Morgunblaðið - 10.12.1967, Page 11
MORGUNBL.AÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DES. 1067
11
í þessu samlbandi er at-
hyglisvert, að teikning, sem
„Ramparts" birtir af Traven
eftir mexíkönsku listakonuna
Antonieta Figueroa, minnir
á elzta son Villhjálms keisara,
Vilihjélm heitinn fyrrverandi
ríkisarfa, en Traven og hann
eiga að hafa verið bræður.
ef orðrómurinn hefur við rök
að styðjast. Þetta er þeim
mun mikilvægara vegna þess,
að ólíkilegt er, að hin mexí-
kanska listakona hafi nokkru
sinni séð mynd af hinum
látna ríkisarfa Þjóðverja.
Leynilögreglustarf
Judy Stone segir frá því,
hvernig henni tófcst að kom-
ast í kynni við Traven. Hún
hugsaði sem svo, að Tráven
væri tekinn að reskjast og
því ekki eins áfjéður og áð-
ur að halda nafni sínu
leyndu. Hún skrifaði því
„Hal Croves“ og innti hann
eftir því, hvort hann gæú
komið því til leiðar að hún
ætti viðtai við „B. Traven“.
Með í bréfinu lét hún fylgja
viðtal, er hún hafði átt við
Rolf Hochlhutlh, vesturlþýzka
leikritasfcáldið.
Henni tiil mikillar furðu
barst henni sVar, en það var
neikvætt. Að sögn ,,Croves“
var Traven á ferðalagi í Suð
ur-ÍMexíkó og ekki væntanleg
ur þaðan fyrr en eftir marga
mánuði. Hins vegar hvatti
„Croves" hana til að hafa
samband við sig um leið og
hún kæmi til Mexíkó.
í maí 1966 hittust þau.
Kona Croves sagði henni, að
þetta væri í fyrsta skipti sem
maður hennar hefði rætt /ið
blaðamenn.
Þau rædust við í stóru
bókasafni, sem meðal annars
hefur að geyma allar 500 út-
gáfurnar, sem fcomið hafa út
af bókum Travens á ýmsurn
tungumálum.
Ekki leið á löngu þar til
góð vinátta tókst með Judy
Stone, „Hal Croves" og konu
hans. Smárn saman sannfærð
ist Judy Stone um það, að
,Hal Croves og B. Traven"
væru einn og sami maðurinn.
„Croves virtist vita allt um
innstu hugrenningar B. Trav
ens. Engu var 'líkara en „Hai
Crovens" þekkti bækurnar
betur en sjálfur höfundurinn.
f þessu sambandi rifjaðist
upp fyrir henni saga, sem
Ihún hafði heyrt um Traven.
Hin frægi kvikmyndaleik-
stjóri John Huston bað Trav
en um að aðstoða sig við öku
kvifcmyndarinnar „Fjársjóð-
urinn í Sierra Madre“, sem
hann gerði eftir sögu Trav-
ens. Tr&ven hvaraði á þá leið,
að hann skyldi biðja
„Croves" um að tafca þetta
að sér, því að hann þekkti
bækur sínar betur en hann
sjálfur.
Bréfið
Þegar Judy þóttist viss í
sinni sök, settist hún niður
og skrifaði bréf, sem hún af-
henti Croves. 1 bréfinu
kvaðst hún vera sannfærð
um, avð hann væri Traven og
Traven og Ret Marut væru
einnig einn og sami maður-
inn, að ein helzta skýringin
á því að hann vildi fela nafn
sitt væri uppruni hans og
hann hefði flúið frá Þýzka-
landi á sínum tíma svo að
ekki kæmist upp, hver B.
Traven væri í raun og veru.
Judy óttaðist, að bréfið
mundi binda enda á vináttu
hennar og Croves-hjónanna.
Svo fór þó ekki. Lengi vil
minntist hann ekki á brkfið.
En einuim degi áður en hún
kvaddi hjónin og hélt aftur
til Bandaríkjanna sagði
hann: „Hvað bréfið snertir,
þá þyrfti ég að svara því lið
fyrir lið. Ég skal skrifa yður.
Annars fannst mér bréfið
ágætt“.
En hún hefur ekkert svar
fengið enn.
Kolakraninn, sem nú á að hverfa.
Hegrinn kveður eftir 40 ára
sambúð við Reykvíkinga
HEGRINN er það mann-
virki, sem einna mestan
svip hefur sett á Reykja-
víkurhöfn síðastliðin 40 ár
Áreiðanlegt er að hann
var tákn hins nýja tíma á
íslandi, athafnasemi og
vinnuhagræðingar, tæki,
sem hafnarverkamenn
munu hugsa með hlýhug
til, ekki sízt nú, þegar
ákveðið hefur verið að
hann víki fyrir framtíðar-
skipulagi hafnarinnar.
