Morgunblaðið - 10.12.1967, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DES. 1967
7
blöðin á grænt efni og klippt út,
munið eftir að gera ráð fyrir
efni, sem brýzt undir, þegar epl-
in og blöðin eru ,,applikeruð“ á
böndin. Notið tvinna í sama ttt
og böndin við að sauma með.
Saumað er í blöðin með kontor-
sting, með einföldum ljósgræn-
um þræði. Annað er saumað með
brúnum, lit, greinarnar með tvö-
földugarni, allt annað með ein-
földu.
4. Bakkabönd með leggingum
eru fyrir þær, sem ekki hafa
tíma til að sauma í. Sjálft efnið í
bakkaböndin er hér í brúnum lit,
4,6 cm breitt, en borðinn, sem
saumaður er á, er 2 cm breið-
ur og 1,25 cm langur. Litimir í
borðanum þurfa helzt að vera í
litum, sem fara vel við litinn á
bakkaböndunum, og er hann
saumaður á í vél. „Vlieselinið“ á
að vera 4,4 cm breitt.
Frágang á bakkaböndunum
geta konur haft að vild. Fallegast
er að setja „Vlieselin" innan á
þau. Ef jaðar er á efninu og fóðr-
inu, má jafnvel sauma fínt í
brúnina £ vél.
Það er dálítill vandi að sauma
böndin á hringina. Hvert band
fyrir sig er sett upp á hringinn,
áður en samskeytin eru saumuð
saman, og á annað að liggja yfir
hinu, eins og sést á myndinni.
Hlýir vettlingar
HÉR eru vettlingar, sem prjónað-
eru eru á 2 prjóna, báðir vettl-
ingarnir prjónaðir eins. Garnið
er ullargarn, hér er notað 6-þráða
ullargarn (Momosa), u.þ.b. 150
gr. Prjónar nr. 4 og nr. 6.
Fitjið upp 22 lykkjur á prjóna
nr. 6 og prjónið 7 cm klukku-
prjón:
1. prjónn: x garnið slegið upp
á prjóniinn, 1 röng tekin af
vinstra prjóni, 2 réttar saman
x, endurtekið prjóninn á
enda.
2. prjónn: x garnið slegið upp
á, 1 röng tekin af, 2 réttar
saman x endurtekið prjóninn
á enda.
Þegar þessir 7 cm hafa verið
prjónaðir, er skipt yfir á prjóna
nr. 4, og næsti prjónn er prjón-
aður þannig: 1 röng, 2 réttar sam
an, til skiptis prjóninn á enda,
prjónið síðan 6 prjóna stroff-
prjón (1 rétt, 1 röng), skiptið
yfir á prjóna nr. 6 og prjónið
aftur „klukkuprjón (byrjið á 1.
prjóni í mynztrinu), og prjónið
þar til komnir eru 4—5 cm frá
því er stroffið hætti. Síðan er
haldið áfram þannig: 1. pfjónn:
prjónið 8 lykkjur með klukku-
prjóni (garnið, sem slegið er upp
á prjóíiinn og lykkjurnar, sem
prjónaðar eru saman eru taldar
ein lykkja). 2 nýjar lykkjur eru
fitjaðar upp, snú, slá upp á, ein
röng tekin af, 1 rétt, 8 lykkjur
klukkuprjón. Prjónið nú 9 cm
með þessum 10 lykkjum fram og
aftur í klukkuprjóni, setjið síðan
lykkjurnar á ná. Prjónið næstu 6
lykkjur fyrir þumalfingurinn:
Fitjið upp 2 nýjar lykkjur hvor-
um megin, og prjónið 5—6 cm
með klukkuprjóni þessar 10
lykkjur, prjónið þar næst 2
prjóna stroffprjón (1 rétt, 1
röng), takið á næsta prjóni 2
lykkjur saman allan prjóninn á
enda, síðan er garnið klippt og
dregið í gegnum lykkjurnar, sem
eftir eru á prjóninum.
Fitjið nú upp 2 nýjar lykkjur
(næst þumalfingrinum) við
lykkjurnar sem eftir er að
prjóna, og prjónið 9 cm klukku
prjón á þessar 10 lykkjur, prjón-
ið síðan lykkjurnar, sem geymd-
ar voru á nálinni, inn á sama
prjón, prjónið 5 prjóna stroff-
prjón (1 rétt, 1 röng), prjónið
síðan 2 lykkjur saman allan
prjóninn á enda, klippið garnið
og dragið það gegnum lykkjurn-
ar, sem eftir eru á prjóninum. Þá
eru vettlingarnir prjónaðar, eftir
er aðeins að sauma þá saman, en
það er gert með sama garni,
betra að kljúfa það.
