Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DES. 1967 Sveinn Helgason stór kaupmaður -- Minning ÞílGAR staðið er yfir m'oldum góðis vinar og hann kvaddur hinztu kveðju verður manni tregt tungu að hræra. En ekki skal Sveinn Helgason, sá mikli drengskaparmaður, svo kvaddur, að ekki sé hans minnst nokkrum orðum. Sveinn Helgason lézt í Landa- kotsspítala aðfaranótt 16. þ.m, eftir langt og erfitt sjúkdóms- strið, sem hann háði með miklu æðruleysi og hugarró, sem hon- um var gefin í svo ríkum mæli. Hann fæddist 30. nóvember 1908 og var því aðeins rúmlega 59 | t Dóttir mín Anna Guðmundsdóttir Fögrukinn 4, Hafnarfirði, lézt í Landakotsspítala 19. þ. m. Guðmundur Filippusson. t Bróðir okkar Guðmundur Einarsson frá Staðarbakka, lézt 19. desember s.l. í sjúkra- húsi Akraness. Sólveig Jóhannsdóttir. Halldór Jóhannsson, t Móðir okkar, tengdamóðir og amma Sigríður Olga Kristjánsdóttir andaðist 18. desember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju 22. desember kl. 13,30. Kristín Zoega, Geir Agnar Zoega, Þórdís Kalman, Björn Kalman, Ragnhildur Ingibergsdóttir, Björn Gestsson, Helga Ingibergsdóttir, Snorri G. Guðmundsson, Asgeir Ingibergsson, Janet Ingibergsson, Gunnar Ingibergsson, Eva Ingibergsson, barnabörn. t Knud Jörgensen Austurstræti 3, lézt 13. þ. m. Útförin hefir farið fram. Aðstandendur. t 'V Útför sonar okkar, unnusta og bróður Brynjólfs Gautasonar Ásvallagötu 64, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. des. kL 1,30 e.h. Elín Guðjónsdóttir, Gauti Hannesson, Margrét Þorsteinsdóttir, Nina Gautadóttir, Skúli Gautason. ára, er hann lézt. Hann hverfur þvi af sjónarsviðinu langit um aldur fram og er að slíkum manni mikil eftirsjá, því alstað- ar vildi hann láta gott af sér leiða, hvar sem hann lagði hönd á plóginn, og það gerði hann all- víða. Foreldrar Sveins voru Helgi Sveinsson fyrrum bankastjóri á ísafirði og síðar fasteignasali í Reykjavík og kona hans Krist- jana Jónsdóttir. Helgi faðir Sveins var orðlagðuT dugnaðar- maður og áhugamaður að hverju sem hann gekk og tók mikinn þátt í ýmS'U félagsstarfi, en fyrs.t og fremst mun Góð- templarareglan hafa notið góðs af félagshyggju hans og var hann þar um fjölda ára meðal fremstu manna og einn af æðstu embættismönnum Góðtemplara- reglunnar langa tíð. Sveinn Skúlason faðir Helga var prestur á Staðartoakka í Mið- firði og Kirkjuibæ í Hróars- tungu. Hann var einnig þing- maður Norður-iÞingeyinga og ritstjóri Norðra á Akureyri. Jón móðurafi Sveins Helgasonar var hinni kunni bændahöfðingi og þingmaður Þingeyinga, Jón Sig- t Eiginkona mín, móðir og tengdamó'ðir Sigríður Blöndal, Miklubraut 52, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju föstudaginn 22. desember kl. 10.30 árdegis. Lárus Þ. Blöndal, Bjöm Blöndal, Ragnheiður og Gísii Blöndal. t Hjartans þakkir fyrir auð- sýnda samúð við andlát og útför Sigríðar Þorsteinsdóttur Hrafnkelsstöðum Hraunhreppi. Aðstandendur. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för Maríu Ólafsdóttur Ríkarður Jónsson, böra, tengdabörn og barnaböm. t Innilega þökkum við auð- sýnda samúð vegna fráfalls og jarðarfarar Elínar Jónsdóttur Lokastíg 9. Við minnumst með þakk- læti þess f ólks, sem sýndi henni umhyggju í Borgar- spítalanum. Adolf Kr. Ársæll Jóhannsson, Elín Adolfsdóttir, Jóhann Adolfsson, María Þorláksdóttir, Jóhann Adoifsson, Alda Jónsdóttir, Gunnar Þ. Adolfsson, Arndís Jóhannsdóttir. urðsson á Gautlönduim, þjóð- kunnur maður fyrir margháttuð störf sín og mikla mannkosti. Kona Jóns á Gautlöndum Sól- veig Jónsdótir, var af Reykja- hlíðarætt og var þvi Sveinr. Helgason af hinni fjölmennu og þekktu Reykjahlíðaætt kominn. Meðal afkomenda Jóns á Gaut- löndum og af Reykjahlíðaxætt er mikill fjöldi velgefinna og merkra manna, sem hafa á ýms- um sviðum þjóðlífsins verið í frenastu röð og í æðstu virðing- arstöðum þjóðarinnar. Að Sveini stóðu því merkar ættir, sem hann erfði frá mikla mannikosti. Sveinn var fæddur á ísafirði, þar sem faðir hans var banda- stjóri, eins