Morgunblaðið - 15.10.1967, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKT. 1967
11
Fremst á myndinni eru Stalin ogr kona hans Nadezhda. Var myndin tekin einhverju sinni er
þau hjónin brugðu sér upp í sveit með vinum sinum.
og sjálfri sér. Lítið á bók mína
sem vitnun, segir hún í for-
mála.
Hvað hefur Svetlana að
vitna um, spyr Lagercrantz, og
svarar því sjálfur: Hún hefur
búið í návist eins af valda-
mestu mönnum sögunnar, og
einkalíf hans hefur verið öll-
um lokuið bók. Sérhverjar upp-
lýsingar um þann heim er okk-
ur kærkomnar. En faðir henn-
ar vakti ótta allra í ríki hans.
Enginn sagði annað í eyru
Svetlönu en að hann væri bezt-
ur og kærastur allra. Hún bjó
eins og spörfugl í arnarhreiðr-
inu Kreml.... Hún bjó í al-
gjörri friðsæld og hafði enga
vitneskju um það, sem gerðist
í Sovétríkjunum. Dætur Rússa-
keisara geta ekki hafa verið
einangraðri en hún.
Þessi bók, sem hún skrifar,
verður þessvegna mjög sér-
kenniileg, segir Lagercrantz.
Hún (þ.e. Svetlana) líkist per-
sónu, sem alizt hefur upp í
Víti, en á eingöngu ljúfar end-
urminningar þaðan. Fjölskylda
hennar ferst, frændfólk hennar
er skotið eða drepið í fangelsi.
Það er furðulegt að hugsa til
þess að ólánsörvunum rignir
jafn þétt yfir fjölskyldu Stal-
íns og yfir fjölskyldu erkióvin-
ar hans, Trotskys.
Síðan telur Lagercrantz upp
ýmsa náná ættingja Svetlönu,
sem urðu hreinsununum að
bráð. Svo rekur hann nokkuð
frásögn bókarinnar af sjálfs-
morði móður Svetlönu, en þá
var Svetlana aðeins 6 ára. Það
var ekki fyrr en 10, árum síðar
að hún komst að því eftir lest-
ur bandarísks tímarits, a'ð móðir
hennar hafði framið sjálfsmorð.
Hélt Svetlana fram til þess
tíma að hún hefði látizt úr
botnlangabólgu. — Lagercrantz
verður tíðrætt um aðdraganda
að sjálfsmorðinu, og tekur það
sem dæmi um óttann, sem bor-
inn var til Stalíns, að þegar
ráðskonan finnur likið morgun
inn eftir, þorir hún ekki að
vekja Stalín, sem svaf í næsta
herbergi. Eða, spyr Lager-
crantz, var þetta sönnun fyrir
því að Stalín var grunaður um
að hafa myrt konu sína?
Sveblana dæmir enga jafn
hart og ,,9máborgarana“ og á
hún þar við þá, sem safna fön'g
um, girnast hús, bíla, silfur og
lín. Þar að auki er hún dóttir
fyrsta ættliðar kommúnista,
sem dreymdi um nýja kynslóð
og var ekki í hræsnistengslum
við flokkinn, heldur trúði í
hjörtum sínum á sköpun nýs
samíélags. Við lestur bókar
Svetlönu virðist sem þessi hug-
sjón haifi þrátt fyrir allt ríkt í
foreldrum hennar. Jafnframt
verður að viðurkenna að hún
ber of mikla viðkvæmni í
brjósti gagnvart föðurnum.
Hún aðhyllist þá fullyrðingu
Krúsjeffs að Beria hafi verið
aðalþrjótur harmsögunnar. Það
er Beria, sem flæklr Stalín í
net sán. Þegar rætt er um Stal-
ín í sambandi við hreinsanirn-
ar heitir það að hann „efaðist
innst inni og þjáðist". f gögn-
uim þeim, sem Trotsky og fleiri
hafa birt, kemur önnur mynd
fram, segir Lagercrantz.
Sveblana reynir að komast í
náið samband við lesendur
sína, segir Lagercrantz undir
lok greinar sinnar. Hún segir
að byltingin hafi beitt þjóðina
hörðum tökum, og ástæða sé
til að einhver greini frá ein-
staklingnum í því sambandi.
Það hefur enginn viti borinn
maður rétt á því að fórna ein-
staklingnum fyrir takmörk
byltingarinnar. „Fátæk, ber-
fætt, óhrein, ólæs bóndakona í
hvaða landi sem er veit að
þetta er útilokað“, segir Svetl-
ana. Siðmenntaðir menn telja
þetta hugsanlegt. Þeir, sem
nefna sig Marxista, kínverskir
kommúnistar telja þetta ekki
eingöngu mögulegt, heldur
nauðsynlegt.
