Morgunblaðið - 04.01.1968, Page 5

Morgunblaðið - 04.01.1968, Page 5
MORGUNELAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR lfles 5 íslendingafélagiö í Osló kemur sér upp félags- og gistiheimili Rabbað við Bjarne Eidskrem CM hátíðamar ðvaldist hér Norðmaðurinn Bjarne Eid- skrem ásamt íslenzkri konu sinni. Héldu þau hjón hátíð með ættfólki frúarinnar. Bjarne er í stjóm íslend- ingafélagsins í Osló og af þeim sökum áttum við stutt rabb við hann o-g spurðumst fyrir um framkvæmdir á vegum fé- lagsins. Hann vann um skeið hjá Flugfélagi íslands og var þá eitt ár hér á landi og því mörgum kunnugur hér. — Félagið mun telja nálægt 300 manns, segir Bjarne. — í því em íslendingar og makar þeirra. Félagslífið hefir verið með allmiklum blóma og nú- verandi formaður Skarphéð- inn Árnason er mjög ötull í því starfi. Síðasta stórvirki fé- lagsins er að kaupa skólahús uppi við Norefjeld, en þar er eitt þekktasta skíðaland i Nor. egi og fjölsóttasta, enda að- eins tveggja stunda akstur þangað frá Osló. Fyrirhugað er að þetta verði félagsheim- ili þeirra, sem í íslendinga- félaginn eru, en auk þess er ætlunin að húsið standi fjár- hagslega undir sér. Fyririhug að er því að leigja húsið út við vægu verði og þá fyrst og fremst Íslendingum, sem vildu notfæra sér það í skyndi heimsókn í Noregi, einnig vseri þeta hús hentugt fyrir íþróttaflökka á ferðalagi um Noreg. Hús þetta er tveggja hæða og með stóru samkomu- herbergi á neðri hæð, en á efri hæð eru svefnskálar, bæði . stórir, þar sem tíu manns geta gist saman, og minni herbergi fyrir einstaklinga eða hjón. Niðri er svo að sjálfsögðu eld hús og anað er til þjónutu þarf fyrir þá er þarna dvelj- ast. Rétt hjá er verzlun og því handhægt til aðdrátta. — Nú um þessar mundir er- um við að ganga frá búsinu, segir Bjarne ennfremur, — það er lokið við allar viðgerð- ir á húsinu sjálfu og að mála það og snyrta. Hins vegar vant ar talsvert af tækjum til húss ins og nánast ö'll húsgögn. Við höfum verið svo heppnir að umsjón með verkinu hefir Smith-Meyer héraðsráðunaut- ur haft fyrir okkur og ann- ast það algerlega án endur- gjalds. Hefir hann því unnið fyrir okkur einkar óeigin- gjarnt starf. Ýmsir bafa lagt hönd að verki við þetta hús og hefir sjálfboðavinna verið mikil. Oslóborg gaf félaginu 15.000 norskar krónur til hús- kaupana og við höfum sótt um fjárstyrk hingað til lands. Þá hafa Norðmenn á íslandi verið mjög hjá'lplegir, bæði gefið hluti til hússins og pen- inga. Norsk fyrirtæki hafa einnig stutt okkur. t.d. gaf eitt og sama fyrirækið alla máln- ingu á húsið bæði úti og inni. Þannig hefir þetta unnist með góðra manna hjálp, en óneit- anlega vantar nokkuð enn til að gera húsið vistlegt og boð- legt gestum. Mér telst til að beint fjármagn, sem þegar hef ir verið lagt í búsið sé um 100 þús. norskar krónur, en þá er ótalin hin mikla sjálfboða- vinna og verðmætar gjafir. Það er raunar margt fleira en búnaður hússins sjálfs, sem okkur vantar, því við höfum í hyggju að gera fleira þarna. t.d. nýta stórt vatn, sem er skamrnt frá húsinu. Þar vant ar okkur bát og fleira, er til skemmtisiglinga þarf. Við von'um einnig að þetta hús geti orðið til eflingar nán ari samvinnu mil'li félags okk ar og Normandslaget í Reykja vík. Þá vonum við einnig að þetta hús ge'ti orðið til ánægju fyrir íslenzka námsmenn í Noregi. Þarna gætu þeir kom ið saman, en margir þeirra eru að sjálfsögðu einstæðing- ar. Við verðum þó en,n að herða nokkuð róðurinn og hjálp er þa'ksamlega þegin. í því sam- bandi vil ég geta þess að heim ilisfang formanns félagsins er Akersgaten 20, Osló I. En auk þess geta menn sjálfsagt snú- ið sér ti'l Normandslage't hér í Reykjavík ef þeir hefðu bug á að leggja máli þessu lið, sagði Bjarne að lokum. Bjarne Eidskrem. Vinstri sósialistar ■ Danmörku bjóða fram Bankamonnaskólunum slitið Kaupmannahöfn, 2. jan. NTB LJÓST varð í dag, ð hinn nýi stjórnmálaflokkur i Danmörku, Vinstri-Sósíalistar mundu bjóða fram í ölium kjördæmum við þingkosningarnar, sem fram eiga að fara fram 23. janúar nk. f dag hafði forystu flokksins borizt 21.000 undirskriftir stuðn Sæmdir heiðursmerkjum FORSETI íslands hefir í dag sæmt eftirfarandi menn heiðurs mekjum hinnar íslenzku fálka- orðu: 1. Herra Sigurbjörn Einarsson, biskup íslands. stjörnu stórridd- ara, fyrir félags'störf. 