Morgunblaðið - 04.01.1968, Page 3

Morgunblaðið - 04.01.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1968 3 Páll Páfi heimsótti barnasjúkrahús í Róm á nýárstlag. Flogið tU Akur- eyror í gær UNDANFARIÐ hafa flugsam- göng-ur verið erfiðar vegna veð- urs. í gær var þó flogið fyrri hluta dags til ísafjarðar, Sauð- árkróks, Egilsstaða og Horna- fjarðar. Á Akureyri biðu á hinn bóginn á fjórða hundrað manns eftir fari til Reykjavíkur, og tals vert stór hópur beið eftir því að komast héðan norður. Flugfélagið áformaði í gær- kveldi að reyna að fara fimm ferðir: kl. 16.00. kl. 17, kl. 17.30, kl. 20 og kl. 20.30, Áttu þrjár afkastami'klar vélar að vera í þessu flugi Friendshipvélin, Clo- uidimastervðlin. og Vicoun.tvélin. Gerðu Flugfélagsmenn sér von- ir um, að takast myndi að flytja alla þá er biðu fars, héldist sæmi legt fl'ugveður. -----■»■ ♦<--- Lýst eítir vitnum FLUGELDI var skotið inn í íbúð ina á annari hæð í húsinu að Ásvallagötu 5)1. Fór flugeldur- inn í gegnum rúðu og olli tals- verðum skemmdum í íbúðinni. Vill rannsóknarlögreglan biðja þá, sem kunna að hafa orðið var ir við hverjir þarna voru að verki, að gefa sig fram hið fyrsta. Konstantín telur sig hafa gert gagn — Segist hafa haft nœgan stuðning New York. 3. janúar. NTB KONSTANTÍN Grikkjakonungur telur, að byltingartilraun sín gegn grísku herforingjastjórn- inni í síðasta mánuði hafi ekki algerlega verið unnin fyrir gíg. Hann heldur því fram í grein, sem hann ritar í síðasta tölublað bandaríska tímaritsins „Life“, að margar þær ráð.stafanir, sem gríska herforingjastjórnin hafi gert að undanförnu, meðal ann- ars loforðið um þjóðaratkvæða- greiðslu og jólanáðanirnar. eigi rætur að rekja til gagnbylting- artilraunarinnar. „Ég reyndi að berjast og ég beið ósigur. Ég barðist því ég trúði því, að þannig mætti end- urreisa lýðræði í landi mínu með skjótari og árangursríkari hætíi en ella“, sagði Konstantín. Konungurinn sagði, að byhing artilraunin hefði mistekizt, þar sem hermenn hliðhollir honum hefðu ekki getað náð undir sig mikilvægum stöðum í hernum og þar sem nokkrar herdeildir, sem hefðu heitið honum stuðn- ingi. hefðu brugðizt á síðustu stundu. „Áður en ég flúði til Rómar 14. desember hafði ég nægan stuðnin.g til að berjast gegn her foringjaklíkunni. Þetta var hins vegar ekki tilgangur minn. Ég vildi endurreisa land mitt, ekki Fyrsta togarasala FYRSTA togarasalan á árinu 1968 fór fram í fyrradag þegar Svalbakur seldi í Grimsby, rúm- ar 149 lcstir fyrir 9638 sterlings- pund. teggja það í rúst“, sagði konung ur. Konungur segist aldrei hafa verið jafnsannfærður um það og nú ,að hann njóti stuðnings og vinsældta meðal gervallrar þjóð arinnar. Ingiríður í Róm Ingiríður Danadrottning hélt í dag til Rómar í þriggja daga heimsókn til dóttur sinnar, Önnu Maríu Grikkjadrottningar. Kjöt hækkar um 3,3% Mjólk hækkar ekki NÚ um áramótin var tilkynnt um nýtt verð á landbúnaðaraf- urðum, sem til er komið fyrir hækkun verðlagsgrundvallar. Hækkunin er tæp 3%, en þar sem ull og gærur taka ekkert til sín, verður hækkun á kjöti og mjólkurvörum nokkru hærri í staðinn, eða að jafnaði 3%. Mjólk hækkar ekki, en rjómi og aðrar mjólkurvörur hækkar um rúm 3%. Kjöt hefir hækað um sem næst 3,3% og er smásöluverð á dilka- kjöti sem hér segir: I. verðflokk- ur : Súpukjöt, fra.mpartar og síður 82.70 Do læri, hryggir og frampartar 91,30 Læri heill og ni&ursög'uð 94,95 Hryggir 97,65 Kótelettur 108,90 Lærisneiðair 122,00 Heilir skrokkar (ósunduirteknir) 74,35 Do sundurteknir eftir ósk neytenda) .... 