Morgunblaðið - 29.12.1967, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DES. 19CT
27
Frá fundi skipaskoðunarstjóra með skipstjorum í gær. (Ljósm. Mbl. Ol. K. M.)
Stöðugleiki og hleðsla fiskiskipa
— fundarefni á umræðufundi skipa-
skoðunarstjóra og skipstjóra á
fiskiskipum
Xfátáðarguðsþjónusta
í Skálholtskirkju
Skálholti, 28. desember.
HÉR hefur verið indælis jóla-
veður, lítils háttar frost og snjó-
föl. Á jóladag var hátíðarguðs-
þj'ónusta í Skál'holtskirkju.
Sóknarpresturinn, séra Guð-
mund'ur Óli Ólafsson predikaði,
Árni Sigurjónsson lék á orgelið
og SkáDholtskórinn söng. Til
marks um það, hve rnikill fjöldi
sótti guðsþjónustuna er, að
hvert sæti var skipað, en kirkj-
an tekur um 300 manns í sæti.
Fyrir framan kirkjuna stend-
ur ljósum prýtt jólatré, sem
hjónin Áslaug óláfsdóttir og
Stefán Árnason Syðri-Reykjuim
gáfu- Þá var kirkjan flóðlýst og
gaf það þessu stílhreina og fagra
musteri mikinn jólasvip.
Á þriðja dag jóla gekkst kven-
félagið fyrir barnaskemmtun í
Aratungu og var iþar mikill
fjöldi samankominn — sennilega
á þriðja hundrað börn og ungl-
ingar. — Þessi samkoma fór
mjög vel fram og var kvenfélag-
inu til mikils sóma. — Björn.
Egyptar fúsir að sleppa
15 innilokuðum skipum
F U N D U R skipaskoðunarstjóra
með starfandi síidveiðiskipstjór-
um hófst í hátíðasal Sjómanna-
skólans klukkan 9 í gærmorgun.
Sjávarútvegsmálaráðherra, Egg-
ert Þorsteinsson setti fundinn, en
siðan flutti Hjálmar R. Bárðar-
son skipaskoðunarstjóri erindi
um stöðugleika og hleðslu fiski-
skipa og Ólafur H. Jónsson, starfs
maður skipaskoðunar ríkisins
flutti erindi um útreikninga á
hleðslumerkjum flutningaskipa
samkvæmt alþjóðasamþykkt. Á
eftir urðu svo almennar umræð-
ur. Fundarstjóri var Jónas Sig-
urðsson, skólastjióri Sjómanna-
skólans og varafundarstjóri Þor-
steinn Gíslason skipstjóri og
kennari við Sjómannaskólann.
Fundinn sátu 63 skipstjórar. Að
loknum fundi hafði sjávarútvegs
málaráðherra boð inni í ráðherra
bústaðnum fyrir fundarmenn.
Mbl. hafði í gærkvöldi sam-
band við Hjálmar R. Bárðar-
son skipaskoðunarstjóra og
spurði hann um árangurinn af
fundi þessum.
Hjálmar kvaðst mjög ánægð-
ur með fundinn, en þetta er í
fyrsta sinn sem skipaskoðunar-
stjóri býður skipstjórum til
slíks fundar. Sagði Hjálmar, að
mikilsvert hefði verið að fá
— Gin og klaufaveiki
Framhald aif bls. 28
Sovétlýðveldum, sem lægju að
Rúmeníu, Tékkóslóvakíu og Pól-
landi. Sýkilsafbrigðið sem ylli
henni gæti orðið mun skæðari
evrópskum búpeningi en sá sem
ylli faraldrinum í Bretlandi.
Dr. G.M. Boldrini, hinn ítalski
fulltrúi Matvæladeildarinnar að
Eftirlitsnefndinni með gin- og
klaufaveiki, sagði að faraldurinn
í Rússlandi ógnaði allri Austur-
Evrópu og löndum sem að henni
lægju. Dr. Boldrini var þá ný-
kominn frá Rúmeníu, og hann
kvaðst sannfærður um að varúð-
arráðstafanir þær sem gerðar
höfðu verið nægðu til að hindra
frekari útbreiðslu veikinnar.
Nokkrar Evrópuþjóðir hafa lagt
fram rúmlega fjórar milljónir
dollara til þess að koma upp
nokkurskonar varnarlínu milli
hinna sýktu héraða og nágranna-
'landanna. Varnalína þessi er
byggð upp á þann hátt, að öll
dýr sex til 18 mílna svæði við
landamærin eru bólusett.