2. Bjarna Sæmundsson, lækni, Hafnarfirði, stórriddarakrossi, fyrir læknis- og félagsmálastörf. 3. Jónas Guðmundsson, fv. ráðuneytisstjóra, stórriddara- krossi, fyrir félagsmálastörf. 4. Björn Fr. Björnsson. sýslu- mann, Hvolsvelli, riddarakrossi, fyrir emibættisstörf. 5. Gísla Bergsveinsson. , út- gerðarmann, Neskaupstað, ridd- arakrossi, fyrir störf að útvegs- málum. 6. Helga Kristjánsson. bónda, Leirhöfn, riddarakrossi, fyrir búnaðar- og félagsstörf. 7. Séra Jón Guðnason, ridd- arakrossi, fyrir skóla- og ætt- fræðisförf. 8. Loga Einarsson, hæstarétt- ardómara, riddarakrossi, fyrir emibættisstörf. 9. Stefán G. Björnsson, fram- kvæmdastjóra, riddarakrossi, fyrir störf að tryggingamálum og störí í þágu skíðaiþróttarinn- ar. 10. Þór Sandlholt, skólastjóra, riddarakrossi, fyrir störf á sviði iðnfræðslu. Reykjavík, 1. janúar. 1968. Orðuritari. ingsmanna hans og er talið víst, að þegar allar flokksdeildirnar hafa skilað af sér til aðalstöðv- anna verði undirskriftir komnar upp í tæplega 26.000. Þá hefur flokkurinn safnað um 75.000 dönskum krónum í kosningasjóð sinn. Flokkurinn mun bjóða fram undir bókstafnum .,Y“. Skólauppsöign Bankamanna- skólans fór fram fimmtudaginn 14. desember 1967. Skólastjór- inn, Gunnar H. Blöndal, flutti skýrslu Um starfsemi skólans. Skólinn var stofnaður árið 1959 og er starfræktuir af öll- um bönkunum í Reykjavík, en starfsfólk sparisjóða á einnig að- gang að honum. f reglugerð um störf og launakjör starfsmanna bankanna, er sett var í septem- ber 1963. segir, að nýjum starfs- mönnum skal skylt að ljúka námskeiði við skólann. , Kennslan fór fram í hinu nýja húsnæði skólans að Lauga- vegi 103, og fór kennslan aðal- lega fram á morgnana milli kl. 9. og 12. Kennslutíminn er tæpir 3 mánuðir, og hefur kennslustunda fjöldi verið aukinn um fjórðung. Nemendur á þessu síðasta nám- skeiði skólans voru samtals 92. Aðalkennarar skólans eru allir bankastarfsmenn. Skrifstofustjór ar og starfsmannastjórar og deildarstjórar helztu deilda bankanna. Aðalnámsgreinar skól ans eru: Bankaskipulag og stjórn, réttindi og skyldur banka starfsmanna, innlán, gjaldkera- störf, reikningur, gjaldeyris- og innflutningsreglur, erlend banka viðskipti lánastarfsemi, trygg- ingar og frágangur skjala, víxl- ar, tékkar og ávlsanaviðskipti, skrift og meðferð og notkun reiknivéla. Eftirgreindir fjórir nemendur fengu verðlaun frá skólanum fyrir ágætan námsárangur: Valdimar Valdimarsson, Út- vegsbanka íslands, Ólína M. Sveinsdóttir, Austur- Framhald á bls. 15 millj. kr« HÚN BROSTI hlýlega, er hún kom til ðyranna. — Jú, jú, víst vll ég tala við ykkur, ger Ið þið svo vel og komíð inn. — VMS erum stödd i Stórholti 24, hjá Súsönnu Guðjúnsdóttnr. Hún fékk stóran vinning i- Happdrætti SÍBS, heila millj- ón. — Hvernig leggst þetta í yður, Súsanna? Hvaða áhrif hefur svona ævintyralegur at burður á mann, á sálarlífið? —- Það hefur engín áhrif á mig, að minnsta kosti ekki ennþá. Það er eins og ég trúi þessu ekki. Það á kannske eftir að koma, ég veit ekki. N — Hvað á nú að gera við alla peningana? — Það verða engin vand- ræði með það. Það eru aldrei vandræði með slikt, hjá þeim sem eiga fjölskyldur. Og ég veit alveg, hvað ég ætla að gera við þetta. — Þér ætlið kannske að fara út að ferðast? Eitthvert út í heim? — Ja, það veit maður aldrei, ef maður lifír nú til sumars. — Jú, ætli það hljóti nú ekki að vera, svoria kát og lif- leg kona? — Það getur verið. Ég hef alltaf verið haust og alltaf unnið, haft góða heilsu. Og ég þakka Guði fyrir það. Maður veit ekki, hvað það er gott að vera heilbrigður, þvi að þegar heilsan er farin, þá er - allt farið, og engan vegirin hægt að bjarga sér með neitt. — Ég á nú dóttur úti i Nor- egi og vildi gjarnan heim- ssekja hana. — Mig hefur Iangað til að fá tækifæri til þess. Mig lang ar til að taka aðra dóttur mína með. Við sjáum nú til. — Það er nú vonandi að þér njötið þessa alls, sem bezt. Framhald á bls. 31. Súsanna Guðjónsdóttir, sem vann stóra vinninginn hjá SÍBS. Þessi urklippa er ur Morgunblaðinu 10. des. sl. Fyrirsögnin segir allt sem segja þarf. Munið að endumýja timanlega. Dregið 10. janúar Happdrætti SÍBS 1968

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.