Hegrinn, eða kolakraninn
eins og hann hefur nú jafnian
verið kallaður í daglegu tali,
var reistur veturinn 1926—27
og eins og jafnan er um stór-
framkvæmdir stóð nokkur
styrr um byggingu hans.
Verkam. voru í upphafi á móti
honum, þeir álitu að hann
myndi taka frá þeim atvinnu
og skapa ativnnuleysi meira
en orðið var. En brátt kom í
ljós, að Hegrinn losaði aðeins
verkamennina við versta og
erfiðasta verkið og hann varð
brátt tæki, sem hver og einn
áleit ómissandi.
Skömmu fyrir hád. sunnu-
daginn 27. febrúar 1927 safn-
aðist fólk saman á eystri hafn
arbakkanum í Reykjavík, eins
og hann var kallaður, en þar
átti þá að vígja kolakranann,
sem Hf Kol & salt hafði látið
reisa þar. Nokkurrar eftir-
væntingar gætti meðal fólks-
ins og víst er að sumir voru
fullir tortryggni.
Við þessa athöfn voru ræð-
ur fluttar. Hjalti Jónsson,
framkvæmdastjóri Kol & salt,
Eldeyjar-Hjalti, ávarpaði
mannfjöldann og lýsti kranan.
um, framkvæmdum við hann
og þeim erfiðleikum, sem ver-
ið hefðu við uppskipun úr
skipum í höfninni. Einnig lýsti
hann þeim framkvæmdum,
sem orðið hefðu við höfnina
þá skömmu áður. Þá lýsti
hann hlutverki kolakranans
og sagði, að honum væri ætl-
að að annast erfiðasta og
versta hluta vinnunnar.
Gamall Reykvíkingur hefur
sagt um kolakranann og Eld-
eyjar-Hjalta: „Það var stór-
hug Hjialta að þakka, að kola-
kraninn kom, sá og sigraði“,
og óhætt er að taka undir þau
ummæli.
Svo vikið sé aftur til at-
hafnarinnar við höfnina þenn-
an áðurnefnda sunnudagsmorg
un í febrúar 1927, þá tók til
máls, er Hjalti hafði lokið
máli sínu, Jóhannes Jóhannes-
son, bæjarfógeti, og mælti
nokkur orð. Hann árnaði fyrir
tækinu allra heilla og fram-
kvæmdi síðan hina eiginlegu
vígsluathöfn. Kraninn var sett
ur í gang og viðstöddum sýnt,
hvernig hann ynni.
Eftir vígsluathöfnina bauð
Kol & salt til hádegisverðar
á Hótel ísland. Voru þar ræð-
ur fluttar og þakkaði þar
Hjalti Jónsson, öllum þeim, er
unnið hefðu að gerð kranans.
Þá tóku einnig til máls Magn-
ús Guðmundsson, atvinnumála
ráðherra, sendiherra Dana og
Knud Ziemsen, borgarstjóri.
Undir borðum í þessu hófi
var mikið rætt um nafngift á
kolakranann en kolakrani var
nafn, sem ekki var óskað eftir
að festist við mannvirkið. Því
ákvað stjórn Kol & salt að
efna til verðlaiúnasamkeppni
um heiti á krananum og var
heitið 100 krónum í verðlaun.
75 krónur þeirrar upphæðar
skyldu renna til Elliheimilis-
ins, en 25 krónur til þess, sem
uppástunguna ætti. Nefnd var
kosin til þess að velja úr uppá
stungum, sem bærust og áttu
sæti í henni, borgarstjóri,
Garðar Gíslason og Guðmund-
ur Kristjánsson.
Á annað hundrað uppástung
ur um nafrtgift á kranann bár-
ust. Meirihluti nefndarinnar
kom sér saman um að veljia
nafnið HEGRA, en það nafn
kom frá tveimur mönnum, án
þess þó að þeir hefðu samráð
sín í milli. Voru það Benedikt
Sveinsson, þáverandi forseti
Neðri deildar Alþingis, og
Eggert Claessen, bankastjóri,
sem sendu nafnið. Flestir
sendu nöfnin, Grettir, Kolbít-
ur og Kolskeggur.
Undirstaða Hegrans er
einnig tengd mikilli sögu. Við
hafnargerðina 1916 var gamla
Battaríið notað þar sem upp-
fylling og einnig rn'un uppfyll
ing ihafa verið tekin úr Arn-
arhóli. Styrrinn, sem stóð um
kranann í upphafi hjaðnaði
fljótt. íslend'ingar hafa raunar
oftast tekið niýjungum með
blandinni ánægju í fyrstu,
eins og dæmið um símann
sannar. Einu nýjungarnar,
sem örugglega má segja að
fagnað hafi verið voru rokk-
urinn, saumavélin og olíulamp
inn.
