Morgunblaðið - 29.12.1967, Síða 1
28 SIÐUR
f
i
AUan Gill og Wally Herbert mata á sig snjóstígvél i vöruhúsi í Lundúnum.
Einstæður heimskauta-
leiðangur hófst í gær
Fjórir menn fara 3.800 mílna
vegalengd yfir INLheimskaiutið
FJÓRIR menn á fjórum
hundasleðum lögðu í gær
af stað í lengstu og erfið-
ustu sleðaferð, sem sagan
greinir frá. Hyggjast þeir
ferðast yfir ísilagt N-
.Ishafið frá norðurströnd
Alaska til Svalbarða,
3.800 mílna vegalengd.
Forystu leiðangursins hafa
með höndum landkönnuð-
irnir Wally Herbert og
Allan Gill, en leiðangurs-
menn eru allir frá Bret-
landi. Herbert álítur, að
ferðin muni taka sextán
mánuði, og þeir félagar
verði komnir til Svalbarða
en að sumarlagi 1969.
Næsta haust verða þeir. ef
allt gengur að óskum,
staddir á Ishafinu miðju.
Þar munu þeir slá upp
tjaldbúðum og halda
kyrru fyrir í samfelldu
fimm mánaða svartnætti.
Á þessu tímabili búast
þeir við, að heimskauta-
straumurinn muni bera þá
yfir Norðurpólinn. Þegar
aftur byrjar að lýsa af
degi blasir við þeim eitt
vandasamasta verkefni
ferðarinnar, en það er að
Frambald á bls. 8
Hundruð hafa failið
í bardögum í Laos
ing margra landa, þeirra á með-
al Sovétríkjanna og annarra
komm'únistalanda, í tilraunum
sínum til að koma í veg fyrir að
að hersveitir komimúnista í Viet-
nam noti Kamibódíu fyrir griða-
stað. Orðsending sem Banda-
rikjastjórn sendi stjórn Kam-
Framhald ó bls. 27
Asíu-inflúenza
í Bretlandi
Lundúnum, 28. des. NTB
SKÆÐ Asíu-inflúensa hefur
komið upp á Bretlandi og
vakið ugg meðal heilbrigðis-
yfirvalda í landinu. Alþjóða
heilbrigðismálastofnunin hef-
ur þegar gert ráðstafanir til
að hefta útbreiðslu veikinn-
ar. Sjúkrahús í Bretlandi
hafa tilkynnt, að tala inflú-
enzusjúklinga sé nú helmingi
hærri en venjulegt er á þess-
um árstíma.
Járnbrautaryfirvöld í Bret-
landi hafa neyðzt til að stöðva
nokkrar farþegalestir vegna for
falla starfsfólks af völdum inflú-
ensunnar. Þá hefur flugfélaigið
BEA upplýst, að það eigi í erfið
leikum vegna þess, að tugir
flugfreyja hatfa sýkzt.
Heilbrigðismálaráðuneytið í
Dundúmum tilkynnti í dag, að
Alþjóða heiibrigðismálastofnun-
in (WHO) hefði hafið athugamir
á útJbreiðslu veikinnar í NV-
Englandi, í Lirverpool og ná-
grenni. Talsmaður ráðuneyfiisiims
staðfesti í viðtölum við frétta-
menn, að inflúenzan stafi af
sama víruis og olii Asíu-inflúenzu
farsóttinnd árin 1957 og 1962.
Veifkin herjar í Bretlandi eftir
sa.ms konar veiki í Bandaríkjun-
um og Danmörku fyrr á þeissu
ári.
Sjúkrahússyfirvöld á Bret-
landlseyjum hafa griipið til eér-
stakra ráðstafana vegna inflú-
enzunnar. Hafa þau fyrirskipað,
að uppskurðum, sem ekki bráð-
liggi á, skuli fre6tað til að geta
útvegað inflúenzusjúklingum
legupláss.
í Skotlandi hefur orðið að loka
fæðingardeild eins sjúkrahúss-
Framhaiid á bls.. 27
~ *
Frokkai óttast
nærveru Rússa
a Mið jarðarhaii
París, 28. desember. NTB.
FLOTAR FRAKKA og banda-
manna þeirra standa andspænis
nýrri hættu — eldflaugaskipum
þeim, sem Rússar hafa sent til
Arabalandanna, segir í grein í
timariti franska heraflans í dag.
Pierre Lauru skipherra segir í
greininni, að Rússar hafi sent
tæplega 40 eldflaugaskip af gerð-
unum Komar og Osa til Araba-
landanna. Á þessum skipum séu
alls 100 skotpaliar og þessi skip
séu á svæði þar sem Frakkar
'kunni að neyðast að grípa til
íhlutunar.
Lauru skipherra segir, að ár-
ásin á ísraelska orrustuskipið
„Eilath“ í október hafi markað
tímamót í sögu sjóhernaðar. „Eil-
ath“ var sökkt með sovézkum
eldflaugum frá öðrum herskip-
um. í svipinn getur ekkert
franskt herskip sökkt eldflauga-
skipi án aðstoðar flugvéla, segir
skipherrann.