76,15 Márus frá Valshamri var jólagestur á Galtarvita LEIÐRETTING í MINNINGARGREIN í blaðinu í gær um Þórarin, Björnsson skipherra, eftir Garðar Pólsson féll niður þeasi málsgrein: „Með prúðmennsku og frú- bæru skaplyndi ávann Þórarinn sér traust og hylli samstarfs- manna sinna, sem minnast hans með söknuði." VIÐ ræddum við Óskar Aðal- stein vitavörð í gær og innt- um frétta. Jólin voru mjög ánægjuleg hér á Galtarvita og við feng- um allar nauðsynjar til jóla- halds með skilum. Hér er ann ars frekar erfitt með aðdrætti yfirleitt, en við höfum alltaf verið heppin um jólin. Jóla- bækurnar dreif að í hrönnum Oig blöðin fengum við einnig. Aðalskemmtun fólksins hér er bókalestur og m.a. höfum við þann sið að velja eina bók til lestrar upphátt yfir jólin fyrir heimilisfólkið. Að þessu sinni völdum við bók- ina Márus frá Valshamri eftir Hagalín og var Márus hér góð ur gestur og mjög ánægjuleg- ur, en lesið hefur verið úr bókinni vissan tíma á hverju kvöldi og er lestrinum nýlok- ið. — í fárviðrinu sem ge'kk hér yfir í haust svipti stormur- inn upp timburhjalli, sem var elz'ta húsið hér. Fór hjailur- inn beint i loft upp og sveif u.þ.b. 20 metra á milli ná- lægra húsa án þess að skemma nokkuð. Húsið lemti síðan í sniós'kafli á hvo'lfi og er nú ónýtt. en það var um Óskar Aðalsteins 4x5 m. hliðar og um 6 m. hátt. Slys henti hér 27. des. sl. um kl. 2, en þá var kona mín að líta eftir mælum o.fl. í sambandi við veðurskeyti og það var mjög mikil hálka, sem olli því að hún datt og fót- brotmaði mjög illa á vinstri fæti. Varðskipsmemn komu til hjálpar og tókst þeim að kom ast á land í gúmmbát þrátt fyrir sollinn sæ og stinnings- kalda og þeim tókst fyrir harð fylgi að koma konunni um borð í varðs'kipið og var far- ið með hana til ísafjarðar í sjúkrahús og líður henni nú vel eftir atvikum. — Um áramótin var kynt bál hér og skotið upp flug- e’ldum og áttum við friðsæl og góð áramót. Við erum hér hjónin og þrír uppkomnir synir okkar, og það er ákaf- lega ánægjulegt að vinna hérna o.g það þarf auðvitað alltaf að sinna veðurathugun- um, en þess á milli vinm ég að ritstörfum. — Þessi vetur hefur verið einn sá kaldastj síðan við kom um hingað l'9-53 en frostið nú síðustu daga hefur hlaup ið á 15-—18 gráðum, en hús- in hér eru ágæt og t.d. vitinn nýr og það þarf mikið að gamga á til þess að óþægilegt sé að búa í ibúðarhúsinu. STAKSTEIIVAR ..MannÍYrirlitning“? FRAMSÓKNARMENN eru betur búnir ýmsum öðrum eiginleik- um ten kímnigáfu. í gær birti málgagn þeirra forustugrein, þar sem það er talin „mannfyrir- litning“ þegar forsætisráðherra í áramótagrein sinni í Mbl. líkti