Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DES. 1967 Guðm. G. Hagalín skrifar um BÓKMENNTIR Tekst ef tveir vilja Sverrir Kristjánsson og Tómas Guðmundsson: HORFIN TÍÐ. Bókaútgáfan Forni. Reykjavík 1967. ÞETTA er fjórða bókin, sem til er orðin fyrir samvinnu þeirra Sverris Kristjánssonar og Tóm- asar Guðmundssonar við bóka- forlagið Forna, en þættir þeirra tvímenninganna hafa orðið með afbrigðum vinsælir hjá íslenzk- um lesendum. Höfundarnir hafa yfirleitt valið harmræn efni, sem eru flest mörgum að ein- hverju kunn, og þeir kunna báð- ir að taka efnin persónulegum tökum og gæða þau nýju lífi í frásögn sinni. Annars eru þeir félagar allólíkir sem höfundar. Sverrir málar helzt myndir sínar djörfum, föstum og breiðum dráttum, en Tómas notar gjarn- an milda liti og bregður oft ljóð- rænni og seiðandi dul yfir mynd- irnar, en líka gætir stundum hjá honum kímni, sem er ærið laundrjúg, en svo hófsöm, að hún kynni að fara fram hjá sumum lesendunum. Minnist ég þessa einkum úr þættinum af hinum ágæta manni, séra Jóni Steingrímssyni, þar sem fjallað er um kvennamál hans. í þessari nýju bók eru sjö þættir, fjórir eftir Sverri og þrír, sem Tómas hefur skrifað. Þættir Sverris heita: Prestsson- Tómas Guðmundsson urinn frá Ballará, Köld eru ó- magans kjör, Bóndinn á Eyri og Alþingi í aldarspegli. Sá fyri:ti fjallar um Torfa, son Eggerts prests á Ballará og örlög hans, sem urðu þau í glaumnum í Kaupmannahöfn, að hann lézt einmana og févana fyrir aldur fram, án þess að fá lokið námi, og kom þá þar ekki til það, sem margan íslenzkan námsmanninn bagaði, að föðurinn skorti fé til að kosta soninn. En þó að fs- lendingar sæktu margt gott til Hafnar, lék hún grátt margan efnismanninn, sem þangað kom úr fásinninu hér heima. „Mein- leg örlög margan hrjá mann og ræna dögum“, kvað Þorsteinn Erlingsson. Annar þáttur Sverris segir harmsögu, sem gerðist hér heima á fslandi á fyrsta áratugi þessárar aldar. Drenghnokki, sem var á sveit sinni austur í Skaftafellssýslu, lézt úr hor og harðrétti, og þó að hörmulegt væri framferði hjónanna, sem á þessu áttu sök, er samt kannski ömurlegast sem aldarspegill, tómlæti þeirra sveitarvalda, er þarna bar að vera á verði, og þó voru það sízt nein illmenni, sem þar áttu hlut að máli . . . En þá var enn sú tíð, að yfirleitt var þeirri reglu fylgt, að þeim væri falin forsjá ómagans, sem bauðst til að taka hann fyrir lægst gjald. Lokaþáttur bókarinnar, Alþingi í aldarspegli, er einna veigaminnstur af því, sem þessi bók flytur. Hann er ekki bund- inn örlögum eins eða tveggja persóna, en fjallar um íslenzkt réttarfar á 17. og 18. öld, sem raunar var ómannúðlegt og næsta dapurlegt, en hins vegar lögbundið og ekki verra en efni stóðu til. Um það hefur oft og tíðum verið ritað og þess oft Sverrir Kristjánsson minnzt og bætir Sverrir þar litlu við. En þátturinn um bóndann á Eyri, Þorvald Björnsson á Þor- valdseyri undir Austur-Eyjafjöll um, er hins vegar snjallasta framlag Sverris til þessarar bók ar. Þar er dregin upp merkileg persónulýsing og sýnd næsta sér- stæð og áhrifarík örlög. Þor- valdur var manna ríkastur á ís- landi á blómaskeiði sínu, hafði gerzt sérstæður framkvæmda- maður um búskap og húsagerð á jörð sinni, auðgazt bæði á landbúnaði og ýmisS konar verzlun og braski heima í héraði og í nærsveitunum og orðið land frægur fyrir hagsýni, dugnað og fjármálavit. Á efri árum sínum verður hann síðan forvígismaður um togaraútgerð hér á landi, kaupir stórhýsi í Reykjavík og setzt þar að. En á togarakaupum og í nærsveitunum og, orðið lands ingu, og hinn kæni og víðkunni kaupahéðinn úr sveitinni gerist auðtrúa, tapar öllum eignum sín- um og lifir það síðan sem snauð- ur maður að sjá aðra menn raka saman fé einmitt á sams konar útgerð og hafði svipt hann öll- um sínum auði. Sárt mun hann hafa sviðið — og þó var hann á vissan hátt sigurvegari. Hann hafði séð það á undan öðrum, hvert fyrirheit þau gáfu um framtíð íslenzkrar útgerðar og