Morgunblaðið - 19.10.1967, Síða 24

Morgunblaðið - 19.10.1967, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKT. 1967 MAYSIE GREIG: gg Læknirinn og dansmærin Aron hafði farið til Ameri- can Express í Nice. Þar hafði hann fengið víxlað rrörgum ávís unum, og hann mundi einnig fá þessum víxlað, enda þótt hún væri upp á svo háa upphæð. Og hann ætlaði að afhenda pening- ana. Svo gæti lögreglan komið til skjalana á eftir. En í biii hugsaði hann ekki um annað en það að endurheimta son sinn. Dagurinn var lengi að líða. Hún gat ekki hvílt sig. Samtal- ið við Marcel um morguninn hafði verið henni fullerfitt, en þegar þessi á’hyggja bættist við, var hún að því komin að sleppa sér. Hún fann einhverja þörf á því að segja Marcel frá öUu sam an. Að minnsta kosti kynni hann að geta ráðið henni heilt. Þessi löngun varð svo sterk, að áður en hún vissi af, var hún kominn niður í forstofuna, þar sem síminn var. Hann hlustaði á hana, sieginn og undrandi. — Já, en þetta er verkefni fyr ir lögregluna, sagði hann. — Ég veit. Röddin var næst- um biluð. — En hr. Hennesy vill ekki kalla á lögregluna — að minnsta kosti ekki fyrst um sinn. Hann vill £á drenginn aftur heil- an á húfi. Hann sagði mér frá ýmsum tilvikum, þegar farið var í lögregluna og drengurinn myrt ur. Hann hefur ekki eins mikinn áhuga á að sjá ræningjana fá makleg málagjöld eins og hinu að endurheimta son sinn. — Því verður hann auðvitað að ráða, sagði Marcei. — En sjálf ur mundi ég leita til lögregl- unnar. Þú ert áhyggjufull, er það eklki Yvonne? Væri nokkurt gagn í því ef ég kæmi þarna til þín? Þessi bið hlýtur að liggja afskaplega þungt á þér. Og kannski gæti ég líka hjálpað hr. Hennesy eitthvað. — Æ, viltu koma hingað, Marcel? Röddin skalf, en nú var það af gleði. — Ja, þessi bið reynir afskaplega á taugarnar hjá okkur öllum. Þú kynnir að geta hjálpað eitthvað. — Ég skal koma. Það stenduT svo vel á, að ég hef engan við- talstíma í dag og ég er búinn í spítalanum. Marcel var kominn þarna áð- ur en hálftími var liðinn. Aron var enn ekki kominn heim. Yvonne andvarpaði af létti, þegar hann kom, og næstum ósjálfirátt kom hún hlaupandi á móti honum. Hann tók hana í fang sér og þrýsti henni að sér. — Elskan mín! hvíslaði hann. Hann kyssti hana á ennið og síð- an á varirnar. Einhver hlýr straumur fór um hana alla. Hún fann, að hún gleymdi sér og skammaðist sín fyrir það. Hún ætti ekki um ann að að hugsa en Dickie. En nær- vera Marcels útilokaði allar aðr ar hugsanir. — Ó, Marcel, Marcel! Hún fór að gráta. Þetta var í fyrsta sinn sem hún hafði grátið síðan Aron las fyrir hana hótunarbréfið. Hann lofaði henni að gráta og klappaði henni á öxlina. — Já, gráttu, elskan mín, gráttu. Það lsar um spennur.a. Þú varst svo yfir þig spennt, þegar ég kom. Ég er feginn, að ég gerði það. Hefur það orðið að nokkru gagni? — Mér létlir alltaf við að sjá þig, en svo þegar þú ert farinn er ég einmana og yfirgefin. — Ó, elsikan mín! Ég vildi, að ég væri ekki jafn bundinn og ég er. Hún fann, að