Dr. K.V.L. Kesteven, stjórn-
andi „dýradeildar" Matvæla-
stofnunarinnar sagði í viðtali, að
talið væri að sýkillinn sem herj
aði á rússneskan búpening hefði
borizt frá íran, fyrir um ári síð-
an, þótit raunhæfar sannanir
fyrir því væru ekki fyrir hendi.
Matvælastofnunin hefur aðstoð-
áð Rússa við að finna upp bólu
éfni gégn sji'ikdóminum, og dr.
Késteven segir, að faraldurinn
þarna fram sjónarmið þessara
reyndu manna og að fundurinn
hefði aukið mjög gagnkvæman
skilning allra á fundarefninu.
Með reynslu þessa fundar til
hliðsjónar, sagði Hjálmar, að vel
gæti svo farið, að hann boðaði
aftur til slíks fundar með skip-
stjórum fiskiskipa.
í erindi sínu ræddi skipaskoð-
unarstjóri um alþjóðasiglinga-
málastofnuna IMCO og sagði frá
starfi hennar. Hann gat þess, að
nú í haust hefði stofnunin sent
frá sér ályktun um það, hversu
mikill stöðugleiki væri hæfileg-
ur fyrir fiskiskip. Þá ræddi hann
m.a. um áhrif mismunandi
hleðslu á stöðugleika skipa og
benti á ýmsa möguleika í sam-
bandi við hleðslu þeirra.
Ólafur H. Jónsson útskýrði í
erindi sínu útreikninga í sam-
bandi við hleðslumerki flutninga
skipa samkvæmt alþjóðasam-
þykkt. Sú samþykkt nær ekki
til fiskiskipa, en þar eru þó
mörg atriði, sem um er að ræða.
Að erindunum loknum báru
menn fram fyrirspurnir og er
þeim hafði verið svarað var
fundi frestað um klukkan 12.30.
Fundurinn hófst aftur klukk-
an 13.30 og fór skipaskoðunar-
í Rússlandi þurfi ekki að hafa
alvarlegar afleiðingar í för með
sér, fyrir önnur lönd, þar sem
Evrópa sé nú betur undir það
búin en nokkru sinni, að fást
við slík vandamál. Hættan á
frekari útbreiðslu sé að vísu
fyrir hendi, en hún sé ekki mik
il meðan nágránnalönid gæti
þess að bólusetja og viðhafa
aðrar varúðarráðstafanir.
Morgunblaðið sneri sér til
Páls A. Pálssonar, yfirdýra-
læknis, og spurði hvort þetta
mál kæmi til m<eð að snerta ís-
lendiinga að einhverju leyti, þar
sem við kaupum nokkuð af land
búnaðarafurðum frá Rússlandi.
„Ég held ekki að þetta komi
til með að hafa áhritf hér á landi.
Samkvæmt þeim fréttum sem
ég hef fengið virðist veikin vera
daðbundin í suðurhluta Rúss-
lands, og enn sem komið er er
ekki ástæða til að grípa til
neinna varrúðarráðstafana. Það
sem máli skiptir er, að þarna
er á ferðinni afbrigði sýkils, sem
verið hefur óþekktur í Evrópu,
nema kannski aðeins í Tyrk-
landi. Vegna þessa er hann
hættulegur búfjárstofni í Vest-
ur-Evrópu. En eftir því litla sem
maður veit um þessi mál í Rúss
landj virðast þeir hafa nokkuð
góða stjórn í svona tilfellum
svo að við ættum ekki að þurfa
óttast. Hins vegar fy'lgjumst við
mjög náið með öllu sem gerist
í sambandi við þetta, og getum
gripið tafarlaust til varúðarráð-
stafana ef tilefni gefst til.“
stjóri þá lauslega yfir erindi sitt
frá því um morguninn og sýndi
skýringarmyndir. Síðan ræddi
hann ýmsar almennar spurning-
ar varðandi hleðslu og stöðug-
leika fiskiskipa.
■Þá var haldið niður í matsal
Sjómannaskólans og skiptust
fundargestir þar í umræðuhópa
og ræddu þeir ýmis atriði, sem
fram komu á fund.inum. Að uim-
ræðum loknum var aftur haidið
upp í hátíðarsalinn og gerðu for-
svarsmenn umræðulhópanna þar
grein fyrir áliti hvers hóps um
sig. Spunnust þá nokkrar frekari
umræður um ýmis mál varðandi
hleðslu og stöðugleika fiski-
skipa.
