Morgunblaðið - 15.10.1967, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKT. 1967
— Bók Svetlönu
Framhald af bls. 9
Turgenev, Tsjekov
og Dostoevsky
IVERACH McDonald skrifar
ritdóm urn bók Svetlönu í The
Times 2. október, og er þessi
ritdómur máske tilefni um-
msela þeirra, sem birtust í
fylgiriti blaðsins seinna eftir ó-
nafngreindan höfund (sjá frá-
sögn um dóm í The Times Lit-
erary Supplement).
McDonald segir í upphafi:
fjölskyldusagan brýzt áfram
með sama óhjákvæmileik og
fjögurra þátta harmleikur.
Mefian Svetlana er lítil stúlka
í dacha utan við Moskvu, er
andrúmsloftið svo til beint frá
Turgenev — svipar til ,.Mánað-
ar í sveitinni", fullkomnað með
persónu ungrar móður Svetl-
önu, tilfinninganæmri hugsjóna
konu, Pavlusha frænda, Aly-
osha frænda, hinutn gáfaða
hálfbróður hennar Yasha, og fá
vísum bróður henar Vasya.
Eftir sjálfsmorð móðurinnar ár
i« 1932 koma spennan og deil-
urnar, sem af því spunnust,
beint frá Tsjekov. Seinna, með
vaxandi búraskap föður henn-
ar, falli bróður hennar í fjötra
Bakkusar, og fangelsunum
frænda og frænkna (sem allt
gerðist á tímum fjöldahreins-
ana og styrjaldar), er andrúms
loftið hreinlega frá Dostoevsky.
Svo kemur síðasti ógnvekjandi
þátturinn. Svetlana skorast
ekki undan samlíkingunum,
sem aðrir hafa borið fram. Hún
skrifar að komandi ættliðir
muni líta á Stalíns-tímann sem
jafn fjarlægan, jafn óútskýran-
legan og óþekkjanlegan og
stjómarár ívars griimma.
í grein sinni rekur McDonald
noktouð söguþráðinn í bréfum
Svetlönu, og dregur sínar á-
lyktanir. Hann kemst að því að
Stalín hafi verið það ijöst að
kona han.s svipti sig lífi í þeim
tilgangi að refsa honum. Einnig
telur hann að sjálfsmorð móð-
ur Svetlönu hafi ekki gert
Stalín grimman og miskunnar-
lausan, því hann hafi verið orð
inn það áður. Hinsvegar hafi
sjálfsmorðið komið honum á ó-
vart og vakið grunsemdir hans.
Hver hafði fengið hana til þess
að svipta sig lífi? Hverjir vina
Útför Nadezhdu Alliluyevu, móður Svetlönu, var gerð í Moskvu í nóvember 1932. Eftir því'
sem Svetlana bezt veit, hei msótti Stalín aldrei gröf konu sinnar.
Nýjungar í
skartgripum
Silfur — Gull — Demantar
Við bjóðum yður að líta á sýnisafn okkar.
//
Fagur gripur er œ til yndis'
Jón 'iípunílsGon
Skrirlpripoverzlun
hans stóðu að þessu samsæri
gegn honum?
Ef til vill gengur Svetlana of
langt, segir McDonald, þegar
hún segir að lát móður henn-
ar hafi spillt trausti því, sem
Stalín bar til náungans. Rétt-
ara væri að segja að það hefði
staðfest vantraust hans í allra
garð. Staðreyndin er sú, að því
er Svetlana skrifar, að hvenœr
sem Beria, Yezhov eða aðrir
böðlar eitruðu huga hans gagn-
vart einhverjum, tók hann þá
afstöðu, sem ekki varð breytt.
McDonald telur að frásögn
Svetlönu feli í sér staðfestingu
á þeirri fullyrðingu að Stalín
hafi verið sálsjúkur. Tekur
hann þar sem dæmi þá stað-
reynd að einræðisherrann hafi
viíjað búa að staðaldri í sama
umhver.fi. Hann átti marga sum
arbústaði, eða dacha, utan
Moskvu, er allir voru eins inn-
réttaðir, þar var sama herberg-
ið, sem hann jafnan bjó í. Á-
lítur McDonald að það hafi
bætt úr tilfinnanlegum öryggis-
skorti Stalíns að geta alltaf
dvalið í sama umihverfinu, þar
sem hver hlutur var jafnan á
sínum stað.