hagþróunar, hin gufuknúnu skip Bretans, sem voru að veiðum uppi á landsteinum við suður- strönd íslands! Þættir Tómasar eru ekki að- eins vel sagðir, heldur meðal þess allra snjallasta, sem hann hefur birt í bókunum, sem Forni hefur gefið út. Sá fyrsti heitir Friðþæging. Þar er efnið morð Natans Ketilssonar og af- taka þeirra, sem þar voru að verki, en þó í rauninni fyrst og fremst hin dularfulla og dul- ramma saga, sem af þessum at- burðum verður rúmum hundrað árum síðar — Þau furðulegu fyrirbæri, sem til þess leiddu, að lík afbrotamannanna voru grafin upp eftir tilvísun Agnes- ar á óvæntum stað og síðan jörðuð í vígri mold með yfir- söng og að viðstöddum álíka fjölmenni og mætt hafði forðum til aftökunnar — og hinna upp- gröfnu samtímis minnzt í sjálfu Ríkisútvarpinu! Hér var sannar- lega öldum skipt — og hvað svo um þau rök, sem til þess lágu, að þessi eftirleikur var færður á svið? Tómas fullyrðir ekkert, en hann vekur lesandann sannar lega til íhugunar, og niðurlags- orðum hans víkur ekki sá frá sér í flýti og tómlæti, sem sjá- andi sér og l.eyrandi heyrir. Þá er þáttur um Þorleif bónda Kol- beinsson á Háeyri. Hann er ekki langur eða sérlega rækilegur, en Tómas kann að draga fram þau atriði, sem málið varða, þá er festa skal í minni skapgerð og vitsmuni hins sérstæða alþýðu- manns, sem varð ríkur á því að skera ekki hnútinn á snærinu, sem baggar voru bundnir með, heldur leysa hann og hirða snær ið. Um Þorleif á Háeyri sagði Sigurður heitinn Berntsen í mín eyru, að hann hefði verið spakvitrastur þeirra manna á síð ari tímum hér á íslandi, sem hann hefði haft sögur af. En snilldarverk Tómasar í þessari bók er þátturinn Hörpu- sveinn frá horfinni tíð. Þar seg- ir. frá Ingimundi Sveinssyni, bróður Jóhannesar Kjarval, en Ingimundur var á síðustu árum sínum nefndur Ingimundur fiðla. Ef til vill var þarna á ferðinni meðal okkar, sem mun- um hann, efni í ámóta listamann í heimi tónanna og bróðir hans hefur reynzt á sviði litanna — og máski gerði það gæfumun- inn, að Ingimundur var fjórtán árum eldri en bróðir hans. — Fjórtán ár eru ekkl langur tfmi, en einmitt þessi fjórtán ár, sem þarna munar, ollu aldahvörfum í efnahagslífi fslendinja og að nokkru í viðhorfum þeirra við list og listamannaefnum. Um þetta fjallar Tómas viturlega, en í rauninni er það ekki efni þátt- arins og ekki slíkar athuganir sem þessar, er gera hann heill- andi, heldur frásagnarhátturinn, stíllinn, orðfærið, hinn dul- kenndi ljómi, sem fellur yfir hinn undarlega og harmræna tónlistarmann, eitthvert glit, sem líkist því, sem glóir á vængj um fiðrildanna. Það hefur meðal annars sín áhrif, að í þættinum sér lesandinn alltaf, svo sem á bak við frásögnina mynd hins mikla og sérkennilega myndlist- armanns, — hún verður þarna likt og vatnsmerkið á banka- seðli, — já, einmitt þannig. Guðmundur Gíslason Hagalín. Sigurður Haukur Guöjónsson skrifar urn t BARNA- OG UNGLINGABÆKUR Dagfinnur dýralæknir Höfundur: Hugh Lofting Þýðing: Andrés Kristjánsson Prentun: Prentsmiðjan Edda hf. Útgnfandi: Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. Hér er nýtt útgáfufyrirtæki að ryðja sér braut tiil íslenzkra unglinga. Ég d'áist að, hve vel það fer af átað, og margur eldri útgefandinn mætti taka sér bók þessa í hönd og læra af frágangi hennar. Han,n er vissulega til fyrirmyndar.. Dagfinnur dýralæknir í Apa- landi er amerísk verðlaunasaga, er hlaut viðurkenningu New- bery-sjóðsins 1*923. Sjóður þessi verðlaunar beztu bar.nabókina, er út kemur á árinu þar vestra. Bókin, er hér um ræðir, var val- in til móttöku þessa heiðurs, þá verðlaunin voru veitít í ann- að sinn. Ég nygg að fieirum en mér reynist erfitt að gera sér grein fyrir seiðmag.ni bókarinnar. Hún er iangt frá því frumleg, held- ur ekki djúpt hugsuð vizka, nei, látléysið sjálft. Mér virðist aðal uppistaðan vera vonbrigði höf- undar með mannskepnuna, er svo illa .hafði farið með heim- inn sinn, er raun ber vitni, þá sagan er rituð, i lok srtríðsins 