Fundinum lauk svo klukkan
17.30 og bauð sjávarútvegsmála-
ráðherra þá fundargestum til
hófs í ráðherrabústaðnum.
- LAOS
Framhald af bls. 1
bód'íu fyrr í mánuðinum með
sönnunum um starfsemi her-
sveita kommúnista í Kamibódiu
hefur verið send mörgum öðrum
ríkisstjórnum.
Þjóðlhöfðinginn í Kambódiu,
Silhanouk fursti, sagði í dag að
hersveitir Kambódíumanna
mundu ekki reyna að hefta för
bandarískra hermanna ef þeir
færu inn í landið til þess að
veita norður-vietnömiskum her-
mönnum eftirför. Hann bætti
því við, að þetta ætti aðeins við
ef um væri að ræða skæruliða
sem sæktu ólöglega inn í Kam-
bód'íu og dveldust á svæðum sem
erfitt væri að hafa eftirlit með.
Hljómplata
Framhald af bls. 14.
ar Danmerkur við fsrael.
Einn af kunnustu starfs-
mönnum „Berlingske Tid-
ende“, Mogens Kofod-Hansen,
sem var í Israel meðan á
styrjöldinni stóð, hælir mjög
þessari plötu Vangkilde og
segir hana gefa glögga og
sanna mynd af „stemning-
unni“ í Jerúsalem þessa daga.
Að vísu geti slík plata aldrei
orðið annað en mynd, en Vang
klide hafi tekizt að draga þar
fram aðalatriðin. Sérstaklega
gefi hún góða hugmynd um
hugrakka afstöðu ísraels-
manna, sem stóðu andspænis
þeim möguleika að verða
þurrkaðir út, og svo hve mjög
þeim létti, er úrslit stríðsins
voru kunn.
Kofod-Hansen hælir Vang-
kilde ennfremur fyrir að
reyna ekki að leyna því. að
hann var sjálfur hræddur, —
rödd hans sé stundum titr-
andi og skjálfandi á plötunni,
í byrjun bardaganna. „Það er
enginn hetjuskapur að hræð-
ast ekki“, segir Kofod-Han-
sen —“ Allar hugsandi mann-
eskjur eru hræddar við stríð.
Hugrekkið lýsir sér í því að
hafast að, vinna verk sitt.
þrátt fyrir hræðsluna".
Kaíró, 28. desember. NTB.
MAHMOUD Raid, utanríkisráð-
herra Egypta, sagði í dag, að
tækninefnd hefði tekið til athug-
unar möguleika á því að heimila
15 skipum, sem lokuðust inni í
Súezskurði í styrjöld Araba og
ísraelsmanna í júní að sigla á
brott. Raid sagði þetta í viðtali
við blaðamenn að loknum fundi
með sérlegum sendimanni Sam-
einuðu þjóðanna, Gunnari Jarr-
ing.
Sýrlendingar tilkynntu í kvöld,
að þeir mundu ekki taka á móti
Jarring, sem hefur ákveðið að
lengja dvöl sína í Kaíró og dvelj-
ast þar til laugardags. Jarring
heldur að minnsta kosti enn einn
fund með Raid, en ekki er vitað
hvort hann hittir Nasser forseta
að máli.
Kaíró-blaðið Ala Ahram, sem
er hálfopinbert, hermdi í dag. að
stjórnin mundi innan tíðar til-
kynna Jarring að hún hefði á-
kveðið að sleppa skipunum sem
eru innilokuð í Súezskurði Blað-
ið hélt því fram, að ýmis tækni-
leg vandkvæði væru á því að
sleppa skipunum. en þau væru
ekki óleysanleg. Egyptar segja,
að tryggja verði öryggi tækni-
fræðinga og benda á að ekki
verði hægt að opna skurðinn aft
ur fyrir alþjóðlegum siglingum
- INFLÚENZA
Framhald af bls. 1
ins sökum þess, að fjölmargar
hjúkrunarkvennanna voru með
Asíu-inflúenzu. í Lundúnum
segja læknar, að stanflsálagið sé
fimm sinnum meira en eðlilegt
sé.
Heilbrigðisyfirvöldin hafa lagt
áherzlu á, að sjúkdómstí.lfelli
séu enn ekki það tið, að tala
megi um inflúenzufarsótlt. Eru
flastir þeirra, sem lagðir hafa
verið á sjúkrahús fólk á efri
árum. Þá segja heilbrigðisyfir-
völd, að mótstaða fólks gegn
sjukdómum sé mikil vegna fyrri
farsótta af sama tagi, og flest
sjúkdómstilfeliin séu svo væg,
að þau megi iækna með aspir-
íni og fáeinum dögum í rúm-
inu.