hann skalf líka. Hvorugt sagði orð, en hún los- aði sig úr faðmi hans og hneig niður á legubekkinn, og neri saman höndum. — Hafðu ekki of miklar áhyggjur, sagði hann. — Barna- ræningjar eru ekki alltaf morð- ingjar. Til þess eru þeir of hrædd ir um sig. Það getur vel verið rétt af Hennesy að fara ekki í lögregluna með þetta, þvi að það gæti fengið þá til að grípa til örþrifaráða! Hann kærði sig ekki um þó að hann yrði að greiða lausnargjaldið. Hún hristi höfuðið. — Hann munar eikkert um hundrað þús- und dali. Hann er svo ríkur. Marcel yppti öxium. — Það hlýtur að vera dásamlegt að vaða svona í peningum. Hugs- aðu þér allt það gott, sem hanr. gæti gert með þeim. — Hvað mundir þú gera, ef þú værir svona ríkur? Hún var forvitin. — Ég mundi fyrst færa Al- menna sjúkrahúsið í Nice í ný- tízku horf, sagði liann. — Það er yfirfullt og lepur dauðann úr skel. Það þarfnast illilega ný- tízku áhalda. — Þú mundir þá ekki eyða peningunum í eigin þarfir? Hann hristi höfuðið. — Ég hef nægilegt fyrir mig að leggja, eins og er. Ég hef nóg upp úr eigin vinnu. — Varla hefurðu nú mjög mikið upp úr því, fyrst þú tekur ekki gjald af helmingnum af sjúklingunum þínum. Ég vildi, að þú vildir senda mér reikn- EPLASTULKURNAR HEIMSÆKJA VERZLANIR Á EFTIRFARANDI TÍMUM í DAG OG Á MORGUN: í DAG: kl. 08.30—09.30 kl. 09.45—10.45 kl. 11.00—12.00 Á MORGUN: kl. 08.30—09.30 kl. 09.45—10.45 kl. 11.00—12.00 MATARDEILD SS, HAí'NARSTR. 5. SILLI & VALDI, AUSTURSTR. 17. MELABÚÐIN, HOFSVAI.,LAGÖTU. KRON, SKÓLAVÖRÐUSTÍG 12. KRON; STAKKAHLÍÐ. VERZL. HERJÓLFUR, SKIPH. 70. MATARDEILD SS, HAFNARSTR. 5. SILLI & VALDI, AUSTURSTR. 17. ÁRBÆJARKJÖR, ROFABÆ. KJÖRB. LAUGARÁS, NORÐURBR. VERZL. KOSTAKJÖR, SKIPH. 37. KJÖRBÚÐ SS, LAUGAVEGI 116. LÆRIB AÐ MATBÚA EPLI SÝNIKENNSLA AÐ HALLVEIGAR STÖÐUM DAGLEGA Á KLUKKU STUNDARFRF.STI FRÁ KL. 15—20. ing. Ég er búin að spara ofur- lítið saman. — Við skulum ek’ki minnast á það, sagði hann, snöggt. — Ég færi aldrei að senda þér reikn- ing. Þú ert bluti af sjálfum mér, og verður það alltaf — hverri svo sem ég kann, að giftast. Hún fór aftur að gráta. Hún var eitthvað svo máttlaus og veikluð. Áreynslan undanfarna daga hafði borið hana ofurliði. — Áttu nokkrar brómtöflur? spurði hann. —■ Þu gætir haft gott af þeim. Hún hristi höfuðið. — Nei, ég á engar. — Ég er með einhverjar ró- andi töflur með mér. Þú þarft að hvíla þig. Og Hennesy gæti haft gott af þeim líka, þegar hann kemur heim. Hún tók töfl- urnar en hafði litla von um að geta róazt fyrr en Dickie væri kominn heim, heill á húfi. Hann settist hjá henni og lagði arminn um hana. Hún andvarp- aði og lagði höfuðið upp að öxl hans. Hefðu ekki verið áhyggj- urnar af Dickie, hefði hún verið alsæl á þessari stundu. Þau heyrðu í bíl og fóru út að g,lugganum og litu út. Þetta var Aron. Hann var fölur og tex inn, eins og hann væri veikur. Hann kom inn í setustofuna, heilsaði þeim báðum, og fleygði sér síðan niður í hægindastól. — Ég er búinn að ná í pening ana, sagði hann. — Ég ók síðan