Flutningaverkamenn
hóta verklalli
New York, 28. dets. — AP —
FL UTNING A VERK AMENN í
New York samþykktu með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða
á fundi í dag, að gera verkfall
frá og með kl. 10 á nýársdag,
ef samningar hafa ekki tekizt
fyrir þann tíma.
Starfsfélag flutningaverka-
manna í stórborginini telur
36.000 manns. Gerir félagið
kröfur um hæxra kaup og er
þó einkanlega deilt um eftir-
laun flutningaverkamannanna.
Fyrir tveimur árum gerði
þetta starfsfélag verkfall í New
York, hið kostnaðasamasta sinn-
ar tegundar í sögu borgarimnar.
Nam tjón af völdum þess um
1000 milljónum diollara, og kom
einkanlega niður á fyrirtækjum,
Til þe®s að sama sagan endur-
taki sig ekki nú hafa öll meiri-
háttar fyrirtæki borgarinnar
leigt sér vagna til að flytja starfs
fólk og vörur. Þá hafa 4000
manns þegar pantað hótelher-
bergi í borginni. Bankar í New
York ráðgera ennfremur að
setja upp svefnstöðvar fyrir
starfsfólkið í húsakynnum sín-
um.
Tónskáldið Theodorakis
verður áfram í fangelsi
Sakaruppgjöfin i Grikklandi takmörkuð
Hanoi, 28. desember. NTB-AP.
• Hersveitir Pathet Lao-hreyf-
ingarinnar í Laos, seim fylgir
kommúnistum að málum, hafa
fellt 1.219 óvinahermenn í bar-
dögum í Norður-Laos, JVIið-Laosi
og Suður-Laos síðan í nóvemher-
byrjun, að því er segir í fréttum
s»em birtar voru í gær í Hanoi,
höfuðborg Norður-Vietnam.
í fr'éttunum segir að þrír að-
setursbæir stj'órnarfulltrúa, Ou
Tay og Ou Neua í Fhong Saly-
héraði og Toun Lan í Savannak-
hetJhéraði, hafi verið teknir her-
skildi.
Pathet Lao-hersveitir komm-
únista hafa aftur náð á sitt vald
hernaðarlea mikilvgægu þorpi,
Muong Phalane í Mið-Laos, að
-því er áreiðanlegar heimildir í
Laos herma. Aðrar heimildir
hermra, að rúmilega 100 stjómar-
hermenn hafi verið teknir til
fanga, en talsmenn Laoshers
hafa ekki staðfest þessa tölu.
Opinberar heimildir bera
einnig til baka fréttir um að
Pathet Lao hafi hertekið Nam
Bak fyrir norðan Luang Pra-
bang, aðsetursborg stjórnarinn-
ar. Heimildir í Vientiane herma
að tilgangur þessarar nýju sókn-
ar Pathet Lao sé að ræna hxís-
grjónum og safna nýliðum í
sveitir skæruliða. Að sögn AP er
því neitað að kommúnistar hafi
gert stórfellda innrás í Laos þótt
játað sé að Patihet Lao og Norð-
ur-Vietnammenn hafi sjaldan
verið eins umisvifamiklir. Þessar
heimildir segja því að annað og
meira vaki fyrir kommú'nistum
en að ræna hrísgr'jónum.
• í Washingtion sagði talsm.aðúr
handaríska utanrikisráðuneytis-
ins í dag að BandaríJkjaistjóxn
reyndi nú að tryggja sér stiuðn-
Aþenu, 28. des. — NTB-AP.
GRÍSKA tónskáldið Mikis Theo-
dorakis verður ekki látinn Iaus
úr fangelsi og allt bendir til
þess að sakaruppgjöfin, sem
gríska stjórnin boðaði um jólin
nái til fæstra þeirra 2.500 fanga,
sem hafðir eru í haldi á eyjun-
um Jaros og Leros. Theodorakis
er einn hinna fyrstu sem verða
fyrir barðinu á nýjum lögum er
birt voru í dag og takmarka
fjöida þeirra fanga sem látnir
verða lausir.
Samkvæmt nýju lögunum nær
sakaruppgjöfin ekki til manna
sem ógna öryggi ríkisins, eða
dæmdir hafa verið í sex mán-
aða fangelsi eða lengur. Þeir
sem látnir verða lausir fá 5 ára
reynslutíma. Talið er, að yfir-
völdin muni halda sig í hví-
vetna við hin nýju lög svo að
tiltölulega fáir fangar verði
látnir lausir. Til þessa hefur
milli 75 og 100 mönnum verið
sleppt úr fangelsi.
Eiginkonu Theodorakis var
skýrt frá því opinberlega í dag,
að maður hennar yrði áfram
hafður í haldi, þar eð hann
hefði fjórum sinnum áður verið
dæmdur fyrir pólitíska glæpi,
alls í 29 mánaða fangelsi. Theo-
dorakis var handtekinn í ágúst
Framhald á bls. 3