Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DES. 1967 13 Gæðavara Max harðplast Glæsilegir litír. Verð mjög hagstætt. LITAVER, Grensásvegi 22—24. Sími 30280, 32262. 2asse*ikcMSi Rafmagns-kaffikvarnir mala í könnuna á 0 Ný-malað er kaffið anðvitað langbezt, og ZASSENHAUS rafmagns-kaffikvörnin gerir það auðvelt að veita sér þá §(*k ánægju. * Zassenhaus er falleg og vönduð vestur-þýzk gæðavara. Brauð- og áleggssneiðarar sneiða allt: brauð, álegg, grænmeti, ost o. fl. Margar nýjar gerðir: ýt Frístandandi á sog- skálum. it Samanbrjótanlegir í geymslu. ýý Sleði fyrir það, sem sneiða á. ★ Ryðfrir stálhnífur Iosaður á auga- bragði með því að þrýsta á hnapp. Gagnlegar jólagjafir S»mi 24420 — Suðurgata 10. Út er komð þriðja bindi HEIMDRAGA og flytur eins og fyrri bindin tvö íslenzkan fróðlcik, gamlan og nýjan, eftir ýmsa höfunda víðsvegar af landinu. Albert Sölva- son ritar ýtarlegan þátt um Drangey og Drangeyjar- ferðir, sem fjaliar m.a. um veiðiskap, eggjatöku og ör- nefni í Drangey. Finnur Sigmundssou ritar þáttinn Hýddur Gvendur í Koti og birtir auk þess gamalt og skemmtilegt Ijóðabréf ásamt greinargerð um höfund þess. Hólmgeir Þorsteinsson ritar þátt um Grím græð- ara, og Eiður Guðmundsson frá Þúfnavöllum segir frá HiIIna-Gunnu. Sr. Jón Skagan rekur minningar um Þjófa-Lása, Halldór Kristjánsson á Kirkjubóli ritar um snjóflóðið í Skálavík 1910 og fólkið, sem þar kom við sögu. Jóhann Hjaltason á hér frásagnirnar Hjá Möngufossi og Sjúkdómslýsing. Þóra S. Guðmunds- dóttir frá Unaðsdal, Sigtryggur Friðfinnsson og Jón N. Jónasson segja frá dulrænum atburðum. Rósberg G. Snædal ritar þáttinn Hefndi Solveig í þriðja lið? Sigurbjörn Benediktsson segir frá endalokum byggð- ar í Fjörðum. Kristinn P. Briem rekur æskuminning- ar sínar frá Vatnsleysuströnd. Og enn er ótalið gam- alt og sérkennilegt ævintýri. Sagan af fallegu jóm- frúnni og fátæka stúdentinum, sem Jónas Jónasson frá Hofdölum skráði eftir Þóru Sigurðardóttur prófasts- írú í Miklabæ, en hún Iézt árið 1914. — Má af þess- ari upptalningu ráða, að í þessu bindi HEIMDRAGA er fjölbreytt efni og gimiiegt til fróðleiks, ekki síður en í fyrri bindunum tveimur. IÐUNN Skeggjagötu 1. Símar 12923 og 19156. Saga Norðmannsins Oscar Magnusson, sem var svikinn í hendur Gestapó og þoldi ofurmannlegar raunir án þess að ljóstra upp hinni mikilvægu vitn- eskju sinni, var sendur til Þýzkalands tii tortíming- ar og kastað lifandi á líkahaug, eftir að hafa gengið um hálfa Evrópu, með brotinn hrygg og slitna vöðva. Ótrúleg saga, því hvert orð er sannleikur. Hvert var hið ógn- þrungna leyndarmál leikarans vinsæla, er þúsundir kvenna elskuðu? — Ein skemmtilegasta saga þessa vinsæla skáld- sagnahöfundar. Um leið og Martin sá nýfætt folaldið, fann hann, að þarna var reiðhestsefnið, sem hann hafði dreymt um að eignast. — Heimsfræg unglingasaga, sem skrifuð er af 16 ára gamalli stúlku. Þetta er hiklaust ein skemmtilegasta bók, sem skrifuð hefur verið á seinni árum. Það staðfesta þeir, sem hafa lesið hana. IÐUNN Fyrsta bók á íslenzku eftir frægan metsöluhöfund HAMMOND INNE3 er skozkur að ætt, en fæddur í Eng- landi árið 1913. Hann er háskólamenntaður og hóf starf sem blaðamaður í London með fjármál að sérgrein. Fyrsta bók hans kom út 1936. Hann var í loftvamasveit- unum í London, þegar loftárásir á borgina stóðu sem hæst, en skrifaði jafnframt af mesta kappi, og hann hafði ekki gegnt herþjónustu í heilt ár, þegar fyrsta metsölubók hans kom út. Hann er nú löngu heimsfrægur höfundur. Bækur hans koma út á flestum tungumálum og eru hvarvetna metsölubækur í sérflokki. Hann er afar vandvirkur og nákvæmur höfundur, kynnir sér t. d. ávallt mjög rækilega umhverfið, þar sem sögur hans gerast, og sviðsetur þær síðan af þeirri nákvæmni og vandvirkni, sem naumast á sinn líka. Sögur hans eru þess vegna engan veginn yfirborðslegar æsifrásagpiir, því að þótt þær séu afar spennandi, eru þær raunsannar og höfða til þeirra, er bókmenntir kunna að meta. Ofsi Atlantshafsins SAGA þessi er lögð í munn listamanni, en hún er þó miklu fremur saga hermannsins, bróður hans, sem er faiið það hlutverk að stýra brottflutningi herdeildar frá af- skekktri eyju undan vesturströnd Skotlands. Ýmis atvik og ekki sízt ægivald sjálfra höf- uðskepnanna leiða til mikils harmleiks, sem verður harla afdrifarikur fyrir stjórnand- ann. í stórbrotnum lokaþætti bókarinnar hittast bræðurnir augliti til auglitis á eyju feðra sinna. Og þar fæst fyrst ráðin gátan um for- tíð hermannsins og harmsögulegt leyndar- mál hans. Sýnir sú máttuga og eftirminni- lega frásögn bezt, hvilíkur snillingur heldur hér á penna. — Lesendum skal bent á það, að sögur Hammond Innes fara gjarnan fremur hægt af stað, en óvenjulegt áhrifa- vald þeirra og spenna ná áður en varir helj- artökum á lesandanum. IÐUNN Skeggjagötu 1. Sitnar 12923 og 19156.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.