upp eftir veginum og að bílnum, sem hafði breitt yfir númerið. Hann stóð þarna og beið min. Ekillinn var með bundið fyrir andlitið. Hann kom að bílnum mínum og sagði „Ðiable“. Ég rétti honum peningana. Vesa- lings Jean vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, en mér fannst ekki rétt að fara að útskýra þetta neitt fyrir honum. Hann kynni að hafa ráðizt á manninn, Keivinaior N/ Kehnnator Frá Jfeklu sem tók við peningunum hjá mér. Og þá hefði getað farið svo, að ég hefði aldrei séð son minn lifandi oftar. Við Yvonne sagði hann: — Vertu nú væn og gefðu mér viskí — ég held ég hafi fulla þörf á því. Hún stóð upp og hellti í glas handa honum, en var skjálfhení. — Ég hef einhvtrjar róandi löflur hérna, sagði Marcel. — Vilduð þér ekki reyna þær, hr. Hennesy? — Ef þér ráðleggið það, sagði hann. — En hvernig stendur á yðar ferðum hér, Sellier lækn- ir? — Yvonne hringdl til mín. Ég vona líka, að ég sé góður vinur allrar fjölskyldunnar. — Ég skil aldrei í því, að rétt áður en Grace dó, heimtaði hún að kalla á þennan bjálfa, hann Herniez lækni. Varð ykkur eitt- hvað sundurorða? — Já, það hefði mátt kalla það. Ég varð þess var, að ég var ekkert vei séður hérna. En jafn- skjótt sem Yvonne sagði mér af þessium vandræðum ykkar, kom eg hingað. — Það var fallega gert af yð- ur. En nú getum við ek'ki annað en beðið og vonað, að Dickie komi aftur lifandi. Allt þjónaliðið fann það á sér, að eitthvað mjög mikilvægt var á seiði. Það var allt á þönum, og þegar Cianfarra bryti til- kynnfi kvöldverðinn, var eins og hann væri að beiðast afsökunar. — Já, ég býst við, að ég verði að reyna að smakka mat, sagði Aron og reis á fætur með erfið- ismunum. — Þér boiðið með okk ur, Sellier læknir? — Ég vil helzt ekki yfirgefa ykkur fýrr en Dickie er kom- inn heim aftur, sagði Marcel ein beittlega. — Ég skoða ykkur, eins og er, sem sjúklinga mína / —og mikilvægustu sjúklingana mína. — Það er fallega gert af yð- ur, sagði Aron. Eigum við þá að reyna að fá okkur eitthvað að borða Yvopne? Yvonne sá fljótt, að sérstak- lega hafði verið vandað til kvöld verðarins, því að þarna voru helztu uppáhaldsréttir Arons á borðum. Þrátt fyrir kvíðann, tókst þeim öllum að gera matn- um einhver skil. Meðan þau voru að drekika kaffið í forsalnum, hringdi sím- inn ákaft. Aron hljóp til og svar- aði. — Ert þetta þú, Dickie? sagði hann og greip andann á lofti, rétt eins og hann tryði ekki sínum eiginn eyrum. — Þú ert þá í Nice og ekkert að þér. Við endastöð strætisvagnanna, segirðu? Bíddu ekki eftir stræt- isvagninum. Ég sendi þér bíl- inn strax. Já, ég kem sjáilfiur. Guði sé lof, að ekkert er að þér, drengur minn! Hann var alLur eitt bros, þeg- ar hann kom aftur inn í setu- stofuna. — Þetta er allt í lagi, sagði hann. — Þetta var Dickie. Ég ætla til Niee að ssökja hann. Hann sagði, að sér liðá vel og að hann hefði margt að segja mér. Þið afsakið mig bæði tvö. Það var eins og spenningnum þarna inni væri lokið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.