Svetlana gerir lítið af því að
slá fram víðtækum pólitiskum
kerfSm*
SÚKKULAÐI-
CADBURYS
ENBOBÉS OE CHOCOIAT AU LAIT
H)
Sinslok gœfiamra, sem vandlátiv vilja
staðhæfingum, segir McDonald,
en ljóst er að þótt Krúsjeff og
aðrir hafi reynt að ásaka einn
mann fyrir alla undirokunina,
var það kerfið sjálft, sem var
sjúkt — kerfið, sem veitti Stal-
ín völdin í upphafi, og hélt á-
fram skefjalausri aðdéun á hon
um. í>að sem af þessu öllu má
læra er að eingöngu er unnt að
lækna kerfið og viðhalda því
ef það veitir meira frelsi tii
almennrar gagrtrýni og breyt-
inga. En þessu afneitar það
enn, eða setur strangar reglur
fyrir gagnrýni.
Dóttir Stalíns hefur skrifað
bók, sem staðfestir ýmislegt, er
áður voru getgátur, og hún bæt
ir við þekkinguna á einum
tröllauknasta leiðtoga nútím-
ans. Sennilega vanmetur hún
þær stundir, sem hann starfaði
við skrifborð sitt. Jafnvel á síð
ari árum sínum afkastaði hann
ótrúlega miklu á því sviði. En
hún heldur sig við það, sem
hún veit. Hún skrifar heiðar-
lega og blátt áfram og þess-
vegna sannfærandi. Hún gleym
ir því aldrei, jafnvel í sorg
sinni og gagnrýni, að hún
skrifar sem dóttir.
Litt hugsaðar tilraunir
THE TIMES Literary Supple-
ment er fylgirit brezka bláðsins
The Times, og þykir eitt virðu-
legasta bókmenntatimrit Bret-
lands. Rit þetta birtir grein um
bók Svetlönu hinn 5. þ.m. etfir
ónafngreindan höfund. Morgun
blaðinu hefur ekki borizt rit
þetta, en skýrt er frá greininni
í frétt norsku fréttastofunnar
NTB. Þar segir að í greininni
sé bókin talin frekar lítilfjör-
leg og án nokkurs sögulegs
gildis. Segir höfundur að eina
gildi bókarinnar sé sú stað-
reynd að það er dóttir Stalíns,
sem skrifar hana.
Greinarhöfundur heldux því
fram að tilraunir Svetlönu til
að hvítþvo föður sinn með því
að skella skuldinni á samstarfs-
m.ann hans, Lavrenti Beria, séu
lítt hugsaðar og brjóti í bága
við sögulegar staðreyndir.
Hann bendir á að hreinsanir
Stalíns hafi hafizt löngu áður
en Beria varð yfirmaður leyni-
lögreglunnar, og hann bætir
því við að Svetlana geti tiltölu-
lega lítið um þetta tímabil
sagt, því um þetta leyti hafi
Stalín verið sérlega vingjarn-
legur og tillitssamur við dótt-
urina.
Greinarhöfundurinn minnist
á að aðrir hafi líkt Svetlönu:
við stórskáldin rússnesku, Turg
enev, Tolstoj og Tsjekov, og
spyr í hæðni: „Hvers vegna
ekki alveg eins að bæta við1
Homer, Dante og Shake-
speare?“ Hann segir hinsvegar
að ef dóttir Stalíns hefði raun-
verulegan áhuga á að skrifa
merka bók byggða á minning-
um um föðurinn, væri hugsan-
legt að henni tækist það.
Framúrskarandi mikilsvert
SÆNSKA skáldið Olof Lager-
crantz skrifar um bókina í
Stokkhólmsblaðið Dagens Ny-
heter 22. september. Telur
hann að Svetlana hafi engara
nýjan fróðleik að færa lesend-
um um föður sinn, því sam-
band þeirra hafi verið lítið
eftir að móðir Svetlönu svipti
sig lífi. Engu að síður segir
hann að það sem Svetlana hef-
ur að segja sé framúrskarandil
mikilsvert.
>að er sumar þegar Svetlanai
skrifar bók sína, segir Lager-
crantz. Það þýtur í hvítum
björkum og fuglar syngja. Hún
viill í þessu kyrrláta og af-
skekkta landslagi segja hrein-
skilnislega frá fjölskyldu sinni
Að ofan PVC
og því ótrúlegt slitþol
ir
r— W 1 mu
iv. rAfl @1 piastino
Að neðan KORKUR
og því mjúkur og fjaðrandi
Auk þess er PLASTINO gólfdúkurinn þægilegur, hlýlegur
og auðveldur að þrlfa. Mikið litaúrval. Sanngjarnt verð.
FÆST f ÖLLUM
GÓÐUM SÉRVERZLUNUM UM LAND ALLT