— Brezkir togarar
Framhald af bls. 28
Mbl. í gær, að hann vissi til þess
að Bretar hefðu verið að þreifa
fyrir sér á Afríkumiðum. Þeir
hafa að undanförnu veitt lýsing
djúpt út af írlandi, en magnið er
takmarkað.
Ekki bjóst Loftur við, að veið-
ar Breta á Afríkumiðum myndu
létta neitt ásókn þeirra á íslands-
mið, þar sem til lýsingsveiðanna
þyrfti að nota stóra togara, eins
og þá, sem nú stunda veiðar við
Grænland og Nýfundnaland.
Samkvæmt upplýsigum Jóns
Jónssonar fiskifræðings er lýs-
ingurinn þorskfiskategund, sem
verður venjulega um 1 m. að
lengd. Hann er líkur ufsa í út-
liti og sæmilegur til átu — ekki
ósvipaður karfa á bragðið.
Jón sagði, að Þjóðverjar hefðu
fýrir nokkru fundið góð lýsings-
mið við Argentínustrendur og
veiddu nú mikið á þeim slóðum.
fyrr en ísraelsmenn dragi til
baka herlið sitt frá austurbakk-
anum og Sinaiskaga.
Utanríkisráðherra Júgóslavíu,
Marko Nikezic dváldist einnig í
Kaíró í dag. Hann sagði fyrir
brottför sína þaðan, að Egyptar
reyndu eftir beztu getu að leysa
vandamálin, sem væru samfara
þeirri ákvörðun að sleppa skip-
unum á Súezskurði. Áþreifanleg-
ar heimildir í Jerúsalem herma,
að ísraelsmenn hafi í aðalatrið-
um fallizt á að skipunum verði
sigl't burtu úr skurðinum, en Jarr
ing ræddi við ísraelska ráða-
menn í Jerúsalem áður en hann
fór til Kaíró.
— Ardsarmaðurinn
Framhald af bls. 28
vang og fór ég í honum í
Slysavarðstofuna og var þar
gert að sárinu á höfðd mér.
— Skurðurinn var 8 cm
langur og var opinn að beini.
Var hann saumiaður saman
rrneð 8 stórum saumsporum.
— Ég hef það sæmilegt nú,
en er þó slæm aftan í hnakk-
anum. Ég er mjög fegin að
búið er að finna árásarmiann-
inn, því að þá hugsar maður
ekki eins mikið um þetta.
Árásarmaðurinn er okkur al-
gjörlega ókunnur, við vitum
engin deili á þessum pilti.
Árásarmaðurinn er nú fund
inn og reyndist hann vera 16
ára piltur úr Kópavogii — en
hann varð 16 ára í gær. Við
yfirheyrslu játaði hann að
hafa brotizt inn í húsið og bar-
ið konuna tvisvar í höfuðið
með spýtu, en flúið síðan.
Hanr. segist hafa verið í pen-
ingaleit, þegar hann framdi
ódæðið-
Pilturinn kveðst hafa farið
í Austurbæjarbíó um kvöldið,
en gengið niður í miðbæ að
lokinni sýningu. Eftir nokk-
urt rölt um miðbæinn hélt
hann heim á leið, en þegar
hann kom í Blönduhlíð,
nennti hann ekki að ganga
lengra. Ætlaði hann þá að
taka leigubíl, en átti enga
peninga, og ákvað hann þá að
brjótast inn og útvega sér þá.
Var hann búinn að atlhuga
tvö hús, sem honum þóttu
ekki árennileg, þegar hann
kom að húsinu, sem hann að
lokum brauzt inn í.
Gegn um rifu í gluggatjöld-
um sá hann hvar kona svaf í
rúmi sínu með ungbarns-
vöggu hjá. Fór hann þá á
stofugluggann, sem var
kræktur aftur, og tókst hon-
um að opna hann. Greip hann
spýtu með sér, ef vera kynni
að hann rækist á einhvern á
ferli þar inni, og skreið inn
um gluggann.
Þegar hann kom inn í
svefnherbergið sýndist hon-
um konan bæra á sér og barði
hann hana þá tvö högg í höf-
uðið með spýtunni, en fannst
sem konan risi upp við seinna
höggið, og flýði þá út úr hús-
inu. Spýtunni henti hann frá
sér í ganginum.