Ef til vill hefur Stalín ekki'
eingöngu verið valdhafinn,
heldur hugsjónamaður, heltek-
inn hugsjóninni um það komm-
úníska samfélag fyrir hvert
engar mannfórni'r voru of mikl
ar, segir Lagercrantz. En það
verður að finna jafnvægi milli
réttar samvizkunnar og réttar
ríkisins. f Sovétríkjunum tap-
aðist það jafnvægi, og hefur
ekki fundizt aftur. Þegar Svetl-
ana tekur málstað einstaklings-
ins, er hlýtt á hana með virð-
ingu. Sú bókmenntastefna, sem
verið hefur ráðandi í landi
hennar svo lengi, sósía'l-real-
isminn, sýnir ekki manninn
eins og hann er, heldur eins og
han á að vera samkvæmt
kommúnismanum. Það boðar
gott þegar Svetlana vill segja
frá ævi sinni eins og hún var.
Það er sú leið, sem rússneskar
bókmenntir verða að rata ef
þjóðfélagið á að verða heil-
brigt, segir Lagercrantz að lok-
um.
Ættingjarnir hurfu
GAGNRÝNANDI bandaríska
vikuritsins Time hefur frásögn
sína af bók Svetlönu með þess-
um orðurn: „Hún bjó í hölf, og
faðir hennar var konungur.
Svo var það að móðir hennar,
eins og falleg ung drottning,
dó skyndilega. Allir skemmti- /
legu ættingjarnir hurfu. Góða
þjónustufólkið fór, og það, sem
kom í staðinn, bar byssur.
Smiám saman óx hún úr grasi,
undrandi og einangruð. Kon-
ungurinn breyttist í dreka, og
hún þekkti hann ekki lengur,
höllin varð að dýflissu, og til-
veran að Víti. Löngu seinna,
ekki lengur prinsessa, heldur
lítil stúlka 37 ára gömul, reyn-
ir hún að rifja upp hvað gerð-
ist. Hún skráði það allt á 35
dögum í nokkrum bréfum. Og
það var sannarlega myrkasta
og sárasta prinsessusaga, sem
sögð hefur verið því aldrei fyrr
var konungur á borð við Jósef
Stalín, né prinsessa jafn blíð
og áhyggjufull og Svetlana
Alliluyeva“.
Gagnrýnandinn segir að þrátt
fyrir þá vitneskju, sem fengizt
hefur um bókina áður en hún
kom út, til dæmis vegna kafla,
sem birtiir hafa verið úr henni
og auglýsinga, sé bókin það á-
hrifamiki'l, að hún krefjist þess
að henni sé frekari gaumur gef
inn. Hún hefur sömu sérstæðu
áhrif og þegar barn er að lýsa
viðbjóðslegum glæp, sem það
hefur af tilviljun verið vitni að
og aðeins að hálfu leyti skilið,
sömu sérstæðu töfra fjölskyldu
frásagnar, sem samfléttuð er
hryðjuverkum og sagnfræði.
Næst ræðir greinaihöfundur
um sjálfsmorð móður Svetlönu
og örlög ýmissa nánustu ætt-
ingja hennar. Hann minnist á
einangrun hennar og ástarævin
týr, og þá staðreynd að fyrsta
barn hennar var orðið þriggja
ára áður en Stalin leit það
augum. Og hann sá aldrei
fimm af át'ta barnabörnum sín-
um. Svo kemur höfundur að
dauða Stalíns og einlægri sorg
dótt.urinnar, sem þó var farin
að gera sér grein fyrir hvern
mann hann hafði að geyma.
Það er á þessu sviði, sem
greinarhöfundur telur að bók
Svetlönu lýsi takmörkunum
hennar sem annálahöfundar.
Svetlana grípur það hálmstrá
að Beria sé Óvinurinn endur-
borinn, og skellir allri skuld á
hann, þótt hún viðurkenni að
Stalín og Beria hafi oft verið
„samsekir". Henni finnst stuðn-
ingur Stalíns við Beria „óskilj-
anlegur", en telur hann eiga
rót sína að rekja til kænsku
Beria. Sannleikurinn hlýtur að
vera sá, segir höfundur, að
'Stalín hafi þurft á stuðningi
Beria að halda til að tryggja
yfirráð sín yfir landinu á
fjórða tug aldarinnar, og varð
það ti’l þess að Beria myrti tugi
þúsunda. Frásögn Svetlönu er
frá grimmúðlegasta tímabili
sögunnar. Sú staðreynd fer
nærri því framihjá henni, og
hún segir í furðulegum barna-
skap: „Sjálfsmorð voru nokkuð
tíð um þessar mundir . . Fólk
ið var heiðarlegra og tilfinn-
ingaríkraa þá. Ef því líkaði
ekki lífið eins og það var, skaut
það sig“.
