Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DES. 19*T Bústaða og Smá í búða h verf i Jólagjafir í miklu úrvali: Barnanáttföt. Telpnasloppar. Telpnakjólar og skokkar. Hvítar drengjaskyrtur. Kvenundirfatnaður í úrvali. Nátttreyjur í úrvali. Leikföng og m.fl. Verzl. TftÍf Asgarði 24 Sími 36161 Framhalds-aðalfundur HLAÐS H.F. verður haldinn í Átthagasdl Hótel Sögu fimmtudaginn 28. desember n.k. og hefst kL 20.30. ( DAGSKRÁ: 1. Skýrsla stjórnar og reikningar. 2. Kosning stjórnar. 3. Kosning endurskoðenda. 4. Tillaga stjórnar félagsins um breytingu á 4. gr. samþykkta þess, þ. e. um lækkun hluta- fjár. 5. Onnur mál. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir við inn- ganginn. STJÓRNIN. Jólcacjiöf handa iðnaðarmanninum Að þessu sinni þarf enginn að vera í vafa um, hvaða gjöf hann á að velja handa iðnaðarmanninum. Ekkert kemur til greina nema Saga Iðnaðarmanna- félagsins í Reykjavík eftir Gísla Jónsson, menntaskólakenn ara á Akureyri. Þar segir frá 100 ára starfi elzta félags iðnaðarmanna að velferðarmálum stéttarinnar og ann- arra. Það vekur stolt allra iðnaðarmanna að lesa um dugnað, hugkvæmni og atorku Iðnaðarmannafélagsins á undanförnum mannsöldrum. Upplag bókarinnar er mjög takmarkað vegna bruna Iðnaðarbankans á sl. vetri. Þetta er vönduð og falleg gjöf í alla staði. IJtgefandi SAGA IÐNÁÐARMAN N AFÉLAGSIN S í REYKJAVÍK MARÍA SKAGAN: í MEISTARANS SÖGUR LÍFS OG DAUÐA Þetta er bók allra þeirra, sem bugsa um lifið og gátur titverunnar. Bók þessi er getin út til ágóða Sjálfsbjargar, Landssamb. fatlaðra BÓKIN FÆST f BÓKAVERZLUNUM Verð kr. 220.— Kitdómur úr Timanum. I meistarans höndum — sögur tífs og dauða — heitir bók, sem María Skagan hefur þýtt og tek- ið saman úr ýmsum stað, en gef- i-n er út að tilhlutan Sjálfsbjarg ar, landssambands fatlaðra. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson rit- ar formála, þar sem hann minnir á atari Sjálfsbjargar og byggingu vinnu- og dvaiarheimilis samtak- anna. En þessx bók „á að minna þig, hver sem þú ert, á það, að hafið er verk, er þína hönd þarf til að bera til sigur“. María Skagan hefur safnað efni í bókina og lagt handritið fram sem gjöf til Hjálparsjóðs Sjálfs- bjargar, en prentsmiðjur, bók- bandstofur og fleiri munu hafa lagt skerf til þess að draga úr kostnaði við útgáfu hennar, svo að andvirði hennar geti runnið sem minnst skert til Sjálfsbjarg- ar, en þangað á allur ágóðinn af sölunni að fara. Bók þessi er snoturlega úr garði gerð, og vert er að minna á það, að sá, sem kaupir hana, leggur ekki aðeins góðan styrk þeim, sem stuðnings þurfa við, heldur fær í hendur mjög eigu- lega bók — bók, sem ekki er lík neinni annarri bók, sem kom- ið hefur út á þessu hausti. Hún hefur að geyma margar stuttar smásögur og frásagnir, flestar örstuttar. Þetta ern eigin- lega daemisögur, er greina frá merkilegum atvikum og orðum, tilvitnanir teknar úr merkum bók um, orð spekinga endurflutt. Þetta eru lærdómsríkar sögur og vel sagðar og valdar. Fyrst eru allmargar sögur úr bóktim Kahlil Gibran, sem María Skagan hefur þýtt, siðan sagnasyrpa úr Gang- lera, og hafa þar ýmsir um fjall- að, og loks er meira en helming- ur bókarinnar safn úr ýmsum rit um, erlendum sem innlendum. María Skagan er augsýnilega vel ritfær og glöggur veljandi. Sumar þessara örstuttu sagna eru perlur, oft sagðar í léttum tón en ætíð alvöru lífsins í kjarna, Það er gaman að fletta slíkri bók og lesa. Það er eins og að skoða myndasa,fn. Þessi bók á ekilið mikla sögu, bæði vegna þess stuðnings, sem það mundi veita góðu málefni, og vegna sjálfrar sín. BÓKAÚTGÁFA GUÐJÓNS Ó. HALLVEIGARSTÍG 6-8 SÍMI 15434

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.