endurheimtur væri um kr. 16.—. Landssamb. ísl. stangvm. hefði beitt sér fyrir, að nú hefði verið veittar í fyrsta sinn, kr. 50.000.00 til laxamerkingar, en það væri hvergi nóg. Þegar Knut Rom var hér sl. vor og þeir ræddu fiskræktarmálin, hefði Knut skýrt frá að möguleikar væru að fá styrk til laxamerkinga frá Bandaríkjunum. Þar sem hér vantar fé til þessara mála, þá fannst stjórn L.Í.S. sjálfsagt að athuga þetta nánai og kanna hvort möguleikar væru fyrir hendi að fá styrki frá Bandaríkj- unum til merkingar á Atlants- hafslaxinum, m.a. til þess að reyna að fá vitneskju um hvað- an sá lax, sem veiddur er við Grænland er. Ritari L.Í.S. hefði því skrifað Knut Rom og beðið hann um að athuga þetta betur. Bréf dags. 22. ág. væri kiomið frá Knut Rom, þar sem hann segist þegar hafa sett sig í sam- band við viðkomnandi aðila í Bandaríkjunum, til þess að fá að vita að hve miklu leyti og á hvern hátt slíkur styrkur til laxa merkinga yrði veittur. Um laxveiðarnar við Græn- iand, sagði Hákon Jóhannsson m.a. þetta: „Árið 1964 komst aflinn í há- imark eða um 1400 tonn, en dett- ur aftur niður árið 1966 í 740 tonn. Þessi lax hefur einkum verið veiddur í lagnet meðfram ströndinnL Þessu til viðbótar eru svo Færeyingar byrjaðir á að stunda retnetaveiðar fyrir lax. í aflan- um hefur fundizt lax merktur í Ameríku (Bandar. og Kanada), írlandi, Bretlandi og Svíþjóð. ILax merktur frá íslandi mun ekki hafa fundizt, enda kannske eðlilegt, þar sem merkingar hér hafa aðallega farið fram með uggaklippingu, nema hin allra síðustu ár. Ennþá hefur ekki verið hægt að segja um hvaðan þessi lax er. Það getur þó ekki verið frá Grænlandi nema að mjög óverulegu leyti, enda ekki nema 1 eða 2 laxveiðiár þar. Er jafnvel álitið að aðalmagnið sé frá Kanada. Hitt er þó víst, að að lax beggja vegna Atlants- hafs sækir á þessar slóðir. Það sanna laxamerkin, sem fundizt hafa. Englendingar hafa litið þessar veiðar illu auga. Hafa meira segja umræður spunnizt um þessi mál í brezka Parla- mentinu. Hvort íslenzki laxinn leitar á þessi mið vitum við ekki. Það hefur ekkert komið í ljós, sem gefur það beint til kynna og heldur ekkert komið fram, sem segir að svo sé ekki. ísland virðist þó vera innan þess svæðis, sem laxinn við Græn- land kemur frá. Því þurfum við að vera á verði og fylgjast með þessum málum. Ef við tökum aflaárið 1964, en þá veiddust við Grænland um 1400 tonn af laxi og er þá miðað við slægðan lax en við það létt- ist hann um 20-25%, þá er þetta um 14% af heildarafla aðal lax- veiðilandanna eins og segir í áliti samstarfsnefndar Alþjóða- hafrannsóknarráðsins (ICES) og Alþjóðafiskveiðinefndinni fyrir Norðvestur-Atlantshaf (ICNAF). Hér er árlegur afli um 100 tonn eða um 30 þús. laxar, áð vísu breytilegur frá ári til árs. í Noregi mun heildar aflinn vera 1800-2000 tonn eða nókkru meiri en veiðarnar við Grænland 1964. Rýrnun á veiði hlýtur því einhvers staðar að koma fram, en það getur verið erfitt að átta sig á hvar hennar er helzt að leila, venga mikilia sveifla í veiðum í heimalöndum laxins frá ári til árs. Þessi samstarfsnefnd, sem ég nefndi