og áður segir. Þar ólsrt; hann upp í hópi 8 systkina t'il 13 ára aldurs, er fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur. Móðir Sveins dó, er hann leit dagsins Ijós fyrsta sinni og naut hann því aldrei móður sinnar. En önnur kona tók hennar sess á hinu barnmarga heimili og var það Margrét, systir Helga föður Sveins, sem fluttisit heim til ís- lands frá Ameriku til þess að annast heimili bróður síns og ganga börnum hans í móðurstað. Sveinn unni þessari föðursystur sinni sem móður, enda naut hann móðurlegrar umhyggju hennar í ríkuim mæli, meðan henni entist aldur. Heimilið á ísafirði mun ætíð hafa verið mjög fjölmennt, því húsráðand- inn hafði mikil umwif, meðal annars búskap og hafði því all- margt af vinnufólki í heimili. Sveinn átiti ljúfar og góðar end- t Þakka auðsýnda samúð við andlát og útför móður minnar Maríu Magnúsdóttur Galtarholti. Sigurður Marisson. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför Jónatans Clausen Guð blessi ykkur öll. Oddrún Sigurðardóttir, Vilhjálmur Magnússon og synir. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför sonar okkar og bróður. Sérstakar þakkir færum við öllum læknum og hjúkr- unarliði. Bergur Ólafsson, Svanhildur Sigurðardóttir, og böra. urminningar frá bernsku- og æskuárum sínum á ísafirði og bar hann mikla tryggð til æsku- stöð'vanna. Fyrir Sveini átti að liggja, er út í lífið kom, að helga verzlun- arstörfum krafta sírua. Að loknu gagnfræðaprófi hóf hann fljótt störf við heildverzlun og sem sölumaður vann hann fjölda- mörg ár við hina umsvifamiklu heildVerzlun Jóhanns Ólafsson- ar & Co. Jóhanm sá fljótt hvern mann hann hafði fengið í sína þjónustu og að SVeinn vann heilshugar að hag fyrirækis hans. Jóhann bar því til hans mikið traust og því trausti brást Sveinn heldur ekkL Var með þeim góð vináttu meðan báðir lifðu. Eftir að Sveinn stofnaði sina eigin heildverzlun, 1942, kom það fljótit í Ijós, að hann ávann hér einnig trauist við- skiptavina sinna, því það fór ekki fram hjá þeim hve heiðar- legur hann var í viðskiprtum. Starfið var Sveini ekki nægj- anlegt. Hann hafði mi'kla þörf og löngun til að leggja lið ýmsum hugðarefnum sínum. Hann fetaði í fótspor föður síns ungur að áruim og gekk í Góð- templararegluna. í henni var hann alla tíð og var því bind- indismaður ævilangt. Sveinn tók þátt í starfi Góðtemplararegl- unnar og hin siðari ár hefir hann án efa lagt þeim félagsskap mjög mikið lið og átti hann mik- inm þártt í byggingu hinnar nýju Bindindishallar. Auk þess vann hann reglunni gagn á öðrum sviðum, enda var hann gerður heiðursfélagi hennar í þakkar- skyni. Hamn var álkveðinn tals- maður bindindis, en í því sem öðru reyndi hann ekki að þröngva skoðunum sínum upp á neinn, en gat verið óþreytandi í þvi að ræða þetita málefni seim önnur, er voru hans áhugamál, af still- ingu og hógværð. í viðræðum lért hann þó ógjarnan hlut sinn fyr- ir þeim, sem hann taldi fara með ósanngirni eða rangt mál. En fáa menn hef ég þekkt, sem minni löngun höfðu en Sveinn til að eiga í illdeilum við aðra, og að troða illsakir við nokkurn mann var fjarri honuim. Sveinn tók þátt í mörgu öðru félagsstarfi urn dagana og hvergi þurfti hann að trana sér, til þess að bonum væri sýnt traust og trúnaður. Lyndiseinkunn hans, i réttsýni og sanngirni auk góðrar greindar urðu til þess að srtéttar- bræður hans og aðrir kusu hann til trúnaðarstarfa í sínum hópi. Hann var í mörg ár varamaður í srtjórn Verzluniarráðs íslands og sömuleiðis í fjölmörg ár í srtjórn Félags ísL stórkaupmanna og varaformaður þess í nókkur ár. Hann sart í sjó- og verzlunar- dómi um áraibil og varamaður var hann kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1962 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var það er hann lézt. í stjórn Varðar var hann um skeið og m.a. varafor- maður hans. Þessi upptalning nægir til að sýna, að Sveini var rtreyst af stéttarbræðrum sínum, flokks- bræðrum og öðrum, sem hann var í félagsskap með. Hann naut trausts