Alþýðubandalaginu við óæðri lífverur, sem skríða saman aftur, þótt búið sié að sundurlima þær. Vissulega er þestsi samlíking hárrétt. Á síðustu árum og alveg sérstaklega síðan 1963 hafa sviptingar innan Alþýðubanda- lagsinsi tekið á sig hinar furðu- legustu Imyndir. Hvað eftir ann- að hefur klofningur þessara siam taka orðið algjör og opinber, en jafnan hafa samstarfsaðilarnir skriðið saman aftur. Jafnvel framboð formanns Alþýðu- bandalagsinsi í Reykjavík sl. vor gegn framboðslista síns eigin flokks megnaði ekki að sundra endanlega þestsum kosningasam- tökum. Nú er það hald margra eftir útgöngu Hannibals og Björns af miðstjórnarfundinum í byrjun desember, að komið sé að endanlegum samstarfsslitum. Enginn slkyldi þó ganga út frá því sem vísiu fyrr en orðið er. Alþýðubandalagið, hefur ýmsa sérsjtæða eiginleika til að bera, einmitt þá eiginleika, sem gera það að verkum, að ,sumar óæðri lífverur skríða aftur saman, þó búið sé að sundurlima þær“. En kímnigáfa Framsókn,armanna er takmörkuð. Þeir telja þese lýs- ingu á hinum aérsitæðu eiginleik- um Alþýðubandalagsins „mann- fyrirlitningu" og að hún beinist alveg sérstaklega gegn Birni Jónssyni og Hannibal Valdimars- syni! Það er skoðun margra, að Alþýðubandalagið og raunar svipuð stjórnmálasamtök ann- ars staðar séu kjörið verkefni fyrir sálfræðinga. Það er kannski ekki fjarri sanni, að þeir hefðu einnig einihverju hlutverki að gegna innan Framsóknarflokks- ins. Flokkur, sem er alinn upp við völd, en missir þau slkyndi- lega og nær þeim ekki aftur get- ur fóstrað í brjósti sér ýmsa „komplexa". Að standa við loíoið sín Annars er það eftirlætiskenn- ing Framsóknarmanna um þesfiar mundir, að stjórnarflokkarnir hafi haldið meirihluta sínum á Alþingi með blekkingum og virðisí þesiíii kenning vera eina huggun Eysteins Jónssionar og hinna minni spámanna hans, vegna þess andsreymis; sem þeir hafa orðið að sæta á vett- vangi sitjórnmálanna um langt skeið. Þessi kenning var grund- vallaratriði í áramótagrein Ey- steina og hún blómstrar í for- ustugrein Tímans í gær. En sannleikurinn er sá, að Fram- sóknarmenn geta engin rök fært fram fyrir þeirri fullyrðingu sinni, að stjórnarflokkamir hafi blekkt kjósendur fyrir kosming- arnar. Kjósendum var gerð ná- kvæm grein fyrir því amnars vegar, að verðstöðvunin og aðr- ar aðgerðir í sambandi við hana mundu væntanlega nægja, ef verðfallið héldi ekki áfram, en það var jafnframt slkilmerkilega fram tekið og hægt að vitna í margar ræður forsætisráðherra því til situðnings, að ef verðfall- ið héldi áfram og önnur óáran, svo sieim aflatregða, mundi rót- tækari aðgerða þörf. Ríkisstjórn- in hélt fast við það að leysa efnahagsvandamálin án gengis- breytingar og miðaði tillögur sínar við það, en gengislækkun sterlingsrpundsins si&tti að sjálf- sögðu strik í reikninginn og gjörbreytti öllum viðhorfum. Gátu Framsóknarmenn séð þann atbuið fyrir? Er hægt að saka stjórnarflokkana fyrir það, að hafa ekki séð hann fyrir í vor. Enginn sanngjarn maður mundi i halda því fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.