Gagnrýnandi Time lýkur
grein sinni með því að benda
á að bók Svetlönu, og höfund-
ur hennar, hljóti að vekja að-
dáun þeirra, sem um dæma.
Það furðulegasta er, segir gagn
rýnandinn, að Svetlana skuli,
þrátt fyrir arf sinn og um-
hverfi, hafa verið fær um að
skrá þetta allt, og standa aug-
li'ti til auglits við þann skelfi-
lega sannleika, sem bókin gef-
ur i skyn varðandi föður henn-
ar.
Dóttir einræðisherrans.
Um bók Svetlönu í „New
York Times Book Review“
skrifar barnabarn rússneska
leikritaskáldsin Leonids Niko-
layevs Andreyevs, Olga Car-
lisle, sem kunn er fyrir þýð-
ingar sínar og bókmennta-
gagnrýni vestanhafs og fyrir
bók sína, „Raddir í snjónum",
sem hefur að geyma viðtöl við
sovézka rithöfunda.
— Er það skrítið að dóttir
einræðisherra skuli vera eins
elskuleg, guðhrædd og indæl
í alla staði og til dæmis drottn-
ing einhvers vinveitts smá-
ríkis komin vestur um haf í
heimsókn? spyr Olga Carlisle
í upphafi greinar sinnar og
heldur síðan áfram og segir
að víst sé það skrítið en undr-
unin fari fljótt af, Svetlana
Alliluyeva sé stillileg kona og
þekkileg og komin einhvern
veginn svo ósköp ktfinuglega
fyrir sjónir bæði í sjónvarpi,
í blaðaviðtölum og á forsíðum
kvennablaðanna
— „Tuttugu bréf til vinar“
eru heillandi bók frá upphafi
til enda, segir Olga. — Við
erum sjálf ,,vinurinn“ sem þau
eru stíluð tii, óhugnanlega
nærstödd á heimili eins blóð-
þyrstasta valdhafa síðari tima,
hlustum á dóttur hans segja
sögur af fjölkyldunni — minn-
at liðinna daga á lifandi hátt
og af tilfinningu, en þó svo að
svipar stundum helzt — þrátt
fyrir einlægni hennar — til
álfasögu frá Viktoríutímunum.
— Svetlana er í raun og
veru rétt eins og prinsessa í
ríki föður síns, heldur Olga
áfram, — en lifii þó fábreyttu
lífi og berst ekki á, gengur í
skóla með öðrum börnum, fer
í sumarleyfi með fjölskyldu
sinni — faðir hennar krefst
þess að þannig skuli það vera,
einfalt og fábrotið. En hún er
engu að síður vandlega dulin
alls þess sem á sér stað í land-
inu, hún veit ekkert um raun-
verulegt líf folksin, ekki held-
'ur um leynda og mannskæða
valdabarátt.una sem háð er allt
umhverfis hana Hún gerir sér
þó Ijóst að eitthvað er ekki
eins og það á að vera, hún er
einmana og henni leiðist. Samt
segir húr. okkur ekkert um
það sem skiptir bæði okkur og
Rússa sjálfa mestu máli úr
sögu stjórnarára Stalíns: útrým
ingu milljóna manna.
Svetlana Ahiluyeva lætur
aðeins í ljósi áhyggjur af af-
drifum náinna vina og ætt-
ingja og jafnvel þá — eins og
til dæmis er frænka hennar
ein missir viuð eftir áralanga
dvöl í einangrunarklefa —
skellir hún allri skuldinni á
„andsnúin örlög. ..Jafnvel
Anna frænka", segir Svetlana,
„stóðst ekki allar þær hörm-
ungar er örlögin lögðu á herð-
ar henni“. Verði ekki bornar
brigður á hluttíeild Stalíns að
einhverju ódæðinu ber hún
líka einatt Lawrenti Beria og
áhrif hans til hins illa fyrir
því.
Eftirskrift Svetlönu í bókar-
lok er aðeins eitt dæmið af
ótal mörgum í „Tuttugu bréf
tii vinar“ sem miða að því að
koma í veg fyrir eða um-
breyta misjöfnum hugmynd-
um okkar um föður hennar.
Eftirskriftin íiytur okkur boð-
Framhald á bls. 12
DANISH
GOLF
Nýr stór! góctur
smávinaill
Smávindill í réttri stærd, fullkominn smávindill, fram-
leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór!
Smávindill,sem ánægja eradkynnast.DANISHGOLF
er framleiddur af stærstu tóbaksverksmidju Skandina-
viu, og hefir í mörg ár verid hinn leidandi danski
smávindill.
Kaupid í dag DANISH GOLF í þægilega 3stk. pakkanum.
SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY
DENMARK