Morgunblaðið - 19.10.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKT. 1967
11
Fólkið sér Vestfjarðaáætlunina í verki
— segir Oskar Kristjáns-
son, oddviti á Suðureyri
VIÐ lögðttm af stað frá ísafirði
árla morguns síðla í september
og ferð okkar var heitið til Suð
ureyrar í Súgandafirði til að
skoða hafnarframkvæmdir
þær, sem þar hefur verið unn-
ið að í sumar og fyrrasumar í
samræmi við Vestfjarðaráætl-
unina. Við ókum upp Dagverð-
ardalinn áleiðis upp á Botns-
heiði. Þar er nú unnið að stór-
felldum vegabótum, nýr upp-
hleyptur og breiður vegur leys
ir þar nú af hólmi gamlan, mjó
an götuslóða, sm snjór fyllti
fljótlega upp úr vetumóttum
og jafnvtel fyrr.
Þegar kemur að vegamót-
um uppi á Botnsheiði, þar sem
vegir skiptast uþp á Breiðdals
heiði annarsvegar og þaðan
allar götur suður um Vest-
firði, en hinsvegar til Súg-
andafjarðar, blasa enn við
stórfe'lldar vegabætur. Fjöldi
vegavinnumanna er þar að
verki, stórvirkar vinnuvélar
hlaða upp háum og breiðum
og beinum vegi, sem vafalaust
verður mun lengur fær að
vetrarlagi en sá vegarslóði,
sem fyrir var.
Og gamli vegurinn niður í
Súgandafjörð er etokert árenni
legur, þar sem hann liggur
í bröttum sneiðingum alla
leið að Botni í Súgandafirði.
Sumar beygjurnar eru svo
krappar, að það sætir furðu,
hvernig notokrum bíl er þar
fært. hvort sem um hásumar
væri eða vetrarlagi. Sjálfsagt
hefur verið að þeim vegi mik
il samgöngubót á sínum tíma,
og hann rofið aldalanga ein-
angrun Súgandafjarðar, en
með Vestfjarðaráætluninni
hefur verið brotið blað í öll
samgöngumál Vestijarða, og
munu þau um langan aldur
búa að þessari framkvæmd.
Það er fallegt að aka þenn
an hrikalega veg. Handan við
ána í Botnshlíðinni ber afar
mikið á stórvöxnum burkma-
gróðri, sem setur sérstakan
svip á þetta landslag- og í
vesturátt teygir sig svo Súg-
andafjörður, svo langt sem
augað eygir og sér ekki til
hafs, og líkist hann því meir
stöðuvatni héðan að sjá, en
firði.
Bærinn í Botni blasir við,
þegar niður er komið.
í Botni er surtarbrands-
náma, og var unnið í hennd á
stríðsárunum fyrri surtar-
brandur til eldsneytis, eh það
var raunar víða gert á Vest-
fjörðum- t.d. í Gilsfirði í Syðri
dal við Bolungavík.
Það virtist hvarvetna
vera líf og starf, þegar við
komum til Suðureyrar, allir
að vinna, sem vettlingi gátu
valdið. Á einu götuhorninu
hittum við Sturlu Jónsson
hreppsstjóra. Sturla er einn
af þessum ómisslandi mönn-
um í byggðarlögum úti á
landi, síhress og skemmtileg-
ur, kann mýgrút af sögum,
og byrjaði þegar á löngum
bragi fyrir okkur, sem við
máttuim samt ekki vera að
hlusta á til emda. Hann vis-
aði otokur veg til Óskars
Kristjánssonar oddvita, en af
honum ætluðum við að fræð-
ast um hafnarframkvæmdirn
ar á staðnum- Sveitarstjóri á
Suðureyri er Þórhailur Hall-
dórsson, dugandi og myndar-
legur maður.
L |í"
Horft yfir hina nýju Suðureyrarhöfn. Lónið næst landi á að fylla upp. Handan fjarðarins sér
á Norðureyrina. (Mynd: Ó. Kristjánsson)
Óskar Kristjánsson
oddviti.