samferðarmanna sinna, af því að hann var þess veTður. Hann var trausfcur maðuir í hví- vetna, ekki eitt í dag og annað á morgun. Hann var hrein- skiftinn og góður vinur vina sinna, en dulur og flíkaði lítt til- finningum sínum. Hann var sér- stakur skapstillingamaður, svo að hvodki meðlæti eða mórtlæti lét hann setja sig úr jafnvægi. Ráð sitt hugsaði hann jafnan vel og sjaldan lét hann vanhugsað álit uppi á meirihárttar málum. Hann var orðvar um menn og málefni og ekki að jafnaði dóm- harður. Ég, sem þessar línur rirta, kynn'tist Sveini fyrst fyrir um það bil 30 árurn. Framan af voru kynni okkar ekki náin, en atvikin höguðu því svo, að í fé- lagsstarfi innan Félags ísl. stór- kaupmanna og Verzlunarráðs fs- lands lágu leiðir okkar saman og vorum við mjög nánir sam- starfsmenn um langt áraibil í þessu<%i félögum. Réttsýni oé drenglundaðri mann en S^ein get ég ekki hugsað mér, að öðr- um ólöstuðum. Það var gofct að ráfffæra sig við hann og það var mi'kið öryggi í því í flélagisstarf- inu að vita hann á sama málL Það er hverri stétt sómi að því að eiga innan sinna vébanda mann á borð við Svein Helgason og mikill sfcyrkur. Það er þvi mikill mannskaði að Sveini, ekki aðeins fyrir stétt hans, heldur og fyrir þjóðina- alla. Sveinn var \;væntuT Gyðu Bergþórsdóttur, sem lifir mann sinn og áttu þau einn son, Árna Bergþór, sem nú hefir tekið við stjórn á fyrirtækí föður síns. Fyrir þau er missirhm þó að sjálfsögðu mestur, því að Sveinn var góður heimilisfaðir, sem vakti ætíð yfir velferð þeirra af mikilli umíhyggj'U og á heim- ilinu ríkti einhugur og sam- heldni fjölskyldunnar. í lang- varandi veikindum sínum upp- skar hann ríkulega laun fyrir alla umhyggjuna, í einstakri umönnun þeirra og fórnarlund við hann. Ég og fjölskylda mín vottum þeim og öðrum ærttingjum Sveins okkar innilegustu sam- úð við fráfall hans. Honum sjálfum færi ég að leiðarlokum kæra þökk fyrir fölskvalausa tryggð og vinártrtu við mig og fjölskyldu mína. Minningin um góðan dreng mun með vissu lifa í hugum okkar allra vina hans og annarra, sem einhver kynni höfðu af honum. Páll Þorgeirsson. KVEÐ.TA FRÁ ST. FREYJU. Árið 1927 stofnaði Helgi Sveins- son, fyrrv. bankastjóri, góð- teplarastúkuna Freyju hér 1 borg. Helgi var ,þá nýlega flutt- ur „suður“ frá ísafirði, þar sem hann um árabil var einn af höf- uðskörungum bindindisíhreyfing- arinnar á Vegturlandi. St Freyja varð brártt, undir stjórn Helga, ein af dugmestu stúkum höfuðborgariimar, og félagar hennar í hópi hinna starfsömustu innan reglunnar í Reykjavík. Sveinn, sonur Helga o,g yngst- ur af börnum hans, hafði jafnan fylgt föður sínum fast eftir í bindindigbaráfctu hans og var einn af stofnendum St. Freyju. Lét hann þar brátt að sér kveða og varð, er srtundir liðu, einn af beztu starfsmönnum stúkunnar, og eftir lát föður síns eiim af höfuðskörungum hennar. Djarfur og dugmikill stóð Sveinn ókvikull undir merkinu allt til aLdurtilastundar, en hann andaðist eftÍT alllanga og stranga sjúkdómslegu hinn 16. desemtoer sl. og verður jarðsung- inn í dag. Freyju-félagar þakka Sveini margþæitt áratuga störf fyrir stúkuna og bindindismlálið í heild. Þakka einurð hans og einlægni við sameiginlegan mál- stað. Mikill sjónarsviptir er við brottför hans úr hópmim. En endurminningin um góðan dreng, vináfctu og órofa tryggð varir og lýsir fram á við. Það lætur að líkum, að mað- ur með hæfileika Sveins og starfsorku hefur ekki komizt hjá því að takast á við fleiri félags- leg vandamál, en þau sem St. Freyja bauð upp á. Hann var kjörinn í _ fram'kvæmdanefnd Stórstúku íslands og i húsráð Templarahallar Reykjavíkur. Á báðum ,þessum stöðum var hann þegar í fremsfcu röð starfa og Framh. á bls. 31 öllum þeim sem veitt hafa okkur margvíslega og ómet- anlega aðstóð á erfiðu ári, þökkum við af alhug. Óskum ykkur gleðilegra jóla og biðjum guð að blessa ykkur á ókomnum árum. Guðbjörg Finnbogadóttir, Arni Hallgrímsson, Minni-Mástungu Gnúpver j ahreppi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.