Hegri heitir fugl. Því skyldi
kolakrani vera kallaður
Hegri? — Jú, leiti menn til
enskrar tungu sér maður, að
hegri heitir á því máli „a
crane“, krani. Þannig er heit
ið hugsað.
Hegrinn mun nú brátt
hverfa. Líklegast verða örlög
hans ráðin í vetur, en Kol &
salt hafa þegar afhent borgar-
yfirvöldum Reykjavíkur hann
til fullra forráða. Kol & salt
er nú hins vegar að láta gera
af honum líkan, svo að útlit
hans falli ekki algjörlega í
gleymsku og dá. Líkan þetta
gerir Vilberg Helgason, ör-
yggiseftirlitsmiaður, og verður
það mjög nákvæmt. Það verð-
ur eina minningin um kola-
kranann, sem sett hefur svip
sinn á Reykjavíkurhöfn í rúm
lega 40 ár. Enn mun þó til í
vörzlu Kol & salt uppstopp-
aður Hegri, er félagið eignað-
ist á bernskudögum kolakran-
ans.
í grein eftir blaðamann
Mbl., er var við vígsluathöfn-
ina fyrir rúmum 40 árum seg-
ir svo:
„Næstu daga geta menn
væntanlega séð vinnubrögð
kolakranans niður á hafnar-
bakka .Geta menn þá bezt séð
hversu stórvirkur hann er. —
Kola-„skúffan“, sem flytur
kolin úr skipi eða í, tekur Va.
tonn. Einn höfuðkost hefir
þessi útbúnaður, sem sé þann,
að öll fcol, sem flutt eru út í
skip, eru vigtuð jafnóðum. Er
mjög nákvæm vigt á kranan-
um, og vigtar hún kolin jafn
óðum og þau eru flutt í skip-
in.
Þegar mennirnir, sem við
kolakranann vinna, hafa femg-
ið æfingu í starfinu, á kran-
inn að geta skipað upp ca.
70—90 smál. af kolum á
klukkustund. Rafmagn fær
hann frá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, og mun hann
koma til með að nota % kw
á mínútu.
Hf. Kol & salt á þakkir
skilið fyrir að hafa komið
þessu framfarafyrirtækí upp,
og er óskandi, að það verði
þessu bæjarfélagi. og landinu
í heild, til mikil/gagns á kom-
andi tímum.”
Satt var það, bygging kola-
kranans var mikið átak á sín-
um tíma. Nú mun áreiðanlega
hver einasti sannur Reykvík-
ingur horfa með trega á. er
kraninn verður rifinn, en þeir
þakka honum sambýlið í
borginni. Allt er í heiminum
hverfult. Hver mun nú flytja
„um borg og bryggjur / boð-
skap hins nýja dags” eins og
Tómas kvað.
IMýtt hús Búnaðar-
bankans á Sauðárkróki
ur verið unnið æ síðan að smíði
hússins, sem er nær lokið.
Húsnæði bankans er á nieðri
hæð. afgreiðsluisalur, viðtalsher-
bergi útibústjóra, geymsluihólf
fyrir viðskiptamenn, og geymsla
fjármuna, kaffistofa starfsfólks
og snyrtiherbergi. í kjallara eru
seðla. og skjalageymslur og hita-
klefi.
Á götuhæðinni eru auk hús-
næðis bankans tvö verzlunar-
rými, sem útibúið hyggst leigja.
Á efri hæð hússins verða sfcrif
stofur Sauðárkrókskaupstaðar,
Rafveitu Sauðárkróks, Hitaveitu
Sauðárkróks, Búnaðarsambands
og Vegagerðar ríkisins.
Úr afgreiðslusalnum nýja. (Ljósm: Adólf Björnsson)
Bifröst. Þar fluttu útibússtjórinn,
Ragnar Pálsson, aðalræðuna, en
ýmslr fleiri tóku til máls. — Jón.
ÚTIBÚ Búnaðarbanka íslands,
Sauðárkróki, flutti starfsemi
sína í nýtt húsnæði að Faxa-
torgi 1, laugardaginn 2. des. si.
Hið nýja bankahús er á tveim
hæðum, 370 ferm að flatarmáli.
Framkvæmdir við bygginguna
hófust í október 1965, en, lágu
niðri um veturinn. Hófust þær
svo að nýju í maí 1966 og hef-
RITST.ÍÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA • SKRIFSTOFA
SÍIVII 10*100
húsið opið almenningi til sýnis
og buðu bankamenn viðstöddum
Síðari hluta laugardags var til kaffidrykkju í félagsheimiliniu