Óskar Kristjánsson gekk
með okkur um hafnarsvæðið,
sem virðist stórt og mikið og
sniðið við vöxt, og annað hæf
ir ekki þessu mkla útgerðar-
plássi.
Þarna hefur verið rammað
niður rammbyggt stálþil, Qg í
sumar var steyptur þarna 120
metra langur bryggjukantur
með festingarpollum, og mun
sú framkvæmd hafa kostað
um 800.000 króhur.
Myndirnar, sem grein þess-
ari fylgja sýna vel fram-
kvæmdir, bæði bryggjukant-
inn, sem í sumar var steypt-
ur, og svo yfirlitsmynd,
sem sýnir væntanlega höfn
mjö,g vel.
Meðan við sátum yfir kaffi
bolla inni í stofu hjá Óskari,
sagði hann otokur nánar urn
þessar framfcvæmdir.
„Segja má, að alls sé höfnin
hér komin í ca. 15 milljónir
króna og alls hafi verið um
ið fyrir í sumar um 1,4 millj-
ónir. Verkið í sumar tók um
2 mánuði, og unnu við það 6
menn undir stjórn Péturs
Baldurssonar byggingarmeist-
ara á Þingeyri.
önnur eins átök í hafnar-
og vegamálum hafa aldrei áð
ur verið gerð hér, og má hik
laust þakka þau hinni mikil-
vægu Vestfjarðaráætlun. Á
kosningafundum sl. vor, hömr
uðu Framsóknarmenn sífellt
á því, að þessi áætlun væri
ekki til, hún fyndist ekki, en
fólkið sér hana samt í verki,
það sér nýjar hafnir rísa, vegi
lagða, og það nægir því að
sjá verkin, sem sýna ótvíræð
merkin um þessa stórhuga á-
ætlun“.
„Hvernig er svo aitvinnuá-
standið hér á Suðureyri"?
,-Hér er næg atvinna allt
árið um kring. Einn stór bát
ur er gerðu út héðan á síld,,
og á vetrarvertíð er hér um
60—70 aðkomufólk, og margt
af því myndi ílengjast hér, ef
hér væri ekki húsnæðisleysi,
eins og er, og þó er alltaf ver
ið að byggja. Til dæmis um
það, eru hér nú 6 hús í smíð-
um.
20 smáir og stórir bátar eru
gerðir hér út, og segja má,
að afli hafi verið mjög sæmi-
legur. Nei, Suðureyringar
kvíða ekki framtíðinni, og
hér er lífvænlegt fyrir miklu
fleira fólk, en hér býr nú sam
tals munu nú vera hér um
480 manns.
Með auknum hafinarfram-
kvæmdum og greiðara vega-
sambandi, skapast betri skil-
yrði fyrir fólkið- það lifir hér
ánægðara og unir glaðar við
sitt“, sagði Óska Kristjánsson.
að lokum.
Og við héldum síðan burtu
frá þessum lífvænlega stað.
Þaðan er stutt á gjöfiul fiski-
mið, og nú munu báitar geta
legið inni í fullkomnu vari,
þótt úti fyrir geysi stórveður
strið og gæftir spillist. Það
vekur hjá manni trú á fram-
tíð íslands að koma á slíka
staði. — Fr. S.
Allmargir bátar liggja nú í g ðu vari við hina nýju bryggju.
Kirkjan á Suðnreyri sést tál vl ístri. (Ljósm. Mbl. Fr. S.)
Sérverzlun
Tiiboð óskast í sérverzlun á góðum stað í borginni.
Lítill en góður iager. Tilboð leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir þriðjudaginn 24. okt. merkt: „Sérverzl-
un — 5930“.
Nýi bryggjukanturinn með festingarpollum,
(Ljósm. Mbl. Fr. S.)
Aðalfundur
Bláa bandsins verður haldinn í samkomu-
sal A-A-samtakanna Tjarnargötu 3 C
sunnudaginn 22. október n.k. kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.