1914—^1918. Höfundur ritar hana fyrir börn sín og bendir þeim inní heim dýra og náttúrunnar sjálfrar. Hann lætur páfagauk gerast læriföður mikils metins læknis; gamlan dráttarhest fá sér gleraugu, já jafnvel villidýr keppast um þjónustu í þessu merkilega ríki, er kringum Dag- finn dýralækni varð til. Sjálf- sagít er það sveitalífið, er í brjóst um okkar blun'dar, sem gefur sögu þessari töfra og fylling. Þýðing Andrésar er snjöll og sérlega lipur. Málið á bókinni er lifandi og fagurt, hvergi gripið til teipuryrða tjþ.a. slá um sig. Kaflaskreytingar höfundar eru einfaldar og lítil list að roín-um dómi, en þó skemmtilegax. Bókaraukinn er fr-æðandi um höfund og sögur hans. Hér er vel að verki staðið: val bókar, þýðing, prentun og próf- arkales-tur, allt til fyrirmyndar. Sólrún og sonur vitavaróarins Höfundur: Séra Jón Kr. íslfeld. Teikningar: Baltasar. Titilsíða eftir Bolla Gústavs- son. Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. Útgefandi: Bókaútgáfa ÆSK í Hólastifti. Þetta er ákaflega geðþekk saga, sögð af kunnáttu og leikni hins reynda manns. Aðal uppi- staðan er hinn siðfræðilegi boð- skapur. Söguhetjurnar verða ímynd hins bezta er prýðir ís- lenzk ungmenni. Hann er líka það reyndur hann séra Jón, að honum veitist auðvelt að tefla hinu góða gegn því lága og veita því sigur. Að nokkru er hér um að ræða framh. bókarinnar „Sonur vitavarðarins“, er út kom hjá sama forlagi 1965. Þó er þetta sjálfstætt verk. Ég hika ekki við að mæla með þess Helgi Hjörvar: Konur á Sturlungaöld MÖRGUM mun enn í fersku minni, er Helgi Hjörvar las Sturl ungu í útvarp af sinni alkunnu snilld og leiddi hlustendur gegn- um það völundarhús, sem geym- ir hringiðu atburða, þar sem persónum skýtur upp úr sagna- hafinu til að hverfa aftur jafn- óðum. Það var eftirminnilegt, hversu Helga tókst að skýra og afmarka frásagnir Sturlungu, enda lagði hann sig mjög fram við þetta vandaverk. Nú hefur Finnbogi Guðmunds- son landsbókavöröur séð um út- gáfu lítillar bókar um konur á Síurlungaöld, en þættir þessir munu vera hið síðasta, sem Helgi Hjörvar ritaði og flutti í útvarp. Meginefni bókarinnar eru þættir um fimm Sturlungualdar konur. Sturlunga er, eins og höf- undurinn segir, „saga karlmanna um karlmenn". Flestar konur Sturlungu eru nafn eitt, en Helga Hjörvar hefur tekizt að gera fimm listaverk úr undra litlum efniviði, sem sagan fær honum í hendur, — og sérhver þessara þátta er með sérstöku móti. Þessar fimm kvenlýsingar eru örlaga- og harmsögur gerð- ar af skarpri ályktunargáfu og skáldlegum næmleika og ritaðar á því goðfagra máli, sem Helga Hjörvar var gefið. Þættirnir eru einhver fegursti sveigur, sem íslenzkum konum hefur verið undinn af íslenzku skáldi, sem öðrum fremur mat göfgi mæðra vorra, tign þeirra og reisn í sæld og þraut. Andrés Björnsson. ari bók við alla þá foreldra, er vilja gefa börnum sínum þrosk- andi sögubók. Hún er e.t.v. ekki stórbotinn skáldskapur, heldur miklu fremur stór og mikill vegvísir með áletruninni: Leyf mér að leiða þig á gæfustig. Séra Jón á þakkir fyrir starf starf sitt fyrir æsku þessarar þjóðar, fáir hafa helgað sig því óskiptari en hann. Von mín er líka sú, að hann hætti ekki rit- störfum heldur leyfi okkur enn að njóta. Helzt finn ég það að þessu verki hans, að mér virð- ast aðalsöguhetjurnar of þrosk- aðar — bera of mikið af séra Jóni sjálfum. Fyrirmynd ungl- inga má ekki vera of krefjandi, ef þau eiga að laðast til sjálf- viljugrar fylgdar. Prentun og frágangur er góð- ur, eins og hinu reynda fyrir- tæki var von og vísa. Próförk er hins vegar ekki nógu vel lesin. í heild er þetta gott verk, sem á það skilið að vera keypt og mikið lesið. Ef Bókaútgáfa ÆSK heldur áfram á líkri braut, þá er vel. H. G. Wells. f frétt blaðsins í gær misrit- aðist nafn undir mynd í frétt um sjö þýddar bækur bókaút- gáfunnar Hildar. Myndin í fregn inni er af H. G. Wells, höfundi bókarinnar „Timavélin".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.