Fyrsta svuntan
Góðir sokkaskór
HÉR er mynd af japönskum inni-
skóm, sem þægilegt getur verið
að bregða sér í, þegar heim er
komið eftir erilssaman dag.
Mælið fótinn frá hæl að stóru-
tá, og teiknið sólann á blað, eins
og sést á myndinnni. Snið, sem
merkt er 1. er sólinn, sem hafður
er úr þykku strigaefni, sniðin eru
2 stk. á hvorn fót, ásamt einu
stk. úr flóneli. Þessi þrjú stykki
eru síðan saumuð saman á könt-
unum.
Snið, sem merkt eru með 2. og
3., eru höfð úr lérefti, Fóður er
sniðið úr þynnra flóneli, en eftir
sama sniði. Saumurinn frá x til y
er fyrst saumaður á fóðrinu og
sjálfu efninu, og er síðan hvort
tveggja saumað á sólann í hönd-
unum, eins og sýnt er á mynd-
IMÝ SKÁLDSAGA
ÁST í ÁLFUM TVEIM
Höfundur PÁLL HALLBJÖRNSSON.
Það er ekki ósennilegt að ýmsa fýsi að kynnast hver lífsviðhorf koma fram
í skáldverki manns, sem fyrst lætur frá sér heyra á efri árum, að liðnum
löngum vinnudegi. Við lestur sögunnar verður ljóst, að höfundurinn hefur gert
sér far uin að brjóta til mergjar ýmsa þætti mannlegra eiginda. Hann virðist
þetkkja vel sumnr persónur, sem hann dregur fram á sögusviðið, skilur þörf
þeirra til að fullnægja meðfæddum eðlishvötum og afsakar þann breyskleika
sem af þvi kann að spretta, en undirstrikar þó, að til hins æðri máttar, sem
hann skynjar a£ baki tilverunnar, sæki hver einstaklingur styrk til að lifa
sem gcður og batnandi maður, með jákvæðu viðhorfi til samféiagsins. — Þar sé
lífsgæfuna að finna.
BÓKAÚTGÁFAN REIN, Akranesi.
í ÞESSA svuntu, sem ætluð er á
6—12 mánaða barn, fer 0.50 m
af hvítu poplinefni og 0.25. m af
grænu poplinefni, 90 cm breiðu.
í blómin eru notaðir alls konar
efnisafgangar og grænt amager-
garn.
Mynztrið er sniðið eftir snið-
inu og fest á hvíta efnið. Gæta
verður þess, þegar sniðið er, að
reikna með 1 cm aukalega fyrir
saumana við axlasaumana. Þar að
aukj eru sniðin 2 hvít bönd, sem
eru hvort um sig 7x45 cm. —
Blómin eru teiknuð með blá-
pappír (kálki) beint á efnisaf-
gangana. Það eru 11 blóm alls,
þar af fara 2 á böndin, en hin 9
eru í röð neðst á svuntunnL Tvö
lítil blöð eru á hverju blómi.
Allt er sniðið með % cm auka-
lega fyrir sauminn, og síðan eru
blómin „applikeruð" á svuntuna.
Stilkarnir eru saumaðir með
grænu garni, saumaður er „kont-
urstinigur", með einum þræði. Ef
ykkur finnst of erfitt að sauma
blöðin úr efni á svuntuna, af því
að þau eru svo lítil, getið þið
allt eins saumað þau með grænu
garni, og þá með flatsaumi.
Þegar búið er að sauma blóm-
in á svuntuna, eru saumaðir axla-
saumarnir, og svuntan er brydd-
uð með 2 cm breiðu skábandi,
sem sniðið er úr græna efninu.
Skáböndin eru Vz cm breið, þeg-
ar búið er að sauma þau á. —
Böndin eru saumuð saman í
saumavél, blómin saumuð í
vorn enda eins og sést á teikn-
ingunni. Að lokum eru böndin
saumuð á svuntuna, aðeins fyrir
neðan hálsmálið og svuntan
bundin saman að aftan.
inni, og byrjað þar sem merkt
er x.
Þar sem merkt er 0 á mynd-
imni á að passa við 0 á sólanum.
Á sniði merktu 2. er kantur,
sem á eru saumaðir 3 krókar að
innanverðu, lykkjurnar eru síð-
an saumaðar á snið nr. 3, að ut-
anverðu. Teikningin er af hægri
fótar skó, er henini síðan snúið
við, iþegar sníða á vinstri fótar
skóinn. Fyrir saumum er áætlað
Vi cm í sauminn frá x til y á-
samt efsta kanti. Fyrir alla aðra
sauma er áætlað 1 cm.
(§arclínubúóin
Ingólfsstraeti — Sími 16259