áðan, hefur því hlutverki að gegna, að fylgjast með veið- um við Grænland og athuga eftir því sem unnt er hvaða áhrif þær hafa á veiði á heimalönd- um. Gaf hún út álit eða skýrslu u-m þessar veiðar vorið 1966 og þar sem ég geri ráð fyrir, að þið hafið allir séð þetta álit, fer ég ekki nánar út í það. Sérfræðirtg- ar frá Danmörku og Bretlandi (að ég held) munu hafa verið á þessum miðum á vertíðinni 1966 og gert þar ýmsar athugan- ir og rannsóknir, m.a. merkt þar um 600-700 laxa. Er að vænta nánari upplýsinga í okt. n.k. Er ég átti tal við veiðfmála- stjófa fyrir nokkrum dögum um þessi mál, gat hann þess að danskir sérfræðingar væru treg- ir til þess að ræða þessi mál og vildu helzt sem minnst um þau tala og mátti skilja að þau kæmu eiginlega ekki öðrum við, lax- inn væri veiddur ínnan græn- lenzkrar iandhelgi. Er þetta rétt að vissu marki. Hitt má þá líia á, að laxinn er ferskvatns fiskur, er fæddur í fersku vatni og elst þar upp í 3-4 ár að meðaltali. í sjó dvelst hann venjulega 1-2 ár, til þess að afla sér fanga, en leitar svo af>.ur til heimastöðva til þess að hrygna — og þannig endurtekur sagan sig. Að því leyti hagar hann sér elns og búpeningur, sem leitar til fjalla á vorin og þar tekur ungviðið ú: sinn aðal þroska, en komur svo til heima- stöðva þegar haus,ar. Þá má nefna ' að fiskiiæk. nafur aukizt mjög hin síðari ár, einkum al.- seiðum, bæði hér og annars- staðar. Það er dýrt að ala upp seiði í göngustærð. Mönnum hlýtur því að finnast það hart, ef þeir fá ekki nema takmarkað magn aft- ur vegna veiði í sjó. Að visu eru mikil vanhöld á laxinum, með- an hann dvelst í sjó, en um það vita menn og reikna með þeim vandhöldum, sem eru af nátt- úrunnar hendi. Eðliiegast væri að banna alla sjóarveiði á laxi, og er hér raunar verðugt verk- efni fyrir landsambönd stang- veiðimanna að vinna að, bæði hveit í sinu landi heima fyrir og eins 'sameiginlega í Nordisk poi tsfiskerunion". Eftir umræðurnar var tillaga ( llögumaður Knua Rom frá Noregi) samþykkt samhljóða, efnislega á þá leið að leggja tii við Norðurlandaráð, að öll lax- veiði í sj > í Norður-Atlantshaf- inu verði bönnuð, eins og Kana- di hefur þegar lagt til að gert v rði. Fífa auglýsir Á telpur, regnkápur, úlpur, peysur, skólabuxur, molskinnsbuxur, gallabuxur, stretchbuxur, sokka- buxur, einlitar og köflóttar. Á drengi, regnkápur, úlpur, peysur, terylenebuxur, molskinnsbuxur, gallabuxur á kr. 115.— straufríar skyrtur á kr. 128.— drengja- og unglinganáttföt á kr. 50.— sett- ið. Á dömur,regnkápur, úlpur, peysur, blússur. Á herra, regnkápur, úlpur, peysur, skyrtur, tvær gerðir, skyrtupeysur frá kr. 125.— Barnaregngall- ar, í stærðunum 1—5 í einlitu og köfióttu. Verzlið yður í hag. Verzlið í Fifu. Yerzlunin Fífa Laugavegi 99 (inngangur frá Snorrabraut). ENSKIR FRAKKAR mi i. úrval HERRADEILD HOLTSAPÓTEK Langholtsvegi 84 Madame Garbolino snyrtisérfræðingur frá ^UHCU‘HÍ/ /fai<n*tuQ vorri á morgun, mánudaginn 16. okt. og þriðjudaginn 17. okt. verður til viðtals og ráðlegginga í verzlun IhontíiQ París

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.